Fréttablaðið - 20.02.2020, Qupperneq 43
Aldís Pálsdóttir
hefur meðal
annars unnið
fyrir Nike,
Bio Effect og
Lancôme auk
þess að hafa
stjórnað ljós-
myndadeild
tímaritaútgáf-
unnar Birtíngs.
Þriggja kvenna sýn
Ljósmyndararnir Aldís, Laufey og Heiða deildu reynslu sinni og
sýn á reynsluheim og ólíkar aðferðir kvenna í atvinnuljósmyndun.
Hvers konar sögur fanga konur í ljós-myndun? Þrír ólíkir atvinnuljósmynd-arar, allt konur, vel að merkja, svöruðu
þessari spurningu á myndrænni
samkomu hjá Origo í Borgartúni
á þriðjudagskvöld. Þær Aldís Páls-
dóttir, Heiða Helgadóttir og Laufey
Ósk Magnúsdóttir sögðu frá því
hvernig þær nálgast og fanga við-
fangsefni sín, en þær eru þekktar
fyrir að vinna með ólík myndefni.
Alþjóðlegar tölur sýna að konur
eru miklu færri en karlmenn í stétt
atvinnuljósmyndara og margt bend-
ir til þess að þær fangi viðfangsefni
sín með öðrum hætti en karlmenn.
Þær hafi til dæmis miklu ríkari til-
hneigingu til að nota myndavélar
sínar, linsur og sjónarhorn til þess að
segja sögur og miðla tilfinningum.
Aldís hefur meðal annars unnið
fyrir Nike, Bio Effect og Lancôme
auk þess að hafa stjórnað ljósmynda-
deild tímaritaútgáfunnar Birtíngs.
Heiða er margverðlaun aður, sjálf-
stætt starfandi ljósmyndari og
fréttaljósmyndari sem hefur ekki
síður vakið athygli með listrænum
ljósmyndum sínum en þeim frétta-
tengdu.
Laufey Ósk Magnúsdóttir rekur
sína eigin stofu þar sem hún er oftar
en ekki með fókusinn á tengslum og
kærleikanum í fjölskyldum, auk þess
sem hún sérhæfir sig í fermingarljós-
myndun. steingerdur@frettabladid.is Áhugasamir gestir hlustuðu af athygli á atvinnukonurnar þrjár.
Dröfn Guðmundsdóttir, mannauðsstjóri Origo.
Allra augu voru aldrei þessu vant á ljósmyndurunum. Heiða Helgadóttir hefur meðal annars starfað á Fréttablaðinu, Stundinni og Birtíngi.
2 0 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R30 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ