Morgunblaðið - 05.11.2019, Page 13

Morgunblaðið - 05.11.2019, Page 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 2019 Sérhæfum okkur í sölu og leigu á atvinnuhúsnæði Pantaðu verðmat eða skoðun – 534 1020 // sala@jofur.is TIL LEIGU Fiskislóð 18 – 101 Reykjavík Stærð: 443 m2 Gerð: Verslunar- og þjónustu- húsnæði Bergsveinn S: 863 5868 Sigurður J. S: 534 1026 Helgi Már S: 897 7086 Magnús S: 861 0511 Ólafur S: 824 6703 Ármúla 7, Reykjavík - www.jofur.is Sími 534 1020 Til leigu 443 m² mjög gott verslunar og þjónustuhúsnæði í Fiskislóð 18, 101 Reykjavík, með góðum bílastæðum. Húsnæðið skiptist í verslunarrými, lagerrými með tveimur innkeyrsluhurðum, skrifstofur, kaffistofu og salerni. Húsnæðið er vel staðsett á Granda og hentar undir verslun og/eða heildsölu. Húsnæði er laust. Frekari upplýsingar um eignina veitir Bergsveinn Ólafsson löggiltur fasteignasali í síma 863 5868, bergsveinn@jofur.is Einnig er hægt að nálgast upplýsingar á heimasíðu jofur.is Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Meginhluti landbúnaðarstyrkja Evr- ópusambandsins í Ungverjalandi, Tékklandi og fleiri löndum í Mið- og Austur-Evrópu rennur til tiltölulega fárra auðmanna eða manna sem tengjast stjórnvöldum í löndunum, að því er fram kemur í grein þriggja blaðamanna The New York Times sem rannsökuðu spillinguna í tengslum við styrkina. Evrópusambandið eyðir nær 60 milljörðum evra, jafnvirði 8.200 millj- arða króna, á ári í landbúnaðarstyrki og þeir eru um 40% af útgjöldum sambandsins. Rannsóknir hafa leitt í ljós að um 80% af fénu fara til um 20% af styrkþegunum. Ríkisjarðir seldar vinum Markmiðið með styrkjunum er að styðja bændur til að stuðla að mat- vælaöryggi í álfunni og halda sveita- héruðum í byggð en The New York Times segir að styrkirnir hafi leitt til nokkurs konar lénsskipulags þar sem smábændur séu skuldbundnir fá- mennum hópi „baróna“ sem tengist ráðamönnunum. Styrkirnir miðast að mestu leyti við stærð búanna, þannig að því stærri sem þau eru þeim mun hærri verða styrkirnir. Þegar Ungverja- land, Tékkland og fleiri fyrrverandi kommúnistaríki í Mið- og Austur- Evrópu fengu aðild að Evrópusam- bandinu voru margar bújarðanna enn í eigu ríkisins og eftir miklu var að slægjast þegar þær voru seldar. Ráðamenn í löndunum notfærðu sér þetta og sáu til þess að skyldmenni og pólitískir bandamenn þeirra gætu keypt stóran hluta af ríkisjörðunum og fengju þannig áskrift að styrkjum frá Evrópusambandinu, að sögn The New York Times. Blaðið nefnir sem dæmi fyrirtæki í eigu Andrejs Babiš, forsætisráðherra Tékklands, sem fékk að minnsta kosti sem svarar 5,2 milljörðum króna í landbúnaðar- styrki á síðasta ári. Rannsókn blaðsins leiddi m.a. í ljós að ríkisstjórn Viktors Orbáns, for- sætisráðherra Ungverjalands, seldi skyldmennum og nánum samstarfs- mönnum hans í stjórnarflokknum Fidesz stórar ríkisjarðir sem hafa fengið miklar fjárhæðir frá ESB. Á meðal þeirra er æskuvinur forsætis- ráðherrans, Lõrinc Mészáros, sem varð einn af auðugustu mönnum Ungverjalands. Á síðasta ári fengu fyrirtæki í eigu hans og annars áhrifamikils kaupsýslumanns í Búda- pest, Sándors Csányis, jafnvirði 3,5 milljarða króna í styrki frá ESB. Litlar líkur á umbótum Rannsókn Vísindaakademíu Búlg- aríu leiddi í ljós að 75% af meginteg- und landbúnaðarstyrkja ESB í land- inu runnu til um 100 búa eða fyrirtækja. Yfirvöld í landinu hafa hafið rannsókn sem bendir til þess að óeðlileg tengsl hafi verið milli emb- ættismanna ríkisins og fyrirtækja sem fengu styrkina. Saksóknari í Slóvakíu hefur viður- kennt að í landinu starfi „land- búnaðarmafía“ sem sagt er að hafi beitt smábændur ofbeldi til að knýja þá til að selja jarðir. Grunur leikur á að mafían hafi myrt blaðamann sem rannsakaði tengsl hennar við valda- mikla stjórnmálamenn. The New York Times segir að embættismenn ESB og ráðamenn í öðrum Evrópulöndum hafi oft þynnt út tillögur um umbætur til að stemma stigu við spillingu í tengslum við land- búnaðarstyrkina eða jafnvel hafnað þeim alveg. Blaðið telur litlar líkur á að reynt verði að takast á við spill- inguna þegar lög ESB um landbún- aðarstyrkina verða tekin til endur- skoðunar síðar í vetur. Þeir séu á meðal þess sem haldi Evrópusam- bandinu saman og ráðamennirnir í aðildarlöndunum eigi allir það sam- eiginlegt að reiða sig á að land þeirra haldi áfram að njóta góðs af styrkj- unum og vilja að ESB-löndin fái að ráða því sjálf hvernig fénu er varið. Þess vegna leggi embættismennirnir í Brussel áherslu á að auka vald aðildarríkjanna til að ákveða hvernig styrkjunum er varið, í stað þess að reyna að uppræta spillinguna eða herða eftirlitið með ráðstöfun fjárins. Bandamenn stjórnvalda fá stór- an hluta landbúnaðarstyrkjanna  Tiltölulega fámennur hópur fær styrki ESB í löndum í Mið- og Austur-Evrópu Spilltir? Andrej Babiš, forsætisráðherra Tékklands (t.v.), og Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands. AFP Sir Lindsay Hoyle var kjörinn for- seti neðri deildar breska þingsins í stað Johns Bercows sem ákvað að draga sig í hlé eftir að hafa gegnt embættinu í tíu ár. Hoyle er 62 ára og hefur verið þingmaður Verkamannaflokksins í 22 ár. Hann hefur verið varaforseti þingdeildarinnar frá árinu 2010 og eins og Bercow hefur hann gengið vasklega fram þegar hann hefur þurft að þagga niður í þingmönnum sem eru með framíköll. Hann hefur lofað að kalla leiðtoga þingflokkanna á sinn fund til að ræða hvernig draga megi úr heiftinni sem hefur einkennt bresk stjórnmál síðustu misseri. Hoyle hefur notið virðingar meðal þingmanna Verkamannaflokksins og Íhaldsflokksins, að sögn fréttavefjar The Telegraph. Af sjö frambjóð- endum í forsetakjörinu var hann sá eini sem upplýsti ekki hvort hann greiddi atkvæði með eða á móti út- göngu Bretlands úr Evrópusam- bandinu í þjóðaratkvæðinu 2016. AFP Nýr þingforseti Sir Lindsay Hoyle í neðri deild breska þingsins í gær. Hoyle í stól Bercows  Þingforseti kjörinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.