Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.11.2019, Síða 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.11.2019, Síða 6
VETTVANGUR 6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.11. 2019 Það leikur enginn vafi á því að það rík-ir mikið frelsi á Íslandi. Sama hvern-ig það er mælt, þá má alltaf sjá Ís- land í einu af efstu sætunum. Sem er náttúrlega frábært enda er frelsið ynd- islegt. Það er reyndar þannig að við erum svo góðu vön að ég held að við gerum okkur ekki grein fyrir því hve mikilvægt það er. En svo kemur að því að fólki finnst að það verði að vera system á galskapnum, eins og amma hefði sagt. Stundum eru sett- ar reglur sem hefta einhverja og þá venju- lega með þeim formerkjum að verið sé að tryggja réttindi eða öryggi annarra. Stundum er líka eins og fólk byrji á því að teikna upp í huganum: Hvað ef allt færi á versta veg? Hvað ef einhver misnotar þetta eða kann ekki að fara með? Verðum við ekki alltaf að hafa vit fyrir öllum? Verð- um við ekki alltaf að fylgja allra ströngustu reglum sem við eigum? Og mögulega búa til nýjar? Þannig leggst landlæknir algjörlega á móti frumvarpi nokkurra þingmanna um breytingar á lyfjalögum. Væri það sam- þykkt yrði hægt að kaupa sum verkjalyf í stórmörkuðum. Svokölluð lausasölulyf. Með því er fyrst og fremst átt við vægari verkja- lyf á borð við Panodil og Paratabs, ofnæm- islyf og magalyf. Allt lyf sem fást án lyfseð- ils í apóteki. Það er meira að segja þannig að Lyfja- stofnun hefur lokaorðið um það hvaða lyf megi selja. Þannig að það er ekki eins og menn geti bara mætt með sendibíl í búðir og byrjað að selja hvað sem er. Ég verð að segja að ég skil ekki alveg pælinguna. Þessi lyf er hægt að kaupa í apóteki án lyfseðils. Þeim fylgja nokkuð ít- arlegar leiðbeiningar með jafnvel fjarlæg- ustu möguleikum á aukaverkunum og mörg þeirra eru þannig að þú getur keypt eins mikið og þú vilt í apóteki. Í þeim tilvikum þar sem þau eru skömmtuð er ekkert sem kemur í veg fyrir að þú röltir yfir í næsta apótek til að kaupa meira. Ef flugvélar kæmu fram á sjónarsviðið í dag, myndum við leyfa þær? Myndum við ekki fyrst og fremst hugsa að þetta séu nú óttalega hættuleg tæki þar sem fólk er lok- að í litlu rými og getur enga björg sér veitt ef eitthvað fer úrskeiðis. Og fyrir utan það: Hver skilur hvernig þessi ferlíki haldast í loftinu? Ekki ég. En við höfum þessi lyf og höfum haft þau býsna lengi. Þau hafa gengið í gegnum langt ferli og verið samþykkt og eru al- mennt talin hjálpa fólki sem þarf á þeim að halda. En það er ekki hægt að selja þau í búðum. Sömu búðum og ég get gengið inn í og keypt mér orkudrykki í kassavís og nógu mörg karton af síg- arettum til að reykja mig grænan. En ég get ekki keypt mér Panodil og Nezeril í búð. Ekki ef landlæknir fær að ráða. Ekki á Ís- landi en nánast hvar sem er annarstaðar í heiminum. Meira að segja í Svíþjóð er hægt að kaupa lausasölulyf í venjulegum búðum. Svíþjóð! Er ekki til einhver regla í heil- brigðri skynsemi sem segir okkur að ef Sví- ar leyfi eitthvað, þá geti það ekki verið hættulegt? En starfandi landlæknir er á öðru máli. Hér þurfi fyrst og fremst að „auka aga og virðingu fyrir lyfjum“ því að Íslendingar noti svo mikið af tauga- og geðlyfjum. Sem eru lyfseðilsskyld og yrðu einmitt ekki seld í verslunum! Ég ber greinilega meiri virðingu fyrir frelsi. Og aftur: Þetta má í Svíþjóð. ’Ef flugvélar kæmu fram ásjónarsviðið í dag, myndumvið leyfa þær? Myndum við ekkifyrst og fremst hugsa að þetta séu nú óttalega hættuleg tæki þar sem fólk er lokað í litlu rými og getur enga björg sér veitt ef eitt- hvað fer úrskeiðis. Á meðan ég man Logi Bergmann logi@mbl.is Frelsi til sársauka Elsku Andrea mín. Þú ert alheimstalan níu, sem segir mér að þú sért þannig per- sóna að það er alveg sama hvað þú tekur þér fyrir hendur og hvert þú ferð í heim- inum; þú getur aðlagað þig að bókstaflega öllu. Þú ert kameljón í æðsta veldi og í bland við einlægni þína og hvat- vísi langar fólk að vingast við þig og geta kall- að þig vinkonu sína. Orka þín er mjög opin og stundum hefur þér fundist eins og einhver í kringum þig væri jafnvel að borða hana. Og það er alveg rétt, því með einlægni þinni gefurðu oft meira af þér en þú getur. Þess vegna býr líka í þér einstakur hellisbúi sem nærist mest og best inni á heimilinu og í náttúrunni. Þannig nærðu jafnvægi. Þú hefur í gegnum tíðina ýtt verkefnum úr vör án þess að hugsa, því yfirleitt gefur fólk sér of mikinn tíma til að hugsa og framkvæmir þar af leiðandi ekki neitt. Ef þú skoðar vel í kringum þig þá er svo margt sem þú hefur komið til leiðar sem hefur komið öðrum til hjálpar og þar sem þú ert á snarskemmtilegu árstölunni átta tókstu náttúrlega að þér merkilega stöðu þar sem tilgang- urinn er að sameina fólk og gera það sterkara. Það er miklu meira í pípunum á þessu ári svo þú átt erfitt með að velja og hafna. Skoðaðu vel hvað þú nennir ekki að gera og ef þú færð skrítna tilfinningu við til- hugsunina um verkefnið sem þér er boðið skaltu fara eftir innsæi þínu því í þér býr svolítil spákona. Allir eru með eitthvert næmi gagnvart orkunni í kringum sig en sumir hafa þróað það betur en aðrir og þú ert þar á meðal. Þar af leiðandi skaltu hlusta vel. Skrifaðu alltaf niður svörin sem þú færð til þín nema þú sért með hendur á stýri. Þau birt- ast þér nefni- lega eins og ljósbrot sem geta gleymst í stressi augnabliksins. Árstalan átta táknar yfirleitt breytingu á vinnu, heimili og lífs- högum. Þetta er sérstaklega góð tala fyrir þá sem eru fljótir að hugsa og þú ert ekki að tvínóna við hlutina ef þú ætlar þér eitt- hvað. Í þessu skemmtilega ferðalagi sem fram undan er á árinu muntu loksins sjá hvað þig virkilega lang- ar til að gera og hvernig þú ætlar að gera það. Þú átt eftir að raða í kringum þig nýju fólki sem gefur þér nýja sýn og hjálpar þér áfram að vera þessi friðarboðberi sem þér er ætlað að vera. Þú átt eftir að vinna vinnu sem tengist rétt- lætisbaráttu, sameina fólk og láta svo margt fallegt af þér leiða. Stjörnumerki Andreu er Vatnsberi. Ljósmynd/Cat Gundry-Beck ANDREA RÓBERTS FRAMKVÆMDASTJÓRI FKA 3.2. 1975 Skemmtileg för framundan ’ Þú ert kameljón íæðsta veldi og í blandvið einlægni þína oghvatvísi langar fólk að vingast við þig og geta kallað þig vinkonu sína. www.gilbert.is VELDU ÚR MEÐ SÁL Frisland Classic

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.