Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.11.2019, Blaðsíða 29
um áform þegar kennarinn hans
tjáði honum að hann „spyrði of
margs og væri ekki nægilega trúað-
ur“. Eftir það reyndi hann fyrir sér
sem trommari en helgaði síðan líf
sitt ljósmyndun. Og sá aldrei eftir
því.
„Fullkomnunaráráttan í mér fékk
mig alltaf til að velta fyrir mér hvort
ég hefði ekki getað náð betri mynd,“
sagði hann í Observer-viðtalinu. „En
núna þegar ég horfi á myndirnar
sem ég tók af öllum þessum goð-
sögnum – eins og Mandela, Sir Win-
ston Churchill og Sinatra – streyma
minningarnar fram og ég hugsa með
mér: Jújú, mér tókst prýðilega upp.“
O’Neill var þrígiftur; fyrst gekk
hann að eiga leikkonuna Veru Day
og eignaðist með henni tvö börn; þá
kvæntist hann leikkonunni Faye
Dunaway og átti með henni eitt barn
og loks var hann giftur Laraine Ash-
ton, sem starfaði sem framkvæmda-
stjóri í módelbransanum.
O’Neill kynntist Dunaway þegar
hann tók fræga mynd af henni á
sundlaugarbakkanum morguninn
eftir að hún vann Óskarinn fyrir leik
sinn í Network eftir Sidney Lumet
árið 1977. Hermt er að O’Neill hafi
iðrast þess að hafa farið í eina sæng
með módeli sínu og að hann hafi hat-
að „sirkusinn“ í kringum hjónaband
þeirra sem stóð frá 1983 til 1987.
Hver er mórallinn í þeirri sögu?
Jú, giftust ekki viðfangsefni þínu!
Raquel Welch og Terry O’Neill við
mynd sem hann tók af leikkonunni á
sjöunda áratugnum.
Sir Winston Churchill, Nelson Man-
dela og Elísabetu Englandsdrottn-
ingu en sú síðastnefnda mun hafa
verið sú eina sem gerði hann tauga-
óstyrkan á ferlinum. „Ég lærði
nokkra kappreiðabrandara til að
brjóta ísinn og til allrar hamingju
skellti hún upp úr,“ tjáði hann The
Observer árið 2018.
Ætlaði að verða prestur
O’Neill fæddist árið 1938 og óx úr
grasi í Lundúnum. Upphaflega ætl-
aði hann að verða prestur en breytti
AFP
Rithöfundurinn Jackie Collins með myndir Terrys O’Neills sem tengjast henni
á sýningunni í Beverly Hills árið 2013. Fjöldi fólks gladdist þar með O’Neill.
24.11. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
BÓKSALA 13.-19. NÓVEMBER
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 Tregasteinn Arnaldur Indriðason
2 Um tímann og vatnið Andri Snær Magnason
3 Þögn Yrsa Sigurðardóttir
4 Tilfinningabyltingin Auður Jónsdóttir
5 Sölvasaga unglings Arnar Már Arngrímsson
6 Hnífur Jo Nesbø
7 Þinn eigin tölvuleikur Ævar Þór Benediktsson
8 Vængjaþytur vonarinnar Margrét Dagmar Ericsdóttir
9
Orri óstöðvandi
– hefnd glæponanna
Bjarni Fritzson
10 Leikskólalögin okkar
1 Þinn eigin tölvuleikur Ævar Þór Benediktsson
2
Orri óstöðvandi
– hefnd glæponanna
Bjarni Fritzson
3 Leikskólalögin okkar Ýmsir höfundar
4
Kjarval – málarinn sem
fór sínar eigin leiðir
Margrét Tryggvadóttir
5
Vigdís – bókin um fyrsta
konuforsetann
Rán Flygenring
6 Draumaþjófurinn Gunnar Helgason
7 Ævintýri Munda lunda Ásrún Magnúsdóttir
8 Gamlárskvöld með Láru Birgitta Haukdal
9 Leyndarmál Lindu Rachel Renne Russell
10 Hvuttasveinar Ásrún Magnúsdóttir
Allar bækur
Barnabækur
Einhvern tíma ætla ég að koma
því þannig fyrir að ég geti verið
í fríi í desember og látið draum-
inn rætast um að koma mér vel
fyrir á bókasafninu og skoða
bækur og fara svo heim með
nokkrar og gera mér kakó og
ristað brauð með osti, koma
mér fyrir við eldhúsborðið og
lesa, færa mig svo inn í stofu og
lesa meira
o.s.frv.
Jólabókaflóðið
er kraftmikið
þetta árið og
sérlega gaman
að sjá hvað er
mikið af bókum
fyrir ungmenni
núna. Ég hef svo
sem sagt það áður að það er
mest gróskan í þeim bók-
menntum sem eiga rætur í vís-
inda- eða framtíðar- og furðu-
sögum. Ég er búin að lesa bók
Ármanns Jakobs-
sonar um Bölvun
múmíunnar sem
er fín og ég las í
einum rykk og
Nornina eftir
Hildi Knúts, sem
er jafnvel enn
betri.
Af fullorðins-
bókum vil ég nefna Bréf til
mömmu eftir Mikael Torfason.
Ég verð að segja
að hvað sem
manni finnst um
að gera líf sitt
upp á þennan
hátt sem hann
hefur valið, þá er
bókin bara of vel
skrifuð til að
mæla ekki með
henni. Ástin er oftast það besta
í heimi, hún getur líka verið erf-
ið og krefjandi þegar of mikið er
af henni en þegar hana vantar …
Lesandinn finnur svo vel hversu
óvarið og auðsært barnið er. Til
hamingju með að þú skulir sjálf-
ur bera gæfu til að sýna þessu
barni ást þína, Mikael, það hlýt-
ur að vera mikilvægast.
Ég er aðeins búin að glugga í
ljóðabækur og lítið þó en hún
Harpa Rún, sem er með mér í
Bókabæjunum austanfjalls og ég
held með annan fótinn í allri
menningar-
starfsemi á
Suðurlandi, hún
var að gefa út
ljóðabók og fékk
auðvitað fyrstu
verðlaun strax!
Bókin hennar
heitir Edda sem
er svo viðeig-
andi fyrir Hörpu sem stendur
styrkum fótum í
fortíð og nútíð,
bæ og borg,
bóndi og skáld.
Jarðtengd og full
af sköpunarkrafti
birtast ljóðin
hennar hér og
hólið er verð-
skuldað.
Ég ætla að ljúka pistlinum á
að nefna bókina Hringir í skógi
eftir Dalene Matthee sem er
orðin mín „Karþagó“-setning
þegar ég er spurð um bækur. Á
jákvæðum nótum þó en ekki
neikvæðum því þessa bók ættu
allir að lesa, hún er bara eitt-
hvað svo dásamleg!
HEIÐRÚN DÓRA ER AÐ LESA
Langar í frí í desember
Heiðrún Dóra
Eyvindardóttir
er forstöðu-
maður Bóka-
safns Árborgar.
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambíó.is
Frozen II sýnd frá kl. 11.20 til 22.00