Morgunblaðið - 05.11.2019, Side 24
ur liðsins er þjóðarleikvangur Ka-
sakstans, þar sem Ísland lék einmitt
undir þaki í undankeppni EM í
marsmánuði árið 2015.
Enn óvissa með þátttöku
í landsleikjunum
Sjálfur fylgdist Rúnar með leik
Tobol og Astana af varamanna-
bekknum en hann hefur ekki spilað
síðan hann meiddist í landsleiknum
gegn Frökkum á Laugardalsvell-
inum 11. október.
„Ég tognaði aftan í læri og er ekki
búinn að ná mér alveg. Ég æfði með
liðinu fyrir leikinn en sat svo bara á
bekknum í borgaralegum klæðum
og vissi ekki að ég hefði verið á leik-
skýrslunni fyrr en ég sá það í fjöl-
miðlum eftir leikinn!“ sagði Rúnar
og hann veit ekki enn hvort hann
verði klár í slaginn með landsliðinu
gegn Tyrkjum og Moldóvum 14. og
17. nóvember.
„Nei, ég spila örugglega ekki þeg-
ar við tökum á móti AZ Alkmaar í
Evrópudeildinni á fimmtudaginn en
mögulega verð ég með í lokaumferð
deildarinnar á sunnudaginn. Það
skýrist betur þá hvort ég geti tekið
þátt í landsleikjunum. Nú tek ég
bara einn dag í einu og það verður
ekki ákveðið fyrr en á síðustu
stundu,“ sagði Rúnar.
Tveir leikir á viku
Hann kom til Astana frá Grass-
hoppers í Sviss í byrjun júlí og hefur
frá þeim tíma spilað 11 leiki í deild-
inni í Kasakstan og 10 Evrópuleiki,
auk landsleikjanna í september og
október.
„Ég missti mikið úr síðasta vetur í
Sviss en var búinn að vera alveg
heill hérna hjá Astana þar til þetta
gerðist í landsleiknum. Það var
verulega svekkjandi en líklega hefur
allt þetta leikjaálag komið í bakið á
mér. Við höfum spilað tvo leiki í viku
undanfarna mánuði,“ sagði Rúnar.
Klár gegn Manchester United
Hann gerir hins vegar algjörlega
ráð fyrir að vera kominn í gott stand
þegar Astana tekur á móti Man-
chester United í Evrópudeildinni 28.
nóvember. Rúnar og félagar töpuðu
fyrri leiknum naumlega á Old Traf-
ford í september, 1:0.
„Já, þá verð ég örugglega orðinn
heill. Það er gríðarleg spenna í Kas-
akstan fyrir þessum leik og þetta er
stærsti fótboltaleikur í sögu félags-
ins. Við vorum svekktir að tapa á
Old Trafford eftir að hafa haldið
jöfnu svona lengi í leiknum og ætl-
um okkur að gera betur.“
Astana hefur ekki fengið stig eftir
þrjá leiki í riðlakeppni Evrópudeild-
arinnar. Rúnar skoraði eina mark
liðsins í deildinni til þessa, með
glæsilegu langskoti í 1:2-ósigri gegn
Partizan Belgrad á heimavelli. Það
var hans fimmta mark í tíu Evrópu-
leikjum með Astana en hann skoraði
fjögur mörk í undankeppninni í
sumar og haust. Að auki hefur Rún-
ar skorað tvívegis fyrir Astana í
deildinni heima fyrir.
Fórnuðum leiknum í Hollandi
„Tapið gegn Partizan var sérstak-
lega svekkjandi því til að komast
lengra í þessari keppni þarf að vinna
heimaleikina. En við fórnuðum
næsta leik í Evrópudeildinni, útileik
gegn AZ Alkmaar, þar sem margir
leikmenn voru hvíldir og við vorum
tveir frá vegna meiðsla. Staðan okk-
ar í deildinni heima fyrir var orðin
þannig að við vorum með bakið upp
við vegg og urðum að vinna síðustu
fimm leikina til að missa ekki af
meistaratitlinum. Við töpuðum 6:0 í
Hollandi en þetta borgaði sig þegar
upp var staðið og nú er meistaratit-
illinn í höfn.“
Rúnar er aðeins annar Íslending-
urinn sem spilar með liði í Kasak-
stan en Hannes Þ. Sigurðsson lék
með Atyrau árið 2012. Hann kveðst
mjög ánægður með lífið þarna aust-
ur á sléttum Asíu en aðeins um tíu
prósent af þessu stóra landi eru í
Evrópu og það teygir sig langt aust-
ureftir meginlandi Asíu.
Leikmenn vilja ekki fara
„Hér er mjög þægilegt að vera og
hvað fótboltann varðar sér félagið
um allt, það hefur staðið við alla
hluti, hugsar afar vel um leikmenn-
ina og hér er ekkert vesen á neinu.
Ég er með yngri mönnum í liðinu
þótt ég sé orðinn 29 ára gamall því
kjarninn í liðinu hefur verið nánast
óbreyttur í fimm ár. Leikmenn sem
koma hingað vilja helst ekki fara
aftur,“ sagði Rúnar, en hann er einn
af sautján landsliðsmönnum í hópi
Astana. Níu þeirra leika með lands-
liði Kasakastans en hinir hafa leikið
með liðum Serbíu, Svartfjallalands,
Hvíta-Rússlands, Rúmeníu, Króatíu,
Kongós og Curacao, auk Íslands.
Þeirra þekktastur er varnarmaður-
inn Antonio Rukavina, sem á 60
landsleiki að baki fyrir Serbíu og
kom til Astana frá Villarreal á Spáni
fyrir tveimur árum.
Astana (sem reyndar fékk nafnið
Nur-Sultan fyrr á þessu ári) er inni í
miðju landi og er í þriðja sæti yfir
þær höfuðborgir heims sem eru
lengst frá sjó og er jafnframt sú
kaldasta í heimi, miðað við með-
alhita árs. Rúnar er samt mjög sátt-
ur við lífið þar ásamt Anítu sam-
býliskonu sinni og dótturinni
Kristínu sem er rétt að verða eins
árs.
Maturinn æðislegur en
missir af mesta kuldanum
„Það hefur líka verið vonum fram-
ar að búa hérna og okkur fjölskyld-
unni líður vel í borginni. Ég kveið
dálítið fyrir matnum en það var
óþarfi – hann er æðislegur!
Reynslan fyrstu 4-5 mánuðina er því
góð. Reyndar er búið að vara okkur
mikið við vetrinum, það er 15-20
stiga frost hérna í janúar og febrúar,
en ég missi meira og minna af því.
Eftir leikinn við Manchester United
förum við eitthvað í hitann til að búa
okkur undir leikinn við Partizan 12.
desember en svo tekur við mánaðar-
frí. Á undirbúningstímabilinu verð-
um við síðan í Dubai og Tyrklandi,
mætum ekki aftur til Kasakstan fyrr
en í mars svo maður missir víst
meira og minna af öllum kuldunum.
En ég þekki þetta alveg, ég var hjá
Sundsvall í Norður-Svíþjóð og þar
var oft 25 stiga frost á veturna,“
sagði Rúnar Már Sigurjónsson.
Ég hef séð
meiri læti
en þetta
Rúnar Már Sigurjónsson meistari í
Kasakstan Ánægður með lífið og
fótboltann í köldustu höfuðborg heims
Morgunblaðið/Eggert
Astana Rúnar Már Sigurjónsson hefur skorað sjö mörk í 21 leik frá því
hann kom til Astana og er orðinn kasakskur meistari með liðinu.
KASAKSTAN
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
„Þetta var rólegasti meistarafögn-
uður sem ég hef orðið vitni að,“
sagði Rúnar Már Sigurjónsson
landsliðsmaður í knattspyrnu við
Morgunblaðið í gær en á sunnudag-
inn varð hann meistari í Kasakstan
með liði sínu, Astana, þegar það
sigraði Tobol á útivelli, 1:0, í næst-
síðustu umferðinni þar í landi.
„Við bjuggumst alls ekki við því
að verða meistarar í þessum leik en
svo tapaði aðalkeppinauturinn, Kai-
rat, afar óvænt, 5:0, á sama tíma. Við
vissum þegar leið á leikinn að þeir
væru að tapa en þetta var samt eng-
inn æsingur. Liðið var að tryggja
sér meistaratitilinn sjötta árið í röð,
þetta var kannski stemning í 2-3
mínútur á vellinum í leikslok og svo
var það búið. Ég hef séð önnur og
meiri læti þegar lið á Íslandi og í
Svíþjóð vinna meistaratitla!“ sagði
Rúnar en leikurinn fór fram í knatt-
spyrnuhöll í borginni Kostanay í
norðurhluta Kasakstans og með
sigrinum náði Astana fjögurra stiga
forskoti á Kairat fyrir lokaumferð-
ina.
„Hérna er komið talsvert frost,
6-8 gráður, og fyrstu og síðustu leik-
ir tímabilsins eru alltaf spilaðir inn-
anhúss. Það er einmitt nýbúið að
draga þakið yfir völlinn okkar í
Astana,“ sagði Rúnar en heimavöll-
24 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 2019
GRÆNA TUNNAN
auðveldar flokkunina
577 5757 | www.igf.is | igf@igf.is
S: 577
5757
NÁTTÚRAN ER TAKMÖRKUÐ AUÐLIND
HUGSUM
ÁÐUR EN VIÐ HENDUM
Í hana má setja allan pappír, pappa,
plastumbúðir og minni málmhluti
– Muna að skola
Pantaðu græna tunnu í síma 577 5757 eða á igf.is
Körfuknattleikskappinn Terrance
Motley er genginn til liðs við úrvals-
deildarlið Þórs á Akureyri. Motley er
ætlað að fylla skarðið sem Jamal
Palmer mun skilja eftir sig en hann
hefur ekki þótt standa undir vænt-
ingum það sem af er tímabili og hefur
því verið sendur heim. Motley er þriðji
Bandaríkjamaðurinn sem skrifar undir
samning við Þórsara á undanförnum
mánuðum en fyrir tímablið sömdu
Akureyringar við Zeek Woodley sem
var sendur heim áður en hann náði að
spila leik fyrir félagið. Motley þekkir
ágætlega til á Íslandi en hann lék með
FSu tímabilið 2016-17 í 1. deildinni þar
sem hann skoraði 31 stig að meðaltali
og tók 13 fráköst að meðaltali í 24
leikjum. Þórsarar eru nýliðar í Dom-
inos-deildinni en liðið hefur tapað
fyrstu fimm leikjum sínum í deildinni.
Knattspyrnudómarinn Michael Oli-
vermun dæma stórleik Liverpool og
Manchester City í ensku úrvalsdeild-
inni á sunnudaginn kemur en þetta var
tilkynnt í gær. Paul Tierney verður
VAR-dómari í leiknum sem fer fram á
Anfield í Liverpool. Liverpool er í
efsta sæti deildarinnar með 31
stig eftir fyrstu
ellefu umferð-
irnar en City
er í öðru
sæt-
inu
með 25
stig. Liverpool
getur því náð
níu stiga for-
skoti með sigri
um helgina.
Eitt
ogannað