Morgunblaðið - 26.11.2019, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 2019
Klettagörðum 11 | 104 Reykjavík | Sími 568 2130 | verslun@et.is | Opið mánud.-föstud. kl. 8.00-18.00
Mikið úrval af
KÖSTURUM OG AUKALJÓSUM
fyrir allar gerðir bíla
Gunnar Rögnvaldsson rekurmeð opinberum dæmum hve
hratt Þjóðverjar missi trú á því
sem þeir töldu sig mega ganga að
sem vísu. Trúin á stöðugleika
hrynur og efasemdir vaxa hratt
um að stjórnmálakerfið byggist á
göfugum for-
sendum og að
þær séu enn í
öndvegi rík-
isstjórna:
Sem sagt;dramatískt
fall í trúnni á
hina pólitísku
hugmynd sem
heitir Sam-
bandsríkið Þýskaland, og á stjórn-
arfar þess. Hollt er að muna að
Þýskaland er sambandsríki. Bæj-
aralandi væri sennilega nokkuð
sama þó að það væri hluti af Aust-
urríki. Það eina sem hins vegar
virðist sameina Þjóðverja núna er
ákall um „sterkan þjóðarleiðtoga“.
Þið vitið sennilega öll hvað það
getur þýtt.
Hvað er það sem er að hrynja íÞýskalandi. Og hvernig mun
það lýsa sér? Þetta eru stórar
spurningar því þegar pólitískur
stöðugleiki gufar upp í Þýskalandi
þá þýðir það að stærsta pólitíska
einingin í veraldarhafinu í Evrópu,
er komin úr jafnvægi.
Og eins og margir vita er Þýska-land ekki neitt venjulegt ríki.
Þar geta hlutirnir gerst ótrúlega
hratt. Hvað er að gerast þarna?
Allir sem hugsa vita hins vegar
að Evrópusambandið er nú þegar
fallið sem hugmynd.
Enginn fer því lengur eftirreglum þess eða eftir sjálfri
hugmyndinni um það. Það kostar
ekkert. Nema náttúrlega kjánar
hér heima. Þeir fara eftir öllu og
skjálfa.“
Gunnar
Rögnvaldsson
Blá ljós blikka
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Styrkur köfnunarefnisdíoxíðs (NO2)
var hár í Reykjavík í gær og verður
það að öllum líkindum áfram næstu
daga. Klukkan eitt eftir hádegi var
klukkutímagildi köfnunarefnisdíox-
íðs við Grensásveg 141,5 míkró-
grömm á rúmmetra en sólarhrings-
heilsuverndarmörk eru 75 míkró-
grömm á rúmmetra.
Kristín Lóa Ólafsdóttir, heilbrigð-
isfulltrúi hjá Heilbrigðiseftirliti
Reykjavíkur, segir að miðað við veð-
urspá gæti ástandið varað fram á
föstudag. Það er verst við Grensás-
veg.
„Mikil bílaumferð er ástæðan fyrir
þessu. Ef það eru aðallega raf-
magnsbílar á ferðinni þá kemur
þetta efni ekki vegna þess að þetta
efni verður einungis til við bruna
jarðefnaeldsneytis. Eins og staðan
er í dag eru of margir bílar í umferð
miðað við veðuraðstæður,“ segir
Kristín.
Heilbrigðiseftirlitið hvetur al-
menning því til þess að draga úr
notkun einkabílsins við þessar að-
stæður. Þeir sem eru viðkvæmir fyr-
ir í öndunarfærum og börn ættu að
forðast útivist í lengri tíma og tak-
marka áreynslu í nágrenni stórra
umferðargatna. Köfnunarefnisdíoxíð
veldur ertingu í lungum og öndunar-
vegi. ragnhildur@mbl.is
Styrkur köfnunarefnisdíoxíðs hár
Ástandið gæti teygt sig fram á næstu
daga Mikil bílaumferð er ástæðan
Morgunblaðið/Hari
Umferð Kristín segir ástandið helst
koma upp á þessum tíma ársins.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Sala á jólabjór er svipuð nú og á
sama tíma í fyrra. Sala hófst mið-
vikudaginn 14. nóvember í Vínbúð-
unum og fyrstu níu dagana seldust
alls 178.724 lítrar af jólabjór. Það er
0,47% minni sala heldur en í fyrra
þegar 179.573 lítrar seldust.
Samkvæmt upplýsingum frá
ÁTVR ber jólabjórinn frá Tuborg af
í vinsældum hér á landi. Alls seldist
86.761 lítri af honum fyrstu níu dag-
ana í sölu. Nemur það tæpum 49% af
heildarsölu jólabjórs á þessu tíma-
bili.
Næstvinsælasti jólabjórinn er
Víking jólabjór en af honum seldust
ríflega 17 þúsund lítrar, tæplega
10% af heildarsölunni. Í þriðja sæti
er Jólagull, Thule jólabjór er í því
fjórða og Jóla Kaldi er fimmti vin-
sælasti jólabjórinn það sem af er.
Bláber og mandarínur í bragði
Eins og komið hefur fram í
Morgunblaðinu hefur úrval jólabjórs
aldrei verið meira. Alls voru veitt
leyfi til sölu á 78 tegundum þetta ár-
ið. Áðurnefndir fimm bjórar eru allir
fremur hefðbundnir jólabjórar en
einnig má finna mjög forvitnilega
bjóra að þessu sinni sem njóta vin-
sælda. Óli Rúnar Jónsson hjá Borg
brugghúsi segir að Skyrjarmur, blá-
berjasúrbjór, hafi selst afar vel í
upphafi tímabilsins. Hann spáir því
að Bjúgnakrækir nr. 71 sem kemur í
verslanir í vikunni muni sömuleiðis
njóta vinsælda. Hilmar Geirsson,
kollegi hans hjá Víking, segir að sala
á Hvít jól sem er mandarínu white
ale, hafi farið langt fram úr áætl-
unum. Þá segir hann að Víking jóla
lite, sem er fyrsti jóla lite-bjórinn,
hafi notið vinsælda. Hann er brugg-
aður með eplum og kanil og vekur
greinilega forvitni margra. „Það er
nokkuð ljóst að þau sem velja færri
kolvetni, færri kaloríur eða glúten-
frítt hafa beðið spennt eftir jólabjór
sem höfðar til þeirra,“ segir Hilmar.
Morgunblaðið/Ómar
Jólabjór Það virðist vera öruggast
að eiga nóg til af Tuborg í Ríkinu.
Annar hver seldur
jólabjór er frá Tuborg