Fréttablaðið - 24.02.2020, Side 4

Fréttablaðið - 24.02.2020, Side 4
HÖRKUTÓL SEM ENDIST GLÆSILEGT ÚTLIT, NÝJAR ÚTFÆRSLUR OG FJÖLMARGAR TÆKNINÝJUNGAR Í BOÐI. EIGUM TIL CREW CAB BIG HORN, LARAMIE, SPORT OG LIMITED ÚTFÆRSLUR TIL AFGREIÐSLU STRAX. EINNIG MEGA CAB Í LARAMIE OG LIMITED ÚTFÆRSLUM . BJÓÐUM UPP Á 35”, 37” OG 40” BREYTINGAR RAM 3500 VERÐ FRÁ: 6.967.745 KR. ÁN VSK. RAM 3500 VERÐ FRÁ: 8.640.000 KR. M/VSK. ramisland.is UMBOÐSAÐILI RAM TRUCKS Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR S. 534 4433 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 RAM 3500 MEGA CAB 1 Móðir Gretu Thun berg opnar sig um erfiða æsku hennar. Greta léttist um tíu kíló á aðeins tveimur mánuðum. 2 Hætt við ófærð í kvöld. Veturinn heldur áfram að vera landanum erfiður. 3 Sjáðu ó trú legan öldu gang við Þór. Í hama ganginum fékk skipið á sig brot sem náði upp að létt báti skipsins, sem er í tölu­ verðri hæð yfir sjávar máli. 4 Tala sýktra á Ítalíu komin í 132. Ítalía er fyrsta landið í Evrópu þar sem ekki er hægt að rekja dauðsfall af völdum Covid­19 beint til Kína. Allar nýjustu fréttir og blað dagsins eru fáanleg á www.frettabladid.is Veðurstofan varar við ófærð í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK VEDUR Vetraraðstæður eru í öllum landshlutum og Veðurstofan gerði ráð fyrir mikilli ofankomu á suð- vesturhluta landsins í gærkvöldi og nótt. Snjóa mun drjúgt á stórum svæðum og ganga á með éljum, þar með talið á höfuðborgarsvæðinu. Blástur og skafrenningur verður á Hellisheiði. Er hætt við því að ófært verði á götum framan af degi. Snjókoman átti að minnka í nótt á höfuðborgarsvæðinu en halda áfram inn til landsins, á Suðurlandi, Vestfjörðum og Austfjörðum fram á kvöld. – khg Mikill snjór og varað við ófærð Snjókoman átti að minnka í nótt á höfuðborgar- svæðinu en halda áfram inn til landsins fram á kvöld. Félagar í Miðflokknum ræða sín á milli hvort þörf sé á breytingum við hlið formannsins í brúnni. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR STJÓRNMÁL Undirbúningur fyrir næstu alþingiskosningar er að fara af stað hjá stjórnmálaflokkunum. Landsfundir eru á dagskrá þeirra f lestra á árinu; nokkrir snemma í vor og aðrir í haust. Sósíalistaf lokkur Íslands blæs til Sósíalistaþings sem hefst 1. maí næstkomandi en á félagsfundi 18. janúar síðastliðinn var ákveðið að hrinda undirbúningi fyrir kosning- ar af stað. Gunnar Smári Egilsson, formaður flokksins, segir f lokkinn nú vera að byggja sig upp um allt land enda stefnt að því að bjóða fram í öllum kjördæmum. Vígdís íhugar framboð Miðf lokkurinn heldur sitt lands- þing á Hótel Natura síðustu helgina í mars. Sigmundur Davíð Gunn- laugsson er óumdeildur leiðtogi flokksins að mati þeirra sem Frétta- blaðið ræddi við. Hins vegar munu f lokksmenn farnir að hringjast á vegna varaformannsembætta. Ekki liggur fyrir hvort varaformaðurinn Gunnar Bragi Sveinsson hyggst halda áfram í stjórnmálum en heimildir blaðsins herma að Vigdís Hauksdóttir íhugi framboð í emb- ættið. Aðspurð segir Vigdís að vissu- lega ræði f lokksmenn saman eins og gengur en hún hafi ekki ákveðið neitt í þessum efnum. „Ég hef nú þegar lýst því yfir að ég hafi hug á að verða næsti borgar- stjóri en vika er langur tími í pólitík og maður veit aldrei,“ segir Vigdís, innt eftir því hvort henni hugnist að færa sig aftur yfir í landsmálin. Þrátt fyrir djúpa dýfu sem Fram- sóknarflokkurinn hefur tekið í fylgi er óvíst að breytingar verði á forystu f lokksins en  stutt er í landsþing hans sem haldið verður um miðjan apríl. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins hefur formaðurinn ekki í hyggju að stíga til hliðar, en margir urðu til að lesa í nýlegar yfirlýsingar varaformannsins um nauðsyn inn- spýtingar í hagkerfið, þannig að hún sé að hita upp fyrir landsþing- ið. Að sögn er þó góður andi í bæði í forystunni og þingliði f lokksins. Vorkosningar farsælli Landsþing Viðreisnar fer fram á Grand hóteli 14. og 15. mars næst- komandi. Viðreisn hefur aukið fylgi sitt mest allra f lokka frá kosn- ingum og formaður flokksins segir andann í forystunni góðan. „Við lítum á okkur sem tvíeyki,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarssdóttur um samstarf þeirra Þorsteins Víg- lundssonar, varaformanns flokks- ins. Aðspurð segir Þorgerður æski- legast að hafa kosningar í lok maí eða byrjun júní. Það er ekki góður bragur á því að lögð séu fram emb- ættismannafjárlög fjórða hvert ár, sem er raunin þegar kosið er að hausti. Með vorkosningum hefur ný ríkisstjórn ráðrúm til að leggja sínar línur í fjárlagafrumvarpi og það lagt tímanlega fyrir Alþingi, sem fer með fjárveitingavaldið,“ segir Þorgerður. Þrír f lokkar halda sín flokksþing í haust. Píratar höfnuðu nýverið til- lögu um formannsembætti í flokkn- um og verður því ekki um slíkt kjör að ræða á þeirra fundi. Dagur og Helga Vala nefnd Landsfundur Samfylkingarinnar er áformaður snemma í nóvember. Flokkurinn hefur náð sér á gott strik eftir af hroð í kosningunum 2016 þegar f lokkurinn fékk aðeins þrjá menn kjörna á þing. Þótt Logi Einarsson sé almennt vel liðinn formaður eru skiptar skoðanir um leiðtogahæfni hans og heimildir Fréttablaðsins herma að rætt sé í þröngum hópum um þörf fyrir öflugri leiðtoga. Helga Vala Helgadóttir, sem hefur verið einna mest áberandi þing- maður Samfylkingarinnar, hefur verið orðuð við forystuhlutverk í f lokknum, jafnvel frá því áður en hún settist á þing fyrir rúmum tveimur árum. Þau Logi eru þó sögð vinna vel saman á þingi og þykir viðmælendum blaðsins líklegra að hún gæfi kost á sér sem varafor- maður en að hún færi gegn sitjandi formanni og félaga í þingflokknum. Sjálf segist Helga Vala ekkert vera að velta þessum embættum fyrir sér. Nafn Dags B. Eggertssonar hefur einnig verið nefnt og margir flokks- menn sem Fréttablaðið hefur rætt við segja að send hafi verið út könnun til að athuga stuðning við hann. Sjálfur segir Dagur slíkar sögusagnir bæði rangar og úr lausu lofti gripnar. Aðspurður segist hann heldur ekki hafa leitt hugann að landsmálunum. Sitjandi vara- formaður f lokksins, Heiða Björg Hilmisdóttir, kveðst heldur ekki á förum úr ráðhúsinu. Hún eigi enn of mikið óunnið í borginni. Síðast i landsf u ndu r ársins verður í Valhöll 13. til 15. nóvem- ber og því enn umhugsunartími til stefnu hafi einhverjir Sjálfstæðis- manna hug á forystuhlutverki í f lokkunum. Formaðurinn sjálfur, Bjarni Benediktsson, eyddi óvissu um eigin áform í Silfrinu í gær og lýsti því yfir að hann hafi hug á að sitja áfram á formannsstóli. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir hefur verið varaformaður flokksins frá síðasta landsfundi og Jón Gunnarsson er tiltölulega nýr ritari f lokksins en hann tók við embættinu af Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur þegar hún settist í stól dómsmálaráð- herra í september síðastliðnum. adalheidur@frettabladid.is Rætt um forystu í flokkunum Kosið verður til þings á næsta ári og komið gæti til endurnýjunar í forystu einhverra flokkanna sem flestir halda landsfundi í ár. Margir hringjast á í Miðflokknum sem heldur landsfund í næsta mánuði. Landsfundir á árinu Vinstri græn Flokksráðsfundur fór fram 7. og 8. febrúar Viðreisn Landsþing 14. og 15. mars Miðflokkurinn Landsþing 28. og 29. mars Framsóknarflokkurinn Flokksþing 18. og 19. apríl Sósíalistaflokkur Íslands Sósíalistaþing 1. – 3. maí Píratar Aðalfundur í ágúst eða september Samfylkingin Landsfundur 6. og 7. nóvember Sjálfstæðisflokkurinn Landsfundur 13. ­ 15. nóvember 2 4 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 M Á N U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.