Fréttablaðið - 20.02.2020, Side 21
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jóhanna Helga Viðarsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103,
Hákon Helgi Bjarnason og Auður Ósk Hálfdánardóttir eru t veir af þremur verslun
arstjórum í Galleri 17. Þau segja að
fermingartískan hafi aldrei verið
fjölbreyttari, jafnt fyrir drengi sem
stúlkur. „Flestir strákar velja mjög
flottar samsetningar, til dæmis
staka jakka við sparibuxur eða
jafnvel gallabuxur. Svo eru hin
klassísku jakkaföt alltaf vinsæl.
Mjög margir strákar vilja striga
skó við sparidressið því þá er hægt
að nota áfram eftir ferminguna
og hafa þeir því gott notagildi,“
segir Hákon og Auður bætir
við að blúndu kjólar eða kjólar
með blómamynstri séu það sem
stelpurnar vilja núna.
Órjúfanlegur partur af
fermingarundirbúningi
„Stelpurnar vilja líka blazerjakka
eða skyrtur við galla eða dragtar
buxur. Það er mjög mikilvægt að
velja réttu skóna við en það er
skemmtilegt hvernig þær velja fín
lega kjóla og grófa skó. Skórnir frá
dr. Martens eru eftirsóttir og einn
ig fallegir og vandaðir strigaskór.
Svo eru fínir ljósir hælaskór alltaf
vinsælir og passa vel með blazer
og gallabuxum en þannig er hægt
að dressa sig upp,“ útskýrir Auður
og rifjar upp hversu Galleri 17 sé
órjúfanlegur partur af ferming
unni og það í meira en þrjátíu
ár. „Mér skilst á Svövu Johansen,
eiganda verslunarinnar, að hún
hafi byrjað að láta sérhanna ferm
ingarföt árið 1985. Svava er algjör
frumkvöðull í fermingar tískunni
og mér finnst mjög gefandi þegar
ég finn að krökkunum þykir það
skemmtileg upplifun að koma í
búðina og finna réttu fötin fyrir
þennan stóra dag,“ segir Auður.
Hákon segir að það sé mis
jafnt hversu vel krakkarnir séu
undirbúnir þegar þeir koma í
verslunina. „Sum eru búin að liggja
yfir Instagramsíðu Galleri 17 og
vita nákvæmlega hvað þau vilja.
Þau sem eru ekki eins ákveðin fá
persónulega þjónustu hjá okkur
starfsfólkinu og við leiðbeinum
þeim í leitinni og sýnum þeim
fatnað sem gæti hentað. Sumir eru
að kaupa sín fyrstu jakkaföt og oft
þarf að leiðbeina varðandi stærð
og snið,“ segir hann.
Skemmtilegir fylgihlutir
Auður segir að starfsfólk Galleri
17 leggi mikla áherslu á að taka
vel á móti fermingarbörnum og
fjölskyldum þeirra. „Þetta er stór
stund í lífi barnanna og við viljum
aðstoða eins vel og við getum,“
segir hún.
Þau eru bæði sammála um að
tískan breytist ár frá ári. „Við erum
alltaf í takt við það sem er að gerast
í tískuheiminum og fjölbreytnin
er mikil. Má þar nefna að kjólar
með blómaprenti verða mjög vin
sælir í vor og við sjáum þá núna í
fermingartískunni,“ segir Auður.
Hákon segir að blá jakkaföt
séu sérstaklega vinsæl um þessar
mundir og grá fylgja þar fast á
eftir. Stelpurnar velji hins vegar
ljósa liti, hvítt, beis og pastelliti. Í
Galleri 17 er fjölbreytt úrval af hár
skrauti sem er mikið í tísku núna.
Starfsfólkið leiðbeinir stelpunum
með að velja rétta skrautið við
kjólinn. „Stelpurnar taka hárið
upp til hálfs og eru með fallegar
spennur eða spangir. Það er svo
ótrúlega gaman að setja punktinn
yfir iið og klæða flíkurnar upp
með sparilegum fylgihlutum.“
Allar stærðir
Það allra besta við fermingar
fötin í Galleri 17 eru stærðirnar
því þær henta öllum. Jakkafötin
fást í stærðum 3444 og skyrtur í
númerunum 3139. „Foreldrarnir
Vinsælt er að sitja fyrir í fermingarmyndatöku Galleri 17. Nokkur hundruð ábendingar bárust við val á krökkum.
Á þessum 35 árum hafa mjög mörg þekkt andlit í þjóðfélaginu setið fyrir á fermingarmyndatöku Galleri 17.
Auður Hálfdánardóttir og Hákon Helgi Bjarnason eru verslunarstjórar í
Galleri 17. Þau taka að sjálfsögðu vel á móti fermingarbörnum og fjöl-
skyldum þeirra ásamt öðru starfsfólki verslunarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Kjólar með blómamynstri verða vinsælir í sumar
og þeir eru þegar komnir í fermingarlínuna.Léttur og fallegur kjóll við grófa dr. Martens skó.
Sportlegur fermingardrengur.
Gallabuxur, gallajakki og derhúfa.
Teinótt jakkaföt eru í hátísku, jafnt
fyrir fullorðna sem fermingardrengi.
Fylgihlutir skipta miklu máli og er
fjölbreytt úrval í Galleri 17, hvort
sem það er hárskraut eða belti.
Framhald af forsíðu ➛
geta líka klætt sig upp því allar
fullorðinsstærðir eru í boði.
Vörumerkin eru fjölbreytt en við
bjóðum yfir 30 vinsæl tískumerki.
Kjólar eru fáanlegir í XXS og upp
úr. Tískumerkið Moss Reykjavík,
sem fæst í Galleri 17, býður sömu
leiðis upp á sérstaka fermingarlínu
sem samanstendur af 23 flíkum
og stærðirnar geta því verið alla
vega. „Við finnum alltaf eitthvað
flott sem hentar,“ segir Hákon.
„Svo er einfalt að þrengja, víkka
eða stytta skálmar,“ bætir hann
við.
Krakkar sem þora
Vinsæl vörumerki hjá foreldrum
fermingarbarna eru Matinique
jakkaföt, LibertineLibertine
skyrtur og Samsøe & Samsøe
kjólar. „Margir nýta sér NTC
vildarklúbbinn og fá þá afslátt
þegar fjölskyldan klæðir sig upp.
Það getur borgað sig að vera
í klúbbnum,“ segir Hákon og
upplýsir að þau fái oft póst frá
foreldrum sem eru of boðslega
ánægðir með þjónustuna við ferm
ingarbarnið. „Við leggjum mikla
áherslu á að fermingarbarnið fari
ánægt frá okkur og það er ótrúlega
skemmtilegt þegar þau finna réttu
fötin,“ segir hann. Bæði Auður og
Hákon segja að úrvalið hafi aldrei
verið jafn fjölbreytt og núna og
krakkarnir þora miklu frekar að
taka áhættu en áður þekktist. „Þau
eru mörg með mjög ákveðinn og
persónulegan stíl,“ segir Auður.
Galleri 17 er í Kringlunni og Smára-
lind. Einnig er hægt að skoða vörur
í netversluninni ntc.is
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 0 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R