Morgunblaðið - 05.11.2019, Qupperneq 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 2019
SMÁRALIND – KRINGLAN
Flokkunartunnur
Verð 39.900,-
Fleiri litir
HANDBOLTI
Olísdeild karla
Selfoss – Stjarnan................................. 31:30
Staðan:
Haukar 8 6 2 0 207:193 14
Afturelding 8 6 0 2 212:200 12
Selfoss 8 5 1 2 244:242 11
FH 8 5 1 2 221:212 11
ÍR 8 5 0 3 235:217 10
ÍBV 8 4 1 3 216:206 9
Valur 8 3 1 4 197:186 7
KA 8 3 1 4 225:224 7
Fram 8 3 0 5 197:197 6
Fjölnir 8 2 1 5 205:230 5
Stjarnan 8 1 2 5 200:219 4
HK 8 0 0 8 193:226 0
Danmörk
Bjerringbro/Silkeborg – GOG .......... 32:29
Þráinn Orri Jónsson komst ekki á blað
hjá Bjerringbro/Silkeborg.
Arnar Freyr Arnarsson skoraði 1 mark
fyrir GOG en Óðinn Þór Ríkharðsson skor-
aði ekki. Viktor Gísli Hallgrímsson varði 7
skot í marki liðsins.
Staðan: Aalborg 15, Ribe-Esbjerg 13,
Holstebro 12, Bjerringbro/Silkeborg 11,
SönderjyskE 11, Skjern 11, Fredericia 9,
Skanderborg 9, GOG 8, Århus 8, Mors-Thy
8, Kolding 5, Lemvig 4, Nordsjælland 2.
Knattspyrnukon-
an Cloé Lacasse
var á skotskón-
um um helgina
þegar lið hennar
Benfica vann
10:0-sigur gegn
Cadima í portú-
gölsku 1. deild-
inni. Cloé gerði
sér lítið fyrir og
skoraði þrennu í
leiknum en hún hefur nú skorað tíu
mörk í sex deildarleikjum með Ben-
fica, sem situr á toppi deildarinnar
með fullt hús stiga eftir fyrstu sex
umferðirnar. Cloé gekk til liðs við
Benfica frá ÍBV síðasta sumar en
hún skoraði ellefu mörk í tólf leikj-
um með ÍBV í úrvalsdeildinni áður
en hún hélt til Portúgals. Hún hefur
því skorað 21 deildarmark á árinu
2019 í einungis 18 leikjum. Cloé er
fædd í Kanada en hún fékk íslensk-
an ríkisborgarararétt í júní á þessu
ári og er því gjaldgeng í íslenska
landsliðið. bjarnih@mbl.is
Hefur raðað
inn mörkum
á árinu 2019
Cloé
Lacasse
Marko Bakovic fór mikinn fyrir Þór
Þorlákshöfn sem vann fjögurra
stiga endurkomusigur gegn Hauk-
um í bikarkeppni karla í körfuknatt-
leik, Geysisbikarnum, á Ásvöllum í
Hafnarfirði í fyrstu umferð keppn-
innar í gær. Leiknum lauk með
71:67-sigri Þórsara en Bakovic var
með tvöfalda tvennu í leiknum og
skoraði 20 stig og tók fjórtán frá-
köst.
Haukar leiddu með tólf stigum í
hálfleik, 45:33, en Þórsarar skoruðu
23 stig í þriðja leikhluta gegn 10
stigum Hauka. Þórsarar héldu svo
út í fjórða leikhluta og tryggðu sér
sæti í annarri umferð bikar-
keppninnar á kostnað Hafnar-
fjarðarliðsins.
Kári Jónsson var stigahæstur
Hauka með 17 og Flenard Whitfield
skoraði 16 stig.
Þá tryggði úrvalsdeildarlið Tinda-
stóls sér sæti í annarri umferðinni
eftir 83:68-sigur gegn 1. deildarliði
Selfoss í Vallaskóla á Selfossi. Jaka
Brodnik var stigahæstur í liði Tinda-
stóls með 25 stig en Kristijan Vlado-
vic skoraði 20 stig fyrir Selfyssinga.
bjarnih@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Atkvæðamikill Marko Bakovic skorar framhjá Emil Barja á Ásvöllum.
Slógu Hauka úr
leik í Hafnarfirðinum
Atli Ævar Ingólfsson tryggði Sel-
fossi eins marks sigur gegn Stjörn-
unni í háspennuleik í úrvalsdeild
karla í handknattleik, Olísdeildinni, í
Hleðsluhöllinni á Selfossi í áttundu
umferð deildarinnar í gær. Leiknum
lauk með 31:30-sigri Selfyssinga,
sem leiddu með einu marki í hálfleik,
14:13.
Selfyssingar voru sterkari aðilinn
í fyrri hálfleik og voru með frum-
kvæðið allan tímann. Þeir náðu mest
þriggja marka forskoti, 8:5, en
Garðbæingar unnu sig vel inn í leik-
inn og tókst að jafna í 13:13 áður en
Atli Ævar skoraði síðasta mark fyrri
hálfleiks. Selfyssingar voru áfram
með frumkvæðið í upphafi seinni
hálfleiks en liðin skiptust á að leiða
þegar líða fór á leikinn. Stjarnan
leiddi með einu marki, 28:27, þegar
fimm mínútur voru til leiksloka en
Selfyssingar reyndust sterkari á
lokakaflanum og fögnuðu kærkomn-
um sigri.
Atli Ævar Ingólfsson og Haukur
Þrastarson fóru mikinn í liði Selfoss
og skoruðu átta mörk hvor. Þá varði
Einar Baldvin Baldvinsson 13 skot í
marki Selfyssinga. Hjá Stjörnunni
var Leó Snær Pétursson marka-
hæstur með tíu mörk og Tandri Már
Konráðsson skoraði 6. Sveinbjörn
Pétursson varði 8 skot í marki
Garðbæinga.
Selfoss fer með sigrinum upp í
þriðja sæti deildarinnar í 11 stig,
eins og FH. Stjarnan er áfram í ell-
efta og næstneðsta sæti með 3 stig
eftir átta leiki. bjarnih@mbl.is
Atli Ævar hetja
Selfyssinga
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Öflugur Atli Ævar Ingólfsson
tryggði Selfyssingum sigur.
Íslandsmeistararnir í þriðja sætið
Jóhannes Karl Sigursteinsson mun þjálfa kvennalið KR í
knattspyrnu næstu tvö árin en þetta kom fram á heima-
síðu félagsins í gær.
Jóhannes Karl tók við liði KR hinn 17. júlí í sumar eftir
að Bojana Besic sagði starfi sínu lausu í byrjun júlí. KR
var í neðsta sæti úrvalsdeildarinnar, Pepsi Max-
deildarinnar, með fjögur stig eftir fyrstu sjö umferð-
irnar þegar Bojana hætti með liðið. Ragna Lóa Stef-
ánsdóttir stýrði liðinu í tveimur leikjum eftir brotthvarf
Bojönu, gegn Stjörnunni og HK/Víkingi, áður en Jó-
hannes tók við liðinu en Ragna Lóa verður aðstoð-
arþjálfari Jóhannesar. Undir stjón þeirra hafnaði KR í
sjöunda sæti deildarinnar með 19 stig og þá fór liðið alla leið í úrslit bik-
arkeppninnar þar sem KR tapaði fyrir Selfossi í framlengdum leik á Laug-
ardalsvelli. Þá verður Gísli Þór Einarsson markmannsþjálfari liðsins. Aníta
Lísa Svansdóttir mun þá koma inn í þjálfarateymið en hún var aðstoð-
arþjálfari Helenu Ólafsdóttur hjá ÍA í 1. deildinni síðasta sumar.
bjarnih@mbl.is
Penninn á lofti í Vesturbænum
Jóhannes Karl
Sigursteinsson
Vilhjálmur Alvar Þórarinsson mun
dæma leik F91 Dudelange og Sevilla
í Evrópudeildinni í knattspyrnu 7.
nóvember næstkomandi en leikurinn
fer fram á Josy Barthel-vellinum í
Lúxemborg. Þeir Gylfi Már Sigurð-
arson og Birkir Sigurðarson verða
aðstoðardómarar og þá verður Ívar
Orri Kristjánsson fjórði dómari.
Sevilla er með fullt hús stiga í
efsta sæti A-riðils með níu stig en
ekkert lið hefur fagnað sigri oftar í
keppninni en Sevilla, alls fimm sinn-
um. bjarnih@mbl.is
Íslendingar
dæma í Evrópu
Morgunblaðið/Eggert
Dómari Vilhjálmur Alvar verður
með flautuna í Evrópudeildinni.
Íslenska karlalandsliðið í bandí leikur í fyrsta skipti á
heimavelli um næstu helgi. Landslið Bandaríkjanna er
væntanlegt í heimsókn og mætast þjóðirnar tvívegis, á
laugardagskvöldið klukkan 19 og á sunnudaginn
klukkan 15, og fara báðir leikirnir fram í Digranesi í
Kópavogi. Íslenska landsliðið er í 29. sæti á heimslist-
anum í íþróttinni og nokkrir leikmannanna spila með
sterkum liðum á Norðurlöndum. Þeirra þekktastur er
Andreas Stefánsson sem var valinn nýliði ársins í
sænsku úrvalsdeildinni fyrir tveimur árum en hún er
talin sterkasta deild heims í íþróttinni. Andreas varð
næstmarkahæsti leikmaður deildarinnar á fyrsta tíma-
bilinu með liði sínu, Pixbo. Mótherjarnir frá Bandaríkjunum eru í 15.
sæti heimslistans og hafa þegar tryggt sér sæti á næsta heimsmeist-
aramóti sem fer fram í Finnlandi í árslok 2020. Íslenska liðið býr sig
hins vegar undir að mæta Danmörku, Eistlandi og Bretlandi í undan-
keppni HM í janúar. vs@mbl.is
Fyrstu heimaleikir í Digranesi
Andreas
Stefánsson