Morgunblaðið - 26.11.2019, Síða 19

Morgunblaðið - 26.11.2019, Síða 19
voru í tveggja ára afmæli bróður míns, en þá vorum við 11 mánaða. Lágum undir veisluborðinu og hirtum það sem féll af borði hinna eldri og reyndari. Síðan höfum við verið bestu vinir og ekki bara það, leiðir okk- ar lágu saman í smábarnaskóla, barnaskóla, gagnfræðaskóla, tón- listarskóla, menntaskóla, háskóla og síðan í lífsins skóla allt fram á þennan dag. Það voru forréttindi að alast upp á Siglufirði. Þetta voru þau ár, sem síldarævintýrið var á toppi frægðarinnar og væri allt eins hægt að segja að skóli lífsins hafi í alvöru byrjað þar. Á milli okkar skólasystkinanna mynduð- ust sterk bönd og vinátta, sem hélt fram á hinsta dag hjá öllum. Slík samheldni var reyndar ein- kenni Siglfirðinga. Eftir að okkar ágæta skóla- systir, Sigríður Jóhannsdóttir, féll frá fyrir allmörgum árum sá Sveinn um að vera í forgöngu fyr- ir „gagga-liðið“ eins og við köll- uðum okkur og var það í góðum höndum allt þar til veikindi hans gerðu honum ókleift að halda því áfram. Áttum við marga ferðina sam- an til Siglufjarðar og er mér sér- staklega minnisstæð ferðin þegar 50 ár voru liðin frá því við útskrif- uðumst frá Gagnfræðaskólanum. Þetta var árið 2005. Þá var búið að breyta skólakerfinu og gamli góði Gagginn okkar ekki til leng- ur. Var þá gripið á það ráð að baka og kaupa brauð og kökur og héldum við „dúndur“ kaffihlað- borð á elliheimilinu. Þar var ein- mitt allt fólkið, sem við þekktum best. Mér er minnisstætt og lýsir fórnfýsi Sveins sem var einkenn- andi fyrir hann á allri lífsleiðinni. Þannig var að þegar við vorum um fermingaraldur veiktist móðir hans alvarlega og mátti liggja á sjúkrahúsinu í nokkrar vikur. Sveinn tók sig þá til og sá um allt heimilishald fyrir föður sinn og yngri bróður. Meðal annars samdi hann við kennarana um að fá að fara úr tíma í hádeginu til þess að hafa til matinn fyrir þá. Hann hafði þá þegar fengist nokkuð við matargerð og í fram- haldi af þessu var hann vel lið- tækur á því sviði. Er hér þakkað fyrir öll matarboðin á heimili hans og Erlu þar sem handbragð húsbóndans sveif yfir vötnum. Sveinn var með eindæmum frændrækinn. Frændgarðurinn var honum mjög kær og hélt hann m.a. mikið upp á föðurbróður sinn, Sigurð Þórðarson á Lauga- bóli við Ísafjarðardjúp. Hann var nokkur sumur í sveit hjá Sigurði og hafði margar góðar minningar frá þeirri veru. Lauga- ból var ein af stærstu og hlunn- indamestu jörðum landsins. Það- an var Halla Eyjólfsdóttir skáldkona, sú merka kona, en hún var amma Sveins. Þá var það mikið afrek þegar Sveinn, eftir mikla vinnu, hafði uppi á forfeðrum sínum í móður- ætt, sem höfðu flutt til Brasilíu. Þeir voru frá Sunnudal í Vopnafirði. Sveinn gekkst fyrir því að bjóða þeim til Íslands og sjálfur fór hann ásamt nokkrum úr fjölskyldunni og heimsótti þá í Brasilíu. Til margra ára rak Sveinn ferðaþjónustu fyrir fatlaða. Þar var hann á réttum stað og fórn- fýsi hans, sem áður var minnst á, naut sín til fulls. Hann lét sér mjög annt um skjólstæðinga sína og var margt sem þar var gert til fyrirmyndar. Nú að leiðarlokum þakka ég mínum góða vini fyrir samfylgd- ina og bið honum guðs blessunar. Erlu, dætrunum Dagbjörtu Höllu og Önnu og öllum þeirra fjöl- skyldum sendi ég innilegar sam- úðarkveðjur. Gunnar Ragnars. Horfinn er sjónum hlýr og góður drengur, harma þig vinir hverfa bak við tjöldin. Við væntum þess öll að þú lifðir miklu lengur, en ljúft er að deyja og bera hreinan skjöldinn, því allir þeir menn er af þér höfðu kynni, einróma hrósa festu og drenglund þinni. (NN) Langri baráttu við erfiðan sjúkdóm er lokið og vinur og fé- lagi til nærri 65 ára er horfinn sjónum. Enn er höggvið skarð í ævilangan vinahóp okkar bekkjarsystkinanna úr MA-59, en hann er sá 24. af 67 sem fellur í valinn. Haustið 1955 settumst við ung- lingarnir í 3. bekk MA. Í árgang- inum voru þrjár bekkjardeildir, mín bekkjadeild var strákabekk- ur og þar voru fjórir harðduglegir Siglfirðingar, þar á meðal Sveinn Gústavsson. Allir bjuggum við saman í heimavistinni og þar mót- aðist hin sterka samkennd og samheldni, sem haldist hefur alla tíð síðan og einkennt MA-hópinn okkar. Heimavistardvölin í fjóra vetur hafði þroskandi og mennta- ndi áhrif og samvistirnar við góða og trausta félaga og voru ómet- anlegar. Við studdum hvert ann- að í blíðu og stríðu, samkennd og einlæg traust vinátta varð strax aðalsmerki þessa hóps. Sveinn Gústavsson var einn Siglfirðinganna í þessum eftir- minnilega strákabekk. Saman út- skrifuðumst við Sveinn svo í blindri stórhríðinni 17. júní 1959. Sökum illviðrisins var hefðbundin hópmyndataka í leikfimihúsinu gamla og leiðir MA-félaganna skildi síðan um sinn. Traust vina- böndin voru tengd áfram og hlýj- an til skólans okkar og gömlu MA-félaganna, hefur alla tíð verið og er enn sterk í raun og í minn- ingunni. Sveinn átti ættir sínar í föður- ætt að rekja til Vestfjarða, en í móðurætt til Þingeyjarsýslna og Austurlands, þar sem ættir okkar komu saman. Hann var eftir- minnilegur, vel gerður og glað- sinna, gamansamur og jákvæður að eðlisfari, félagslyndur, afskap- lega ljúfur, góður og traustur vin- ur og félagi. Sveini Gústavssyni var tónlist- in í blóð borin og hann var snill- ingur á píanóinu. Þessara hæfi- leika hans nutum við skólafélagar hans á samkomum og skemmtun- um á MA-árunum, 1955-1959 og oft síðan. Á Akureyri kynntist Sveinn Erlu sinni og þetta glæsilega par og við Sjöfn, vorum meðal þeirra í hópnum okkar, sem bundu sín tryggðabönd og settu upp hring- ana 17. júní 1959. Þau Sveinn og Erla létu sig aldrei vanta á árlega samfundi okkar MA-59 félaganna og maka þeirra. Um áratuga skeið hafa þeir félagar sem aðstæður höfðu hverju sinni, hist vikulega yfir vetrartímann á „kaffifundi“ sem við svo nefnum. Sveinn kom æv- inlega þar meðan heilsan leyfði, jákvæður, hress og glaður. Ná- vistin við hann var alltaf góð og þægileg. Þessi góði vinur og félagi stríddi lengi við erfið veikindi. Hann gerði sér strax fulla grein fyrir því, að langt og erfitt stríð væri framundan en hann barmaði sér ekki og innri gleði og bros geislaði frá honum þegar vinir hans heimsóttu hann. Þannig munum við alltaf þenn- an kæra vin okkar. Um leið og ég bið góðan Guð að blessa minningu þessa horfna vinar og félaga, vottum við gömlu traustu félagarnir í MA-59 hópn- um, Erlu Þórunni og fjölskyld- unni allri, innilega samúð okkar á sorgarstundu. Skúli Jón Sigurðarson. Látinn er einn besti vinur okkar, Sveinn Gústavsson. Kynni okkar strákanna hófust fyrir 64 árum í Menntaskólanum á Akur- eyri og hefur vináttan verið óslitin síðan. Reyndar höfðu Sveinn og Gunnlaugur þekkst enn lengur, báðir innfæddir Sigl- firðingar. Síðan bættust eigin- konur okkar smám saman í vina- hópinn. Sveinn átti alla tíð miklum vin- sældum að fagna meðal skóla- systkina enda skemmtilegur fé- lagi, léttur í lund og einstaklega greiðvikinn og hjálpsamur. Hann þótti ómissandi þar sem söngur og gleði kom við sögu því að hann var snjall píanóleikari. Á mennta- skólaárunum lék hann í hljóm- sveit skólans við góðan orðstír. Fyrir rúmum 30 árum tókum við nokkrir skólafélagar og konur okkar upp þann sið að halda ár- lega þorrablót til skiptis á heim- ilum okkar og hefur svo verið síð- an. Ekki var í kot vísað þegar blótin fóru fram á heimili þeirra hjóna Sveins og Erlu. Þau voru samhent í gestrisni og rausnar- skap og oft var glatt á hjalla þegar Sveinn settist við píanóið. Við þetta bættust fleiri samkom- ur og veislur, að ógleymdum ferðalögum okkar til Spánar sem Sveinn skipulagði af alkunnri list. Eftirminnilegust var ferðin um páska 1998 í tilefni af sextugsaf- mæli Sveins þar sem okkur tókst að koma honum skemmtilega á óvart. En of langt mál væri að telja upp allt sem við tókum okk- ur fyrir hendur undir stjórn Sveins í Spánarferðunum. Við minnumst góðs drengs með trega og þakklæti fyrir ómetanleg kynni og sendum Erlu, dætrum þeirra og öðrum ástvinum innilegar samúðar- kveðjur. Guðmundur og Jónína, Gunnlaugur og Gunnlaug (Gulla), Ingi Viðar og Katrín (Kata), Jóhannes Óli og Hulda, Páll og Álfheiður. Sveinn var mikill og góður tón- listarmaður. Við vorum skóla- bræður í MA. Þar sem hann var stjórnandi og aðal driffjöðrin í hljómsveit skólans, en sú hljóm- sveit lék miklu víðar í sínu ná- grenni en í skólanum einum. M.a. í dans- og skemmtistöðum Akur- eyrarbæjar, í Freyvangi, í Húna- veri, á Siglufirði og víðar. Á síð- ustu tveimur árum Sveins í MA og mínum fyrstu gafst mér kostur á að slást í för með Sveini og fé- lögum. Valinn ekki vegna mikilla tónlistarhæfileika heldur vegna þess að ég kunni að lesa nótur – hafði lært það af Harrý Herluf- sen, stjórnanda Lúðrasveitar Ísa- fjarðar þar sem ég lék og lærði frá 13 ára aldri. Það var einstök upplifun að fá að vera með í þess- um góða og trausta vinahópi, sem Sveinn leiddi. Okkur gafst kostur á að leika bæði í Alþýðuhúsinu á Akureyri sem og á sjálfu Hótel KEA eftir að Ingimar Eydal flutti þaðan með hljómsveit sína suður til Reykjavíkur. Einnig á afmæl- isfagnaði húsmæðraskólans á Laugalandi, en meðal skólasystra þar þá voru tvær stúlkur, sem síð- ar urðu hvor um sig eiginkona mín og eiginkona Sveins. Eftir að Sveinn lauk námi í MA lauk að mestu minni músíkævi og tapaði þjóðin þar ekki miklum músíkhæfileikum. Sveinn hélt hins vegar ótrauður áfram, lék víða og hvarvetna við góðan orðs- tír. Hann var mikill hæfileika- maður auk músíkhæfileikanna og kom víða við. Rak eigin atvinnu- rekstur, stjórnaði umsvifamiklum rekstri í Húsafelli, rak ferðaskrif- stofu og sá um ferðaþjónustu fyr- ir þroskaheft ungmenni þar sem þau hjónin bæði lögðu sig sér- staklega fram um að hjálpa þeim, sem á hjálp þurftu að halda. Eftir að samstarfi okkar lauk norður á Akureyri slitnaði þráðurinn. Það var ekki fyrr en mörgum árum síðar, sem leiðir okkar lágu aftur saman – og þá í útlöndum, víðs vegar fjarri okkar fyrra sam- neyti. Sveinn var þá farinn að merkja fyrstu stig þeirra veik- inda, sem hann hrjáðu undir lokin en enn sami góði og göfuglyndi drengskaparmaðurinn. Mér þótti óskaplega gaman að finna þarna aftur minn gamla félaga og gamla hljómsveitarstjóra, sem eg nefndi strax á þessum okkar fyrsta fundi og nefndi ávallt síðan „minn maestro“. Síðan þá hittumst við aftur nokkrum sinnum uns hin allra síðustu árin, enda heilsu hans þá farin að hraka. Sam- starfsárin okkar tvö í skólahljóm- sveit MÁ eru mér ávallt efst í minni allra minni æsku daga. Ekki síst eftirminnileg nú, þegar ég kveð hinstu kveðju minn góða „maestro“. Vottum við hjónin Erlu, kon- unni hans Sveins, sem og afkom- endum þeirra okkar einlægu samúð. Sighvatur Björgvinsson. Minn góði vinur Sveinn Gúst- avsson kvaddi þennan heim á sinn rólega hátt föstudaginn 15. nóv- ember. Reyndar hafði hann verið lengi á förum því að það eru ein- kenni Alzheimerssjúkdómsins. En hann var ekki einn því að Erla og fjölskyldan önnuðust hann af nærfærni og kærleika öllum stundum. Og ekki má gleyma góðri umönnun starfsliðs Sóltúns. Kynni okkar Sveins hófust haustið 1956 er þeir Siglfirðingar hann og Gunnar Ragnars hófu nám í Menntaskólanum á Akur- eyri. Bundumst við fljótlega kunningja- og síðan vinaböndum, sem aldrei hafa rofnað. Sveinn var afbragðs píanóleikari enda mjög músíkalskur. Því var það að skólahljómsveit var stofnuð af nokkrum skólabræðrum og undirrituðum. Þessi hljómsveit varð mjög vinsæl og lék fyrir dansi á skóla- böllum og víðar. Skólaárið 1968- 1969 skildi leiðir þar sem Siglfirð- ingar voru einu ári lengur í grunnskóla og luku því stúdents- prófi einu ári eldri. Það urðu því fagnaðafundir þegar þeir vinirnir settust í við- skiptadeild HÍ haustið 1969 en þar var ég fyrir í fleti. Sveinn gegndi margháttuðum störfum að loknu námi í HÍ. Hið síðasta var rekstur ferðaskrif- stofu fyrir fatlaða einstaklinga. Á hennar vegum ferðaðist hann til sólarlanda með fólkið sitt og með umhyggju sinni gaf hann því kost á að njóta lífsins á annan hátt en það átti að venjast. Var það vel þegið og þakkað. Sveinn og Erla voru frábærir gestgjafar sem gott var heim að sækja. Minnist ég ótal notalegra sam- verustunda þar sem Sveinn sett- ist við píanóið og gestir sungu við raust. Við fráfall Sveins leita þessi orð sterkt á hugann: Umhyggju- semi, greiðvikni, samviskusemi, heiðarleiki og skopskyn. Öllum þessum eiginleikum var hann ríkulega búinn. Þetta vita allir sem þekktu hann og ekki síst við sem nutum vináttu hans. Í síðustu heimsókn minni til hans tók hann á móti mér á sama hátt og áður. Heilsaði mér glaður í bragði og bauð mig velkominn. Þá hvarflaði ekki að mér að baráttunni væri að ljúka. Að þetta væri í síðasta sinn sem ég sæi brosið hans. Á kveðjustund er okkur Önnu hugsað til fólksins hans, sem hon- um var svo kært. Megi góður Guð blessa þau og styrkja. Í brjósti okkar sem eftir lifum ríkir sökn- uður. En þar inni býr einnig minn- ingin um góðan fjölskylduföður og sannan vin. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (Valdimar Briem) Marinó Þorsteinsson. Sveinn Gústavsson var Sigl- firðingur. Siglfirðingar voru í nokkrum sérflokki; þar var mið- stöð síldarævintýrisins. Það var eins og lífsneistinn væri þar nokkru sterkari en í öðrum byggðarlögum. Það var bjart og hressilegt yfir mörgum Siglfirð- ingnum. Ekki sízt yfir Sveinka mínum Gúst. Leiðir lágu saman í MA. Vetur- inn 1958-1959 var Sveinki í 6. bekk, á útskriftarárinu, og auk þess í skólahljómsveitinni. Undir- ritaður var hins vegar bara busi af Króknum, auðvitað í allt öðrum og neðri mannvirðingarflokki. Ég vissi vel af Sveini, en hann lítið af mér, en seinna gerðist það að kvenpeningurinn tók völdin og bætti þessa tengingu, sem varð að ævilangri og ómetanlegri vin- áttu. Sveinki stóð auðvitað sem verðandi stúdent og hljóm- sveitarstóri sterkt gagnvart miklu úrvali akureyskra blóma- rósa, og valdi þar fyrsta flokk; Erlu Ingólfsdóttur. Hún aftur og Ella í Bogahúsinu, Elín þá Guð- mundsdóttir, höfðu verið vinkon- ur frá átta ára aldri. Undirritaður náði því 8. janúar 1961 að tryggja sér þann mikla kvenkost, nú Ellu Bílt, til fram- búðar, þökk sé því að ball í Al- þýðuhúsinu var framlengt þetta kvöld. Þar með var þessi vináttu- hringur lokaður, og varir hann enn. Auðvitað brast hann illa þann 15. nóvember sl., þegar Sveinki var kallaður snögglega, en mjúklega, yfir móðuna miklu í betri heim. Alla vega á Sveinki góðan heim, hlýjan og bjartan skilinn umfram flesta, þökk sé hans góða hjarta, velvild og hlýju til allra. Manna og dýra. Allir okkar hundar elskuðu Sveinka. Betra hól fæst vart. Sveinki hélt auðvitað áfram að spila eftir MA, og dró þar hvergi af sér. Voru margir kvöldverðir eftirminnilegir, þar sem Sveinki settist við píanóið, eftir mat en ekki drykk, og hristi slenið af veizlugestum með líflegri músík. Mátti þá panta, og Sveinki spil- að bara, svona eftir eyranu, og voru feilnótur fáar. Stundumst settist Ella við hljóðfærið með honum. Var þá spilað fjórhent og færðist aukið fjör í leikinn. Þegar þar var komið sögu vildi húsmóðirin, Erla, ekki láta sitt eftir liggja, og hóf upp raust sína og söng með. Komst þá undir- ritaður ekki lengur hjá þátttöku í söngvi og bættust fleiri við, ef til staðar voru. Stundum skelltu þá vinkonurn- ar sér í dans, rokkuðu fram og til baka um stofur, þannig að hár stóð strítt út í loftið og stundum flugu skór. Var undirrituðum þá stundum nauðugum viljugum kippt með. 1965 fórum við félagarnir til borgarinnar sem aldrei sefur. Bissness. Bjuggum á Sheraton. Þar var píanó á barnum. Fór þá Sveinka að klæja í fingurna. Þeg- ar tækifæri gafst greip hann í gripinn. Nú vantaði forsögvarann góða, og varð undirritaður að taka við. Tókum „All of Me“. Vorum ekki klappaðir upp. Kan- inn kann ekki gott að meta. Þetta eru svona rétt mynda- skot úr langri, djúpri og verð- mætri vinaminningu. Þegar fréttir bárust af láti okk- ar kæra vinar, Sveinka, þann 15. nóvember, sagði ég því við Ellu – reyndar með tárin í augunum – þetta er bæði mikil sorg og mikill léttir. Sveinki var búinn að lifa sínu góða lífi, átti fátt gott eftir og enga von um bata. Óli Bílt. MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 2019 Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, MAGNÚS BJARNASON Muggur í Garðshorni lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands í Vestmannaeyjum 21. nóvember. Útförin fer fram frá Landakirkju föstudaginn 29. nóvember klukkan 14. Unnur Gígja Baldvinsdóttir Margrét Lilja Magnúsdóttir Jóhann Pétursson Bjarni Ólafur Magnússon Jenný Huld, Magnús Ellert, Baldvin Búi, Gígja Sunneva, Snjólaug Hildur Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURLAUG SVANHILDUR ZOPHONÍASDÓTTIR Kópavogsbraut 1a, sem lést 19. nóvember, verður jarðsungin frá Digraneskirkju miðvikudaginn 4. desember klukkan 15. Anna Gunnarsdóttir Ólafur Kvaran Guðný Gunnarsdóttir Friðþjófur K. Eyjólfsson Guðrún Gunnarsdóttir Valþór Hlöðversson Emilía María Gunnarsdóttir Eyjólfur Guðmundsson Hákon Gunnarsson Björn Gunnarsson Elísabet Kvaran barnabörn og barnabarnabörn Kæru vinir. Við þökkum kærleika, samhug og hlýju sem umvafið hefur fjölskylduna frá andláti og útför okkar ástkæra LÁRUSAR DAGS PÁLSSONAR Stuðningur ykkar er ómetanlegur. Anna Sif Ingimarsdóttir Páll Ísak Lárusson Ingimar Albert Lárusson Kolfinna Katla Lárusdóttir Páll Dagbjartsson Helga Friðbjörnsdóttir Svanhildur Pálsdóttir Kolbrún Pálsdóttir Helga María Pálsdóttir Ingimar Ingimarsson Kolbrún Ingólfsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.