Morgunblaðið - 05.11.2019, Side 19

Morgunblaðið - 05.11.2019, Side 19
unni TF-Sif og tók meginábyrgð á þjálfun okkar. Það þurfti að kenna okkur að síga úr þyrlunni, hvort heldur niður í skip, á fjall eða á land og að kenna okkur umgengni við fjarskiptatækin, þyrluna, áhöfnina og allan öryggisbúnað. Sigurður Steinar var afburða- kennari, nákvæmur og agaður og setti öryggi ofar öllu. Hann var duglegur að koma með uppbyggj- andi gagnrýni þegar við átti en einnig að hrósa þegar svo bar und- ir. Hann var mjög áfram um fag- leg vinnubrögð í hvívetna sem gaf okkur ungu læknunum öryggistil- finningu. Þó við höfum bæði unnið með afbragðsfólki er á engan hall- að þó við segjum að enginn hafi kennt okkur meira um fag- mennsku en Sigurður Steinar og það hefur nýst í okkar læknis- störfum alla tíð. Það var ekki bara lærdómsríkt að vinna með Sigurði Steinari og öðrum í áhöfn þyrlunnar, það var líka skemmtilegt. Í þyrlusveitinni ríkti, þrátt fyrir alvöruna sem jafnan fylgdi starfinu, léttur og góður andi og þar átti Sigurður Steinar stóran hlut. Hann var skemmtilegur og spaugsamur og án efa margir sem minnast hans fyrir smitandi hláturinn. Þó sam- starfinu á þyrlunni lyki héldum við sambandi og með okkur var vinskapur alla tíð þótt vissulega hefðum við viljað að samveru- stundirnar hefðu orðið fleiri. Sigurður Steinar lagði að baki hálfrar aldar starfsferil sem af bar og hann vann þjóðinni ómetanlegt starf við leit, björgun og landhelgisgæslu. Glæsilegur fer- illinn vitnar um mikla mannkosti hans; fagmennsku, einbeitni, yfir- vegun, óeigingirni, þrautseigju, hógværð og virðingu fyrir sam- starfsfólki. Enda voru honum fal- in trúnaðarstörf eins og að vera skipherra á okkar fínasta varð- skipi, Þór. Það var svo mikið reiðarslag þegar Sigurður greind- ist með mein það sem nú hefur lagt hann að velli, einungis nokkr- um vikum eftir að hann lauk störf- um og sannast þar að í lífinu er ekki alltaf gefið á sanngjarnan hátt. En nú er Sigurður Steinar lagður af stað í sína hinstu för og við erum þess fullviss að hann er þegar farinn að láta að sér kveða á æðri stöðum. Við minnumst Sig- urðar Steinars með virðingu og hlýju og vottum Sólveigu, sonum og barnabörnum okkar innileg- ustu samúð. Ef áttu draum sýndu dáð, rætist hann þá. Sé tíðin naum, skaltu taka fastar á. Og ef átt þú heiðríkju hugans Skaltu’ ei hræðast fylg þinni þrá. Hugur af hug tendrast dáðum og dug því að hraustir menn hlýða hreystikallinu enn. (Jakob Jóhannesson Smári) Lofuð sé minning þín, kæri vinur, hvíl í friði. Alma D. Möller Torfi F. Jónasson. Við Sigurður Steinar vorum jafnaldrar og útskrifuðumst árið 1970 úr farmannadeild Stýri- mannaskólans í Reykjavík. Þegar hann hóf störf hjá Landhelgis- gæslunni árið 1968 byrjaði hann sem háseti á v/s Maríu Júlíu og vorum við samskipa um tíma. Hann hafði þá þegar mikla reynslu í sjómennsku sem háseti á fiski- bátum og ótrúlega mikla þekkingu á öllum fiskiskipaflotanum, vissi hverjir voru skipstjórar á öllum ís- lenskum fiskiskipum og þekkti alla báta og skip um leið og þau komu í augsýn. Þessi þekking og gáfa voru oft mikilvæg um borð í varðskipi við fiskveiðieftirlit sem og við leitar- og björgunarstörf. Undirrót þess að hann ræktaði þessa þekkingu var að mínu áliti djúp virðing fyrir sjómönnum al- mennt og var köllun hans sú að gera allt sem í hans valdi stóð til að tryggja öryggi sjófarenda. Sigurður Steinar var einn þeirra sem börðust ótrautt fyrir getu Landhelgisgæslunnar til að takast á við leitar- og björgunar- verkefni og uppfylla skyldur rík- isins til að veita fullnægjandi leit- ar- og björgunarþjónustu. Stór liður í þeirri baráttu var að fá full- komna björgunarþyrlu. Auk þess var hann einn frumkvöðla í áhöfn þyrlunnar sem spilmaður og sig- maður. Hann átti stóran hlut í að fá lækna í áhöfn þyrlunnar, sem átti eftir að bjarga mörgum mannslífum. Ef til vill gera fáir sér grein fyrir því hve margir sjófar- endur létu lífið á þessum árum, en með tilkomu fullkominnar þyrlu- björgunarsveitar urðu algjör straumhvörf í þágu sjófarenda, landsmanna allra og erlendra ferðamanna. Til að efla þekkingu á varnar- og öðrum öryggismálum hér innanlands var ég, og svo síðar Sigurður Steinar, sendur í skóla bandaríska sjóhersins í Newport, Rhode Island, til að nema þar her- fræði og aðferðir, einkum í tengslum við sjóhernað og til að vera betur undirbúnir að ræða við yfirmenn herstöðvarinnar á Kefla- víkurflugvelli um þjóðarvarnir. Þegar heim kom varð ég, og svo Sigurður Steinar sem eftirmaður minn, tengiliður milli herstöðvar- innar og Flugmálastjórnar, Al- mannavarna og björgunarsveita, og í sumum tilvikum við varnar- máladeild utanríkisráðuneytisins. Sigurður Steinar var mikill sjó- maður og drengur góður, hafði ríka sjálfsvirðingu og bar mikla virð- ingu fyrir öllu fólki. Hann varð þeirrar lukku aðnjótandi að taka við og stjórna nýjasta og glæsileg- asta varðskipi okkar, v/s Þór, og varð æðsti skipherra Landhelgis- gæslu Íslands. Einnig var það gæfa hans að verða vitni að eflingu þyrluflota og flugvélar Landhelg- isgæslunnar. Segja má að draumar hans hafi ræst, enda hefur þjóðin rækt skyldur sínar í þessum efnum með ágætum og framtíð Landhelg- isgæslu Íslands er björt. Sigurður Steinar Ketilsson var mikill fjölskyldumaður og ég geri mér grein fyrir þeim fórnum sem hann færði með því að vera oft að heiman frá eiginkonu og börnum, sem og þeim fórnum sem eigin- kona hans og börn máttu þola. Ég votta Sólveigu, börnum og barna- börnum einlæga samúð mína. Sigurður Steinar var minn besti og tryggasti samstarfsmaður og vinur og mun ég sakna hans mikið. Hermann Sigurðsson. MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 2019 Árið er 2012. Út úr bíl á hlaðinu í Dalsgarði stíga fimm manneskjur. Maðurinn er alvarlegur en glottir, konan virkar eilítið ringluð, með þykkt svart hár fyrir andlitinu. Börnin þrjú eru kannski feimin. Manneskjurnar skoða sig um eins og þeir einir gera sem unna nátt- úrunni og kyrrðinni utan alfara- leiðar. Konan verður garðyrkjunemi í Dalsgarði og þar með hefst okkar stutta en yndislega gefandi og skemmtilega samferð. Matarboð, hestaferð, veiðiferð, brúðkaup, hlátur, tónlist, söngur, dans, spjall, vinátta, gleði og sorg. Garðyrkjuneminn verður einn daginn fræðingur og gerist þá starfsmaður í Dalsgarði. Það er mikið að gera hjá foreldrum sem vinna utan heimilis ásamt því að ala upp börnin sín. Verkefnin sem þarf að sinna eru mörg og fjöl- skyldan gerir eins vel og hún get- ur. Þetta er samheldin eining sem nýtur lífsins eins vel og hún getur. Ófáar eru ferðirnar í Skagafjörð- inn því þar eru ræturnar og allt góða fólkið sem stendur henni næst. Hestarnir, hundarnir, kis- urnar, náttúran, þorrablótin, vetr- armótið á ísilagðri tjörninni ... Þarna er gott að kjarna sig og hlaða. Sumir tímar eru þó erfiðari en aðrir. Þetta er vel þekkt. Erfið- leikar við að koma sér að verki, vonleysi sem tekur yfir, kvíðinn og óyndið herja á. Maðurinn alvar- legi tekur þátt í umræðu um mál- efnið af áhuga og virðingu. Hann spyr spurninga, hlustar og reynir að skilja en gengur það ekki vel. Hefur ekki upplifað slíkan van- mátt og myrkur. Hann er vanur að bretta upp ermarnar, ganga í verkin og gefst aldrei upp. Hann undirbýr landsmót hestamanna, heldur utan um stór fyrirtæki, byggir upp hús og annast fjöl- skylduna sem er honum allt, spilar körfubolta, bakar skinkuhorn, fer í hesthúsið á kvöldin til að hlúa að Lárus Dagur Pálsson ✝ Lárus DagurPálsson fædd- ist 6. september 1973. Hann lést 19. október 2019. Útför hans fór fram 2. nóvember 2019. sínu yndi og vinda ofan af sér. Verkefnin eru mörg og stór, allt í einu er ekki hægt að bretta ermarnar hærra. Við þökkum stutta en ómetan- lega samferð í lífinu. Megi allar góðar vættir styrkja þá sem eftir lifa. Ást og virðing, Helena og Gísli. Aleiga okkar allra er eingöngu andartakið sem er að líða. Síðar verða sumar stundir að fjársjóði í gullkistu minninganna, sem lífga síðan aftur upp á andartak líðandi stundar, eða skapa sársaukafullan söknuð eftir þeim sem minning- arnar smíðaði. Að kveðja kæran vin, Lárus Dag Pálsson, er þyngra en tárum taki. Það er einmitt vegna fallegra liðinna stunda og stunda sem aldr- ei verða, sem sársaukinn og sökn- uðurinn verður svo nístandi kald- ur. Á sama tíma finn ég fyrir djúpu þakklæti fyrir manninn sem Lalli hafði að geyma og dýrmætar minningarnar með honum og samverustundir með fjölskyldu hans. Fyrir tæpum þrjátíu árum kom Lalli kom inn í tilveru mína þegar hjörtu hans og Önnu Sifjar, minn- ar kæru vinkonu, mættust. Á þessum árum svaf vinahópurinn ekki af sér hina skagfirsku björtu sumarnótt. Við vorum öll bara krakkar sem lifðu líkt og enginn væri morgundagurinn, nema kannski Lalli sem var ögn fyrir- hyggjusamari en við hin. Fljótlega kom í ljós að öllu sem hann tók sér fyrir hendur fylgdi mikill metnað- ur og ábyrgð. Hann skilaði ætíð af sér framúrskarandi verki en stærði sig þó aldrei af afrekum sínum. Fíflagangurinn og glettnin var alltaf skammt undan. Ég sé svo ljóslifandi fyrir mér hvernig glottið færist yfir andlit hans og breytist svo í kitlandi hlátur. Lalli var einstakur drengur og traustur vinur. Hann átti auðvelt með að hvetja samferðafólk sitt áfram til dáða. Ég verð honum ei- líflega þakklát fyrir þá miklu tiltrú og hvatningu sem hann ávallt sýndi mér. Úr gullkistu minninganna flæða ótal minningabrot; öll hesta- mannamótin, búsetan á stúdenta- görðunum á Skerjó, sumarbú- staðaferðir, samverustundirnar í Hólmaþinginu, jólin okkar saman á Flórída og áfram mætti telja. Einhverra hluta vegna koma end- urtekið upp í hugann svipmyndir af Lalla þar sem við erum að ganga frá eftir kvöldmatinn í eld- húsinu í Hólmaþinginu. Anna Sif er farin með börnin í háttinn en á milli okkar tveggja ganga óhefluð skot og einhverjir brandarar; svo er glott út í annað og hlegið dátt. Síðan kemur Anna Sif upp og við setjumst öll þrjú saman og förum yfir málefni líðandi stundar. Að lokum lætur Lalli sig hverfa til að við Anna getum átt okkar stelpu- stund. Fallegustu augnablikin í minn- ingakistunni eru þó samskipti Lalla við Önnu Sif og börnin. Hann elskaði þau af öllu hjarta. Hann var ófeiminn við að sýna og tjá Önnu Sif ást sína. Í fríum, sem mig grunar að hafi oft verið hon- um langþráð, dró hann sig gjarn- an til hlés frá okkur fullorðna fólk- inu til að eiga tíma í leik eða spjalli með börnunum sínum. Þetta voru fallegar stundir þar sem börnin áttu föður sinn óskiptan. Lífið tekur stundum óvæna stefnu og enginn veit hvaða spil hann hefur á hendi. Það var aðdá- unarvert hvað Anna Sif og stór- fjölskyldur þeirra beggja gerðu allt hvað þau gátu til að styðja Lalla í veikindum hans. Um leið og ég votta þeim öllum mína dýpstu samúð bið ég góðan Guð að styrkja þau á tímum sorgar og söknuðar og veita hugarró. Arna Björg Bjarnadóttir. Í dag kveð ég kæran vin. Fréttir af andláti Lalla vinar míns voru þungbærar og óskiljanlegar. Lalli var manna léttastur og skemmtilegastur og alltaf stutt í húmorinn. Hann hafði einstakt lag á að segja sögur og herma eftir fólki. Þannig gæddi hann frásagn- ir lífi og engum leiddist að vera í kringum hann. Fannst alltaf svo notalegt að koma til Lalla og konu hans Önnu, þau svo sannarlega höfðingjar heim að sækja og sérstaklega notalegt að vera í kringum. En það var ekki bara vegna þess hversu léttur og skemmtilegur Lalli var, hann var með traustari, heiðarlegri og góðhjartaðri mönn- um sem ég hef komist í kynni við. Einstaklega góður einstaklingur sem var annt um þá sem í kring- um hann voru, hvort sem það var fjölskyldan, vinir eða samstarfs- félagar. Lalli hafði nefnilega þann eiginleika að sjá það góða í fólki. Ég heyrði hann aldrei tala illa um aðra. Þessir eiginleikar gerðu það að verkum að það var sérstaklega notalegt að vera í kringum Lalla og þau hjónin. Það var aldrei asi á hlutunum – þau hjón höfðu ein- stakt lag á að láta manni líða vel og koma fólki til að hlæja. Það var einstakt að eiga Lalla að, hann átti einkar gott með að hlusta á aðra og gefa góð ráð. Ég átti við hann gott spjall í vor, þar sem við félagarnir opnuðum okk- ur, fórum yfir farinn veg og þær hindranir sem orðið höfðu á vegi okkar. Fyrir þetta spjall er ég þakklátur. Þegar Lalli tók að sér verkefni leysti hann þau vel og af mikilli samviskusemi, en stundum gekk það svo langt að mér þótti hann sjálfur verða útundan. Hann meðtók þannig illa þær áhyggjur sem ég hafði af honum, að hann þyrfti að hægja á sér og hugsa meira um sjálfan sig. Lalli var allt- af fókuseraður á verkefnin og þau áttu hug hans allan. Veikindin læddust því aftan að honum, tóku yfir á mjög skömmum tíma og enduðu með að hafa betur. Lalli, sem hugsaði svo vel um aðra, veitti því ekki athygli að hann sjálfur hefði þurft sömu umhyggju og hann sýndi öðrum. Það er sár missir að kveðja Lalla enda einstakur og kær vin- ur. Ég vildi óska að honum hefði ekki fundist hann tilneyddur að taka þá ákvörðun sem hann tók. Þar höfðu veikindin betur, enda Lalli orðinn gjörólíkur sjálfum sér. Minningin um góðan mann mun engu að síður lifa áfram. Á of stuttri ævi snerti Lalli við mörg- um – og í þeirri snertingu mun hann áfram hafa áhrif. Þannig kýs ég að minnast hans og þannig mun hann lifa áfram. Með þessum orðum kveð ég vin minn fullur af þakklæti fyrir þann tíma sem ég hef þekkt hann. Lalli, ég sakna þín. Þinn vinur, Hinrik (Hinni).  Fleiri minningargreinar um Lárus Dag Pálsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, EMIL ÞÓR GUÐBJÖRNSSON, skipasmiður og trillukarl, Stykkishólmi, verður jarðsungin frá Stykkishólmskirkju laugardaginn 9. nóvember klukkan 15. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélag Íslands. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug. Hrafnhildur Jónsdóttir Bjarndís Emilsdóttir Magnús Ingi Bæringsson Guðbjörn Emilsson Sabine Marlene Sennefelder Dagur Emilsson Þóra Stefánsdóttir Jón Sindri Emilsson Heiða María Elfarsdóttir og barnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma UNNUR STEFÁNSDÓTTIR Ægisgötu 16, Akureyri, lést fimmtudaginn 24. október á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 5. nóvember klukkan 13.30. Björn Snæbjörnsson Magga Kristín Björnsdóttir Sigurbjörg Snæbjörnsdóttir Stefán Sigurður Snæbjörns. Randi Aarseth Kristinn Snæbjörnsson Kristín Sigurbjörg Jóhannsd. barnabörn og barnabarnabörn Móðir, amma, systir, mágkona og tengdamóðir, ÞÓRARNA V. JÓNASDÓTTIR sérkennari og leiðsögumaður, Skaftahlíð 7, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli 20. október. Hún verður jarðsungin frá Fossvogskirkju 5. nóvember klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, þeim sem vilja minnast hennar er bent á Alzheimersamtökin. Jón Sigfússon Freyja Valsdóttir Bjarni Sigfússon Ragnhildur, Ólafur og Krístólína Jenný, Anna og Halldóra Vilbergur, Þórarna og Valur Ástkær sonur okkar, bróðir og mágur, HALLGRÍMUR ÞORMARSSON, veitingastjóri á Hótel Búðum, lést af slysförum 27. október. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 7. nóvember klukkan 13. Þuríður Hallgrímsdóttir Finnbogi Kjartansson Þormar Ingimarsson Þórunn Stefánsdóttir Kjartan Henry Finnbogason Helga Björnsdóttir Fjóla Finnbogadóttir Davíð Sigurbergsson Ása Lind Finnbogadóttir Thelma Þormarsdóttir Óskar Örn Hauksson Rakel Þormarsdóttir Auðunn Blöndal Bryndís Begga Þormarsdóttir Einar Ólafsson Kahina Ólafsson Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, BJARNA JÓNSSONAR, Lundi 5. Ása Björgvinsdóttir Björgvin Jón Bjarnason Guðlaug Sigurðardóttir Árný Erla Bjarnadóttir Alfreð Árnason og barnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.