Morgunblaðið - 05.11.2019, Side 26

Morgunblaðið - 05.11.2019, Side 26
FÓTBOLTI Kristján Jónsson kris@mbl.is Eftir heldur leiðinlega þróun síðustu árin í mörgum karladeildunum í knattspyrnunni í Evrópu gæti verið að rofa til sé mið tekið af stöðunni nú. Í mörgum stærstu deildunum er orð- ið nokkuð algengt að lítil sem engin spenna ríki um hvaða lið verður meistari. Elítulið eins og Juventus, Bayern München og PSG sem dæmi hafa gjarnan svo gott sem tryggt sér sigur á Ítalíu, í Þýskalandi og Frakk- landi þegar margir mánuðir eru eftir af keppninni. Á Spáni eru það iðulega Barcelona eða Real Madrid og á allra síðustu árum er spurning um hvort Manchester City gefi nægilega mikið eftir til að annað lið geti nýtt tækifær- ið og orðið meistari. Fyrir hinn almenna áhugamann er þessi þróun ekki skemmtileg og ljóst að smám saman mun draga úr vin- sældum íþróttarinnar við slíkar að- stæður. Nú eru hins vegar skemmti- leg teikn á lofti nokkuð víða í álfunni. Nema kannski fyrir eldheita stuðn- ingsmenn umræddra liða. Angers í 2. sæti Um síðustu helgi þurftu mörg af ríkustu liðunum að sætta sig við tap. Sú hrina úrslita hófst á föstudags- kvöldið þegar toppliðið í Frakklandi, Paris Saint-Germain, tapaði fyrir botnliðinu Dijon 2:1. Þrátt fyrir að PSG kæmist yfir 1:0. Spennan er hins vegar heldur lítil í toppbaráttunni því Parísarliðið er með sjö stiga forskot. Framganga Angers vekur þó athygli en liðið er í 2. sæti. Liðið er frá sam- nefndri borg í vesturhluta Frakk- lands þar sem álíka margir búa og í Reykjavík. Leikvangur liðsins tekur tæplega 18 þúsund manns. Liðið hef- ur aldrei unnið stóru keppnirnar í Frakklandi og kom síðast upp í efstu deild árið 2015. Knattspyrnustjórinn Stéphane Moulin er að gera eitthvað rétt en hann hefur stýrt liðinu síðan 2011. Gladbach á toppnum Á laugardag bættust fleiri óvænt úrslit við. Ef við horfum til Þýska- lands þá gerðust þau stórtíðindi að Bayern München tapaði 5:1 fyrir Eintracht Frankfurt. Jerome Boa- teng fékk rauða spjaldið strax á 9. mínútu sem skýrir þetta frávik hjá Bæjurum en úrslitin eru þau verstu sem liðið hefur þurft að þola í áratug. Var það meira en forráðamenn Bay- ern þoldu og knattspyrnustjórinn Niko Kovac var rekinn. Bayern hefur orðið meistari sjö ár í röð og mun sjálfsagt finna leiðir til að vinna einn- ig 2020. Fyrir ári byrjaði liðið til dæmis illa og Borussia Dortmund nældi í gott forskot en það dugði samt ekki til. Sem stendur er Bayern í 4. sæti og er liðið fjórum stigum á eftir toppliðinu Borussia Mönchenglad- bach. Bayern er raunar með jafn mörg stig og RB Leipzig, Freiburg og Schalke sem nældi í útisigur gegn Augsburg þótt Alfreð Finnbogason kæmi Augsburg í 2:1. Eru þessi lið í 3.-6. sæti með 18 stig. Gladbach hefur fimm sinnum orðið meistari en blómaskeið liðsins var á áttunda áratugnum. Liðið varð síðast meistari á því herrans ári 1977. Fór það þá einnig í úrslit í Evrópukeppni meistaraliða en tapaði fyrir Liver- pool. Gladbach kom við hér á Íslandi í september árið 1973 og fór þá illa með Eyjamenn. Gladbach vann leik- ina tvo gegn ÍBV í Evrópukeppni bik- arhafa 16:1 samanlagt. Var það Þjóð- verjunum til happs að Ásgeir Sigur- vinsson var þá nýfarinn frá ÍBV til Standard Liege. Á meðal þekktustu leikmanna í sögu Gladbach eru menn sem gert hafa garðinn frægan sem stjórar eins og Jupp Heynckes og Berti Vogts. Gladbach varð í 5. sæti á síðasta tíma- bili og því bjuggust sjálfsagt margir við því að liðið yrði gott en ekki svo að það yrði í efsta sæti í nóvember. Mörg þýsku félögin eru býsna stór þótt þau séu ekki eins mikið á milli tannanna á fólki hér norður í hafi og ensku félögin. Heimavöllur Gladbach tekur til að mynda 54 þúsund manns en liðið verður þó ekki flokkað með ríku liðunum sem keppa ár eftir ár í Meistaradeildinni. Óvenjuleg staða á Spáni Eins og sakir standa á Spáni er toppbaráttan mun áhugaverðari en alla jafna. Barcelona tapaði 3:1 fyrir Levante á laugardag og Real Madrid gerði markalaust jafntefli á heima- velli gegn Real Betis. Eru þau með 22 stig ásamt Real Sociedad, sem áður- nefndur Alfreð lék með fyrir nokkr- um árum. Þar er ekki öll sagan sögð. Atletico Madrid og Sevilla eru með 21 stig, Granada með 20 þrátt fyrir að hafa tapað tveimur leikjum í röð og Getafe með 19. Ekki eru það ný tíðindi að Atletico og Sevilla geti átt góð tímabil og strítt ríku liðunum. Sociedad er heldur ekki lítið félag. Er með leikvang sem tekur 40 þúsund manns og hefur tvívegis orðið meistari. Klórar fólk sér frekar í höfðinu yfir stigasöfnun Granada og Getafe. Granada er í Andalúsíu og því yfirleitt í skugga Sevilla á knatt- spyrnuvellinum en leikvangur liðsins tekur 23 þúsund. Ekki eru nema tvö og hálft ár liðin frá því Sverrir Ingi Ingason var hjá liðinu en hann yfirgaf Granada og fór til Rússlands þegar liðið féll úr La Liga vorið 2017. Getafe er í útjaðri Madrídar og því einungis litli bróðir Madrídarliðanna. Heimavöllur liðsins tekur 17 þúsund. Getur Conte skákað Juve? Á Ítalíu er Juventus í efsta sæti og fátt sem kemur á óvart varðandi þá staðhæfingu. Hins vegar var Inter á toppnum fyrir skömmu og er aðeins stigi á eftir. Þar hefur Antonio Conte tekið til hendinni en hann lék nánast allan sinn feril með Juventus. Fara þarf aftur til ársins 2011 til að finna aðra niðurstöðu en að Juventus hafi orðið Ítalíumeistari. Þá var það AC Milan sem vann. Liðin úr höfuðborg- inni AS Roma og Lazio eru sjö og átta stigum á eftir Juventus. Frammistaða Atalanta hefur verið hressandi en liðið er með jafn mörg stig og Lazio. Tapaði liðið reyndar um helgina en það var aðeins annað tapið í fyrstu ellefu leikjunum. Í lok október tók Atalanta sig til og rót- burstaði Udinese, sem Emil Hall- freðsson spilaði með lengi, 7:1 og komst þá í 3. sæti deildarinnar. Atal- anta er staðsett í Bergamo og er nyrst á Ítalíu. Kílómetrafjarlægðin til Sviss er um það bil svipuð og þegar farið er inn í Súðavík frá Bolungarvík. Leikvangur Atalanta tekur 21 þús- und og því miklu minna upp úr því að hafa en hjá stórliðunum. Besti árangur í sögu liðsins er bikarmeistaratitill 1963 og 3. sæti í deildinni síðasta vor. Áðurnefndur Conte stýrði liðinu um tíma fyrir tæp- um áratug. Það helsta sem ég man eftir Atalanta er að í gamla daga tefldi liðið fram óvenju síðhærðum mönnum eins og Claudio Caniggia og Glenn Strömberg, sem báðir virtust biðja um Péturs Péturssonar- klippingu hjá rakaranum í Bergamo. Leicester sló met Í ensku úrvalsdeildinni tapaði Manchester United fyrir Bourne- mouth en slíkt er hætt að vera frétta- matur. Liverpool er í efsta sæti með 31 stig og hefur ekki tapað leik. Meistarar síðustu tveggja ára í Man- chester City eru með 25 stig. Útlit er fyrir að þessi lið berjist um titilinn eins og síðasta vor. Bæði voru þau þó í hálfgerðu basli um síðustu helgi. Voru bæði undir gegn minni spá- mönnum þegar langt var liðið á leik- ina en unnu bæði 2:1 þegar upp var staðið. Liverpool hefur ekki unnið deildina síðan 1990, áður en Davíð Oddsson varð forsætisráðherra. Hver veit nema þeirri bið ljúki í maí. Leicester City er í toppbaráttunni með 23 stig eins og Chelsea. Liðið burstaði Southampton á dögunum 9:0 og undirstrikaði þar styrk sinn með stærsta útisigri í sögu efstu deildar á Englandi. Líkurnar á því að Leicest- er geti orðið meistari þegar Liverpool og City eru í góðum gír eru litlar. Sig- ur Leicester í deildinni 2016 leyfir þó ekki fullyrðingar um að liðið geti ekki unnið. Leicester er ágætlega statt þótt félagið sé ekki ríkt í samanburði við þau ríkustu. Leikvangurinn tekur 32 þúsund manns en innan félagsins eru menn enn að sleikja sárin eftir sviplegt fráfall eigandans, Vichais Srivaddhanaprabha, fyrir ári. Chelsea hefur unnið fimm leiki í röð nú þegar félaginu hefur verið meinað að kaupa leikmenn fyrir brot á reglum eins og Víðir Sigurðsson benti á í Bakvarðapistli í síðustu viku. Boðflennur í veislum elítunnar í Evrópu  Hvað eru Gladbach, Angers, Real Sociedad og Atalanta að vilja upp á dekk? AFP Niðurlútur Markavélin Robert Lewandowski í tapleiknum gegn Frankfurt. 26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 2019 Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is Ekki bara jeppar 2012 -2017 Kerruöxlar og íhlutir ALLT TIL KERRUSMÍÐA Danmörk Silkeborg – Bröndby............................... 0:1  Hjörtur Hermannsson lék allan leikinn fyrir Bröndby. Staðan: Midtjylland 15 12 2 1 21:6 38 København 15 11 1 3 29:15 34 Brøndby 15 9 1 5 31:21 28 OB 15 8 2 5 23:14 26 AGF 15 7 2 6 22:16 23 Randers 15 7 2 6 25:20 23 AaB 15 7 1 7 22:17 22 Nordsjælland 15 6 2 7 25:25 20 Lyngby 15 6 1 8 17:26 19 SønderjyskE 15 4 6 5 17:22 18 Horsens 15 4 3 8 12:25 15 Hobro 15 2 7 6 15:21 13 Esbjerg 15 2 4 9 12:25 10 Silkeborg 15 1 4 10 20:38 7 Rússland Krilija Sovetov – Rubin Kazan............... 0:0  Viðar Örn Kjartansson lék allan leikinn fyrir Rubin Kazan. England B-deild: Stoke – WBA ............................................ 0:2 Staða efstu liða: WBA 15 8 6 1 28:17 30 Preston 15 8 4 3 28:16 28 Leeds 15 8 4 3 19:8 28 Swansea 15 8 4 3 20:14 28 Nottingham F. 14 7 4 3 19:13 25 KNATTSPYRNA KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildin: Stykkishólmur: Snæfell – KR ............. 19.15 HANDKNATTLEIKUR 1. deild kvenna, Grill 66-deildin: Vestm.eyjar: ÍBV U – Víkingur .......... 19.30 KNATTSPYRNA Vináttulandsleikur U19 kvenna: Fífan: Ísland – Svíþjóð.............................. 19 ÍSHOKKÍ Íslandsmót karla, Hertz-deildin: Egilshöll: Fjölnir – SR......................... 19.45 Í KVÖLD! Geysisbikar karla Bikarkeppni KKÍ, 1. umferð: Selfoss – Tindastóll .............................. 68:83 Haukar – Þór Þ..................................... 67:71 NBA-deildin Indiana – Chicago............................... 108:95 Miami – Houston .............................. 129:100 New York – Sacramento.................... 92:113 San Antonio – LA Lakers.................. 96:103 Cleveland – Dallas............................ 111:131 LA Clippers – Utah............................ 105:94 KÖRFUBOLTI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.