Morgunblaðið - 26.11.2019, Page 4

Morgunblaðið - 26.11.2019, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 2019 PON Pétur O. Nikulásson ehf. Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is skotbómulyftara AG línan frá Manitou býður meðal annars upp á nýtt ökumannshús með góðu aðgengi og útsýni. HANNAÐUR TIL AÐ VINNA VERKIN NÝ KYNSLÓÐ • DSB stjórntakkar • JSM stýripinni í fjaðrandi armi • Stýrð stjórnun og hraði á öllum glussahreyfingum • Virk dempun á bómu Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Heilbrigðiseftirlit Suðurlands hefur að ósk Umhverfisstofnunar frestað því að senda bréf til sumarhúsaeig- enda og bænda við Þingvallavatn til að minna á að frestur til að koma upp meira en tveggja þrepa hreinsun skólps rennur út um áramót. Tilgang- ur bréfsins er einnig að afla upplýs- inga um stöðu frárennslismála hjá eigendum húsa við vatnið. Á grundvelli laga um verndun vatnasviðs Þingvallavatns var sett reglugerð á árinu 2006 um að hreins- un skólps frá öllum húsum skyldi vera meiri en tveggja þrepa. Á árinu 2009 var reglugerðinni breytt og frestur gefinn til 1. janúar 2020. Tilgangur stífra reglna um hreins- un er að reyna að vernda Þingvalla- vatn. Vatnið hefur verið að breytast á undanförnum áratugum. Flóra þör- unga í svifi hefur aukist og dregur úr tærleika vatnsins. Rannsóknir hafa sýnt að breytingarnar megi rekja til aukins magns niturs í vatninu. Það berst í vatnið frá starfsemi á svæðinu en þó aðallega með vindum frá um- ferð og iðnaðarstarfsemi í Evrópu. Um 600 sumarhús eru við Þing- vallavatn auk nokkurra lögbýla, ferðaþjónustu og starfsemi þjóð- garðsins. Gátlisti ekki tilbúinn Heilbrigðiseftirlitið kynnti fyrr í mánuðinum heilbrigðisnefnd Suður- lands áform sín um að minna húseig- endur við Þingvallavatn á að frestur til að uppfylla kröfur gildandi reglu- gerðar um fráveitur sé að renna út. Einnig að afla upplýsinga um stöðu mála. Þetta var ákveðið í samráði við Bláskógabyggð og Grímsnes- og Grafningshrepp. Sigrún Guðmundsdóttir, fram- kvæmdastjóri heilbrigðiseftirlitsins, segir að útsendingu bréfanna hafi verið frestað að ósk Umhverfisstofn- unar. Leysa þurfi úr ákveðnum laga- legum atriðum áður. Þá liggi ekki fyr- ir gátlisti sem Umhverfisstofnun vinni að. Sigrún segir að reglugerðin sé ströng. Ekkert megi fara út í vatnið. Hún segir að Þingvallanefnd hafi staðið sig ágætlega við að koma upp almenningssalernum á Hakinu og þaðan sé allur úrgangur fluttur í burtu. Í undirbúningi sé að koma upp fleiri slíkum salernum í þjóðgarðin- um. Þá telur hún að við byggingu nýrra húsa hafi kröfum reglugerðar- innar almennt verið fylgt. Hún segist hins vegar ekki vita hvaða úrbætur eigendur eldri sumarbústaða og lög- býla hafi gert. Horfa til Mývatns um lausnir Sigrún segir að kröfur um meira en tveggja þrepa hreinsun þýði að engin efni megi fara út úr rotþró. Þurfi að koma upp síubúnaði sem sé ekki ein- falt mál. Telur hún að horfa mætti til Mývatns þar sem sambærilegar kröf- ur eru gerðar. Þar sé reynt að draga úr skólpi og allur úrgangur notaður í landgræðslu á heiðum uppi. Frestur til úrbóta er að renna út  Kröfur um aukna hreinsun skólps frá sumarbústöðum og lögbýlum við Þingvallavatn eiga að taka gildi um áramót  Framkvæmdastjóri heilbrigðiseftirlits telur athugandi að nota úrgang til uppgræðslu Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Þingvallavatn Mengun berst í vatnið eftir ýmsum leiðum. Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Ekki er útlit fyrir að kjarasamn- ingar ríkis og BSRB, Bandalags starfsmanna ríkis og bæjar, verði undirritaðir fyrir mánaðamót að sögn formanns BSRB og formanns samninganefndar ríkisins. BSRB og Sameyki, sem er stærsta aðildarfélag BSRB, standa nú í kjaraviðræðum við ríkið og seg- ir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formað- ur BSRB, að viðræður gangi hægt. „Við erum að funda reglulega og þetta þokast hægt en þokast þó. Við erum að ganga frá ýmsum smærri málum þessa dagana og svo munum við fara í að ræða stærri málin.“ Jöfnun launa til umræðu Eitt af flóknustu málunum er stytting á vinnuviku vaktavinnu- fólks. Sverrir Jónsson, formaður samninganefndar ríkisins, segir að viðræður um þá styttingu hefjist í næstu viku. „Það er líklega það sem mun taka lengstan tíma og er flóknasta út- færslan af þeim málum sem við eig- um eftir,“ segir Sonja. Nokkur önn- ur stór mál eru á borðinu. „Jöfnun launa, launaþróunartrygging og svo eru umræður á borðinu um bann við mismunun á grundvelli aldurs,“ segir Sonja. Sverrir er bjartsýnn á framhald- ið. „Við eigum í mjög virku samtali þessa dagana. Við áttum fund í morgun [gærmorgun] á vettvangi BSRB og við eigum fund með Sam- eyki í vikunni og þar miðar málum fram.“ Þó er ólíklegt að samningur verði undirritaður í vikunni. „Það er ekki útlit fyrir það að við náum að ljúka samningum fyrir mánaðamót en við erum vongóð um að ljúka þessu á næstu vikum. Við ætlum alla vega að gera ærlega til- raun til þess,“ segir Sverrir. „Þokast hægt en þokast þó“  Stytting fyrir vaktavinnufólk flókin Sonja Ýr Þorbergsdóttir Sverrir Jónsson Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Meðalstarfsævi 15 ára einstaklings innan Evrópusambandsins (ESB) var árið 2018 áætluð 36,2 ár. Er það 0,3 árum lengur en árið 2017 og 3,3 árum lengur en árið 2000. Þá má bú- ast við því að vinnuævi karla verði nokkuð lengri en kvenna, eða 38,6 á móti 33,7 árum. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýjum tölum Hag- stofu Evrópusambandsins (Euro- stat) sem nálgast má á heimasíðu stofnunarinnar. Í úttekt Eurostat er Ísland á toppi listans, með áætlaða starfsævi 46,3 ár. Næst á eftir koma Evrópusam- bandsríkin Svíþjóð (41,9 ár), Holland (40,5 ár) og Danmörk (39,9 ár). Sviss er einnig í hópi þeirra ríkja sem eru yfir 40 ára múrnum samkvæmt út- tekt Eurostat. Þau ríki sem reka lestina eru Ítalía (31,8 ár), Króatía (32,4 ár) og Grikkland (32,9 ár). Kröfur um styttri vinnuviku Drífa Snædal, forseti Alþýðu- sambands Íslands, segir tölur Eu- rostat gefa einhverja mynd af stöð- unni. Erfitt sé þó að draga fram mjög skýra mynd þar sem tölur um atvinnuleysi og ólíkar mælingar geti skekkt heildarmyndina að einhverju marki. „Reikniaðferðir á milli landa eru ekki alveg samræmdar, en það er auðvitað vel vitað að Íslendingar vinna talsvert lengur og meira en flestar aðrar þjóðir,“ segir hún í samtali við Morgunblaðið og bætir við að fámennar þjóðir þurfi gjarnan að hafa sig allar við. „En það eru uppi vísbendingar þess efnis að þetta sé eitthvað að breytast í okkar menningu með auknum kröfum og fremur hávær- um röddum um styttingu vinnuvik- unnar,“ segir Drífa enn fremur. Íslendingum spáð lengstu starfsævinni  Spáð í spilin fyrir 15 ára einstakling í ríkjum Evrópu 31,8 ár 41,9 ár Starfsævi fólks á Íslandi og innan ESB Meðalvinnuævi sem gera má ráð fyrir að 15 ára einstaklingur eigi fyrir höndum Árið 2018 mátti búast við að meðalvinnuævi 15 ára einstaklings innan Evrópusambandsins yrði 36,2 ár. Er það 0,3 árum lengur en árið 2017 og 3,3 árum lengur en árið 2000. Gera má ráð fyrir að karlar vinni í 38,6 ár og konur í 33,7 ár. 39,9 ár 32,4 ár 40,5 ár 32,9 ár 46,3 ár Þar sem lengst er unnið Þar sem styst er unnið Svíþjóð ÍslandHollandDanmörkGrikklandKróatíaÍtalía H ei m ild : E ut os ta t Morgunblaðið/Ernir Fiskvinnsla Íslendingar hafa lengi verið þekktir fyrir langan vinnudag en nú er aftur á móti uppi hávær krafa um styttingu vinnuvikunnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.