Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.11.2019, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.11.2019, Blaðsíða 11
Nautakjöt, lambakjöt, svínakjöt, grillkjöt, lúxus hamborgarar, bacon og pylsur í brönsinn Fossháls 27, 110 Reykjavík Opnunartími 7.30-16.30 Sími 557 8866 pantanir@kjotsmidjan.is Komdu við eða sérpantaðu taka efnið þeim tökum, líkt og hann gerði í Skugga-Baldri og Mánasteini. „Ég hef gaman af því sem höfundur að vinna knappt og koma upplýsingum fyrir í styttri texta en opna um leið vonandi fyrir einhverjar rásir í huga les- andans sem spinnur í framhaldinu jafnvel við eða leitar frekari upplýsinga. Raunar hafði ég fyrst og fremst tvennt í huga þegar ég skrifaði þessa bók. Í fyrsta lagi að ég ætlaði að skrifa mína fyrstu raunsæisskáldsögu, það er ekki fyrr en í lokin að opnast fyrir einhverja aðra heima, og í öðru lagi að ég ætlaði ekki inn á svið tilfinninganna. Um leið og maður gerir það þá verður til ákveðið jarðsprengjusvæði. Hafi maður samúð með persónunum verður alltaf erfiðara að halda utan um verkið.“ Ekki heyrt frá aðstandendum – Eins og við höfum komið inn á þá er nýnas- ismi viðkvæmt mál. Hefurðu fengið einhver við- brögð frá fólki sem tengist þeim sem stóðu að Þjóðernissinnaflokknum á sínum tíma? „Nei, ég hef ekki heyrt frá neinum sem telur sig þekkja sína ættingja eða vini í bókinni. Þeg- ar maður skrifar sögulega skáldsögu óttast maður alltaf að til séu lykilupplýsingar úti í bæ sem gætu gert bókina enn þá betri en í þessu tilviki hefur ekkert komið fram, nema ein saga um jafnvel enn þá betri tengingu íslenskra ný- nasista við umheiminn. Á hinn bóginn hef ég heyrt frá fólki sem komið hefur til mín upplýs- ingum um eitthvað sem gerðist eftir að sögu minni lýkur.“ Þess má geta að árið 1965 stóðu félagar úr þessum samtökum að því að brenna kross fyrir utan stúdentagarðana í Reykjavík en þar bjó á þeim tíma ungur maður frá Suður-Afríku sem fengið hafði hótanir og fleira. „Ungi maðurinn sagði síðar frá þessu og voru viðbrögðin á þann veg að hann væri að gera lítið úr gestrisni okk- ar Íslendinga. Ekki hafi verið ástæða til að gera mikið úr svona „strákapörum“, eins og það var kallað. Sem er athyglisvert í ljósi þess að menn sem eru komnir yfir tvítugt hljóta að teljast sjálfráðir gjörða sinna. Mér er ljóst að í huga sumra eru þetta sögur sem ekki má segja enda hvílir skiljanlega á þeim skömm.“ Annars þarf illt umtal alls ekki að standa öfgahreyfingum fyrir þrifum, nema síður sé. Þannig fagnar Gunnar Kampen öllum fréttum af hreyfingu sinni í fjölmiðlum og gildir þá einu hvort hann er hafður að háði og spotti, svo lengi sem það skilar fleiri liðsmönnum. Hann „mis- notar“ meira að segja blaðamann í þessum til- gangi. „Einmitt þess vegna er ekkert fengið með því að láta eins og þetta fólk sé ekki þarna og kalla það bara trúða og skrímsli. Við þurfum að komast að manneskjunni til þess að geta átt samtalið og mögulega beina fólki frekar að súr- realismanum en nasismanum.“ Hann brosir. Í bókinni berst Gunnari Kampen listi úr óþekktri átt með yfirskriftinni „Óvinir Íslands – 1. flokkur, júðar.“ Á tveimur vélrituðum blöð- um voru í stafrófsröð nöfn gyðinga sem búsettir voru á höfuðborgarsvæðinu, á Akureyri og öðr- um þéttbýlisstöðum, heimilisföng, starf og ald- ur. „Þetta er dæmigert fyrir hreyfingar af þessu tagi; þær fara sakleysislega af stað en svo er allt í einu orðinn til listi yfir óæskilegt fólk sem menn geta beitt sér gegn. Þannig er gjarn- an þróunin. Það er heldur ekki óalgengt að fólki sé stýrt í þessum hreyfingum; einhver „lækar“ við gyðingabrandara á Facebook og smám saman er hann kominn á slóðir sem hann ætlaði sér aldrei inn á. Á bak við Facebook-hópinn er svo ef til vill fólk sem er mjög gagnrýnið á slæm áhrif auðhringa á umhverfið. Og hver stýrir þessum auðhringum? Jú, gyðingar. Það er mjög sláandi að nýnasistar hafi komið saman undir fánum á Lækjartorgi í haust og að áróður sé farinn að bíða okkar undir rúðuþurrkum. Fyrir utan það sem er að gerast á samfélags- miðlum og við fréttum aldrei af.“ Talið berst í lokin að næstu skrefum á rithöf- undarferli Sjóns og hann kveðst vera með þrjú verkefni í takinu, tvær skáldsögur og eina bók á mörkum ritgerðar og ljóðlistar. Hvert þessara verka lítur fyrst dagsins ljós er óráðið. „Ég er að viða að mér efni sem tengjast viðkomandi sögum og skrifa kaflabrot hér og þar til að kanna hvernig þær vilja segja sig. Það kemur ef til vill ekki á óvart að ég er að vinna með sögu- legt efni og svo er ég að glíma við loftslagsvána. Ég var gestur Loftslagsrannsóknarstofnunar- innar í Potsdam fyrir tveimur árum og hafði þar aðgang að sumum af helstu vísindamönnum heims á því sviði. Hér á Íslandi eru hugmyndir rómantíkeranna ríkjandi; það er að við eigum að sjá fegurðina í náttúrunni en ekki óttast hana. Ég er meðal annars að skoða hvernig þessar hugmyndir fara saman.“ Svo mörg voru þau orð. Við Sjón klárum úr bollunum og hverfum saman út í mildan vet- urinn; verðum þó ekki lengi samferða, því fyrir utan næstu byggingu rekur skáldið upp stór augu. „Heyrðu, ég ætla að heilsa upp á konuna mína. Sé óvænt að hún er þarna inni.“ „Ein af ástæðunum fyrir því að ég sæki í sögulegt efni er sú að það gefur mér næði til að hugleiða efnið með yfirveguðum hætti – og von- andi lesandanum líka,“ segir Sjón. Morgunblaðið/Árni Sæberg ’ Einmitt þess vegna er ekkert fengiðmeð því að láta eins og þetta fólk séekki þarna og kalla það bara trúða ogskrímsli. Við þurfum að komast að manneskjunni til þess að geta átt sam- talið og mögulega beina fólki frekar að súrrealismanum en nasismanum. 24.11. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11 ÞÚ ÁTT SKILIÐ ÞAÐ BESTA www.alver.is S: 896 4040 LauraStar á Íslandi LauraStar Lift Létt og meðfærilegt Straujar – gufar – hreinsar

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.