Fréttablaðið - 20.02.2020, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 20.02.2020, Blaðsíða 27
Hekla var staðráðin í því að klæðast hvítu frá toppi til táar og fékk hún sínu framgengt, þrátt fyrir andmæli móður. Hekla sér ekki eftir neinu og segir að þó að hún hafi tekið slæmar ákvarð- anir hafi þær engu að síður verið hennar ákvarðanir. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR Hjördís Erna Þorgeirsdóttir hjordiserna@frettabladid.is Hekla segist hafa farið inn í fermingarferlið trúuð en að það hafi þó verið upp- hafið að trúarlegum endinum. „Ég fermdist að kristilegum sið, enda var ég sannkristin stelpa þegar ferlið hófst. Fermingarfræðslan spilaði stórt hlutverk í því að vinda ofan af barnatrúnni en þar upp- lifði ég í fyrsta sinn efasemdir um sannleiksgildi þess sem mér hafði verið kennt um kristna trú og hvernig hún varð til.“ Upplifði fyrst efasemdir í fermingarfræðslu Hún náði þó ekki að bregðast við í tæka tíð. „Efasemdirnar uxu eins og illgresi og undir lokin var ég orðin alveg afhuga skipulögðum trúarbrögðum en þá var orðið of seint að hætta við. Þar að auki var ég mjög æst í að vera tekin í fullorðinna manna tölu og upplifa heilan dag sem snerist bara um mig.“ Hekla, sem vildi fyrst og fremst vera klædd hvítu frá toppi til táar, segir móður sín hafa reynt að hafa áhrif á klæðaburð sinn. „Mamma mín reyndi eins og hún gat að stýra mér í átt að einhverju sem myndi standast tímans tönn en ég vildi ekki heyra það. Ég var með mjög ákveðnar hugmyndir, vildi vera í öllu hvítu og helst líta út eins og Hollywood-stjarna á brúðkaupsdaginn sinn. Ég endaði með að finna mér hvítan kjól með spagettíhlýrum í Cosmo og ein- hvers konar hvítan netjakka. Þá var ég líka í einhverjum ógeðs- legustu háhæluðu hvítu sandölum hönnunarsögunnar og með hvít gerviblóm í hárinu.“ Svipaða sögu var að segja af förðuninni. „Mamma reyndi líka Áþreifanleg minning um eitt versta lúkkið Hekla Elísabet Aðalsteinsdóttir, handritshöfundur, sérfræðingur í samfélagsmiðlum og meðlimur uppi- standshópsins Fyndnustu mínar, fermdist árið 2003. að tala mig niður af því að bera á mig gommu af Kanebo-brúnku- kremi, setja eyeliner í vatnslínuna, ofplokka á mér augabrúnirnar en ég lét ekki segjast. Afraksturinn er áþreifanleg minning um eitthvert versta lúkk sem ég hef skartað á ævinni.“ Ógeðslega fyndið eftir á Þrátt fyrir raunirnar segist Hekla engu vilja breyta. „Eiginlega ekki, sko. Ég held mjög upp á þessar myndir og minningar. Þarna tók ég allar ákvarðanir um það hvernig ég vildi líta út og þó að það hafi verið slæmar ákvarðanir þá voru þær samt mínar. Svo er þetta líka bara ógeðslega fyndið eftir á.“ Hekla ráðleggur fermingarbörn- um samtímans að vera óhrædd við að fylgja eigin hjarta við val á fatnaði. „Ekki vera að eltast við klassíkina. Gríptu bara tíðarand- ann og vertu nákvæmlega eins og þú vilt vera. Það versta sem getur gerst er að þú hlæir að þessu seinna – og það er gaman að hlæja.“ Er það svo? „Já, svo sannarlega. Ég mæli með því að öll sem geta tekið undir þá fullyrðingu skelli sér á sýninguna Bestu mínar eftir uppistandshópinn Fyndnustu mínar á Kexi, gamla Nýló, á laugar- daginn.“ Það versta sem getur gerst er að þú hlæir að þessu seinna – og það er gaman að hlæja. Holtasmára 1 201 Kópavogur (Hjartaverndarhúsið) Sími 571 5464 NETVERSLUN WWW.TISKUHUS.IS ÚTSÖLULOK ! VERSLUNIN FLYTUR Á NETIÐ OG SAMEINAST BELLADONNA Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook Nanni jakkar kr. 8.900.- Str. S-XXL FRÉTTIR, FÓLK & MENNING á Hringbraut og hringbraut.is Fylgstu með! FRÉTTIR, FÓLK & MENNING á Hringbraut og hringbraut.is Fylgstu með! 8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 0 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.