Morgunblaðið - 05.11.2019, Side 22

Morgunblaðið - 05.11.2019, Side 22
22 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 2019 Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is Skútan Sjá verð og verðdæmi á heimasíðu okkar www.veislulist.is Fagnaðir Næst þegar þið þurfið pinnamat, smurt brauð eða tertur fyrir útskriftina eða annan mannfagnað, hafðu þá samband og fáðu tilboð í sal okkar og veitingarnar þínar. PINNAMATUR Veislur eru okkar list! Bjóðum uppá fjölda tegundapinnamats og tapasrétta Pinna- og tapasréttir eru afgreiddir á einnota fötum, klárt fyrir veisluborðið. 60 ára Þorbjörg ólst upp í Búðardal en býr í Hafnarfirði. Hún er með BS-gráðu í hjúkr- unarfræði og vinnur á speglunardeild á Land- spítalanum. Maki: Þórður Pálsson, f. 1958, vélvirki hjá Hagvögnum. Börn: Emilía, f. 1977, Marta, f. 1980, Guðbrandur, f. 1987, d. 1990, Ólafur, f. 1991, og Hergils, f. 1993. Barnabörnin eru orðin átta. Foreldrar: Guðbrandur Þórðarson, f. 1933, d. 2019, bóndi í Jörva í Haukadal og vann í Kaupfélagi Hvammsfjarðar, og Marta Þorsteinsdóttir, f. 1937, húsmóðir, búsett í Búðardal. Þorbjörg Guðbrandsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú hefur átt erfitt með að einbeita þér í vinnunni að undanförnu og þarft að beita þig meiri aga. Sýndu öðrum gæsku og segðu það sem þú ert að hugsa. 20. apríl - 20. maí  Naut Láttu það ekki á þig fá þótt þér finnist stundum smáatriðin gera þér erfitt um vik. Dagurinn í dag er tilvalinn til þess að horf- ast í augu við eitthvað sem þú telur óskemmtilegt. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Skipuleggðu vinnu þína þannig að þú og samstarfsmenn þínir eigið auðvelt með að leysa fyrirliggjandi verkefni. Sýndu að þú kunnir að meta framlag annarra. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Sjáðu til þess að þú fáir útrás fyrir sköpunargleði þína. Þú hefur ekki sinnt sjálfum/sjálfri þér nógu vel síðustu mánuði. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það þýðir ekkert annað en fylgjast með nýjungum á sem flestum sviðum. Bara að vita það að stuðningur þinn er fyrir hendi, gæti verið nóg til þess að vinur finni til öryggis. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það getur verið erfitt að hemja til- finningarnar. Notaðu allan þinn frítíma til að gera eitthvað skemmtilegt. 23. sept. - 22. okt.  Vog Ekki væri úr vegi að taka fjármálin til gagngerrar endurskoðunar. Vertu ekki of harður við sjálfa/n þig og mundu að enginn er eða verður nokkurn tíma fullkominn. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Gríptu tækifæri sem gefast til ferðalaga. Reyndu að láta skapsveiflur ann- arra ekki stjórna þinni líðan. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Umhverfið hefur enn meiri áhrif á sálarástand þitt en vanalega. Ekki láta hófsemi þína verða til þess að þú hafnir góðu tilboði. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þrátt fyrir að vera umvafinn fjöl- skyldu og vinum finnurðu fyrir einmana- leika og depurð. Þér líður best úti í nátt- úrunni. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú þarft að beina athygli þinni að málum sem snerta heimilið, fjölskylduna og þína nánustu. Ekkert jafnast á við það að elska og vera elskaður. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú átt erfitt með að segja nei og sit- ur því uppi með verkefni sem þú ræður orð- ið ekkert við. Sjálfboðaliðastörf heilla þig. að útskrifa þær sem sérmenntaðar sjúkrafóstrur 1968-73. „Námið var á vegum Barnaspítala Hringsins í samstarfi við prófessor Kristbjörn Tryggvason.“ Sigríður var á ný for- stöðukona list- og leikmeðferðar á barnadeild Landakotsspítala 1982- 83 og kennari og listmeðferðarfræð- ingur í Grunnskóla barnadeildar Landakotsspítala og barnadeildar Sjúkrahúss Reykjavíkur 1984-96. Sigríður hefur haldið listmeðferðarnámskeið og verið með listasmiðjur fyrir börn, fatlaða, fanga og fagfólk á heilbrigðis-, kennslu- og félagsmálasviðum. Hún hefur haldið fjölda fyrirlestra um listmeðferð, innlendis sem erlendis. Hún átti frumkvæði að fyrsta nor- ræna þinginu um listmeðferð og fékk Norræna húsið og Félag sér- kennara á Íslandi til samstarfs, en þingið var haldið í Norræna húsinu í Reykjavík 1975. Hún hannaði einnig og skipulagði alþjóðlegt þing um börn og rafræna miðla og fékk Nor- ræna húsið í samstarf. Ráðstefnan var haldin í Norræna húsinu 1995. Hún er meðhöfundur þriggja bóka sem allar fjalla um börn á sjúkra- húsum og var höfundarþátttaka Sig- ríðar um listmeðferð. Hún hefur enn fremur skrifað fjölda tímaritsgreina. 1955. „Ég notaði þá myndlist mark- visst sem þerapíu fyrir börnin. Næsta ár var ég síðan í starfsnámi á barnadeild Rigshospitalet í Kaup- mannahöfn og vann þar með leik- og myndþerapíu.“ Sigríður kom síðan heim til Ís- lands og varð höfundur og for- stöðukona leikmeðferðar og list- meðferðar á barnadeild Land- spítalans og Barnaspítala Hringsins 1957-73, hún var forstöðumaður eins árs framhaldsnáms, fyrir fóstrur, til S igríður Sveinbjörg Pálína Björnsdóttir er fædd 5. nóvember 1929 á Flögu í Skaftártungu í Vestur- Skaftafellssýslu. For- eldrar hennar bjuggu þá að Ásum í Skaftártungu, þar sem Björn faðir hennar var prestur, en móðir hennar var frá Flögu. „Þegar ég var á þriðja ári fluttum við að Brjánslæk á Barðaströnd þar sem pabbi þjónaði kalli í tvö ár en þá fluttum við að Höskuldstöðum á Skagaströnd. Var pabbi prestur þar til ársins 1940 en þá um vorið var Ís- land hernumið af Bretum. Við flutt- um til Reykjavíkur það haust en pabbi hóf þá útgáfu á tímariti sínu Jörð. Þegar við komum til Reykjavíkur var ég tæplega ellefu ára og fór ég í Mýrarhúsaskóla á Seltjarnarnesi. Það voru mikil viðbrigði fyrir sveita- stelpuna að koma til Reykjavíkur og ekki síst vegna hernámsins. Í ná- grenni við heimili okkar voru þrír herkampar og við hliðin stóðu ætíð fullvopnaðir hermenn. Mér var sagt þá að fleiri hermenn væru í Reykja- vík en borgarar og maður sá her- menn alls staðar. Vorið eftir var ég send í sveit að Flögu, til afa og ömmu, en síðar var ákveðið að ég yrði þar áfram um veturinn. Ég lauk því fullnaðarprófi frá barnaskól- anum í Skaftártungu.“ Sigríður var í Verzlunarskóla Ís- lands 1944-47, útskrifaðist sem myndlistarkennari frá Myndlistar- og Handíðaskólanum 1952, var í námi við Central School of Art and Crafts, London 1954-55 og lauk diplómanámi í listmeðferð frá Gold- smiths College, University of London 1984. Starfsferillinn Sigríður vann sem myndlistar- maður í starfsnámi á sjúkrahúsum á Englandi til að læra að vinna með sjúkum og fötluðum börnum árið 1952. „Ég byrjaði að þróa þá hug- mynd að nota mætti myndlist sem þerapíu fyrir börn á sjúkrahúsum.“ Hún var myndlistarkennari í Kvennaskólanum í Reykjavík 1952- 53, var í starfsnámi á barnadeild Maudsley-geðspítalans í London Sigríður var varaformaður í Fé- lagi íslenskra myndlistarkennara 1971-73, ritari FÍM (Félag íslenskra myndlistarmanna) og ritari í Ís- landsdeild norræna myndlistar- bandalagsins 1976-80, forstöðu- maður Sýningarsals FÍM, 1977-80, fulltrúi FÍM í Nordfag (þá stéttar- félag norrænna myndlistarmanna) 1978-81, forseti Íslandsdeildar The International Association of Art, UNESCO, 1978-88, félagi í „öld- ungaráði“ The International College of Pediatrics, 1975-88, og ritari IAPTE 1988-90. Sigríður hefur sömuleiðis átt öfl- ugan listmálaraferil að baki og hald- ið fjölda einkasýninga og samsýn- inga, bæði innlendis og erlendis. Hún tók síðast þátt í samsýningu núna í sumar á vegum Akademíu skynjunarinnar. „Sýningin var hald- in víða á Snæfellsnesi, en þátttak- endur á henni þurftu að vera tengd- ur Snæfellsnesi. Ég málaði mikið á Hellnum, var líklega 25 sinnum þar hluta úr sumri, var heilluð af nátt- úrunni og birtunni þar og börnin mín eiga hús þar.“ Sigríður er enn að mála og von er á bók um myndlist hennar fyrir jól. „Ég byrjaði í abstrakt, fór síðan í landslagsmálverg en er aftur komin Sigríður Björnsdóttir, myndlistarmaður og listmeðferðarfræðingur – 90 ára Ásamt barnabörnum Frá vinstri: Vera Roth, Sigríður, Þrándur Gíslason Roth og Þórunn Gísladóttir Roth í útskriftarveislu árið 2017, en öll þessi þrjú barnabörn voru þá að útskrifast úr háskólanámi. Notar alla krafta sína í myndlistina Mæðgin Sigríður og Karl. 40 ára Berglind ólst upp í Mosfellsbæ en flutti á Sauðárkrók fyrir tíu árum og er núna að byggja í Kringlumýri í Blöndu- hlíð. Hún er með BA- gráðu í fornleifafræði og MA-gráðu í menningarfræði og er safnstjóri Byggðasafns Skagfirðinga. Maki: Guðmundur Stefán Sigurðarson, f. 1980, minjavörður Norðurlands vestra. Börn: Jóna Karítas, f. 2007, Matthías, f. 2010, og Katrín, f. 2013. Foreldrar: Þorsteinn Eyjólfsson, f. 1937, rafvirki, og Jóna Þórðardóttir, f. 1950, húsmóðir. Þau eru búsett í Playa Flam- enca rétt fyrir sunnan Alicante á Spáni. Berglind Þorsteinsdóttir Til hamingju með daginn Grindavík Hekla Margrét fæddist 3. febrúar 2019 kl. 17.58 á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Hún vó 3.638 g og var 51 cm löng. Foreldrar hennar eru Sigríður Etna Marinósdóttir og Ingólfur Ágústsson. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.