Fréttablaðið - 24.02.2020, Síða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —4 6 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R M Á N U D A G U R 2 4 . F E B R Ú A R 2 0 2 0
Snjalltækjum fylgir ekki tilkynningaskylda. Prófaðu að slökkva
á áreitinu og finndu frelsið sem fylgir lífi án rauðu deplanna.
Hugsaðu um tilfinningar en ekki tilkynningar.
Vertu á staðnum.
Tilkynningafrí
UMHVERFISMÁL Fyrsta tréð í skírnar-
skógi þjóðkirkjunnar verður gróður-
sett í haust. Er það ekki einn skógur,
heldur margir sem kirkjan hyggst
koma upp víðs vegar um landið.
Verður einu tré plantað fyrir hvert
barn sem skírt er í kirkjunni.
Agnes Sigurðardóttir, biskup
Íslands, tilkynnti um áramót að
þjóðkirkjan hygðist koma skírnar-
skógi á fót. Nú er kirkjuráð að útfæra
hugmyndina og verður lokaniður-
staðan kynnt á vormánuðum eða í
sumar. Tengist verkefnið hinni svo-
kölluðu Grænu kirkju, umhverfis-
vitundarvinnu kirkjunnar.
Pétur Markan, samskiptastjóri
þjóðkirkjunnar, segir að miðað við
núverandi fjölda skírna séu þetta
á bilinu þrjú til fjögur þúsund tré á
ári. Markmiðið með verkefninu sé að
tengja skírnina við umhverfisvernd
og umhverfisvitund, að með hverju
skírðu barni vaxi tré. Ákall sé eftir
aðgerðum í umhverfismálum, sem
séu jafnframt stærsta áskorun þess-
arar og komandi kynslóða.
„Einn af kostum kirkjunnar er að
við eigum land víðs vegar um landið.
Hugmyndin er að tengja ræktar-
landið við hverja sókn til að hver og
einn geti heimsótt skóginn á innan
við klukkutíma,“ segir Pétur. Verður
hvert tré merkt einstaklingnum sem
skírður er. „Við erum að skoða tölu-
vert mörg svæði sem eru vel til þess
fallin að rækta skóglendi á. Á tals
vert mörgum svæðum sem kirkjan
á er skógrækt fyrir sem hægt er að
bæta við.“ Í skóginum verður helst
plantað annaðhvort birki eða furu
en jafnframt tekið mið af stað-
háttum og hvaða tegund henti best
á hverjum stað. „Við förum þó ekki
af stað með þetta nema í samráði
við skógræktarfélög og aðra við-
komandi fagaðila,“ segir Pétur.
kristinnhaukur@frettabladid.is
Planta þúsundum trjáa árlega
Í haust verður fyrsta tréð í skírnarskógum þjóðkirkjunnar gróðursett. Verða trén merkt hverju skírnar-
barni og fjölskyldur geta fylgst með vextinum. Verið er að skoða hentug kirkjulönd undir ræktunina.
Einn af kostum
kirkjunnar er að
við eigum lönd víðs vegar
um landið
Pétur Markan,
samskiptastjóri
Þjóðkirkjunnar
„Bolla bolla bolla, þarna kemur krakkastrolla,“ sungu Ómar Ragnarsson og Geirfuglarnir um árið. Bolludagurinn er í dag en nóg hefur verið að gera í Bakarameistaranum og öðrum bak-
aríum landsins þar sem hátíðin hefur bólgnað út á undanförnum árum. Rjómabollurnar verða sífellt frumlegri og kræsilegri en minna fer fyrir bolluvöndunum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
STJÓRNMÁL Vigdís Hauksdóttir og
Helga Vala Helgadóttir eru báðar
orðaðar við forystuhlutverk í flokk-
um sínum en landsfundir eru í öllum
stærstu stjórnmálaflokkum lands-
ins á árinu.
Íslenskt stjórnmálafólk er að
koma sér í gír fyrir kosningar á næsta
ári og margir ræða framtíð forystu-
manna flokkanna,
Sósíalistar eru byrjaðir að undir-
búa sína fyrstu baráttu fyrir alþing-
iskosningar. – aá / sjá síðu 4
Sósíalistar eru
komnir í gírinn
Gunnar Smári
Egilsson,
formaður
Sósíalistaflokks
Íslands.