Morgunblaðið - 05.11.2019, Page 6

Morgunblaðið - 05.11.2019, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 2019 Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Eitt hundrað og sjötíu dagar eru nú liðnir frá því að framkvæmdir hóf- ust við endurbætur á Hverfisgötu og hluta Ingólfsstrætis. Verkið hefur tafist mikið og hefur ónæði af framkvæmdunum og skortur á upplýsingagjöf komið kaupmönnum og öðrum hags- munaaðilum á svæðinu illa. Eins og sjá má á tímalínu atburð- anna hér að ofan átti síðasta þætti verksins að ljúka fyrir menningar- nótt í sumar samkvæmt fyrstu áætl- unum. Vinna hófst viku síðar en upphaflega var stefnt að og því var talað um verklok í lok ágústmán- aðar. Um miðjan ágúst var end- anlega orðið ljóst að þau áform stæðust ekki og tilkynnti borgin þá að verklok frestuðust fram í miðjan september. Síðan þá hefur verklok- um ítrekað verið frestað. Nú er stefnt að því að þau verði um miðjan nóvember, tæpum þremur mán- uðum eftir að verkinu átti upp- haflega að ljúka. Fari svo að fram- kvæmdum ljúki 15. nóvember verða liðnir nákvæmlega hundrað og átta- tíu dagar frá því að hafist var handa á svæðinu. Vert er að geta þess að enn á eftir að ráðast í endurbætur á neðsta hluta Hverfisgötu, frá Ingólfsstræti og niður á Lækjargötu. „Nú er farið að hilla undir lokin,“ segir Ásmundur Helgason, veitinga- maður í Gráa kettinum við Hverfis- götu. Ásmundur hefur verið mjög gagnrýninn á framkvæmdir við göt- una og telur að borgaryfirvöld hafi ekki haldið vel á spilunum. Hann hefur ákveðið að leggja fram bóta- kröfu á hendur Reykjavíkurborg vegna þess tjóns sem veitingastaður hans hefur orðið fyrir vegna fram- kvæmdanna. „Það er verið að vinna í þessu, það tekur tíma að skrifa svona. Ég get ekki sagt hve há krafan verður, við erum að reikna,“ sagði Ásmund- ur í gær. Hann segist aðspurður hlakka til loka framkvæmdanna og vonast til að þeim verði fagnað. „Ég ætla rétt að vona að það verði hérna götuhátíð.“ Miklar tafir á Hverfisgötu Stefnt er að því að endurbótum á Hverfisgötu ljúki um miðjan mánuðinn. Standist þau áform hafa verklok tafist um næstum því þrjá mánuði frá upphaflegum áætlunum 2019 12. APRÍL Morgunblaðið greinir frá því að ráðist verði í næsta áfanga endurbóta Hverfisgötu í sumar auk þess sem Veitur muni endurnýja lagnir í Ingólfsstræti milli Bankastrætis og Hverfisgötu. Heildarkostn- aður er áætlaður 318 milljónir króna, þar af er kostnaður Reykjavíkurborgar 170 milljónir. „Gert er ráð fyrir því að jarðvinna og vinna við lagnir hefjist 13. maí næstkomandi. Frágangi á yfirborði í Ingólfsstræti eigi að ljúka 1. júní. Þann 29. júní eigi yfirborðsfrágangi við gatnamót Ingólfsstrætis og Hverfisgötu að ljúka. Yfirborðs- frágangi á götukaflanum milli Smiðjustígs og Ingólfsstrætis eigi að ljúka 3. ágúst. Þá verði aðeins eftir yfirborðsfrágang- ur fyrir framan bílastæðahúsið Traðarkot. Verklok þar eru áætluð 23. ágúst í sumar,“ sagði í frétt blaðsins. 18. MAÍ Tilkynnt að framkvæmdir hefjist á Hverfisgötu mánudaginn 20. maí. 15. ÁGÚST „Endurgerð Hverfis- götu milli Ingólfsstrætis og Smiðjustígs hefur tafist en gert er ráð fyrir að hleypa bílaumferð á götuna eftir miðjan september í stað loka ágústmánaðar,“ segir í tilkynningu á vef borgarinnar. 20. JÚNÍ Framkvæmdir komnar á fullt og Morgunblaðið greinir frá því að kaupmenn hafi ekki farið varhluta af þeim. Dæmi eru um að birgjar neiti að keyra vörur í verslun sökum erfiðs aðgengis. Vinna að hefjast við gatnamót Hverfisgötu og Ingólfsstrætis og talað um að þau verði lokuð til ágústloka hið minnsta. „Þetta er svo sem ekki nein stór- framkvæmd miðað við það sem áður hefur gengið á á Hverfis­ götunni,“ sagði Bjarni Brynjólfsson, upplýsingastjóri borgarinnar. 26. ÁGÚST Fréttir berast af því að lögmaður sé að undirbúa hópmál- sókn rekstraraðila við Hverfisgötu. 13. SEPTEMBER Ámundi V. Brynjólfsson, stjórnandi framkvæmda og viðhalds hjá Reykjavíkurborg, kveðst búast við því að framkvæmdum verði að mestu lokið um næstu mánaðamót. 25. OKTÓBER Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg kemur fram að steinlagt torg fyrir framan Þjóð- leikhúsið verði tilbúið í lok fyrstu viku nóvember og í framhaldinu verði opnað fyrir umferð um Hverfisgötu. Vinnu við frágang gangstéttar og hjólastígs að sunnanverðu meðfram Hverfis- götu eigi að ljúka um miðjan nóvember. 22. OKTÓBER „Hvernig hægt er að klúðra þessu verki svona ofboðslega er óskiljanlegt,“ skrifar Ásmundur Helgason á Gráa kettinum í facebookfærslu sem vekur mikla athygli. Þar fer hann hörðum orðum um tafir á framkvæmdunum við Hverfisgötu. Hann rifjar upp að upphaflega stóð til að endurbótum Hverfisgötu myndi ljúka fyrir menningarnótt. Borgarstjóri hafi í ágúst sagt að verkinu lyki í september og síðan hafi Ásmundur fengið upplýsingar frá borginni í september þess efnis að framkvæmdum myndi ljúka í október. Ekkert af þessu hafi staðist. 4. NÓVEMBER Ásmundur Helgason á Gráa kettinum upplýsir að hann muni krefjast bóta fyrir þær búsifjar sem tafir við framkvæmdirn- ar hafi valdið sér. Formaður borgarráðs segir tafirnar óafsakanlegar. Stefnt að verklokum 15. nóvember, næstum þremur mánuðum eftir upphaflega áætluð verklok. „Hvernig má það vera að verkkaupinn hefur í raun enga hugmynd um hversu langan tíma tekur að klára svona verk?“ spyr Ásmundur. 17. ÁGÚST Ari Matthíasson þjóðleikhússtjóri lýsir áhyggjum af aðgengi að leikhúsinu en nýtt leikár er að hefjast. „Það er skylda okkar að tryggja að sjúkra­ og slökkvibílar hafi greiðan aðgang að húsinu þegar sýningar hefjast. Ég veit ekki hvernig það á að vera hægt við þessar aðstæður,“ sagði Ari sem kvaðst hafa lesið um seinkanir á framkvæmdum í blöðunum. 15. ÁGÚST Greint frá mikilli óánægju með framkvæmdirnar. Í síðustu viku hafi eigendum fyrirtækja verið tilkynnt um seinkun, meðal annars vegna þess hversu erfitt reyndist að fá menn í vinnu um verslunarmannahelgina. „Það er aldrei neinn að vinna þarna,“ sagði Ásmundur Helga- son, eigandi Gráa kattarins, við RÚV. Hálfs árs sorgarsögu lýkur senn  Loks hillir undir verklok við endur- bætur Hverfisgötu  Tafir á tafir ofan og mikil óánægja með upplýsingagjöf Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Framkvæmdir Svona var umhorfs á Hverfisgötu um helgina. Nú hillir undir lok framkvæmdanna og stefnt er að verklokum um miðjan mánuðinn. DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is GÆÐI OG ÞÆGINDI SÍÐAN 1926 DUX 6006 - SVÆÐISMEÐFERÐ Í örfáum einföldum skrefum geturðu sett upp rúmið þitt til að mæta þörfum þínum. Selasetrið á Hvammstanga hlaut fyrstu verðlaun Evrópusamtaka fyrirtækja og þjónustuaðila í menn- ingartengdri ferðaþjónustu (ECTN) í síðustu viku. Samtökin veita árlega viðurkenningar í nokkrum flokkum og hlaut Sela- setrið verðlaunin ásamt Batana- umhverfisssafninu í Króatíu í flokki óáþreifanlegrar arfleifðar. Sigurður Líndal Þórisson, fram- kvæmdastjóri Selasetursins, segir að viðurkenning sem þessi skipti miklu máli fyrir starfsemina og starfsmenn séu stoltir af þessum ár- angri. „Raunverulega snýst viður- kenningin ekki síst um þá hugmynd heimafólks að setja á stofn selaset- ur. Starfsemin er rekin í þágu sam- félagsins á svæðinu og í þágu vís- indanna og við höfum ávinning samfélagsins að leiðarljósi,“ segir Sigurður. Hann var í gær staddur á ferða- kaupstefnu í London og sagði að margir kæmu til hans, klöppuðu honum á bakið og óskuðu til ham- ingju með verðlaunin. Gestum hefur fækkað í ár Sigurður segir að aðsókn hafi minnkað talsvert á þessu ári og reiknar með að samdrátturinn verði rúmlega 20% miðað við 2018. Fjöldinn fari að líkindum úr um 41 þúsund gestum í fyrra í um 33 þús- und á þessu ári. Helstu skýringar séu fækkun ferðamanna til Íslands, í öðru lagi finni jarðarsvæði fyrst fyrir samdrætti og breyttu ferða- mynstri og síðast en ekki síst hafi veðurfar verið afleitt á Norðurlandi vestra síðasta sumar. Selasetrið hafi aldrei þurft að aflýsa jafn mörgum skoðunarferðum á sjó og síðasta sumar vegna þess hversu oft var vont í sjóinn. aij@mbl.is Selasetrið fær evrópsk verðlaun  Skiptir miklu máli fyrir starfsemina Selir Úr skoðunarferð á vegum Selasetursins með Brimli HU 18. Ljósmynd/Þorgeir Baldursson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.