Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.10.2019, Qupperneq 10
Á LEIÐ TIL LÍFS
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.10. 2019
E
kkert land hefur tekið á móti jafn
mörgum sýrlenskum flóttamönnum
og Tyrkland, en yfir 3,6 milljónir
Sýrlendinga eru með tímabundna
vernd í Tyrklandi. Inni í þessari
tölu eru aðeins þeir sem eru skráðir inn í landið
og er talið fullvíst að nokkur hundruð þúsund
óskráðir Sýrlendingar séu í Tyrklandi.
Yfir hálf milljón Sýrlendinga er í borginni
Gaziantep, sem er skammt frá landamærunum,
aðeins í 97 km fjarlægð frá Aleppo. Íbúum
borgarinnar hefur fjölgað úr 1,5 milljónum í
rúmlega tvær milljónir á örfáum árum og eru
aðeins þeir Sýrlendingar sem eru formlega
skráðir með tímabundna vernd inni í þeirri tölu.
Fólk sem á það sameiginlegt að hafa þurft að
horfa á eftir einhverjum nákomnum, heimili og
nánast allri aleigunni á leið til borgarinnar, sem
er ein elsta borg í heimi. Stríðið í Sýrlandi hefur
geisað í rúmlega 3.100 daga og ekkert bendir til
þess að því sé að ljúka á næstunni.
Flestir þeirra Sýrlendinga sem blaðamaður
ræddi nýverið við í Gaziantep segjast ekki vita
hvað framtíðin ber í skauti sér, aðeins að þeir
séu þakklátir fyrir að vera á lífi í borg þar sem
þeim hefur að mestu verið vel tekið, ekki síst af
borgaryfirvöldum, sem líta á flóttafólkið sem
gesti sína. Þeir láta hverjum degi nægja sína
þjáningu en staða þeirra er misgóð. Sumir búa
við þokkalegar aðstæður, aðrir skelfilegar. Ekki
síst þeir sem eru skilríkjalausir og því án allra
réttinda.
Framtíð þeirra er í húfi og óttast margir yfir-
lýsingar forseta Tyrklands, Recep Tayyip Er-
dogans, um að Tyrkir séu reiðubúnir að setja af
stað áætlun um að flytja stærstan hluta Sýr-
lendinga yfir landamærin að nýju, á svæði sem
hann nefnir „öruggt svæði“ í norðausturhluta
Sýrlands.
Erdogan greindi frá þessu í kjölfar þátttöku í
allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í lok
september. Forsetinn telur rétt að milljónir
þeirra Sýrlendinga sem nú eru í Tyrklandi fari
aftur yfir landamærin inn á þessi svæði eins og
hann og forseti Bandaríkjanna, Donald Trump,
sammæltust um að væri það rétta í stöðunni á
fundi sínum í sumar.
Þeim tókst aftur á móti ekki að ná samkomu-
lagi um hversu stórt svæðið ætti að vera en að
sögn Erdogans er áætlað að það nái 30 km inn í
Sýrland og liggi á um 480 km af landamærum
Sýrlands við Tyrkland. Ástæðan fyrir því að
ekki hefur náðst samkomulag um stærð svæð-
isins er sú að Bandaríkjaher kemur að þjálfun
hersveita Kúrda á þessu svæði, en Tyrkir líta á
sýrlenskar hersveitir Kúrda sem hryðjuverka-
menn og ógn við þjóðaröryggi.
Fluttir hreppaflutningum að
landamærunum
Sérfræðingar efast um að gerlegt sé að flytja
allt að þrjár milljónir flóttamanna inn á svæðið
en samt sem áður hafa fjölmargir flóttamenn
þegar verið fluttir hreppaflutningum frá stórum
borgum eins og Istanbúl til landamærabæjarins
Kilis. Þar eru nú búsettir fleiri Sýrlendingar en
Tyrkir. Jafnframt er orðið erfiðara fyrir Sýr-
lendinga að skrá sig inn í landið en áður. Þeir
þurfa, eins og flóttamenn annars staðar frá, að
skrá sig inn í landið hjá opinberum aðilum, sem
getur tekið langan tíma. Áður önnuðust tyrk-
nesku hjálparsamtökin SGDD-ASAM (Associa-
tion for Solidarity with Asylum Seekers and
Migrants) skráninguna ásamt Flóttamanna-
stofnun Sameinuðu þjóðanna, UNHCR. Þetta
þýðir að fólk þarf að bíða mun lengur eftir
skráningu og um leið eftir aðstoð.
Allt frá því að stríðið braust út árið 2011 hafa
Sýrlendingar átt skjól í Tyrklandi. Ekki bara
vegna nálægðar og margra sameiginlegra hags-
muna og menningar heldur einnig vegna þess
að mikið fjármagn hefur farið þangað af hálfu
annarra ríkja, bandalaga og stofnana. Eins hafa
tyrknesk yfirvöld sett mikið fé til stuðnings Sýr-
lendingum í landinu. Eitt af þeim verkefnum
sem hafa gefið góða raun er rekstur SADA
Center í Gaziantep, en Íslendingar komu meðal
annars að stofnun miðstöðvarinnar þegar Íris
Björg Kristjánsdóttir, sem er sérfræðingur á
sviði mannúðarmála og fólksflutninga hjá UN
Women í Evrópu og Mið-Asíu, kom til starfa í
Tyrklandi í gegnum þróunarsamvinnuskrifstofu
utanríkisráðuneytisins og UN Women.
Sjaldan talað um flóð og ástand
Íris hefur starfað í Tyrklandi frá árinu 2017 en
áður var hún sérfræðingur hjá dómsmálaráðu-
neytinu í útlendingamálum. Áður hafði hún
starfað í mörg ár í málefnum tengdum innflytj-
endum, meðal annars hjá Alþjóðahúsinu, við
stefnumótun hjá Reykjavíkurborg, var for-
maður flóttamannanefndar og innflytjendaráðs
og hefur því yfirgripsmikla þekkingu á mál-
efnum flóttafólks og málefnum innflytjenda (e.
integration).
„Umræðan í Tyrklandi gagnvart flóttafólki er
örlítið ólík því sem ég er vön á Íslandi og í Evr-
ópu. Þrátt fyrir að Tyrkland hýsi fleiri flótta-
menn en nokkurt land, hvort sem er í dag eða í
sögulegu samhengi, heyri ég sjaldan orð sem
eru tíð í Evrópu eins og flóð og ástand og þar
frameftir götum. Í Tyrklandi hefur það verið
stefna stjórnvalda að tala um gesti og þeir skil-
greina Sýrlendinga ekki sem flóttamenn heldur
sem gesti með tímabundna vernd. Sem getur
auðvitað verið tvíbent – þið farið þegar stríðinu
lýkur – en er í raun miklu frekar – þið eruð gest-
ir okkar og við komum fram við ykkur af virð-
ingu eins og okkur er framast unnt,“ segir hún.
Spurð hvernig það hafi komið til að hún hafi
sest að í Tyrklandi fyrir tveimur árum segir Íris
að hún hafi sótt um stöðu sem var auglýst í jan-
úar 2017 hjá UN Women í gegnum íslenska ut-
anríkisráðuneytið. Staðan varð hennar og flutti
Íris til Ankara í maí 2017.
„Ég var ráðin í verkefni til eins árs sem fólst í
að byggja upp starf UN Women í Tyrklandi. Á
þessum tíma voru starfsmenn stofnunarinnar í
Ankara fimm talsins og komu aðallega að hefð-
bundnum verkefnum UN Women, það er að
vinna með yfirvöldum að því að auka þátttöku
kvenna í stjórnmálum og valdefla og sporna við
kynbundu ofbeldi. Ég var því í raun fyrsti
starfsmaðurinn sem var ráðinn til að byggja
upp aðkomu UN Women í Tyrklandi að mót-
töku, viðbúnaði og allri uppbyggingu vegna
flóttamanna sem komu frá Sýrlandi.
Fyrsta verkefni mitt var að koma að upp-
byggingu SADA Center í Gaziantep, en þegar
ég kom til starfa voru japönsk yfirvöld búin að
styrkja verkefnið myndarlega og það var búið
að móta útlínur þess sem stefnt var að með mið-
stöðinni; að bæta stöðu kvenna og stúlkna á
flótta í Tyrklandi,“ segir Íris.
Fyrsta verk hennar var að koma kvennasetr-
inu á laggirnar með ASAM-hjálparsamtökun-
um, sem tóku að sér rekstur miðstöðvarinnar.
ASAM-samtökin voru stofnuð árið 1995 í Ank-
ara sem sjálfstæð samtök sem hafa jafnrétti og
mannúð að leiðarljósi í stuðningi sínum við
flóttafólk og hælisleitendur í Tyrklandi. Sam-
tökin eru stærstu sjálfstætt starfandi mann-
úðarsamtökin í Tyrklandi.
Auk UN Women koma Alþjóðavinnumála-
stofnunin (International Labour Organization,
ILO) og héraðsstjórnin í Gaziantep að SADA-
miðstöðinni. Strax í upphafi var áherslan lögð á
stuðning við konur í viðkvæmri stöðu.
Að sögn Írisar var verkefni hennar fyrst og
fremst að byggja upp flóttamannasvið UN
Women í Tyrklandi, að valdefla, styrkja og
þjálfa konur. Þó svo að SADA-miðstöðin hafi
verið stærsta verkefnið fyrsta árið er hún að-
eins eitt af mörgum.
„Að stuðla að auknum kynjavinkli í öllu við-
bragði vegna Sýrlands í Tyrklandi var aðalverk-
efnið. Hlutverk okkar er að aðstoða opinbera
aðila og stofnanir Sameinuðu þjóðanna við að
vinna betur að öllu jafnrétti hvað varðar flótta-
fólk, en UN Women í Tyrklandi hafði hingað til
ekki verið mjög öflug rödd í mannúðarvið-
brögðum í tengslum við átökin í Sýrlandi. Þetta
er að breytast, ekki síst vegna SADA, því með
rekstri hennar fengnum við aukna þekkingu og
rödd gagnvart öðrum,“ segir Íris.
„Auk þess að koma miðstöðinni í gagnið í
Gaziantep stýrði ég rannsókn sem unnin var í
sjö borgum Tyrklands á stöðu sýrlenskra
kvenna og stúlkna í Tyrklandi. Mat á þörf á að-
stoð og stuðningi við konur er gríðarlega mikil-
vægur liður í allri upplýsingasöfnun um stöðu
kvenna svo hægt sé að byggja viðbragðsáætl-
anir í samræmi við þarfir kvenna sem eru á
flótta. Í þriðja lagi hef ég verið fulltrúi UN
Women á samræmingarvettvangi UN við gerð
samræmdra áætlana, eða það sem snýr að við-
búnaði í Tyrklandi. Helsta verkefni mitt hefur
verið að styrkja kynjavinkilinn, sem hefur þann
ávinning að draga úr líkum á að einstaklingar
eða hópar á jaðrinum eða í viðkvæmri stöðu
verði út undan þegar viðbrögð eru hönnuð.
Þessar áætlanir (3RP) eru mikilvægur vett-
vangur á vegum stofnana SÞ í Tyrklandi, Líb-
anon og Jórdaníu í því að tryggja samræmingu
og yfirsýn yfir stöðuna er lýtur að flótta frá Sýr-
landi og tímabundinni vernd, en þessi ríki hafa
tekið við flestum þeim Sýrlendingum sem hafa
neyðst til þess að flýja land sitt,“ segir Íris.
Hamfarir bitna meira á konum
en körlum
Áætlanirnar byggja á sama grunni og mann-
úðarstefna Sameinuðu þjóðanna, segir Íris,
einkum sé horft til grunnþarfa, verndar, mennt-
unar og heilsu flóttafólks. Sem fulltrúi UN Wo-
men er hlutverk Írisar að tryggja að tekið sé til-
lit til aðstæðna kvenna. Eins og Íris bendir á er
það almennt viðurkennt og óumdeilanlegt að
allar slíkar aðstæður, hvar sem það er í heim-
inum, hvort sem er vegna náttúruhamfara
stríðs og hvaða hamfara sem er, koma verr nið-
ur á konum og stúlkum en körlum og drengjum.
„Hér skiptir engu hvort við erum að tala um
hamfarir af manna völdum eða völdum náttúr-
Íris Björk Kristjáns-
dóttir starfar hjá UN
Women í Tyrklandi.
Morgunblaðið/Gúna
Gestir fremur en flóttafólk
Íslensk stjórnvöld tóku ásamt UN Women og fleirum þátt í stofnun kvennaseturs í Tyrklandi skammt frá landamærum Sýrlands.
Þar er unnið mikilvægt starf í að bæta stöðu kvenna og stúlkna á flótta, ekki síst þeirra sem eru í viðkvæmri stöðu.
Guðrún Hálfdánardóttir guna@mbl.is