Fréttablaðið - 18.02.2020, Síða 10

Fréttablaðið - 18.02.2020, Síða 10
FÓTBOLTI Frá því að KSÍ fór að greina sérstaklega rekstrartekjur og -gjöld Laugardalsvallar árið 2014 í ársskýrslum sínum hefur 287 millj- óna króna tap verið af rekstri vall- arins. Tapið hefur aldrei verið jafn mikið og á síðasta ári en í ársskýrslu KSÍ sem birtist um helgina má sjá að tapið af vellinum var 89,4 milljónir króna. Gert er ráð fyrir í rekstrar- áætlun KSÍ fyrir árið 2020 að tekjur af vellinum verði 42,5 milljónir en kostnaður verði alls 159 milljónir. Þar af muni umspilið við Rúmena kosta 64 milljónir króna. Það er því gert ráð fyrir 116,5 milljóna tap- rekstri á vellinum. Í greinargerð með ársreikn- ingnum kemur fram að rekstrar- kostnaður vallarins hafi verið ríf- lega 12 milljónum hærri en áætlað var. Helstu ástæður eru kostnaður vegna starfsloka sem hafi verið meiri en áætlun gerði ráð fyrir, rekstur mannvirkja var um átta milljónum hærri vegna aukins við- halds vallarins og mannvirkja og þá var ræsting, hreinsun vallar og umhverfis hans yfir áætlun. Kostnaður við öryggisgæslu var um tveimur milljónum yfir áætlun vegna aukinna krafna og aðstæðna á Laugardalsvelli sem gera öryggis- gæslu erfiða. Að auki kölluðu sér- stakar aðstæður á einstökum leikj- um á aukinn viðbúnað. Á liðnu vori var ljóst í hvað stefndi með rekstur Laugardalsvallar. Stjórn KSÍ samþykkti að senda bréf á Reykjavíkurborg í júní vegna aukins kostnaðar við rekstur vallarins og fór fram á endurskoðun á samningi vegna forsendubrests í samræmi við ákvæði hans. Samningurinn gildir út árið 2025. Þetta erindi er enn í ferli og vinnslu hjá Reykjavíkurborg, segir enn fremur í greinargerðinni. Tekjurnar voru einnig 15 milljónum minni. Munar þar mest um 11 millj- ónir vegna leikja Fram, en Framarar tóku þá ákvörðun um vorið að spila ekki á vellinum. Þá er ekki gert ráð fyrir tónleikahaldi og leigu hús- næðis til skólahalds og munar þar um 48 milljónir. Í pistli Guðna Bergssonar, for- manns KSÍ, í ársskýrslu sam- bandsins segir hann að kostnaður hafi aukist og reksturinn þyngst. „Völlurinn er rekinn með miklu tapi í dag og það mun breytast með nýjum leikvangi. Reykjavíkurborg gæti því lagt til nokkurn veginn það fjármagn, uppsafnað, sem hún þarf að greiða til vallarins á næstu ára- tugum og byggt frekar nýjan völl með aðkomu ríkisins.“ Nýr Laugardalsvöllur hefur lengi verið á teikniborðinu en lítið hefur gerst síðan þáverandi formaður KSÍ, Geir Þorsteinsson, sagði að Laugardalsvöllur væri orðinn barn síns tíma fyrir ansi mörgum árum. Núverandi formaður segir í pistli sínum um fyrirhugaðar framkvæmdir á Laugardalsvelli að útboðsferli um frekari þarfa- greiningu og áætlanagerð fyrir endurbyggingu Laugardalsvallar sé í gangi. „Þetta ferli hefur tekið of langan tíma að mínu viti en þetta er vissu- lega stór ákvörðun og framkvæmd ef af verður. Ég er bjartsýnn á að jákvæð ákvörðun í þessu máli muni liggja fyrir síðar á þessu ári.“ Í skýrslu KPMG sem kynnt var í borgarráði Reykjavíkurborgar þann 10. apríl 2018 kemur fram að nýr völlur eigi að rísa vorið 2021. Í skýrslu mannvirkjanefndar KSÍ segir að málefni nýs Laugar- dalsvallar séu enn í undirbúningi á vegum undirbúningsfélags sem KSÍ er aðili að ásamt Reykjavíkurborg og ríkisvaldinu. „Á næstu vikum og mánuðum mun vera að vænta frekari fregna úr þeirri vinnu sem þar er í gangi. Guðni Bergsson formaður KSÍ er fulltrúi sambandsins í því undir- búningsfélagi.“ benediktboas@frettabladid.is Aldrei meira tap af vellinum en í fyrra Tap af rekstri Laugardalsvallar hefur aldrei verið jafn mikið á ári frá því KSÍ fór að greina frá tekjum og gjöldum hans. Tapið hefur numið 287 milljónum síðan 2013. Nýr völlur myndi snúa þróuninni við samkvæmt formanni KSÍ. Ákvörðun um endurnýjun þjóðarleikvangs er ekki unnt að taka nema ítarlegar upplýsingar liggi fyrir um kostnað, hönnun, umhverfi og skipulag. Stofnkostnaður kemur frá opinberum aðilum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Aðeins tveir kostir í boði Í fundargerð KSÍ frá því í júní í fyrra kemur fram að undirbún- ingsfélag um framtíð Laugar- dalsvallar hafi hist í fyrsta sinn. Félagið var stofnað í kjölfar vinnu starfshóps sem ríkið og Reykja- víkurborg með KSÍ skipaði um uppbyggingu Laugardalsvallar. Starfshópurinn kynnti tvo kosti þegar kemur að nýjum Laugardalsvelli. Annars vegar opinn knattspyrnuvöll sem rúm- aði 17.500 manns í sæti í stúkum umhverfis völlinn og hins vegar fjölnotaleikvang með opnan- legu þaki og 20.000 sætum. Sá völlur myndi einnig gera aðstöðu til viðburðahalds á Íslandi betri og þar af leiðandi gefa færi á auknum tekjum vegna annarra viðburða sem ella gætu ekki farið fram á Íslandi. 2013 66 m.kr 2014 33 m.kr. 2015 26 m.kr. 2016 14,8 m.kr. 2017 16,2 m.kr. 2018 41,7 m.kr. 2019 89,4 m.kr. ✿ Tap á Laugardalsvelli FÓTBOLTI „Við erum aðeins búin að þreifa fyrir okkur í þessu máli en í sjálfu sér erum við bara að bíða. Auðvitað gerum við allt til þess að leikurinn fari fram hér á Laugar- dalsvelli og erum að vinna eftir því en við vitum líka að hlutirnir geta breyst snögglega. Möguleikinn er enn til staðar, að við þurfum að fara með leikinn utan á síðustu stundu, ef það kemur í ljós að veðrið fer að versna og að það gengur hríð yfir landið vikuna í kringum leikinn,“ segir Guðni Bergsson, formaður KSÍ, aðspurður hvort UEFA sé búið að setja niður lokadagsetningu um að völlurinn verði leikhæfur fyrir leik Íslands og Rúmeníu. Knattspyrnusambandið gæti því þurft að hafa hraðar hendur ef veðrið fer illa með Laugardalsvöll á næstu vikum. Að sögn Guðna er búið að ræða mögulega leikstaði. „Við höfum velt fyrir okkur bæði Danmörku, Svíþjóð, jafnvel Þýska- landi og Englandi, og gert ákveðna forkönnun á því.“ Þrátt fyrir glím- una við íslenska veðráttu er Guðni bjartsýnn á að leikurinn fari fram á Íslandi og er afar ánægður með starfið sem vallarstarfsmenn hafa unnið til þessa. „Það er gríðarlegur undirbún- ingur að baki og verið að vinna gott verk til að gera hvað sem í boði stendur til að leikurinn fari fram hér á okkar heimavelli. Auðvitað er ærinn tilkostnaður sem fylgir þessu en fyrst og fremst er það gott vinnu- framlag og mikil fagmennska sem mun vonandi skila vellinum í gott stand fyrir leikinn gegn Rúmenum.“ Guðni segir að kostnaðaráætlun- in við að undirbúa völlinn geri ráð fyrir að þessar framkvæmdir kosti KSÍ 64 milljónir íslenskra króna. „Þetta er því miður allt of dýrt. Það er peningur sem við værum til í að setja í eitthvað annað en þetta er það sem til þarf til að takast á við þessa vetrarleiki,“ segir Guðni og heldur áfram: „Við erum komin á þann stað að við þurfum að fá nýjan völl ef við ætlum að vera áfram samkeppnis- hæf í fremstu röð. Þetta er fjár- festing sem verður að fara í og það er kominn tími á það, 63 árum eftir að völlurinn var vígður.“ – kpt Fjögur lönd koma til greina Við höfum velt fyrir okkur bæði Dan- mörku, Svíþjóð, jafnvel Þýskalandi og Englandi, og gert ákveðna forkönnun á því. Guðni Bergsson, formaður KSÍ 1 8 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R10 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.