Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.10.2019, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.10.2019, Blaðsíða 29
móti þessari sem er alltaf að leita, sú dínamík. Það er ógeðslega skemmti- legt að eiga svona náið vinasamband þar sem við erum á svona ólíkum stað. Vandamálin verða svo skökk.“ Þrátt fyrir ólíkar leiðir í lífinu hefur þó aldrei slitnað upp úr sambandi vin- kvennanna, svipað og hjá nöfnum þeirra sem við sjáum á skjánum. Ranka við sér á frumsýningu Vala og Júlíana eru sammála um það að tækifærð að sjá hugmyndina sína verða að veruleika vera það skemmtilegasta við ferlið. „Að fá einhverja hugmynd sem er kannski bara pínulítil og kannski bara léleg og svo allt í einu ranka við sér á frumsýningu og maður spyr sig bara hvernig í andskotanum kom- umst við hingað?“ útskýrir Vala. „Og að sjá hvernig eitthvert lítið samtal getur allt í einu orðið að verkefni sem 50 manns bera ábyrgð á.“ Þær segja báðar tilfinninguna afar súrrealíska. „Við höfum líka hugsað (í þessum að- stæðum) bara hvenær ætlar fólk að fatta að við vitum ekkert hvað við er- um að gera, hvenær kemst upp um mann,“ segir Vala og hlær. Þær segja þó að á sama tíma geti reynst erfitt að sleppa tökunum og treysta fólkinu í kringum sig í ferlinu. Það geti vissulega tekið á að vera bú- in að skrifa senu í marga mánuði, svo taki kannski bara hálftíma að leika hana og þá sé það bara búið. „Við áttum það til að keyra frá setti og leggja bílnum og gráta,“ segir Júlíana. Ómögulegt að gera upp á milli Aðspurðar hvort þær eigi uppáhalds karakter úr þáttunum geta þær hvorugar gert upp á milli enda þyki þeim svo vænt um alla karakterana. Dýnamíkin á milli karakteranna sé svo ólík og skemmtileg að það sé eig- inlega ekki hægt að velja eitthvað eitt. Þá segjast þær jafnframt oft hafa hlegið mikið við tökur, og eitt sinn þurfti að fresta tökum um klukku- tíma vegna óstöðvandi hláturskasts. „Við fengum líka smá tiltal,“ rifjar Júlíana upp og þær hlæja báðar. „Þetta var örugglega skemmtileg- asti dagurinn í báðum seríunum þegar við hlógum svo mikið að við fegnum tiltal. Svo var ég í svo miklu uppnámi að hafa klúðrað þessu að ég fór að gráta, ég fór að gráta þeg- ar ég var tilbúin fyrir næstu senu, þá var ég klædd í uppblásinn typpa- búning. Þannig að ég stóð miður mín í upplásnum typpabúningi há- grátandi,“ útskýrir Vala Kristín. „Þarna hugsaði ég einmitt, þetta er nákvæmlega svona atriði sem ætti einmitt heima í þættinum,“ segir Júlína og hlær. Aðspurðar að lokum hvort við megum búast við fleiri seríum svara Vala: „Jú, við erum byrjuð að skrifa þriðju seríu. Ef það gengur vel þá sjáum við bara hvort það verði tekið upp og við vonum það besta.“ Önnur þáttaröð venjulegs fólks kemur inn á Sjónvarp Símans Premium 16. október næstkomandi. Morgunblaðið/Eggert Vala Kristín og Júlíana Sara segja þriðju þáttaröðina í bígerð. 6.10. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 TAKTU ÍSINNMEÐ TRUKKI FRÆGIR Mathew Knowles, faðir söng- kvennanna Beyoncé og Solange Knowles, greindi frá því í viðtali þættinum Good Morn- ing America að búið væri að greina hann með brjóstakrabbamein. Brjóstakrabbamein hjá körlum er heldur sjaldgæft og birtist yfirleitt hjá körlum sem eru komnir yfir sextugsaldurinn. Knowles, sem er 67 ára gamall, er þekktur fyrir að hafa sett saman hljómsveitina Destiny’s Child sem gerði Beyoncé að stjörnu. Hann var einnig umboðsmaður dóttur sinnar til ársins 2011. Faðir Beyoncé með brjóstakrabbamein Brjóstakrabbamein er sjaldgæft hjá körlum. BÓKSALA Í SEPTEMBER Tekið saman af Félagi íslenskra bókaútgefenda 1 Verstu börn í heimi 3 David Walliams 2 Stórhættulega stafrófið Ævar Þór Benediktsson 3 Sapiens Yuval Noah Harari 4 Þú og ég, alltaf Jill Mansell 5 Sú sem varð að deyja Stieg Larsson / David Lagercrantz 6 Húsið okkar brennur Greta Thunberg o.fl. 7 Svört perla Liza Marklund 8 Keto Gunnar Már Sigfússon 9 Skjáskot Bergur Ebbi Benediktsson 10 Til í að vera til Þórarinn Eldjárn 11 Eins og fólk er flest Sally Rooney 12 Vélar eins og ég Ian McEwan 13 Múmínsnáðinn og gullna laufið Richard Dungworth 14 Stökkbrigði Hanna Ólafsdóttir 15 Blóðbönd Roslund & Thunberg Allar bækur Velkomin er ný ljóðabók eftir Bubba Morthens þar sem skáldið yrkir um viðmót samfélagsins gagnvart flóttafólki. Mál og menning gefur út. Barnsránið er ný bók eftir Guðrúnu Guðlaugsdóttur sem fjallar um blaða- manninn Ölmu Jónsdóttur sem les- endur ættu að þekkja úr fyrri bókum Guðrúnar. Í bókinni tekst Alma á við mál sem varðar eigin fjölskyldu þegar barni er rænt. Barnsránið er bók sem er skifuð úr samtímanum á Íslandi. GPA gefur út. ÁHUGAVERÐAR BÆKUR Ég er að lesa A Storm of Swords sem er þriðja bókin í bókaflokkn- um A Song of Ice and Fire sem er bókaflokkur sem Game of Thrones-þættirnir eru byggðir á. Sagan gerist í ævintýra- heimi á miðöldum. Drekar eru að vakna til lífsins og það eru alls konar galdrar í gangi. Ég er rosalega mikill „sökker“ fyrir miðaldasögum og mér finnst mjög áhugavert að lesa um hvernig mat fólk var að borða, stéttaskiptingu og slíkt. Í bókinni fylgir maður nokkrum persónum í gegnum veröld þeirra. Remarkable plants that shape our world er í raun- inni fræðibók þar sem farið er létt í sögu ákveðinna plantna og ávaxta sem hafa verið mik- ilvægar í gegnum tíðina hjá mönnum, bæði hvað varðar lækningar og eitur. Þarna er farið í gegnum sögu plantnanna gegnum mann- kynssöguna. Í bókinni er einnig fjallað um goðsagnir tengdar plöntunum, hvað þær tákna og fleira. Þetta er í rauninni skemmt- anagildi og fræði og svo eru rosa- lega fallegar myndir af plönt- unum, gamaldags teikningar sem veita mér innblástur í vinnunni minni. Sögu rótarbarna keypti ég fyrir tveimur vikum því ég rakst á hana í vefverslun og fékk svo mikla nostalgíu að sjá hana því hún hafði verið til á leikskól- anum mínum þeg- ar ég var lítil. Hún er ofboðslega fal- leg og fjallar um rótarbörnin og hvernig móðir jörð vekur þau þegar vorar og hvernig þau taka að sér ýmis verk- efni fyrir vorið. Þetta eru ofboðs- lega fallegar teikningar og boð- skapur um náttúruna. Þessa bók les ég bæði sjálf og fyrir börnin mín en ég hef safnað fallegum barnabókum í mörg ár. AUÐUR ÝR ELÍSABETARDÓTTIR ER AÐ LESA Auður Ýr El- ísabetardóttir er mynd- skreytir og húðflúrari hjá Íslenzku Húð- flúrstofunni. Ævintýri og fallegar teikningar

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.