Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.10.2019, Side 6
HEIMURINN
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.10. 2019
Ég held að við getum öll verið sammálaum að frelsi til að hafa skoðanir ogtjá þær með opnum hætti er algjört
grundvallaratriði í samfélagi okkar. Sú til-
hugsun að fólk treysti sér ekki til að setja
fram skoðanir sínar er ákaflega dapurleg.
Stundum finnst mér að sameiginleg upp-
lifun ákveðins hóps fólks geri það samt sem
áður að verkum að fólk þori ekki að segja
hvað það er að hugsa. Það hefur kannski
ótal spurningar en þorir ekki að nefna þær
af ótta við að verða úthrópað. Skoðanir
þeirra séu rangar og heimskulegar og til-
gangslaust að ræða þær.
Þetta er náttúrlega ekki gott. Sennilega
ættum við að fá sem flestar spurningar upp
á borðið, ræða þær og ef til vill komast að
niðurstöðu. Það er enginn að segja að alltaf
þurfi að finna ákveðið svar eða komast að
ákveðinni niðurstöðu, en fólk fengi samt
tækifæri til að fá raunveruleg rök í umræðu.
Við forðumst þetta hinsvegar því oft varð-
ar þetta viðkvæm mál og óþægileg. Eins og
þegar gamli skólinn mætir þeim nýja án
þess að átta sig á því að kennslan hefur
breyst, það eru komnar nýjar bækur og ný
viðmið.
Ég gæti trúað því að þessi skortur á um-
ræðu sé það sem ber ábyrgð á þessum pól-
um sem við sjáum nú í viðhorfum fólks víða
um heim. Fólk leitar á staði þar sem skoð-
anir þess fá hljómgrunn og hættir að tala
við þá sem eru á öndverðum meiði. Það er
miklu þægilegra að hringja til dæmis í út-
varpsþátt þar sem stjórnandinn er sammála
þér en að reyna að tala við einhvern sem
augljóslega vill bara rökræða málið eða
nennir jafnvel ekki að hlusta á þig.
Annað sem fylgir þessu er að finna
alltaf lægsta samnefnarann. Þegar tekið
er dæmi um hina skoðunina þá er gjarnan
fundinn mesti vitleysingurinn. Oft sá
orðljótasti og hópur hans afgreiddur út frá
því að þetta sé nú bara „svona fólk“.
Kannski finnst einhverjum þetta bara
heppilegt kerfi. Þið með röngu skoðanirnar
getið bara verið þarna. Við sem höfum réttu
skoðanirnar, við ætlum að vera hér. En
þetta er að sjálfsögðu óheppilegt. Þegar
skoðunum er ekki mætt með mótrökum,
bara fallist á þær eins og sannleika, þá er
hætt við því að skoðanir breytist í stað-
reyndir í huga þess sem heldur þeim fram
og viðmælanda hans.
Þannig er til dæmis með einn uppáhalds-
hóp minn: Fólkið sem veit að jörðin er flöt.
Mögulega var tími þar sem það bara hélt
það eða jafnvel grunaði það. En svo líður
tíminn og enginn nennir að þrasa almenni-
lega við fólk
sem hefur látið
öll vísindi síð-
ustu alda fara
framhjá sér.
Þá gerist það
sem er yfirleitt
frekar óheppi-
legt – skoðanir
verða að stað-
reyndum. Gjarnan fylgir því þá líka að þeir
sem hafa aðrar skoðanir en hópurinn eru
bara hluti af samsæri sem vill þagga niður
rödd sannleikans.
Við sjáum þetta svo víða. Loftslagsbreyt-
ingar og hin meinta aðför að einkabílnum
eru dæmi um þetta. Við getum ekki afgreitt
þessa hópa sem þeir vilji einfaldlega annað-
hvort drepa allar sauðkindur landsins eða
banna reiðhjól. Það er hinsvegar algjörlega
ljóst að við verðum að gera eitthvað. Við
hljótum að vera sammála um það.
Lausnin felst kannski í því að tala saman.
Segja hvað okkur finnst, mæta skoðunum
annarra af þolinmæði og með rökum og
dæmum. Gera okkur grein fyrir því að við
erum ekki öll eins.
Mér finnst eins og ég hafi talað um þetta
áður. Það verður þá bara að hafa það. Við
verðum að fara að tala saman eins og fólk
en ekki öskra alltaf á þá sem eru ósammála
okkur. Ekki gefast upp. Þá endum við bara
sitt í hverju horninu með „staðreyndirnar“
okkar.
’Þegar skoðunum er ekki mættmeð mótrökum, bara fallist áþær eins og sannleika, þá er hættvið því að skoðanir breytist í stað-
reyndir í huga þess sem heldur
þeim fram og viðmælanda hans.
Á meðan ég man
Logi Bergmann
logi@mbl.is
Staðreyndafrelsi
Elsku Gísli Marteinn
minn. Í talnaspekinni
ertu á tölunni 4 í ár
en það er óhætt að
segja að árið sé búið að
einkennast af miklu álagi og ým-
iss konar uppgjöri. En þar sem þú
ert svo snarlega heppinn að vera í
fiskamerkinu þá á allt að fara að
ganga miklu betur í kringum þig
núna. Þú ferð inn í
tvöfalt betra tíma-
bil á næsta ári en
það tímabil hefst
strax upp úr 25.
desember í lok
þessa árs. Þetta ár
2019 byggir undir
þig svo sterkan grunn að hann
getur alls ekki brotnað.
Það verða mjög skemmtilegar
breytingar í starfi þínu á þessu
nýja tímabili en um er að ræða
frábæra viðbót við það sem þú ert
að gera nú þegar. Ég er búin að
fylgjast með þér frá upphafi og þú
ert einn slyngasti útvarpsmaður
sem ég hef hlustað á og mitt per-
sónulega álit á þér hefur vaxið
með hverju korterinu. Í raun
langaði mig mest að setja mynd af
þér við hliðina á sjálfum Búdda
eftir að þú hvattir alla þjóðina til
að leggjast á eitt og töfra lagið
okkar áfram í þeirri ágætu keppni
Júróvision með frábærum árangri.
Þú ákvaðst snemma fullyrði ég
að fara í pólitík en miðað við út-
reikninga mína sem eru kannski
ekki vísindalega sannaðir þá verð-
ur það ekki þín deild að keppa í.
Það er allt of leiðinlegt fyrir þig,
elsku kallinn minn.
Ef ég skoða vel og vandlega
hvenær þú ert fæddur þá kemur
talan 11 sterkt úr
þeim útreikningum
og það þýðir tveir
ásar – svo að þeg-
ar þú varst yngri
þá kemur í ljós að
þú varst mikill
keppnismaður en
að hafa tvo ása í tölunum sínum
getur annar ásinn átt það til að
ráðast á hinn. Sem þýðir að það
er alveg sama hvað þú gerðir vel
að þér fannst það aldrei nógu
gott. En eftir því sem þú eldist
svona dásamlega vel þá byrja
þessar tölur að vinna saman.
Leyfðu þér því að hlakka til kom-
andi verkefna og fagna árangri og
áföngum.
Upp úr fimmtugu hefst þinn
allra besti tími og mikil blessun
ríkir yfir fjölskyldu þinni.
Stjörnumerki Gísla Marteins
er Fiskur
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Tveir ásar sem
vinna saman
GÍSLI MARTEINN BALDURSSON
FJÖLMIÐLAMAÐUR
FÆDDUR 26. FEBRÚAR 1972
’ Þetta ár 2019byggir undir þigsvo sterkan grunnað hann getur alls
ekki brotnað.
Árlega vinnur Creditinfo ítarlega greiningu á rekstri íslenskra fyrirtækja og veitir
nú Framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu í tíunda sinn. Framúrskarandi
fyrirtæki hafa sterkari stöðu en önnur, eru traustir samstarfsaðilar og betur í stakk
búin að veita góða þjónustu til framtíðar.
Sjáðu hvaða fyrirtæki skara fram úr á creditinfo.is
FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI
HAFA STERKARI STÖÐU
Í KRAFTI