Fréttablaðið - 20.02.2020, Page 5

Fréttablaðið - 20.02.2020, Page 5
HÖRKUTÓL SEM ENDIST GLÆSILEGT ÚTLIT, NÝJAR ÚTFÆRSLUR OG FJÖLMARGAR TÆKNINÝJUNGAR Í BOÐI. EIGUM TIL CREW CAB BIG HORN, LARAMIE, SPORT OG LIMITED ÚTFÆRSLUR TIL AFGREIÐSLU STRAX. EINNIG MEGA CAB Í LARAMIE OG LIMITED ÚTFÆRSLUM . BJÓÐUM UPP Á 35”, 37” OG 40” BREYTINGAR RAM 3500 VERÐ FRÁ: 6.967.745 KR. ÁN VSK. RAM 3500 VERÐ FRÁ: 8.640.000 KR. M/VSK. ramisland.is UMBOÐSAÐILI RAM TRUCKS Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR S. 534 4433 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 RAM 3500 MEGA CAB 1 Austur stræti ó hentugt og ó hag kvæmt hús næði, Austur­ höfn betri kostur. Byggingarkostn- aður nýrra höfuðstöðva bankans er 11,8 milljarðar króna. Banka- sýsla ríkisins segir mikilvægt að draga úr fjárhagslegri áhættu. 2 Ís lenska kokka lands­liðið hafnaði í þriðja sæti á Ólympíu leikunum. Íslenska kokkalandsliðið hefur aldrei náð ofar en í níunda sæti. 3 Drottningin setur Harry og Meg han stólinn fyrir dyrnar. Harry og Meghan mega ekki að nota vörumerkið sitt eftir að þau yfirgáfu konungsfjölskylduna. Allar nýjustu fréttir og blað dagsins eru fáanleg á www.frettabladid.is FJÖLMIÐLAR Fjölmiðlar hafa ekki skotleyfi á saklaust fólk sem svara þarf til saka, þrátt fyrir megin- reglu um að dómþing skuli háð í heyranda hljóði, að mati Afstöðu, félags fanga. „Sú hegðun að hundelta sak- borninga á leið sinni í og úr þing- höldum í dómhúsum landsins til þess að ná af þeim ljósmyndum og myndböndum er ekkert annað en gróft brot á friðhelgi einkalífs,“ segir Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu. Þetta segir Guðmundur í umsögn um frumvarp alþingismannsins Þorsteins Sæmundssonar. Því er ætlað að takmarka heimildir fjöl- miðla til að taka upp myndir og hljóð í dómhúsum. Í umsögninni segir að mynd- birtingarnar séu til þess fallnar að stimpla viðkomandi seka um aldur og ævi, þrátt fyrir að hafa ekki hlotið dóm. Myndir valdi fjöl- skyldum viðkomandi ekki síður skaða. „Einelti í skólum, starfs- missir, útskúfun úr vinahópum og áfallastreituröskun eru bara örfá brot þeirrar birtingarmyndar.“ Frumvarpinu fylgi engin áhrif á getu fjölmiðla til að veita dóms- kerfinu aðhald. Heimild til frétta- f lutnings sé ekki takmörkuð. Í umsögn Félags fréttamanna segir hins vegar að takmörkun á möguleikum til að mynda og ná tali af sakborningum skerði ekki einungis aðgang almennings að upplýsingum heldur einnig mögu- leika sakbornings á að njóta rétt- látrar málsmeðferðar. Fjölmiðlanefnd telur frumvarpið fela í sér fyrirfram skerðingu á tján- ingarfrelsi fjölmiðla en í umsögn stofnunarinnar segir að mikilvægt sé að fjölmiðlar geti áfram rækt þá skyldu sína að miðla fréttum og halda almenningi upplýstum um störf dómstóla, með almannahags- muni að leiðarljósi. – aá Fjölmiðlar hafi ekki skotleyfi á saklaust fólk í dómsal Einelti í skólum, starfsmissir, útskúf- un úr vinahópum og áfalla- streituröskun eru bara örfá brot þeirrar birtingar- myndar. Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu Í Skagafirði. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM ORKUMÁL RARIK hefur fengið leyfi Kirkjuráðs Þjóðkirkjunnar til að leggja háspennustreng yfir prests- setursjörðina Glaumbæ í Skagafirði. Í umfjöllun Kirkjuráðs segir að ábúandinn á Glaumbæ hafi fengið málið til umsagnar og samþykkt málið fyrir sitt leyti. „Kirkjuráð samþykkti beiðni RARIK, í ljósi fyrirliggjandi gagna,“ segir í fund- argerð Kirkjuráðs. Um er að ræða hluta af svokall- aðri Blöndulínu 3 sem leggja á frá Blöndustöð til Akureyrar og ætlað er að styrkja flutningskerfi raforku á Norðurlandi. Sumir landeigendur á fyrirhugaðri línuleið hafa and- mælt lagningu línunnar um lönd sín. – gar Kirkjan leyfir háspennulínu SAMFÉLAG „Ég hef fengið ótrúlega mikið af ábendingum og mikill fjöldi nemenda hefur leitað til mín,“ segir Eyrún Baldursdóttir bekkjar- fulltrúi í námsnefnd hjúkrunar- fræðideildar Háskóla Íslands og sviðsráðsforseti, en mikil óánægja ríkir meðal nemenda sem stunda verknám í hjúkrunarfræði, vegna strangra krafna um viðveru. „Við erum með 95 prósenta mæt- ingarskyldu sem þýðir að í þriggja vikna verknámstörn eru það sex klukkustundir sem við getum verið frá,“ segir Eyrún. Nemendur á þriðja ári í hjúkrunarfræði eru í verknámi í sextán vikur á þessari önn og segir Eyrún lítið svigrúm, verði nemend- ur veikir eða komist ekki til náms af einhverjum ástæðum. „Menningin er sú að ef eitthvað kemur upp á þá átt þú að vinna það upp, sem er auðvitað miserfitt fyrir fólk eftir aðstæðum; hvort það eigi börn og annað,“ segir Eyrún. Verði barn nemanda veikt í tvo daga beri nemandanum að vinna veikindin upp með tveimur vöktum. „Það má svo lítið út af bregða til að fólk sé komið í mínus við námið. Hlutir eins og að börn veikist eða álíka hlutir sem eru óviðráðanlegir geta sett allt á hliðina,“ segir Eyrún. Kröfurnar bitni mest á þeim sem eigi börn. Það hafi gerst að mæður fái ekki svigrúm til að mæta í for- eldraviðtöl barna sinna. „Til mín hafa leitað yfir tuttugu stelpur og margar þeirra eru búnar með öll sín úrræði, svo margar eru þreyttar og stressaðar,“ segir Eyrún. Þá nefnir Eyrún mikla umræðu um brottfall og kulnun í stétt hjúkr- unarfræðinga. Fyrirkomulag náms- ins sé ekki til að draga fleiri að eða auka starfsánægju. Sem sviðsráðs- forseti er Eyrún fulltrúi nemenda í stjórn heilbrigðisvísindasviðs. Í haust lagði hún þar til að mætingar- skylda yrði lækkuð í 85 prósent. „Sú tillaga var felld en ég ætla að prufa að leggja fyrir tillögu um 90 prósent næst, því ég held að það gæti strax orðið mikill munur. Þá erum við allavega komin með eina vakt á þriggja vikna tímabili. Svo þyrfti jafnvel að koma klausa um veikindi barna og að það yrðu úrbætur fyrir þá nemendur sem mest þyrftu á að halda. Endanlegt markmið er þó einnig að verknám verði metið til launa,“ segir Eyrún. Herdís Sveinsdóttir, deildarfor- seti hjúkrunarfræðideildarinnar, segir reglur um verknám í deildinni fylgja tilskipan Evrópusambands- ins og að mikilvægt sé að halda þeim reglum sem settar eru til að halda gæðum námsins. Hjúkrunar- fræðideild HÍ raðast í sæti 100 -150 á lista um gæði náms í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum á heimsvísu. „Almennt séð er það reynsla mín að þeir hjúkrunarfræðingar sem koma að klínískri kennslu nem- enda séu almennilegt fólk sem reynir að koma til móts við nem- endur og aðlagar námstíma þeirra, ef eitthvað kemur upp á. Enda er það stefna deildarinnar að koma til móts við nemendur og reyna að taka tillit til sjónarmiða þeirra innan þeirra marka sem eðlilegt getur talist,“ segir Herdís. Hún segir mikilvægt að nemend- ur hljóti þá þjálfun sem nauðsynleg sé hjúkrunarfræðingum og uppfylli þar með mætingarskyldu í verk- nám. „Grundvallarforsenda sem gengið er út frá er að nemandi fái það klíníska nám sem honum ber og það er alger lágmarkstími sem hver nemandi er í klínísku námi tengdu hverju sérsviði hjúkrunar,“ segir hún. birnadrofn@frettabladid.is Hjúkrunarfræðinemar ósáttir við stífar kröfur í verknáminu Nemendur í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands segja kröfur um viðveru svo strangar að þeir megi vart verða veikir og geti jafnvel ekki mætt í foreldraviðtöl barna sinna. Nemendur upplifi mikið stress og séu þreyttir. Deildarforseti segir nemendur fá algeran lágmarkstíma í því klíníska námi sem þeim beri að fá. Reglur um verknám í hjúkrunafræði fylgja ESB­reglum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Til mín hafa leitað yfir tuttugu stelpur og margar þeirra eru búnar með öll sín úrræði. Eyrún Baldursdóttir, bekkjarfulltrúi í námsnefnd hjúkrunarfræði- deildar HÍ. 2 0 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.