Morgunblaðið - 26.11.2019, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 26.11.2019, Qupperneq 25
ÍÞRÓTTIR 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 2019 Ég ætlaði mér svo sem aldrei að byrja í golfi en eiginkonan dró mig út á völlinn fyrir einu og hálfu ári og fljótlega á eftir fékk ég fyrstu leiðbeiningar frá Bjössa golfkennara hjá Keili. Nú er ég hundfúll að hafa ekki byrjað að munda kylfurnar miklu fyrr en góðu heilli er aldrei of seint að byrja í þessari skemmti- legu íþrótt. Þegar ég rita þessi orð er 58 ára afmælisdagurinn að kveldi kominn og ég sé alveg fyrir mér að geta slegið golfkúluna í nokkra áratugi til viðbótar ef guð lofar. Ég á margt ólært í golfinu og er ekki neinni keppni við aðra um forgjöf. Ég fer í golf fyrst og fremst til að hafa gaman af og það er fátt skemmtilegra en að spila 18 holu hring með frúnni og góðum vinum í góðu veðri. Á þessu ári sem senn er á enda höfum við hjónin verið dug- leg að fara út um borg og bý og spila golf og meira að segja voru teknir hringir í sumarfríinu á Tenerife. Ég er ekki búinn að pakka golf- settinu saman í geymsluna. Á fal- legum degi sem var hér SV-lands á sunnudaginn fórum við hjónin í Þorlákshöfn og spiluðum þar við fínar aðstæður. Halló! Það er að koma desember. Ætli ég sé kominn með golf- bakteríuna? Og rúsínan í pylsu- endanum, konan gaf mér pútt- mottu í afmælisgjöf! En nú að aðeins stærri bolta. Ég er að bilast að horfa á leiki í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Þetta VAR-drasl er svo leiðinlegt og sú töf sem verður á nánast hverjum leik hefur gert það að verkum að ég og miklu fleiri erum að gefast upp á þessari leiðinda „Varsjá“. BAKVÖRÐUR Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Í AUSTURBERGI Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is ÍR og Haukar skildu jöfn, 30:30, í einum skemmti- legasta leik tímabilsins til þessa í Olísdeild karla í handbolta er liðin mættust í Austurbergi í 11. um- ferðinni í gærkvöldi. Bæði lið spiluðu afar skemmtilegan sóknarbolta og léku varnirnar aukahlutverk stóran hluta leiks. Haukar voru yfir lengst af, en ÍR-ingar aldrei langt undan. Brynj- ólfur Snær Brynjólfsson kom Haukum í 30:29 þegar skammt var eftir en hinn síungi Sturla Ás- geirsson jafnaði á vítalínunni í blálokin og tryggði ÍR verðskuldað stig. Haukar eru enn eina ósigraða lið deildarinnar, en með smá heppni hefði ÍR getað tekið stigin tvö, þar sem liðið fékk sannkallað dauðafæri til að komast tveimur mörkum yfir þegar skammt var eftir. ÍR-ingar sýndu að þeir geta hæglega bland- að sér í baráttuna á toppnum. Gengi ÍR ræðst mikið af því stuði sem Sigurður Ingiberg Ólafsson, markmaður liðsins, er í hverju sinni. Sigurður varði lítið í fyrri hálfleik og þá voru Haukar með stjórn á leiknum. Hann datt í gang í þeim seinni og átti stóran þátt í að ÍR næði í gott stig gegn toppliðinu. Sigurður væri á meðal bestu markmanna deildarinnar, ef hann væri stöðugri. Kristján Orri Jóhannsson nýtti færin sín vel í hægra horninu og Hafþór Már Vignisson hélt áfram að heilla í Breiðholtinu, en hann hefur spil- að afar vel síðan hann gekk í raðir ÍR frá Þór Ak- ureyri. ÍR átti í erfiðleikum með varnarleikinn framan af og fékk Adam Haukur Baumruk að skjóta fyrir utan af vild. Það kann ekki góðri lukku að stýra og raðaði stórskyttan inn mörkunum. Adam var kominn með sex mörk á fyrsta korterinu, en þá tók Hafþór Már Vignisson upp á því að ýta honum í loftinu með þeim afleiðingum að Adam lenti illa og hægðist mikið á honum í kjölfarið. Virtist það eina leiðin til að stoppa Adam, sem var í bana- stuði. Þegar Adam datt úr leik dreifðist markaskorun Hauka vel. Brynjólfur Snær Brynjólfsson og Ein- ar Pétur Pétursson gerðu vel í horninu og Vignir Svavarsson og Heimir Óli Heimisson mynda besta línumannapar landsins. Andri Sigmarsson Schev- ing var svo ágætur í markinu, en hann var í byrj- unarliði Hauka og er alls ekki síðri en Grétar Ari Guðjónsson, jafnvel aðeins betri. Haukar eru ekki ósigrandi og ÍR getur náð mjög langt. Það væri gaman að sjá þessi lið mætast í úrslitakeppninni, því leikurinn í gær var hin mesta skemmtun. Afturelding í 2. sæti Mosfellingar halda sínu striki en Afturelding er í öðru sæti og saxaði lítillega á forskot Hauka með sigri á botnliðinu HK 32:26 í Kórnum. Guðmundur Árni Ólafsson skoraði 8 mörk fyrir Aftureldingu gegn sínum gömlu félögum en Þorsteinn Gauti Hjálmarsson kom næstur með 7 mörk. Pétur Árni Hauksson og Jóhann Birgir Ingvarsson voru markahæstir hjá HK með 6 mörk hvor en liðið er enn án stiga. Hvorugt liðið átti skilið að tapa í Austurbergi  Haukar enn ósigraðir á toppnum  Sturla ískaldur á vítalínunni Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Bylta Þrándur Gíslason, ÍR, og Tjörvi Þorgeirsson í undarlegri stöðu í Breiðholtinu í gær. Alexander Medvedev og Kyllian Guynet eru teknir við þjálfun kvennaliðs Reykjavíkur í íshokkíi sem er sameiginlegt lið Skauta- félags Reykjavíkur annars vegar og Fjölnis hins vegar. Bandaríkjamaðurinn Peter Bron- son stýrði liðinu síðan í sumar en lét nýlega af störfum að eigin ósk. Alþjóðlegt yfirbragð er yfir þjálf- arateyminu en Medvedev er Rússi og Guynet er Svisslendingur. Medvedev stýrði einnig liði Reykja- víkur 2017-2018 og er þjálfari karlaliðs Fjölnis. Þjálfaraskipti hjá Reykjavík Hættur Peter Bronson tók við liði Reykjavíkur í sumar. Hörður Björgvin Magnússon, lands- liðsmaður í knattspyrnu, er í úr- valsliði rússnesku úrvalsdeildar- innar eftir 17. umferðina sem var leikin um helgina. Hörður, Arnór Sigurðsson og samherjar í CSKA Moskva unnu þar sigur á Krilia Sovetov, 1:0. Er þetta í fjórða sinn á þessu tímabili sem Hörður er í úrvals- liðinu sem er valið af vefsíðu deild- arinnar. Hann leikur ávallt sem miðvörður með CSKA en hjá ís- lenska landsliðinu hefur Hörður verið í hlutverki vinstri bakvarðar. Í úrvalsliðinu í fjórða sinn Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Í Rússlandi Hörður Björgvin Magn- ússon í leik með CSKA Moskvu. Kórinn, Olísdeild karla, mánudag 25. nóvember 2019. Gangur leiksins: 1:0, 2:2. 3:6, 6:6, 6:10, 10:12, 11:15, 13:17, 14:20, 17:20, 20:23, 23:29, 24:32, 26:32. HK: Pétur Árni Hauksson 6, Jóhann Birgir Ingvarsson 6, Garðar Svans- son 4, Kristján Ottó Hjálmsson 3, Kristófer Andri Daðason 2, Símon Michael Guðjónsson 2, Kristófer Dagur Sigurðsson 1, Pálmi Fannar Sigurðsson, Þorgeir Bjarki Dav- íðsson 1. Varin skot: Davíð Svansson 14/1, HK – AFTURELDING 26:32 Stefán Huldar Stefánsson 1. Afturelding: Guðmundur Árni Ólafsson 8, Þorsteinn Gauti Hjálm- arsson 7, Einar Ingi Hrafnsson 4, Birkir Benediktsson 4, Karolis Stro- pus 3, Agnar Ingi Rúnarsson 2, Tumi Steinn Rúnarsson 2, Björgvin Franz Björgvinsson 1, Böðvar Páll Ásgeirsson 1. Varin skot: Björgvin Franz Björg- vinsson 8/1, Arnór Stefánsson 4. Dómarar: Árni Snær Magnússon og Þorvar Bjarni Harðarson. Áhorfendur: 271. Austurberg, Olísdeild karla, mánu- dag 25. nóvember 2019. Gangur leiksins: 3:3, 5:6, 8:9, 10:12, 12:15, 16:18, 18:20, 21:21, 22:23, 24:25, 28:27, 30:30. Mörk ÍR: Sturla Ásgeirsson 8/4, Kristján Orri Jóhannsson 6, Haf- þór Már Vignisson 5, Bergvin Þór Gíslason 4, Björgvin Þór Hólm- geirsson 4, Sveinn Andri Sveins- son 3. Varin skot: Sigurður Ingiberg Ólafsson 15/1. Utan vallar: 10 mínútur ÍR– HAUKAR 30:30 Mörk Haukar: Adam Haukur Baumruk 10, Brynjólfur Snær Brynjólfsson 4, Einar Pétur Pét- ursson 3, Tjörvi Þorgeirsson 3, Vignir Svavarsson 3, Heimir Óli Heimisson 3, Atli Már Báruson 2, Ólafur Ægir Ólafsson 2. Varin skot: Andri Sigmarsson Scheving 17, Grétar Ari Guð- jónsson 2. Utan vallar: 8 mínútur Dómarar: Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson Áhorfendur: 350. Nokkur umræða er um það á meðal NFL-spekinga vestan hafs að meistararnir í New England Patriots séu í vandræðum með sóknina hjá sér. Nokkrir leik- menn eru á sjúkralistanum og sóknin er ekki eins fjölbreytt og þegar best lætur. Leikstjórnandinn sigursæli, Tom Brady, þykir ekki hafa blómstrað við þessar aðstæður framan af tímabilinu. Þar sem leikstjórnandinn og þjálf- arinn Bill Belichick hafa orðið meist- arar sex sinnum er eðlilegt að liðið sé undir smásjá NFL-unnenda. New England hefur auk þess orðið meist- ari þrisvar á síðustu fimm árum. Það sem er athyglisvert við þessa umræðu er að New England hefur unnið tíu af fyrstu ellefu leikjum sín- um. Vandræðin eru því ekki meiri en svo að liðið er með besta árangurinn ásamt San Francisco 49ers sem hef- ur byrjað betur en sérfræðingarnir áttu von á. Vörnin hefur verið mjög öflug hjá báðum þessum liðum. San Francisco vann Green Bay Packers á sunnudag 37:8 og New England vann hið sögufræga lið Dallas Cowboys 13:9. Aðeins eitt tap en þykja ekki góðir Tom Brady

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.