Morgunblaðið - 26.11.2019, Page 17

Morgunblaðið - 26.11.2019, Page 17
MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 2019 smám saman fjölgaði starfsfólki við kennslu, rannsóknir og rekst- ur. Ég kom til starfa í HA fyrir liðlega fimmtán árum og þar með vorum við félagarnir aftur orðnir samstarfsmenn. Þarna eins og áð- ur á lífsleiðinni var samstarfið við Óla Búa hnökralaust og satt að segja var tæplega hægt að hugsa sér betri samstarfsmann, og ég er ekki einn um þá skoðun. Við fór- um ófáa bíltúra þegar við lá að ræða vandamál eða skipuleggja rekstur háskólans. Óli Búi bjó að langri reynslu í rekstri skóla og var afar vel að sér um sögu og þróun Háskólans á Akureyri. Hann var bæði greind- ur og úrræðagóður og bar fyrst og síðast hag háskólans fyrir brjósti. Ég naut og lærði af löngu samstarfi og vináttu við Óla Búa og fyrir það er ég afar þakklátur. Ég færi Agnesi og fjölskyld- unni allri mínar einlægustu sam- úðarkveðjur. Úlfar Hauksson. Kveðja frá Háskólanum á Akureyri Ólafur Búi Gunnlaugsson kom til starfa við Háskólann á Akur- eyri í júní 1988 þegar fyrsta skólaári háskólans var að ljúka. Óli Búi, eins og við þekktum hann frá fyrsta degi, hafði fjölþætta þekkingu og var því kjörinn til þess að koma nýrri stofnun á laggirnar þar sem beita þurfti út- sjónarsemi og lagni til þess að styðja við uppbyggingu skólans. Óli Búi starfaði með öllum fjórum rektorum sem valist hafa til starfa fyrir Háskólann á Akureyri og hafði því einstaka yfirsýn um sögu og þróun skólans sem hann tók mikinn þátt í að móta. Vinnan við að velja Háskólan- um á Akureyri framtíðarstað- setningu fór fram á árunum 1994 til 1996 og þar átti Óli Búi stóran hlut að máli, bæði hvað varðaði undirbúning en ekki síður þegar niðurstöður samkeppni um upp- byggingu á Sólborgarsvæðinu lágu fyrir. Í því ferli, sem spann- aði vel á annan áratug, kom Óli Búi að öllum málum og leysti vel af hendi. Þar komu hans helstu kostir í ljós þar sem honum tókst að finna lausnir á krefjandi verk- efnum, þannig að unnt væri að ljúka uppbyggingunni með sóma. Þessar lausnir voru oftar en ekki ræddar yfir kaffibolla og öllum hliðum málsins velt upp áður en komist var að niðurstöðu. Óli Búi sat einnig lengi í stjórn Félagsstofnunar stúdenta við HA þar sem hann kom að uppbygg- ingu stúdentagarða. Með reynslu sinni af uppbygg- ingu og rekstri skólans, ásamt öðrum störfum í nefndum og ráð- um, var augljóst að hann hefði yf- ir hafsjó upplýsinga að ráða. Hann tók því sæti í ritnefnd vegna 25 ára afmælis skólans og má í afmælisritinu m.a. finna kafla eftir Óla Búa um húsnæð- issögu skólans. Annað verkefni sem Óli Búi hafði sérstakar mætur á var upp- bygging og viðhald Végeirssta- ðajarðarinnar og þeirra eigna sem þar eru. Hann lagði mikið á sig til þess að skólinn gæti tekið við þeirri myndargjöf og sá til þess um margra ára skeið að svæðinu væri sinnt og nauðsynleg viðhaldsstörf innt af hendi. Þessi gjöf mun reynast skólanum mik- ilvægur þáttur í umhverfisstefnu skólans þar sem í framtíðinni er stefnt á að ná fullri kolefnisjöfnun fyrir alla starfsemi skólans. Sá tími og elja sem Óli Búi notaði í verkefnið er því dýrmæt fjárfest- ing fyrir framtíð Háskólans á Ak- ureyri. Ég naut þess mjög að vinna með honum að framtíðar- hugmyndum fyrir Végeirsstaði og er það von mín að þær hug- myndir muni einn daginn, ekki of langt í framtíðinni, verða að veru- leika. Langvarandi veikindi drógu úr vinnuþreki og lauk Óli Búi störf- um fyrir skólann árið 2018 að loknu þrjátíu ára starfi. Það eru fáir einstaklingar sem ég hef kynnst sem hafa sýnt skólanum eins mikla hollustu og alúð til þess að hugmynd um háskóla norðan heiða gæti orðið að veruleika. Verður minning Óla Búa ætíð tengd þessum fyrstu áratugum uppbyggingar Háskólans á Akur- eyri. Fyrir hönd allra starfsmanna Háskólans á Akureyri sendi ég Agnesi eiginkonu hans, börnum þeirra, barnabörnum, ættingjum og vinum okkar innilegustu sam- úðarkveðjur á erfiðum tíma. Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri. Hinn 15. nóvember sl. fékk ég þær sorgarfréttir að Ólafur Búi Gunnlaugsson, samstarfsfélagi og vinur til margra ára, væri látinn. Það er mikill missir að Ólafi Búa. Þegar ég hóf störf sem rektor Há- skólans á Akureyri, haustið 1994, var Óli Búi, eins og hann var oft- ast kallaður, framkvæmdastjóri háskólans. Það var þá sem endra- nær gott að leita í smiðju hans um góð ráð en hjá honum hafði stofn- anaminni hins unga skóla skotið rótum og hélst þar æ síðan. Samverustundir með Óla Búa og Agnesi, konu hans, voru einkar ánægjulegar. Þau hjónin voru góð heim að sækja og áttu þeirri gæfu að fagna að eignast myndarlega afkomendur sem mynda sam- henta fjölskyldu. Óli Búi var einkar minnugur, hafði góðan húmor og sagði skemmtilegar sögur frá uppátækjum sem hann og vinir hans höfðu staðið fyrir á yngri árum. Óli Búi vann ötullega með mér við að færa starfsemi háskólans á einn stað á Sólborgarsvæðið og stýrði hann flutningi aðalskrif- stofu háskólans á þetta nýja há- skólasvæði þegar haustið 1995. Í kjölfarið hafði Óli Búi umsjón, ásamt fleirum, með endurbygg- ingu eldri húsa á Sólborg og þeim vel heppnuðu nýbyggingum sem risu þar. Í störfum sínum var Óli Búi framtakssamur, stundvís, skipu- lagður og töluglöggur. Hans leið- arljós í starfinu var fyrst og fremst hollusta við háskólann sem stofnun þannig að séð yrði til þess að háskólinn fengi nægilegar bjargir til að vaxa og dafna. Í fyrri störfum sínum hafði Óli Búi unnið sem slökkviliðsmaður og þar skiptir máli að vera fyrstur á vett- vang þegar eitthvað bjátar á og að fyrirbyggja slysin. Óli Búi flutti þessa eiginleika með sér í störf sín fyrir háskólann. Hann var oft fyrstur að bregðast við ef eitthvað kom upp á og fljótur að grípa til aðgerða þegar hann fann að þurfti að koma í veg fyrir mögulegan skaða. Fyrstu árin á Sólborgarsvæð- inu voru vegasamgöngur þangað erfiðar; aðeins niðurgrafinn mal- arvegur, oft illfær vegna snjóa á vetrum. Á snjóþungum vetrum mætti Óli Búi jafnan fyrstur á skrifstofuna á Sólborg, ruddi bók- staflega braut í snjóskaflana á sínum fjórhóladrifna pallbíl fyrir okkur hin sem vorum á ekki eins öflugum faratækjum og sótti stundum þá starfsmenn heim til sín sem treystu sér ekki að fara þess leið í þessari færð. Þegar verið var að byggja Borgir, rannsókna- og nýsköpun- arhús háskólans, varð eldur laus í byggingunni. Óli Búi var eins og búast mátti við fyrstur á vettvang og hljóp í fararbroddi slökkviliðs- ins upp á fjórðu hæð, eldurinn var snarlega slökktur og komið í veg fyrir stórtjón. Óli Búi var vinsæll og virtur af sínu samstarfsfólki. Hann var fróðleiksfús og vildi gjarnan velta fyrir sér öllum hliðum mála áður en ákvörðun var tekin. Hann lét sér annt um hag annarra og tók málstað þeirra sem stóðu höllum fæti. Hann gaf sig allan fyrir vöxt og viðgang háskólans til hagsbóta fyrir þá sem eftir koma. Ég er ævinlega þakklátur Óla Búa fyrir vináttuna, samstarfið og allar samverustundirnar sem veittu mér svo mikið og ég mun ætíð minnast. Kæra Agnes og fjölskylda, mínar innilegustu samúðarkveðjur á þessum sorg- artíma. Þorsteinn Gunnarsson. Ólafur Búi kom til starfa við Háskólann á Akureyri árið 1988, ég kom fjórum árum síðar. Við unnum saman í yfir áratug í yf- irstjórn HA, hann sem fram- kvæmdastjóri, ég sem forstöðu- maður kennaradeildar eins og starfið hét þá. Stuttu eftir að ég hvarf úr yfirstjórninni hætti hann sem framkvæmdastjóri og varð yfirmaður fasteigna háskólans þar til hann lét af störfum. Óli Búi, eins og hann var jafnan kallaður, skipti miklu máli í upp- byggingu HA á fyrstu fimmtán árum stofnunarinnar. Hann var yfirmaður fjármála, gætinn og íhaldssamur, talnaglöggur og vinnusamur með afbrigðum. Hann þekkti lengi vel alla starfs- menn háskólans með nafni og hvern krók og kima í húsum hans. Óli Búi kom vel undirbúinn til há- skólans, hafði kennt við Gagn- fræðaskóla Akureyrar, lært við- skiptafræði, komið að undirbúningi Verkmenntaskól- ans á Akureyri, kennt þar og svo hafði hann verið í slökkviliðinu eins og Haraldur heitinn Bessa- son, fyrsti rektor háskólans, minnti okkur reglulega á. Stund- um mátti skilja á Haraldi að þetta væri mikilvægasti hluti í starfs- ævi Óla Búa áður en hann réðst til háskólans enda þurfti hann stundum að slökkva elda innan HA, að vísu ekki með brunaslöng- um heldur góðvild og heilbrigðri skynsemi. Nú er það svo með þá sem halda utan um peninga í stofnun- um að þeir eiga ekki alltaf sjö dagana sæla og það getur stund- um þurft að taka ákvarðanir sem starfsfólk sættir sig illa við. Óli Búi lét sitt ekki eftir liggja í þeim efnum þótt hann sæktist ekki sér- staklega eftir slíkum átökum. En hann eyddi verulegum tíma í að ræða við samstarfsfólk sitt og skýra þörfina á erfiðum ákvörð- unum þegar hann taldi þörf á því. Við spiluðum saman golf í mjög mörg sumur. Okkur þótti það báðum afar skemmtilegt. Hann hafði tekið upp á að stunda golf þegar hann var fullorðinn en gerði það með sama ákafa og hann lagði í aðra mikilvæga hluti í lífinu. Fyrsta daginn sem hann lék golf dvaldi hann tólf tíma á vellinum. Ég var ekki viðstaddur þá en síðar byrjuðum við að spila saman. Óli Búi var hár vexti og líkamlega sterkur og honum tókst að nýta þessa kosti í golfleiknum. Hann naut leiksins og ekki síst þegar kúlan fór í allt aðra átt en henni var ætlað. Við hin berum þann harm yfirleitt í hljóði en hann tókst á við nýjan vanda af gleði og ákafa eins og honum var lagið. Við spiluðum oft saman þrjú, Agnes, kona Óla Búa, ég og Óli Búi. Hún skemmti sér ekki síður en hann. Óli Búi var mannkostamaður. Hann var glaðsinna, duglegur, glöggur á aðal- og aukaatriði. Hann gekk að hverju verki til þess að ljúka því. Síðustu árin tókst hann á við vanheilsu af ýmsu tagi og varð að hætta störf- um og golfleik, ferðaðist um í hjólastól en hann kom samt öðru hvoru á golfvöllinn og ók um í stólnum. Hann hefur örugglega stundum verið hryggur yfir ör- lögum sínum en lét aldrei á því bera og var glaður og vildi ræða um hvaðeina er lá honum á hjarta. Að leiðarlokum þökkum við hjónin fyrir samferðina og vinátt- una og vottum Agnesi, börnum þeirra og öðrum aðstandendum dýpstu samúð. Guðmundur Heiðar Frímannsson. Ólafur Búi, vinur okkar Gunna, er fallinn frá eftir löng og erfið veikindi. Ég kynntist Óla Búa fyrst haustið 1976 er ég innritaði mig á viðskiptabraut Gagnfræða- skólans á Akureyri. Þessi náms- braut var forveri viðskipta- og hagfræðibrautar Verkmennta- skólans á Akureyri sem þá var ekki tekinn til starfa. Þarna var Óli að kenna á þessum tíma og ég man vel þegar hann geystist inn í fyrsta tímann hress og glaður eins og hann alltaf var. Hann var einstaklega skemmtilegur kenn- ari sem tókst að koma námsefn- inu til skila á lifandi og fyndinn hátt. Oft gleymdi hann sér við að útskýra eitthvað með allskonar dæmisögum og var þá gjarnan í ákafanum sestur upp í glugga í kennslustofunni með lappirnar uppi á ofninum. Þannig sá hann betur yfir hjörðina sína. Óli hafði djúpa rödd sem heyrðist vel og þegar ég hugsa til baka finnst mér hann stöðugt hafa verið hlæj- andi. Hann var mikill húmoristi og átti mjög auðvelt með að sjá skondnu hliðarnar á hlutunum. Agnes kona hans var æskuvin- kona mín úr sveitinni og þarna vorum við tvær „úr Tungunum“ mættar á fremsta bekk í kennslu- stofunni hjá Óla. Það átti eftir að verða til þess að leiðir þeirra Agnesar og Óla lágu fljótlega saman og alla tíð síðan. Þeir voru líka vinir Óli og Gunnar, maður- inn minn, og mikill samgangur var á milli heimilanna okkar þeg- ar drengirnir okkar voru að vaxa úr grasi. Stundum spiluðum við saman Trivial Pursuit í Laugar- götunni og er mér minnisstætt hvað við hlógum og hlógum á þessum spilakvöldum. Síðar átti ég eftir að kynnast mínum góðu vinkonum Höllu og Helgu systr- um Óla og foreldrum þeirra líka, þeim Signu og Gulla. Þessi fjöl- skylda var einstaklega samhent og samrýnd og ég stóð mig stund- um að því að öfunda þau af því hvað þau voru samrýnd. Þau Signa og Gulli voru einstaklega notaleg við okkur Gunna alla tíð. Það er með ólíkindum að þau þrjú hafa öll lagt í ferðina miklu á að- eins 9 mánuðum, Gulli, Signa og Óli Búi. Risastórt skarð hefur verið höggvið í þessa dásamlegu fjölskyldu á mjög skömmum tíma. Elsku besta Agga mín og fjöl- skylda, Halla, Helga og fjölskyld- ur, við Gunni sendum ykkur inni- legar samúðarkveðjur. Minningin um gleðina, hláturinn og ómetan- lega vináttu mun lifa í hjarta okk- ar. Svanhildur Daníelsdóttir (Svana Dan). ✝ Elísabet Jóns-son fæddist í Hafnarfirði 25. júlí 1933. Hún lést á Hrafnistu Hafnar- firði 15. nóvember 2019. Foreldrar henn- ar voru: Stefán Hólm Jónsson, f. 1. september 1910, d. 8. febrúar 1959, og Þóra Lovísa Sigríð- ur Guðmundsdóttir, f. 26. ágúst 1910, d. 18. ágúst 1987. Systkini Elísabetar: Guðmundur Þór Jónsson, f. 8. október 1935, d. 10. október 1992; Sigurður Jóns- son, f. 1. júní 1939, d. 6. janúar 2013; Stefán Louis Stefánsson, f. 26. nóvember 1948; Eyþór Guð- leifur Stefánsson, f. 11. júní 1950, d. 8. júlí 2013. Eiginmaður Elísabetar var Guðmundur Pálsson, f. á Fit undir Eyjafjöllum, Rang. 21. september 1925, lést á Hrafnistu Hafnarfirði hinn 4. ágúst 2012. Börn þeirra eru: 1) Lovísa, f. 10. desember 1953. Fyrri maki Odd Suhr, f. 20. nóvember 1943, lát- inn. Fyrri maki Sigfús Krist- mannsson, f. 11. október 1951. Börn Lovísu og Sigfúsar eru: Telma Rós, f. 11. ágúst 1974. Maki Snorri Heimisson, f. 5. september 1972. Börn þeirra eru: Gunnhildur Lovísa, f. 10. mars 1999, Daníel Birkir, f. 19. mars 2003, og Sölvi Jarl, f. 25. janúar 2009. Róbert Þór, f. 14. nóvember 1979. Maki Nadja S. Hal- vari, f. 16. sept- ember 1986. Börn þeirra eru: Ísak Halvari, f. 9. janúar 2010, og Óli- ver Halvari, f. 20. júlí 2011. 2) Guðmundur Ragnar, f. 12. apríl 1957. Maki Hrafnhildur Ingi- bergsdóttir, f. 3.október 1959. Börn þeirra eru: Pálmar, f. 2. febrúar 1977, og Dagný Björk, f. 2. júní 1986. 3) Stefán Páll, f. 16. október 1959. Maki Sólrún Ragnarsdóttir, f. 20. september 1953. Sonur þeirra er Guð- mundur Sigmar, f. 6. nóvember 1992. Sonur Sólrúnar er Ragnar Viktor Karlsson, f. 22. apríl 1970. 4) Berglind Ósk, f. 12. mars 1968. Maki Oddur Þór Þorkelsson, f. 16. desember 1968. Börn þeirra eru: Ingimar Örn, f. 9. febrúar 1994, og Val- týr Snær, f. 8. janúar 1999. Jarðarförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 26. nóvember 2019, klukkan 16. Elísabet, tengdamóðir Odds, sonar míns, hefur fengið hvíld eftir erfið veikindi. Elísabet var falleg kona og myndarleg húsmóðir. Heimili þeirra Guðmundar bar þess merki að hugsað var vel um allt af smekkvísi og alúð. Þau reistu sér gott og fallegt hús við Brekkuhvamm í Hafn- arfirði. Þegar Linda og Oddur fluttu í Fjörðinn var gott að eiga þau að. Þau voru ætíð boðin og búin að hjálpa. Drengirnir þeirra áttu alltaf vísan stað hjá þeim. Tengslin á milli þeirra urðu sterk og góð. Við Elísabet gátum alltaf tal- að saman um garðyrkju og blóm þegar við hittumst í fjölskyldu- boðum. Við höfðum báðar gam- an af að vinna í görðunum okk- ar. Barnabörnin buðu líka upp á endalaus ánægjuleg umræðu- efni. Hún bar hag þeirra mjög fyrir brjósti og fylgdist vel með þeim. Veikindin tóku sinn toll og heilsu hennar hrakaði fyrr en búist var við. Fljótlega varð ljóst að hverju stefndi. Nánustu ættingjar hennar dvöldu hjá henni uns yfir lauk. Linda sagði mér, að það hafi verið henni mikil huggun að geta talað ein- læglega og af umhyggju, um líf- ið og tilveruna, við móður sína skömmu fyrir andlát hennar. Ég minnist Elísabetar með hlýhug og bið góðan Guð að vernda hana og blessa. Innilegar samúðarkveðjur til allrar fjölskyldunnar frá mér og Þorkeli. Ása K. Oddsdóttir. Elísabet Jónsson Minningarvefur á mbl.is Minningar og andlát Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr að andlátum og útförum. Þar eru birtar andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar sem eru aðgengilegar öllum en auk þess geta áskrifendur lesið minningargreinar á vefnum.         þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát ber að höndum og aðrar gagnlegar       við fráfall ástvina. www.mbl.is/andlát Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.