Morgunblaðið - 05.11.2019, Side 10

Morgunblaðið - 05.11.2019, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 2019 Sími 555 2992 og 698 7999 Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra Gott fyrir: • Maga- og þarmastarfsemi • Hjarta og æðar • Ónæmiskerfið • Kolesterol • Liðina Læknar mæla með selaolíunni Selaolían fæst í: Apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu og Melabúð Óblönduð – meiri virkni Selaolía Égheyrði fyrst um Selaolíuna í gegnum kunningja minn en konan hans hafði lengi glímt við það sama og ég, - stirðleika í öllum liðum og tilheyrandi verki. Reynsla hennar var það góð að ég ákvað að prufa. Fyrstu tvo mánuðina fann ég litlar breytingar, en eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður. Ein góð „aukaverkun“ fylgdi í kjölfarið, ég var með frekar þurra húð um allan líkamann, en eftir að ég fór að nota Selaolíuna hvarf sá þurrkur og húð mín varð silkimjúk. Ég hef nú notað Selaolíuna í eitt og hálft ár og þakka henni bætta líðan og heilsu. Guðfinna Sigurgeirsdóttir. „Eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður.“ þess fyrstu níu mánuði ársins. At- hygli vekur að aðflutningur og brott- flutningur jukust mikið milli annars og þriðja fjórðungs. Á það ber að líta að á þriðja fjórðungi hefst skólaárið sem kann að hafa sitt að segja. Um 14.500 íbúar á 21 mánuði Þessi mikli aðflutningur á þátt í mikilli íbúafjölgun á Íslandi. Lands- menn voru um 348.500 í byrjun árs 2018 en eru nú tæplega 363 þúsund. Það er fjölgun um 14.500 íbúa sem er hér um bil á við íbúafjölda Mosfells- bæjar og hálfan íbúafjölda Seltjarnarness að auki. Árið 2010 var samdráttarár í hag- kerfinu en síðan var hagvöxtur fram á þetta ár. Frá ársbyrjun 2011 hefur landsmönnum fjölgað um 44.400, íbúafjöldinn farið úr 318.500 í 362.900 manns. Til samanburðar fjölgaði landsmönnum um 30 þúsund frá 1. janúar 2004 til 1. janúar 2009 en þau ár var fjármálaútrásin í al- gleymingi. Ferðaútrásinni hefur hins vegar fylgt enn meiri aðflutn- ingur. Fjöldi nýrra starfa í ferða- þjónustu og byggingariðnaði hefur kallað á innflutt vinnuafl. Leita til norrænu landanna Fyrstu níu mánuði ársins fluttu 1.300 íslenskir ríkisborgarar til landsins frá Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Hins vegar fluttu rúmlega 1.400 héðan til þessara landa. Tölur Hagstofunnar eru námund- aðar að tug. Aðflutningur íslenskra ríkisborgara frá Danmörku, Noregi og Svíþjóð er sundurliðaður eftir löndum en brottflutningur þangað ekki. Samkvæmt ársfjórðungs- skýrslum Hagstofunnar fluttu 620 til Danmerkur, 370 til Svíþjóðar og um 300 til Noregs fyrstu níu mánuði árs- ins. Virðist árið 2019 ætla að verða 17. árið af 20 á öldinni þar sem fleiri íslenskir ríkisborgarar flytja frá landinu en til þess. Áfram er straumur til landsins  Rúmlega 3.000 erlendir ríkisborgarar fluttu til landsins á þriðja ársfjórðungi en 1.300 fluttu í burtu  Með því hafa 4.200 fleiri erlendir ríkisborgarar flutt til landsins en frá því í ár og 48 þúsund á öldinni Búferlafl utningar frá Íslandi 2000 til 2019* Aðfl uttir umfram brottfl utta Íslenskir Erlendir 2000 62 1.652 2001 -472 1.440 2002 -1.020 745 2003 -613 480 2004 -438 968 2005 118 3.742 2006 -280 5.535 2007 -167 5.299 2008 -477 1.621 2009 -2.466 -2.369 2010 -1.703 -431 2011 -1.311 -93 2012 -936 617 2013 -36 1.634 2014 -760 1.873 2015 -1.265 2.716 2016 -146 4.215 2017 352 7.888 2018 -65 6.621 2019* -240 4.180 +6 +5 +4 +3 +2 +1 0 -1 -2 -3 -4 .000 ’00 ’01 ’02 ’03 ’04 ’05 ’06 ’07 ’08 ’09 ’10 ’11 ’12 ’13 ’14 ’15 ’16 ’17 ’18 ’19* Samtals Íslenskir Erlendir 2000-2019* -11.863 48.333 2005-2008 -806 16.197 2009-2011 -5.480 -2.893 2012-2019* -3.096 29.744 2015-2019* -1.364 25.620 Íslenskir ríkisborgarar Erlendir ríkisborgarar 8.240 *Til og með 30. sept. 2019 (fyrstu 9 mánuðir ársins) Fyrstu 9 mán. 2019 Heimild: Hagstofa Íslands 362.860 Íbúafjöldi á Íslandi frá árinu 2000 Fjöldi íbúa í byrjun árs, nema 2019 í lok september Íbúum á Íslandi hefur fjölgað um 30% síðan í ársbyrjun 2000 375 350 325 300 275 250 225 319.368 279.049 ’00 ’01 ’02 ’03 ’04 ’05 ’06 ’07 ’08 ’09 ’10 ’11 ’12 ’13 ’14 ’15 ’16 ’17 ’18 ’19 Heimild: Hagstofa Íslands Íslenskir ríkisborgarar: Aðfl uttir Brottfl uttir Erlendir ríkisborgarar: Aðfl uttir Brottfl uttir Aðfl uttir umfram brottfl utta á árinu 2019 Fjöldi aðfl uttra og brottfl uttra eftir ríkisfangi og ársfjórðungum 1. ársfj. 2. ársfj. 3. ársfj. Innlendir Erlendir Aðfl . Brottfl . Aðfl . Brottfl . 1. ársfj. 470 600 2.330 940 2. ársfj. 490 400 2.070 1.050 3. ársfj. 950 1.150 3.050 1.280 Alls 1.910 2.150 7.450 3.270 Aðfl uttir umfram brottfl utta: -240 4.180 Heimild: Hagstofa Íslands Búferlaflutningar til og frá Norðurlöndunum Fjöldi aðfluttra og brottfluttra eftir ársfjórðungum Aðfluttir Brottfluttir Svíþjóð Danmörk Noregur Alls 1. ársfj. 80 170 70 320 310 2. ársfj. 80 140 90 310 220 3. ársfj. 210 310 140 670 880 Alls 370 620 300 1.300 1.410 Aðfluttir umfram brottflutta: -110 Heimild: Hagstofa Íslands BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Rúmlega 3.000 erlendir ríkisborgar- ar fluttu til landsins á þriðja árs- fjórðungi. Með því hafa um 7.500 er- lendir ríkisborgarar flutt til landsins á árinu, eða rúmlega einn á hverri klukkustund alla þessa mánuði. Þetta er meðal þess sem má lesa úr nýjum mannfjöldatölum Hagstof- unnar fyrir fyrstu níu mánuði ársins. Leiða þær í ljós að sögulegur að- flutningur fólks til landsins hefur haldið áfram, þrátt fyrir bakslag í ferðaþjónustu og niðursveiflu. Um 4.200 fleiri erlendir ríkisborg- arar fluttu til landsins en frá því fyrstu níu mánuði ársins. Með sama áframhaldi verður árið 2019 í fimmta sæti í þessu efni. Aðfluttir erlendir ríkisborgarar umfram brottflutta hafa aðeins verið fleiri þensluárin 2006, 2007, 2017 og 2018. Virtist ætla að snúa við Flugfélagið WOW air hætti starf- semi 28. mars sl., eða í lok fyrsta árs- fjórðungs. Aðflutningur erlendra ríkisborgara dróst svo saman á öðrum fjórðungi sem benti til við- snúnings í þessu efni. Aðflutningur- inn jókst hins vegar um 50% á þriðja fjórðungi, fór úr 2.070 í 3.050 erlenda ríkisborgara. Virðist niðursveiflan því ekki ætla að hafa merkjanleg áhrif á áhuga erlendra ríkisborgara á að flytja til landsins. Meira jafnvægi er í búferlaflutn- ingum íslenskra ríkisborgara. Þannig fluttu um 240 fleiri íslensk- ir ríkisborgarar frá landinu en til Jón Bjarki Bentsson, aðalhag- fræðingur Íslandsbanka, segir samtöl við atvinnurekendur í byggingariðnaði, ferðaþjónustu og matvælaframleiðslu ekki benda eindregið til að eftirspurn eftir erlendu starfsfólki sé að minnka. Heilt yfir sé ekki sjálfgefið að erlendum ríkisborgurum fækki á vinnumarkaði þrátt fyrir niður- sveifluna. Hvorki sé rætt um færri ráðningar né uppsagnir á innflutta vinnuaflinu fremur en öðrum. Rætt sé um að erlendir starfsmenn standi sig oft betur í vinnu og séu hagfelldari vinnu- kraftur fyrir margra hluta sakir en sumir Íslendingar í lægstu þrepum vinnumarkaðar- ins. Niður- sveiflan muni því væntanlega ekki draga jafn mikið úr aðflutn- ingi erlendra ríkisborgara og rætt var um. Áframhaldandi aðflutningur erlendra ríkisborgara geti aukið samkeppni um störf á innlendum vinnumarkaði. Kjósa frekar erlent vinnuafl ÍSLENSKIR ATVINNUREKENDUR Jón Bjarki Bentsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.