Morgunblaðið - 05.11.2019, Page 32

Morgunblaðið - 05.11.2019, Page 32
Kúnstpása, hádegistónleikar Íslensku óperunnar, verður í dag, þriðjudag, helguð tónskáldinu Reyn- aldo Hahn, sem var fæddur í Vene- súela en bjó og starfaði í Frakklandi og var hvað þekktastur fyrir fögur sönglög sín. Flytjendur eru Eyjólfur Eyjólfsson tenór og Bjarni Frímann Bjarnason á píanó. Tónleikarnir hefjast kl. 12.15 í Norðurljósum Hörpu. Aðgangur er ókeypis. Kúnstpása í dag helg- uð Reynaldo Hahn ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 309. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Í stærstu deildunum í knattspyrn- unni hjá körlunum í Evrópu er ýmis- legt merkilegt að gerast. Minni lið sem hafa ekki úr miklu fjármagni að spila eru að berjast við ríku fé- lögin í efstu sætunum. Þótt ekki sé langt liðið á tímabilið er þetta von- andi vísir að einhverju skemmti- legu. Spennan hefur minnkað síð- ustu árin í stórum deildum. »26 Ríku liðin eru ekki stungin af ennþá ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Sagnfræðingurinn Dalrún J. Ey- gerðardóttir vinnur að doktors- ritgerð í Háskóla Íslands um sögu ráðskvenna á íslenskum sveitaheim- ilum á ofanverðri 20. öld. Hún fjallaði um rannsóknina í erindi í Borgarbókasafninu - Menningarhúsi Spönginni á dögunum og ráðgerir að heimsækja dvalarheimili aldraðra víðs vegar um land í sama tilgangi á næstu mánuðum. Heimildir um störf ráðskvenna frá umræddu tímabili eru fáar. Dal- rún byggir rannsóknina að miklu leyti á viðtölum við fyrrverandi ráðs- konur til sveita. Hún hefur rætt við 45 slíkar og kvikmyndað viðtölin, sem nýtast munu við gerð heim- ildamyndar hennar um sama efni. Hún vekur athygli á því að í skrán- ingu sögunnar halli mikið á sögu kvenna og munnleg saga bjargi því sem bjargað verður. Dalrún stefnir að því að skila ritgerðinni eftir um eitt og hálft ár. „Meginmarkmið rannsóknarinnar er að rannsaka félagslega og menn- ingarlega stöðu ráðskvenna sem störfuðu á einkaheimilum í sveit á Íslandi á síðari hluta 20. aldar,“ segir Dalrún. Hún segist skoða hvers vegna konur hafi sótt í ráðskonustarfið, sem algengast var að væri til skemmri tíma. Á þessum tímapunkti í rannsókninni hafi þeg- ar komið fram að fjölmennasti hóp- urinn hafi verið einhleypar konur, sérstaklega einstæðar mæður, en ýmsar aðrar ástæður hafi einnig leg- ið að baki. Nefna megi að sumar konur hafi gerst ráðskonur af greiðasemi við skyldmenni eða vini. Einnig verði að halda því til haga að margar konur hafi hreinlega haft áhuga á því að starfa í sveit. Gengu í öll störf „Flestar kvennanna sem sóttu í starfið voru einstæðar mæður með börn á sínu framfæri, konur sem áttu ekki sömu möguleika á að fram- fleyta sér og sínum í þéttbýli eins og þær áttu sem ráðskonur í sveit,“ segir Dalrún. Margar þeirra hafi verið á hrakhólum, erfitt hafi verið að fá og halda húsnæði og ekki hafi verið hlaupið að barnapössun. Ofan á allt saman hafi sumar konurnar átt á hættu að missa forræði yfir börn- um sínum vegna erfiðra aðstæðna sinna í þéttbýli. Ráðskonustarfið hafi því leyst þær úr álögum. „Þær fengu fæði og húsaskjól fyr- ir sig og börnin og gjarnan einhver laun, þó lág væru. Þessi saga varpar því líka ljósi á sögu einstæðra mæðra og einhleypra kvenna al- mennt,“ segir hún. Bætir við að vinnuveitendur hafi oft verið ein- hleypir karlar. Ráðskonan hafi því í raun verið staðgengill húsmóður og í mörgum tilfellum endað sem slík. Ráðskonur gengu í öll störf innan- húss, allt frá matseld til þrifa, auk þess sem þær sinntu gjarnan líka útistörfum eins og mjöltum. „Starfið er að mestu liðið undir lok,“ segir Dalrún og vísar í einn viðmælanda sinn, konu sem hafi oft verið ráðs- kona. Þegar aldurinn færðist yfir hana hafi hún ætlað að leita í starfið, sem hún þekkti svo vel, en þá hafi komið í ljós að umhverfið hafði breyst mikið. „Krafist var mun meiri útistarfa en áður og margir vinnu- veitendur óskuðu fyrst og fremst eftir ráðskonu með sambúð í huga.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Doktorsverkefni Dalrún J. Eygerðardóttir háskólanemi hefur rætt við 45 fyrrverandi ráðskonur um starfið. Hulu svipt af ráðskonum  Dalrún rannsakar félagslega og menningarlega stöðu ráðskvenna í sveit á Íslandi á síðari hluta 20. aldar Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 alnabaer.is Við erum sérhæfð í gluggatjöldum TWIN LIGHT RÚLLUGRDÍNA PLÍ-SÓL GARDÍNUR GLUGGATJÖLD SCREEN RÚLLUGARDÍNUR „Þegar ég var hérna síðast var það veturinn eftir bankahrunið. Þá var deildin ekki jafn sterk og hún er núna. Það held ég að sé alveg öruggt enda höfðu liðin ekki fjár- magn til að ná í jafn góða leikmenn og nú er gert. Deildin er því töluvert sterkari í vetur og mér finnst mörg lið vera rosalega góð. Ég hef tekið eftir miklum framförum frá því ég var hérna síðast. Ég held að liðin æfi betur og skipulagið í þjálfuninni er örugglega betra. Þar hafa orðið framfarir,“ segir körfu- boltamaðurinn Jak- ob Örn Sigurðar- son sem kom til liðs við KR á ný í sumar eftir ára- tug í Svíþjóð. »25 Deildin er töluvert sterkari en fyrir áratug

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.