Morgunblaðið - 26.11.2019, Síða 28

Morgunblaðið - 26.11.2019, Síða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 2019 Sími 555 2992 og 698 7999 • Við hárlosi • Mýkir liðina • Betri næringar- upptaka Náttúruolía sem hundar elska Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta. Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við mælum með Dog Nikita hundaolíu. Páll Ingi Haraldsson EldurÍs hundar Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda • Gott við exemi • Betri og sterkari fætur Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is „Vissulega eru þetta persónuleg ljóð, eins og oft er háttur ljóða, en samt er þetta ekki ævisaga mín eða nokkurs annars. Ég bjó til þessa okfrumu og þetta er skáldað þó það sé að hluta til byggt á eigin reynslu,“ segir Brynja Hjálmsdóttir, sem sendi nýlega frá sér ljóðabókina Okfruman, en okfruma er fyrsta þrepið í tilurð einstakrar nýrrar líf- veru þegar hún samanstendur af aðeins einni frumu. „Þessi bók fjallar um hvernig lífið kviknar og hvernig það þurrkast út og hvernig það er á einhvern hátt sami hluturinn. Þannig er hringrás lífsins, kynslóðir koma og fara. Ég reyni að setja þetta fram í gegnum minn- ingabrot. Þessi bók er líka um það hvað minningar eru skrýtið fyrirbæri, við munum alls konar litla undarlega hluti en gleymum svo kannski einhverju stóru og merkilegu. Mannsævin samanstendur af öllum þessum minningabrotum okkar.“ Áttaði sig á að Grámann lúrir í henni Skuggaleg persóna kemur ítrekað fyrir í ljóðabókinni, það er hinn klóki Grámann í Garðshorni, úr íslensku þjóðsögunum. „Grámann hefur setið í mér frá því að pabbi las söguna fyrir mig þegar ég var lítil. Ég áttaði mig allt í einu á að Grámann er minning úr bernsku sem lúrir í mér og það eru frekar undarleg og skelfandi augnablik úr sögunni sem ég man sterkast, þó að hún sé ósköp saklaus gamansaga í grunninn. Þetta finnst mér svo merkilegt, hvernig mað- ur ræður ekki sjálfur hvað situr eftir í minn- inu og hvernig það birtist. Mér fannst þetta gott tækifæri til að nota skáldskapinn til að sýna fram á að stundum fara minningarnar að bulla í manni. Ég er ekkert hrædd við Grámann,“ segir Brynja og hlær og bætir við að hún hefði samt alveg getað verið hrædd við hann. „Ljóðmælandinn í bókinni minni er sann- arlega hræddur við hann, enda bryður Grá- mann börn þar sem hann birtist í ljóðunum og er nokkuð hryllilegur.“ Þurfti að sækja í harminn við skrifin Þó að svartir hundar, blóð, dauði og dimma komi fyrir í bókinni hennar Brynju tekur hún fram að henni finnist lífið ekki þungt og erfitt. „Mér finnst þetta frekar fyndin bók og skemmtileg á þann hátt að hún er svolítið spennandi, en það er vissulega mikill harmur í henni. Þegar ég skrifaði hana þurfti ég að sækja í harminn, jafnvel meira en ég hélt að ég myndi gera, því ég er frá degi til dags frekar glaðlynd kona. En harmurinn býr í okkur öllum, það verður ekkert flúið undan dauðanum þótt hann sé sár, en það er ein- hver undarleg sátt sem þarf að eiga sér stað. Þessi ljóðabók er tilraun mín til að búa til sögu í kringum þessi stóru og skrýtnu mál mannlegrar tilveru, hvernig nýtt líf kviknar og kemur í heiminn með jafnmiklu offorsi og dauðinn, þegar lífi lýkur.“ Andlit og skepnur í okfrumunum Nokkrar svarthvítar og kringlóttar myndir prýða bókina og eru þær nokkuð óræðar, les- andi getur jafnvel séð í þeim andlit eða skepnu en sumar eru abstrakt. Þegar Brynja er spurð að því hvort þetta séu okfrumur segir hún að það megi vel vera. „Þegar bókin var nálægt því að vera tilbú- in fannst mér vanta í verkið myndir. Mér fannst þurfa myndrænt element og ég ætlaði að fá einhvern annan til að myndskreyta, en svo fór ég að gera það sjálf og mér fannst það virka vel. Ég set myndirnar inn á stöð- um í bókinni þar sem eru ákveðin kaflaskil, bý þannig til andrými á milli þátta. Þessar myndir eru mitt á milli þess að vera hlut- bundnar og óhlutbundnar og það má alveg sjá ýmislegt út úr þeim.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Við ráðum ekki hvað situr eftir  Mannsævin samanstendur af minningabrotum okkar  Gott tækifæri að nota skáldskapinn til að sýna fram á að stundum fara minningarnar að bulla í manni  „Ég er ekkert hrædd við Grámann“ Brynja Hún segir ljóðabókina vera tilraun til að búa til sögu í kringum hin skrýtnu mál mann- legrar tilveru, hvernig nýtt líf kviknar og kemur í heiminn með jafnmiklu offorsi og dauðinn. Kvartett gítar- leikarans Ásgeirs Ásgeirs- sonar kemur fram á næsta djasskvöldi Kex hostels í kvöld, þriðjudag, kl. 20.30. Kvart- ettinn skipa auk Ásgeirs þeir Snorri Sigurðar- son á trompet, Andri Ólafsson á kontrabassa og Scott McLemore á trommur. Sveitin leikur djass- og popptónlist úr ýmsum áttum. Að vanda er aðgangur ókeypis. Kex Hostel er á Skúlagötu 28. Kvartett Ásgeirs á Kex Hosteli í kvöld Ásgeir Ásgeirsson Sýningar hófust í kvikmyndahúsum um helgina á teiknimyndinni Fro- zen II og naut hún meiri vinsælda en nokkur önnur teiknimynd um frumsýningarhelgi hér á landi til þessa. Sló hún met teiknimyndar- innar Incredibles 2 síðan í fyrra- sumar. Alls sá 14.301 gestur Frozen II og voru miðar seldir á hana fyrir rúmlega 16 milljónir króna. Til samanburðar þá sá 8.161 gestur fyrri myndina, Frozen I, helgina þegar hún var frumsýnd árið 2013 og voru miðar þá seldir fyrir 7,7 milljónir króna. 68 prósent af þeim sem sóttu kvikmyndahús hér á landi um helgina sáu Frozen II. Þess má geta að myndin er sýnd víða um land, á ensku og einnig með íslensku eða pólsku tali. Samkvæmt frétt The New York Times sló aðsóknin á Frozen II einnig met í Bandaríkjunum um helgina er hún var þá líka frum- sýnd þar. Miðar voru þá seldir á myndina fyrir um 127 milljónir dala, nærri 16 milljarða króna. Andlitsmálning Mikill áhugi var meðal barna sem mættu á forsýningu Frozen II. Frozen II vinsælasta teiknimyndin Gagnrýnendur breskra fjölmiðla ausa lofi hina margbrotnu marg- miðlunarsýningu Bjarkar Guð- mundsdóttur, Cornucopia, en hún var sett upp í tónleikahöllinni O2 í London í liðinni viku. Cornucopia var fyrst sýnd í mánaðartíma í The Shed í New York í vor, þá í Mexíkó- borg, en þessar vikurnar eru nokkrar sýningar í evrópskum stór- borgum. Flautuseptettinn viibra, hljómsveit og Hamrahlíðarkórinn koma fram með Björk. Gagnrýnandi The Guardian gaf sýningunni fjórar stjörnur og sagði sviðið svo glæsilegt að gestir hefðu verið orðlausir – en þrátt fyrir um- fangsmikla leik- og sviðmynd hefði Björk þó verið miðpunktur athygl- innar. Rýnir The Independent var enn hrifnari, gaf fullt hús stjarna og sagði sýninguna hafa verið þá mest heillandi sem hann hefði nokkru sinni upplifaði í jafn ólíf- rænum sal. Rýnar NME, The Times og Evening Standard gefa allir fjórar stjörnur af fimm, og hrósa allir glæsilegu sjónarspilinu og frammistöðu listamannanna. Glæsisýning Björk og meðlimir Hamrahlíðar- kórsins á sviði O2-hallarinnar í London. Cornucopiu Bjarkar hrósað í London Gufustrókur stendur út úr munnum og nefjum bærinn ilmar eins og sulta fólkið kitlar í buxurnar svífur hvert til annars á bleiku tyggjóskýi á svona kvöldum er mikið pissað Hún er í brúnum leðurjakka með ekta hár á höfðinu emjar og grátbiður bergrisann úr vestri að negla sig í norðurskautið Án titils LJÓÐ ÚR BÓKINNI OKFRUMAN

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.