Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.11.2019, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.11. 2019
08.00 Strumparnir
08.25 Blíða og Blær
08.45 Dagur Diðrik
09.10 Stóri og Litli
09.20 Mæja býfluga
09.30 Dóra og vinir
09.55 Latibær
10.20 Lukku láki
10.45 Ævintýri Tinna
11.10 Ninja-skjaldbökurnar
11.35 Friends
12.00 Nágrannar
12.20 Nágrannar
12.40 Nágrannar
13.00 Nágrannar
13.20 Nágrannar
13.45 The Great Christmas
Light Fight
14.30 Saudi Women’s Driving
School
15.45 Seinfeld
16.10 Masterchef USA
16.55 60 Minutes
17.43 Víglínan
18.28 Veður
18.30 Fréttir Stöðvar 2
18.55 Sportpakkinn
19.10 Hvar er best að búa?
19.45 The Great British Bake
Off
20.50 Grantchester 4
21.40 Prodigal Son
22.30 Shameless
23.25 Temple
00.10 StartUp
ÚTVARP OG SJÓNVARP
Sjónvarp Símans
RÚV
Rás 1 92,4 93,5
Omega
N4
Stöð 2
Hringbraut
18.00 Að norðan
18.30 Jarðgöng (e)
19.00 Eitt og annað
19.30 Þegar (e)
20.00 Að austan
20.30 Eitt og annað
21.00 Amma Dísa
21.30 Nágrannar á Norð-
urslóðum (e)
endurt. allan sólarhr.
16.00 Trúarlíf
17.00 Times Square Church
18.00 Tónlist
18.30 Ísrael í dag
20.00 Mannamál (e)
20.30 Suðurnesja-magasín
Víkurfrétta (e)
21.00 Undir yfirborðið (e)
21.30 Stóru málin (e
endurt. allan sólarhr.
16.00 Malcolm in the Middle
16.20 Everybody Loves Ray-
mond
16.45 The King of Queens
17.05 How I Met Your Mother
17.30 Happy Together
(2018)
17.55 The Kids Are Alright
18.20 Solsidan
18.45 Með Loga
19.45 Jólastjarnan 2019
20.20 Four Weddings and a
Funeral
21.10 Billions
22.10 The Handmaid’s Tale
23.05 Black Monday
23.35 Black Monday
06.55 Bæn og orð dagsins.
07.00 Fréttir.
07.03 Tríó.
08.00 Morgunfréttir.
08.05 Á tónsviðinu.
09.00 Fréttir.
09.03 Samtal.
10.00 Fréttir.
10.05 Veðurfregnir.
10.15 Bók vikunnar.
11.00 Guðsþjónusta í Árbæj-
arkirkju.
12.00 Hádegisútvarp.
12.20 Hádegisfréttir.
12.40 Veðurfregnir.
13.00 Sögur af landi.
14.00 Víðsjá.
15.00 Skyndibitinn.
16.00 Síðdegisfréttir.
16.05 Úr tónlistarlífinu: Skál-
holt I.
17.25 Orð af orði.
18.00 Kvöldfréttir.
18.10 Völuspá.
18.50 Veðurfregnir.
18.53 Dánarfregnir.
19.00 Óskastundin.
19.40 Orð um bækur.
20.35 Gestaboð.
21.30 Fólk og fræði.
22.00 Fréttir.
22.05 Veðurfregnir.
22.10 Á reki með KK.
23.10 Frjálsar hendur.
24.00 Fréttir.
00.05 Næturútvarp Rásar 1.
07.15 KrakkaRÚV
07.16 Begga og Fress
07.29 Lalli
07.36 Tulipop
07.39 Sara og Önd
07.46 Minnsti maður í heimi
07.47 Hæ Sámur
07.54 Söguhúsið
08.01 Letibjörn og læmingj-
arnir
08.08 Stuðboltarnir
08.19 Alvin og íkornarnir
08.30 Ronja ræningjadóttir
08.55 Disneystundin
08.56 Tímon & Púmba
09.18 Sígildar teiknimyndir
09.25 Sögur úr Andabæ –
Hver er Græjuöndin?
09.45 Krakkavikan
10.05 Njósnarar í náttúrunni
11.00 Silfrið
12.10 Lestarklefinn
13.05 Menningin – samantekt
13.35 John Grant og Sinfó
15.20 Líkamstjáning – Stefnu-
mót
16.05 Ég kallaði hann Morgan
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 KrakkaRÚV
18.01 Stundin okkar
18.25 Manndómsár Mikkos –
Fjórða þrautin – hjól-
reiðar
19.00 Fréttir
19.30 Veður
19.40 Íþróttir á sunnudegi
20.00 Landinn
20.30 Fyrir alla muni
21.05 Dagarnir sem blómin
blómstra
22.05 Elser
23.55 Agatha rannsakar málið
– Göngugarpar
14 til 16 Tónlistinn Topp40
Eini opinberi vinsældalisti Íslands er sendur út á
K100 alla sunnudaga. Siggi Gunnars telur niður 40
vinsælustu lög landsins.
16 til 19 Pétur Guðjóns
Góð tónlist og spjall á sunnudags síðdegi. Pétur fylgir
hlustendum heim úr fríinu á sunnudögum, nú eða
skemmtir þeim sem eru svo heppnir að geta verið
lengur í fríi.
Á þessum degi
árið 1991 kvaddi
gullbarkinn
Freddie Mercury
þennan heim,
aðeins 45 ára
gamall. Hann
fæddist á San-
sibar 5. sept-
ember 1946 og
hlaut skírn-
arnafnið Farrokh
Bulsara. Merc-
ury var söngvari hljómsveitarinnar Queen og hafði
óvenju vítt raddsvið sem náði yfir nánast þrjár og
hálfa áttund en venjulegur maður ræður við tæplega
tvær. Hann samdi mörg af frægustu lögum Queen,
meðal annars „Bohemian Rhapsody“ og „We are the
Champions“. Banamein hans var alnæmi en degi áður
en hann lést tilkynnti hann opinberlega að hann væri
haldinn sjúkdómnum.
Dánardagur Freddies
Við leituðum dyrum og dyngj-um að fullkomnum leikara tilað fara með hlutverk Rog-
ans, sem hefur mjög snúin karakter-
einkenni, og eftir margra mánaða yf-
irlegu þá völdum við James Dean,“
sagði Anton Ernst, annar leikstjóra
kvikmyndarinnar Finding Jack, sem
til stendur að gera vestur í Holly-
wood, í samtali við The Hollywood
Reporter á dögunum. Um er víst að
ræða lítið hlutverk en þó mikilvægt
fyrir framvindu myndarinnar.
Valið sætir tíðindum enda hefur
James Dean legið hreyfingarlaus í
gröf sinni í 64 ár og engin áform
haft, svo vitað sé, um að auka við fer-
ilskrána sem telur aðalhlutverk í
þremur kvikmyndum um miðjan
sjötta áratuginn, East of Eden, Re-
bel Without a Cause og Giant.
Ekki grafinn upp
Til að fyrirbyggja allan misskilning
þá hyggjast Ernst og félagi hans,
Tati Golykh, ekki grafa goðsögnina
upp og tefla henni fram í núverandi
ástandi. Þvert á móti þarf Dean ekk-
ert að hafa fyrir listsköpuninni að
þessu sinni en framlag hans til Find-
ing Jack verður sótt í gamlar mynd-
ir, kvikar og ókvikar, sem soðnar
verða saman fyrir atbeina nýjustu
tölvutækni, þannig að vart mun víst
á milli sjá á tjaldinu hverjir verða
tápmeiri, Dean eða meðleikarar
hans í myndinni.
Allt er þetta gert með samþykki
fjölskyldu Deans. „Það er okkur
mikill heiður að fjölskylda hans skuli
styðja við bakið á okkur og við mun-
um gera allt sem í okkar valdi stend-
ur til að tryggja að ekki falli skuggi á
arfleifð einnar skærustu kvikmynda-
stjörnu sögunnar. Fjölskyldan lítur
svo á að hér sé um fjórðu kvikmynd
hans að ræða; kvikmynd sem honum
auðnaðist ekki að gera. Við ætlum
ekki að valda aðdáendum hans von-
brigðum,“ bætti Ernst við í samtal-
inu við The Hollywood Reporter.
Gott og vel. Ugglaust verða ein-
hverjir aðdáendur James Dean glað-
ir að sjá hann „að nýju“ á hvíta tjald-
inu en er samt ekki eitthvað bogið
við þetta?
Hvað um alla leikara á svipuðu
reki í Hollywood sem sannarlega
draga ennþá andann? Hvers eiga
þeir að gjalda? Þið munið að menn
lágu mánuðum saman yfir þessu áð-
ur en þeir komust að niðurstöðu. Og
enginn annar var þess umkominn að
taka hlutverkið að sér.
Gerist í Víetnamstríðinu
Það er heldur ekki eins og myndin
gerist á sjötta áratugnum, þar sem
hið íkoníska yfirbragð Deans kæmi
án efa að notum, hún á sér stað í Ví-
etnamstríðinu. James Dean fór yfir
móðuna miklu áratug áður en fyrsti
bandaríski hermaðurinn drap niður
fæti þar um slóðir.
Þá þykir sumum helst til mikill
markaðsfnykur af gjörningnum.
Hver hefur svo sem heyrt um Anton
Ernst og Tati Golykh? Eru þeir ekki
bara að þessu til að freista þess að
vekja athygli á kvikmynd sem ann-
ars myndi sigla milli skers og báru?
Sennilega er þó of snemmt að svara
því af fullri vissu. Mögulega verður
Finding Jack meistaraverk. Mögu-
lega ekki.
Brando í röðinni?
Ýmsir hafa mótmælt leikaravalinu,
þeirra á meðal leikarnir Chris Ev-
ans, Elijah Wood, og Bette Midler,
ekki síst á þeirri forsendu að nógu
margir séu um hituna í Hollywood
enda þótt framliðnar goðsagnir bæt-
ist ekki í hópinn. Sérstaklega gæti
það gert ungum og upprennandi
listamönnum erfitt um vik. Hvernig
ætli það yrði til dæmis fyrir Jóa eða
Jóu á bolnum að mæta í prufu og
fyrir í röðinni væru Humphrey Bog-
art, Marilyn Monroe, Marlon
Brando og Ingrid Bergman?
Svo geta þetta auðvitað verið vond
tíðindi fyrir eldri leikara sem enn
eru á lífi. Leikstjórar gætu hæglega
kosið að grípa til tölvutækninnar og
nota yngri útgáfu af þeim. Þannig
gætu menn mögulega haft vinnu af
sjálfum sér. Þið skiljið!
Lengi hefur legið fyrir að vél-
menni komi til með að ryðja fólki úr
vegi í hinum ýmsu starfsgreinum.
Og sú þróun er raunar löngu hafin.
En átti einhver von á því að þessi
„vélmenni“ yrðu í rauðum leð-
urjökkum með brilljantín í hárinu –
og kæmu beinustu leið úr gröfinni?
James Dean í Rebel Witho-
ut a Cause. Hann var sprell-
lifandi meðan sú mynd var
tekin upp en látinn þegar
hún var frumsýnd.
Ljósmynd/Michael Ochs Archives
LÖNGU LÁTINN LEIKARI AFTUR Á HVÍTA TJALDIÐ
Alltaf jafn
Deanamískur?
Verslun Tunguhálsi 10 - Sími 415 4000 – www.kemi.is - kemi@kemi.is
INTERFLON
Matvælavottaðar efnavörur
Nýjar umbúðir,
sömu gæða efnin