Morgunblaðið - 26.11.2019, Side 32
Íslenska óperan
sýnir samruna-
verkið Örlaga-
þræði í Kaldalóni
Hörpu í kvöld kl.
20. Í verkinu
renna söngur og
dans saman í
túlkun á ljóðum
Maríu Stuart, við tónlist Roberts
Schumann, og Mathilde Wesen-
donck, við tónlist Richards Wagner.
Umfjöllunarefni kvennanna eru ólík
og lifðu þær á ólíkum tímum en þær
eiga sameiginlegt að vera fullar af
ástríðu og þrótti. Örlaganornirnar
spunnu þeim ólík örlög, en hvorug
náði að lifa í frelsi. Ljóðin túlka
Auður Gunnarsdóttir sópran og
Lára Stefánsdóttir dansari. Á flygil
leikur Snorri Sigfús Birgisson.
Örlagaþræðir í söng
og dansi í Kaldalóni
ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 330. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Ásdís Hjálmsdóttir Annerud hefur
verið fremsti spjótkastari Íslands í
hálfan annan áratug og hún horfir
nú með tilhlökkun til síðasta
keppnisársins á ferlinum. „Mér
finnst kjörið að enda ferlinn á
svona stóru ári og snúa mér að ein-
hverju öðru,“ segir Ásdís sem
stefnir á Ólympíuleikana og Evr-
ópumeistaramótið í kjölfarið. »24
Kjörið að enda ferilinn
á svona stóru ári
ÍÞRÓTTIR MENNING
„Ég gat ekki beðið um betri byrj-
un en þetta,“ segir knattspyrnu-
maðurinn Árni Vilhjálmsson sem
er kominn aftur til Úkraínu frá
Póllandi og skoraði um helgina í
fyrsta leiknum með nýju félagi,
Kolos Kovalivka. Hann
er ánægður með að
erfiðir tímar í Pól-
landi séu að
baki. „Mér líð-
ur mjög vel
hérna og það
má segja að
brosið fari ekki
af mér, ég er
svo hamingju-
samur með að
vera kominn hing-
að,“ segir Árni.
»26
Gat ekki beðið um
betri byrjun en þetta
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Ekki er á vísan að róa þegar rjúpan
er annars vegar. „Ekkert hefur
gengið, það er engin veiði og það er
mesta skömmin,“ segir Helgi Ólafs-
son á Raufarhöfn. Hann er með
reyndari rjúpnaveiðimönnum lands-
ins, hefur farið á rjúpu undanfarin 77
haust, fyrst þegar hann var 13 ára,
en fer ekki meira í ár. „Ég verð í sjö-
tugsafmæli hjá syni mínum fyrir
sunnan um næstu helgi,“ útskýrir
hann og leggur áherslu á að hann sé
ekki athafnamikill veiðimaður. „Ég
fer bara af og til,“ áréttar hann.
Varpárgangar rjúpunnar hafa ver-
ið misjafnir og stofnsveifla því al-
geng. Það er þó ekki einhlít skýring á
dræmri veiði í grennd við Rauf-
arhöfn í líðandi mánuði. „Við vitum
ekki enn hvernig á þessu stendur en
málið er umræðuefni á svæðinu,“
segir Helgi. „Staðan er eins alls stað-
ar hérna, alveg inn á Þeistareyki og
hingað og þangað. Það er bara lítið
um rjúpu.“
Helgi er rafvirkjameistari og var
umboðsmaður Morgunblaðsins á
Raufarhöfn í um þrjá áratugi. Þrátt
fyrir að vera orðinn 90 ára er hann
enn á vinnumarkaði. „Ég gríp í verk-
efni, þegar færi gefst, til þess að
halda mér lifandi,“ segir hann, en um
þessar mundir vinnur hann hjá
Smára Frey Hilmarssyni við end-
urbyggingu á söltunarbakkanum.
„Hann er mikill fagmaður,“ segir
Helgi um Smára.
Hjartaáfall
Helgi segir að veiðin hafi alltaf
sveiflast upp og niður og ekki sé
hægt að ganga að rjúpunni þar sem
hún hafi verið áður. „Ég byrjaði að
veiða á ásunum ofan við Raufarhöfn
en það er alveg búið að vera. Nú er
það bara fjallgarðurinn og heiðin.“
Þegar best lét veiddi Helgi 67
rjúpur. „Það er langt síðan,“ segir
hann. Undanfarin ár hefur hann far-
ið á rjúpu með Júlíusi, syni sínum, og
það kom sér vel fyrir þremur árum.
„Þá fékk ég hjartaáfall og Júlíus fann
mig, fór með mig heim og ég var
kominn í þræðingu á Landspít-
alanum klukkan tvö um nóttina.“
Örugglega eru ekki margir níræð-
ir á veiðum en Helgi gerir lítið úr
aldrinum. „Þetta er enginn aldur,“
segir hann en Helgi er formaður Fé-
lags eldri borgara á Raufarhöfn og
stendur fyrir fjölbreyttu félagslífi á
þriðjudögum. „Við föndrum, spilum
og svo er almennur kjaftagangur,“
segir hann og bætir við að hann
hugsi ekki sérstaklega um að halda
sér í formi. „Aðalatriðið er að fara
aldrei eftir því sem sérfræðingar
segja að maður eigi að éta heldur éta
það sem að kjafti kemur.“ Bætir við
að fæðubótarefnið Benekta sé allra
meina bót. „Ég tek tvo belgi á dag en
hætti að fá mér lýsi eftir að gall-
blaðran var tekin fyrir tæplega ári.
Þá var ég varaður við því að borða
mikla fitu en ég fæ mér nú feitt kjöt.“
Veiðimaður Helgi Ólafsson á Raufarhöfn man tímana tvenna, er í fullu fjöri níræður og hefur veitt rjúpu í 77 ár.
Hlustar ekki á fræð-
inga heldur étur allt
Lítið um rjúpu, segir níræður Helgi Ólafsson á Raufarhöfn
ÁSKR I FTARLE IKUR MORGUNBLAÐS INS
Heppinn
áskrifandi
hlýtur
að gjöf
Hästens
HERLEWING®
handgert rúm úr
náttúrulegum efnum
að verðmæti 3.225.900 kr.
Fátt jafnast á við að opna Morgunblaðið eftir
góðan nætursvefn. Fyrir einn af áskrifendum
Moggans nær þessi ljúfa morgunstund nýjum
hæðum eftir að við drögum í áskriftar-
leiknum okkar föstudaginn 20. desember.
ÞAÐ BORGAR SIG AÐ LESA MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið og Hästens eru stolt af því að
vinna saman að því að gefa einum heppnum
áskrifanda Morgunblaðsins Herlewing-rúm
frá Hästens.
Verslun Hästens á Íslandi er til húsa í
Faxafeni 5, á sama stað og Betra bak.
KAUPTU
ÁSKRIFT
Í SÍMA 569 11
00