Morgunblaðið - 05.11.2019, Blaðsíða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 2019
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Nánari upplýsingar ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Bílar á lager
Sími 4 80 80 80
2019 Ford F-150 Lariat Sport
Litur: Svartur, svartur að innan. FX4 offroad-pakki, Sport-pakki,Bakkmyndavél, Band &
Olufsen hátalarakerfi, hiti í öllum sætum, hiti í stýri, fjarstart, o.fl. 3,5 L Ecoboost (V6),
10-gíra, 375 hestöfl, 470 lb-ft of torque
VERÐ
12.670.000 m.vsk
2019 Ram Limited 3500 35”
Litur: Granite Crystal. Nýr 6,7L Cummins Turbo Diesel, 400 hö, togar 1000 pund! Aisin
sjálfskipting, upphitanleg og loftkæld sæti, hiti í stýri, sóllúga, nýr towing technology pakki.
35” dekk.
VERÐ
11.395.000 m.vsk
Sesselja Kristjánsdóttir mezzósópr-
an og Antonía Hevesi píanóleikari
koma fram á hádegistónleikum í
Hafnarborg í dag, þriðjudag, kl. 12.
Á efnisskránni eru aríur eftir
Gluck, Massenet, Bizet og Saint-
Saëns.
Sesselja stundaði nám við Tón-
listarskólann í Reykjavík, þar sem
kennari hennar var Rut Magnús-
son. Þaðan hélt hún í framhalds-
nám til Berlínar við Hochschule für
Musik Hanns Eisler og lauk þar
diplómaprófi með hæstu einkunn.
Sesselja hlaut Bayreuth-styrk
þýsku Richard Wagner-samtak-
anna sumarið 2000. Hún hefur ver-
ið mjög virk í íslensku tónlistarlífi
og sinnt flutningi óperu-, ljóða-,
óratoríu- og kammertónlistar jöfn-
um höndum.
Antonía hefur frá upphafi verið
listrænn stjórnandi hádegistónleika
í Hafnarborg, þar sem hún hefur
fengið marga af fremstu söngv-
urum landsins til liðs við sig.
Hádegistónleikar eru á dagskrá
Hafnarborgar fyrsta þriðjudag
hvers mánaðar yfir vetrartímann.
Tónleikarnir hefjast kl. 12 og
standa yfir í um hálfa klukkustund.
Húsið verður opnað kl. 11.30 og er
aðgangur að vanda ókeypis.
Gluck og Bizet í hádeginu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Aríur Antonía Hevesi
píanóleikari og Sess-
elja Kristjánsdóttir
mezzósópran koma
fram í hádeginu.
e-ð fjall nefnist
myndlistarsýn-
ing sem Leifur
Ýmir Eyjólfsson
hefur opnað í
Gallerí Úthverfu
/ Outvert Art
Space á Ísafirði.
Leifur Ýmir
fæddist á átt-
unda áratug síð-
ustu aldar og
býr og starfar á Íslandi. „Hann út-
skrifaðist frá Listaháskóla Íslands
og hefur sýnt við ýmis tækifæri
bæði hér heima og erlendis. Hann
hefur fengið ýmsar viðurkenn-
ingar fyrir störf sín. Í list sinni
fæst hann aðallega við innsetn-
ingar og annað,“ segir í tilkynn-
ingu. Allar nánari upplýsingar má
nálgast á Instagram/leifurymir.
Sýningin í Úthverfu er innsetning
sem er unnin að mestu á staðnum
í samvinnu við Fánasmiðjuna og
FabLab. Sýningin stendur til 8.
desember.
e-ð fjall í Úthverfu
Leifur Ýmir
Eyjólfsson
Tangóseptettinn Le Grand Tango
með bandoneonleikarann og tón-
skáldið Olivier Manoury í farar-
broddi stígur á svið í Salnum í
kvöld, þriðjudag, kl. 19.30 og flytur
fjölbreytta tangótónlist, allt frá
danstónlist til kammerverka. Í til-
kynningu frá Salnum kemur fram
að tangótónleikarnir verði sjóðheit-
ir og seiðandi.
Auk Oliviers er Le Grand Tango
skipað píanóleikaranum Eddu Er-
lendsdóttur, fiðluleikurunum Auði
Hafsteinsdóttur og Geirþrúði Ásu
Guðjónsdóttur, víóluleikaranum
Þórunni Ósk Marinósdóttur, selló-
leikaranum Bryndísi Höllu Gylfa-
dóttur og kontrabassaleikaranum
Richard Korn. Á efnisskránni eru
verk eftir Piazzolla og Pugliese.
Sófaspjall fyrir tónleikana verð-
ur við Olivier Manoury í umsjón
Arndísar Bjarkar Ásgeirsdóttur í
fordyri Salarins. Húsið verður opn-
að kl. 18, sófaspjallið hefst kl. 18.30
og tónleikarnir sjálfir kl. 19.30.
Seiðandi Le Grand Tango í Tíbrá
Septett Bandoneonleikarinn Olivier Manoury ásamt félögum sínum í Le Grand Tango.
Íslenski dansflokkurinn (Íd) frum-
sýndi Pottþétt myrkur á World
Culture’s listahátíðinni í Hong Kong
um helgina. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Hlyni Páli Hlynssyni,
framkvæmdastjóra Íd, leit um tíma
út fyrir að það yrði að fella niður
sýninguna af því að það sauð upp úr
á milli mótmælenda og lögregl-
unnar, sem beitti fyrir sig táragasi.
„Þannig fylltist gatan fyrir framan
leikhúsið af svartklæddum mótmæl-
endum þegar listrænn stjórnandi Íd
ætlaði út í kvöldmat um sexleytið, en
sýningin átti að hefjast kl. 20 að
staðartíma. Mannhafið var gríðar-
legt og stöfluðu mótmælendur öllu
lauslegu á göturnar til að stöðva um-
ferð og hamla för lögreglunnar. En
sem betur fer færðust átökin smám
saman frá Sheung Wan Civic Centre
leikhúsinu og yfir í önnur hverfi þeg-
ar leið nær sýningartíma,“ segir
Hlynur Páll í tilkynningu frá Íd.
Þar bendir hann á að í upphafi
Pottþétts myrkurs klæðist dansarar
Íd svörtum alklæðnaði og dansi við
svartklæddar brúður í mannsstærð.
„Dansararnir og brúðurnar minna
því merkilega mikið á svartklædda
og grímuklædda mótmælendur
Hong Kong, en verkið var búið til og
valið til sýningar hér löngu áður en
mótmælin hófust. Til að byrja með
líða svartklæddar verurnar um svið-
ið og minna á óreiðukennd nátt-
úruöflin, en eftir því sem líður á sýn-
inguna fara dansararnir að beita
brúðurnar ofbeldi og tuska þær til, í
bland við það að sýna þeim ástúð og
blíðleg atlot. Þegar ofbeldið færist í
aukana verða líkindin við atburði
óeirðanna á götum úti óhjákvæmileg
og öngþveitið á leiksviðinu kallast á
við aðstæðurnar úti.
Sýningin hreyfði mjög við áhorf-
endum, sem ýmist grétu eða sátu
agndofa yfir áhrifaríku verkinu og
voru fagnaðarlætin í lokin innileg og
kröftug. Hátíðarhaldarar héldu
varla vatni yfir verkinu og viðtök-
unum, en þau fullyrtu að ef mótmæl-
in hefðu verið byrjuð þegar þau báru
verkið undir menningarmálaráðu-
neyti Hong Kong, sem er hliðhollt
kínverskum yfirvöldum, þá hefði því
aldrei verið hleypt á svið, þar sem
hægt væri að tengja inntak verksins
við ofbeldið á götum úti,“ segir
Hlynur Páll.
Svart Erna Ómarsdóttir, listdansstjóri Íd og annar tveggja höfunda verks-
ins, í miðju mannhafinu í Hong Kong um tveimur tímum fyrir sýningu.
Íd sýnir Pottþétt
myrkur í Hong Kong
„Sýningin hreyfði við áhorfendum“
Lady Gaga hefur
tekið að sér hlut-
verk Patriziu
Reggiani í næstu
kvikmynd Ridley
Scott sem fjallar
um morðið á
Maurizio Gucci,
sonarsyni Guccio
Gucci. Reggiani
og Gucci giftu sig 1973 og eignuðust
tvær dætur. Gucci yfirgaf Reggiani
fyrir yngri konu 1985. Áratug síðar
var Gucci myrtur af leigumorðingja
sem skaut hann í höfuðið. Tveimur
árum síðar var Reggiani handtekinn
og dæmd í 29 ára fangelsi fyrir aðild
sína að morðinu og sat inni til 2016.
Dætur Reggiani og Gucci töldu að
heilaæxli hefði haft neikvæð áhrif á
hegðun móðurinnar. „Ef ég hitti
Maurizio aftur myndi ég tjá honum
ást mína, því hann hefur skipt mig
mestu máli í lífinu,“ sagði Reggiani í
viðtali við Observer 2016. Spurð
hverju hún héldi að hann myndi
svara sagði hún: „Ég held að hann
endurgyldi ekki þær tilfinningar.“
Lady Gaga leikur
Patriziu Reggiani
Lady Gaga