Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.10.2019, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.10.2019, Blaðsíða 10
Á LEIÐ TIL LÍFS 10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.10. 2019 E kkert land hefur tekið á móti jafn mörgum sýrlenskum flóttamönnum og Tyrkland, en yfir 3,6 milljónir Sýrlendinga eru með tímabundna vernd í Tyrklandi. Inni í þessari tölu eru aðeins þeir sem eru skráðir inn í landið og er talið fullvíst að nokkur hundruð þúsund óskráðir Sýrlendingar séu í Tyrklandi. Yfir hálf milljón Sýrlendinga er í borginni Gaziantep, sem er skammt frá landamærunum, aðeins í 97 km fjarlægð frá Aleppo. Íbúum borgarinnar hefur fjölgað úr 1,5 milljónum í rúmlega tvær milljónir á örfáum árum og eru aðeins þeir Sýrlendingar sem eru formlega skráðir með tímabundna vernd inni í þeirri tölu. Fólk sem á það sameiginlegt að hafa þurft að horfa á eftir einhverjum nákomnum, heimili og nánast allri aleigunni á leið til borgarinnar, sem er ein elsta borg í heimi. Stríðið í Sýrlandi hefur geisað í rúmlega 3.100 daga og ekkert bendir til þess að því sé að ljúka á næstunni. Flestir þeirra Sýrlendinga sem blaðamaður ræddi nýverið við í Gaziantep segjast ekki vita hvað framtíðin ber í skauti sér, aðeins að þeir séu þakklátir fyrir að vera á lífi í borg þar sem þeim hefur að mestu verið vel tekið, ekki síst af borgaryfirvöldum, sem líta á flóttafólkið sem gesti sína. Þeir láta hverjum degi nægja sína þjáningu en staða þeirra er misgóð. Sumir búa við þokkalegar aðstæður, aðrir skelfilegar. Ekki síst þeir sem eru skilríkjalausir og því án allra réttinda. Framtíð þeirra er í húfi og óttast margir yfir- lýsingar forseta Tyrklands, Recep Tayyip Er- dogans, um að Tyrkir séu reiðubúnir að setja af stað áætlun um að flytja stærstan hluta Sýr- lendinga yfir landamærin að nýju, á svæði sem hann nefnir „öruggt svæði“ í norðausturhluta Sýrlands. Erdogan greindi frá þessu í kjölfar þátttöku í allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í lok september. Forsetinn telur rétt að milljónir þeirra Sýrlendinga sem nú eru í Tyrklandi fari aftur yfir landamærin inn á þessi svæði eins og hann og forseti Bandaríkjanna, Donald Trump, sammæltust um að væri það rétta í stöðunni á fundi sínum í sumar. Þeim tókst aftur á móti ekki að ná samkomu- lagi um hversu stórt svæðið ætti að vera en að sögn Erdogans er áætlað að það nái 30 km inn í Sýrland og liggi á um 480 km af landamærum Sýrlands við Tyrkland. Ástæðan fyrir því að ekki hefur náðst samkomulag um stærð svæð- isins er sú að Bandaríkjaher kemur að þjálfun hersveita Kúrda á þessu svæði, en Tyrkir líta á sýrlenskar hersveitir Kúrda sem hryðjuverka- menn og ógn við þjóðaröryggi. Fluttir hreppaflutningum að landamærunum Sérfræðingar efast um að gerlegt sé að flytja allt að þrjár milljónir flóttamanna inn á svæðið en samt sem áður hafa fjölmargir flóttamenn þegar verið fluttir hreppaflutningum frá stórum borgum eins og Istanbúl til landamærabæjarins Kilis. Þar eru nú búsettir fleiri Sýrlendingar en Tyrkir. Jafnframt er orðið erfiðara fyrir Sýr- lendinga að skrá sig inn í landið en áður. Þeir þurfa, eins og flóttamenn annars staðar frá, að skrá sig inn í landið hjá opinberum aðilum, sem getur tekið langan tíma. Áður önnuðust tyrk- nesku hjálparsamtökin SGDD-ASAM (Associa- tion for Solidarity with Asylum Seekers and Migrants) skráninguna ásamt Flóttamanna- stofnun Sameinuðu þjóðanna, UNHCR. Þetta þýðir að fólk þarf að bíða mun lengur eftir skráningu og um leið eftir aðstoð. Allt frá því að stríðið braust út árið 2011 hafa Sýrlendingar átt skjól í Tyrklandi. Ekki bara vegna nálægðar og margra sameiginlegra hags- muna og menningar heldur einnig vegna þess að mikið fjármagn hefur farið þangað af hálfu annarra ríkja, bandalaga og stofnana. Eins hafa tyrknesk yfirvöld sett mikið fé til stuðnings Sýr- lendingum í landinu. Eitt af þeim verkefnum sem hafa gefið góða raun er rekstur SADA Center í Gaziantep, en Íslendingar komu meðal annars að stofnun miðstöðvarinnar þegar Íris Björg Kristjánsdóttir, sem er sérfræðingur á sviði mannúðarmála og fólksflutninga hjá UN Women í Evrópu og Mið-Asíu, kom til starfa í Tyrklandi í gegnum þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytisins og UN Women. Sjaldan talað um flóð og ástand Íris hefur starfað í Tyrklandi frá árinu 2017 en áður var hún sérfræðingur hjá dómsmálaráðu- neytinu í útlendingamálum. Áður hafði hún starfað í mörg ár í málefnum tengdum innflytj- endum, meðal annars hjá Alþjóðahúsinu, við stefnumótun hjá Reykjavíkurborg, var for- maður flóttamannanefndar og innflytjendaráðs og hefur því yfirgripsmikla þekkingu á mál- efnum flóttafólks og málefnum innflytjenda (e. integration). „Umræðan í Tyrklandi gagnvart flóttafólki er örlítið ólík því sem ég er vön á Íslandi og í Evr- ópu. Þrátt fyrir að Tyrkland hýsi fleiri flótta- menn en nokkurt land, hvort sem er í dag eða í sögulegu samhengi, heyri ég sjaldan orð sem eru tíð í Evrópu eins og flóð og ástand og þar frameftir götum. Í Tyrklandi hefur það verið stefna stjórnvalda að tala um gesti og þeir skil- greina Sýrlendinga ekki sem flóttamenn heldur sem gesti með tímabundna vernd. Sem getur auðvitað verið tvíbent – þið farið þegar stríðinu lýkur – en er í raun miklu frekar – þið eruð gest- ir okkar og við komum fram við ykkur af virð- ingu eins og okkur er framast unnt,“ segir hún. Spurð hvernig það hafi komið til að hún hafi sest að í Tyrklandi fyrir tveimur árum segir Íris að hún hafi sótt um stöðu sem var auglýst í jan- úar 2017 hjá UN Women í gegnum íslenska ut- anríkisráðuneytið. Staðan varð hennar og flutti Íris til Ankara í maí 2017. „Ég var ráðin í verkefni til eins árs sem fólst í að byggja upp starf UN Women í Tyrklandi. Á þessum tíma voru starfsmenn stofnunarinnar í Ankara fimm talsins og komu aðallega að hefð- bundnum verkefnum UN Women, það er að vinna með yfirvöldum að því að auka þátttöku kvenna í stjórnmálum og valdefla og sporna við kynbundu ofbeldi. Ég var því í raun fyrsti starfsmaðurinn sem var ráðinn til að byggja upp aðkomu UN Women í Tyrklandi að mót- töku, viðbúnaði og allri uppbyggingu vegna flóttamanna sem komu frá Sýrlandi. Fyrsta verkefni mitt var að koma að upp- byggingu SADA Center í Gaziantep, en þegar ég kom til starfa voru japönsk yfirvöld búin að styrkja verkefnið myndarlega og það var búið að móta útlínur þess sem stefnt var að með mið- stöðinni; að bæta stöðu kvenna og stúlkna á flótta í Tyrklandi,“ segir Íris. Fyrsta verk hennar var að koma kvennasetr- inu á laggirnar með ASAM-hjálparsamtökun- um, sem tóku að sér rekstur miðstöðvarinnar. ASAM-samtökin voru stofnuð árið 1995 í Ank- ara sem sjálfstæð samtök sem hafa jafnrétti og mannúð að leiðarljósi í stuðningi sínum við flóttafólk og hælisleitendur í Tyrklandi. Sam- tökin eru stærstu sjálfstætt starfandi mann- úðarsamtökin í Tyrklandi. Auk UN Women koma Alþjóðavinnumála- stofnunin (International Labour Organization, ILO) og héraðsstjórnin í Gaziantep að SADA- miðstöðinni. Strax í upphafi var áherslan lögð á stuðning við konur í viðkvæmri stöðu. Að sögn Írisar var verkefni hennar fyrst og fremst að byggja upp flóttamannasvið UN Women í Tyrklandi, að valdefla, styrkja og þjálfa konur. Þó svo að SADA-miðstöðin hafi verið stærsta verkefnið fyrsta árið er hún að- eins eitt af mörgum. „Að stuðla að auknum kynjavinkli í öllu við- bragði vegna Sýrlands í Tyrklandi var aðalverk- efnið. Hlutverk okkar er að aðstoða opinbera aðila og stofnanir Sameinuðu þjóðanna við að vinna betur að öllu jafnrétti hvað varðar flótta- fólk, en UN Women í Tyrklandi hafði hingað til ekki verið mjög öflug rödd í mannúðarvið- brögðum í tengslum við átökin í Sýrlandi. Þetta er að breytast, ekki síst vegna SADA, því með rekstri hennar fengnum við aukna þekkingu og rödd gagnvart öðrum,“ segir Íris. „Auk þess að koma miðstöðinni í gagnið í Gaziantep stýrði ég rannsókn sem unnin var í sjö borgum Tyrklands á stöðu sýrlenskra kvenna og stúlkna í Tyrklandi. Mat á þörf á að- stoð og stuðningi við konur er gríðarlega mikil- vægur liður í allri upplýsingasöfnun um stöðu kvenna svo hægt sé að byggja viðbragðsáætl- anir í samræmi við þarfir kvenna sem eru á flótta. Í þriðja lagi hef ég verið fulltrúi UN Women á samræmingarvettvangi UN við gerð samræmdra áætlana, eða það sem snýr að við- búnaði í Tyrklandi. Helsta verkefni mitt hefur verið að styrkja kynjavinkilinn, sem hefur þann ávinning að draga úr líkum á að einstaklingar eða hópar á jaðrinum eða í viðkvæmri stöðu verði út undan þegar viðbrögð eru hönnuð. Þessar áætlanir (3RP) eru mikilvægur vett- vangur á vegum stofnana SÞ í Tyrklandi, Líb- anon og Jórdaníu í því að tryggja samræmingu og yfirsýn yfir stöðuna er lýtur að flótta frá Sýr- landi og tímabundinni vernd, en þessi ríki hafa tekið við flestum þeim Sýrlendingum sem hafa neyðst til þess að flýja land sitt,“ segir Íris. Hamfarir bitna meira á konum en körlum Áætlanirnar byggja á sama grunni og mann- úðarstefna Sameinuðu þjóðanna, segir Íris, einkum sé horft til grunnþarfa, verndar, mennt- unar og heilsu flóttafólks. Sem fulltrúi UN Wo- men er hlutverk Írisar að tryggja að tekið sé til- lit til aðstæðna kvenna. Eins og Íris bendir á er það almennt viðurkennt og óumdeilanlegt að allar slíkar aðstæður, hvar sem það er í heim- inum, hvort sem er vegna náttúruhamfara stríðs og hvaða hamfara sem er, koma verr nið- ur á konum og stúlkum en körlum og drengjum. „Hér skiptir engu hvort við erum að tala um hamfarir af manna völdum eða völdum náttúr- Íris Björk Kristjáns- dóttir starfar hjá UN Women í Tyrklandi. Morgunblaðið/Gúna Gestir fremur en flóttafólk Íslensk stjórnvöld tóku ásamt UN Women og fleirum þátt í stofnun kvennaseturs í Tyrklandi skammt frá landamærum Sýrlands. Þar er unnið mikilvægt starf í að bæta stöðu kvenna og stúlkna á flótta, ekki síst þeirra sem eru í viðkvæmri stöðu. Guðrún Hálfdánardóttir guna@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.