Fréttablaðið - 24.02.2020, Síða 4
HÖRKUTÓL SEM ENDIST
GLÆSILEGT ÚTLIT, NÝJAR ÚTFÆRSLUR
OG FJÖLMARGAR TÆKNINÝJUNGAR Í BOÐI.
EIGUM TIL CREW CAB BIG HORN, LARAMIE, SPORT OG LIMITED ÚTFÆRSLUR
TIL AFGREIÐSLU STRAX.
EINNIG MEGA CAB Í LARAMIE OG LIMITED ÚTFÆRSLUM .
BJÓÐUM UPP Á 35”, 37” OG 40” BREYTINGAR
RAM 3500 VERÐ FRÁ: 6.967.745 KR. ÁN VSK.
RAM 3500 VERÐ FRÁ: 8.640.000 KR. M/VSK.
ramisland.is
UMBOÐSAÐILI RAM TRUCKS Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 534 4433 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
RAM 3500
MEGA CAB
1 Móðir Gretu Thun berg opnar sig um erfiða æsku hennar.
Greta léttist um tíu kíló á aðeins
tveimur mánuðum.
2 Hætt við ófærð í kvöld. Veturinn heldur áfram að vera
landanum erfiður.
3 Sjáðu ó trú legan öldu gang við Þór. Í hama ganginum
fékk skipið á sig brot sem náði upp
að létt báti skipsins, sem er í tölu
verðri hæð yfir sjávar máli.
4 Tala sýktra á Ítalíu komin í 132. Ítalía er fyrsta landið
í Evrópu þar sem ekki er hægt
að rekja dauðsfall af völdum
Covid19 beint til Kína.
Allar nýjustu fréttir og blað
dagsins eru fáanleg á
www.frettabladid.is
Veðurstofan varar við ófærð í dag.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
VEDUR Vetraraðstæður eru í öllum
landshlutum og Veðurstofan gerði
ráð fyrir mikilli ofankomu á suð-
vesturhluta landsins í gærkvöldi
og nótt. Snjóa mun drjúgt á stórum
svæðum og ganga á með éljum, þar
með talið á höfuðborgarsvæðinu.
Blástur og skafrenningur verður á
Hellisheiði. Er hætt við því að ófært
verði á götum framan af degi.
Snjókoman átti að minnka í nótt
á höfuðborgarsvæðinu en halda
áfram inn til landsins, á Suðurlandi,
Vestfjörðum og Austfjörðum fram á
kvöld. – khg
Mikill snjór og
varað við ófærð
Snjókoman átti að
minnka í nótt á höfuðborgar-
svæðinu en halda áfram inn
til landsins fram á kvöld.
Félagar í Miðflokknum ræða sín á milli hvort þörf sé á breytingum við hlið formannsins í brúnni. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
STJÓRNMÁL Undirbúningur fyrir
næstu alþingiskosningar er að fara
af stað hjá stjórnmálaflokkunum.
Landsfundir eru á dagskrá þeirra
f lestra á árinu; nokkrir snemma í
vor og aðrir í haust.
Sósíalistaf lokkur Íslands blæs
til Sósíalistaþings sem hefst 1. maí
næstkomandi en á félagsfundi 18.
janúar síðastliðinn var ákveðið að
hrinda undirbúningi fyrir kosning-
ar af stað. Gunnar Smári Egilsson,
formaður flokksins, segir f lokkinn
nú vera að byggja sig upp um allt
land enda stefnt að því að bjóða
fram í öllum kjördæmum.
Vígdís íhugar framboð
Miðf lokkurinn heldur sitt lands-
þing á Hótel Natura síðustu helgina
í mars. Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson er óumdeildur leiðtogi
flokksins að mati þeirra sem Frétta-
blaðið ræddi við. Hins vegar munu
f lokksmenn farnir að hringjast á
vegna varaformannsembætta. Ekki
liggur fyrir hvort varaformaðurinn
Gunnar Bragi Sveinsson hyggst
halda áfram í stjórnmálum en
heimildir blaðsins herma að Vigdís
Hauksdóttir íhugi framboð í emb-
ættið. Aðspurð segir Vigdís að vissu-
lega ræði f lokksmenn saman eins
og gengur en hún hafi ekki ákveðið
neitt í þessum efnum.
„Ég hef nú þegar lýst því yfir að
ég hafi hug á að verða næsti borgar-
stjóri en vika er langur tími í pólitík
og maður veit aldrei,“ segir Vigdís,
innt eftir því hvort henni hugnist að
færa sig aftur yfir í landsmálin.
Þrátt fyrir djúpa dýfu sem Fram-
sóknarflokkurinn hefur tekið í fylgi
er óvíst að breytingar verði á forystu
f lokksins en stutt er í landsþing
hans sem haldið verður um miðjan
apríl. Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins hefur formaðurinn ekki í
hyggju að stíga til hliðar, en margir
urðu til að lesa í nýlegar yfirlýsingar
varaformannsins um nauðsyn inn-
spýtingar í hagkerfið, þannig að
hún sé að hita upp fyrir landsþing-
ið. Að sögn er þó góður andi í bæði
í forystunni og þingliði f lokksins.
Vorkosningar farsælli
Landsþing Viðreisnar fer fram á
Grand hóteli 14. og 15. mars næst-
komandi. Viðreisn hefur aukið
fylgi sitt mest allra f lokka frá kosn-
ingum og formaður flokksins segir
andann í forystunni góðan. „Við
lítum á okkur sem tvíeyki,“ segir
Þorgerður Katrín Gunnarssdóttur
um samstarf þeirra Þorsteins Víg-
lundssonar, varaformanns flokks-
ins. Aðspurð segir Þorgerður æski-
legast að hafa kosningar í lok maí
eða byrjun júní. Það er ekki góður
bragur á því að lögð séu fram emb-
ættismannafjárlög fjórða hvert ár,
sem er raunin þegar kosið er að
hausti. Með vorkosningum hefur ný
ríkisstjórn ráðrúm til að leggja sínar
línur í fjárlagafrumvarpi og það lagt
tímanlega fyrir Alþingi, sem fer með
fjárveitingavaldið,“ segir Þorgerður.
Þrír f lokkar halda sín flokksþing
í haust. Píratar höfnuðu nýverið til-
lögu um formannsembætti í flokkn-
um og verður því ekki um slíkt kjör
að ræða á þeirra fundi.
Dagur og Helga Vala nefnd
Landsfundur Samfylkingarinnar
er áformaður snemma í nóvember.
Flokkurinn hefur náð sér á gott
strik eftir af hroð í kosningunum
2016 þegar f lokkurinn fékk aðeins
þrjá menn kjörna á þing. Þótt Logi
Einarsson sé almennt vel liðinn
formaður eru skiptar skoðanir um
leiðtogahæfni hans og heimildir
Fréttablaðsins herma að rætt sé
í þröngum hópum um þörf fyrir
öflugri leiðtoga.
Helga Vala Helgadóttir, sem hefur
verið einna mest áberandi þing-
maður Samfylkingarinnar, hefur
verið orðuð við forystuhlutverk
í f lokknum, jafnvel frá því áður
en hún settist á þing fyrir rúmum
tveimur árum. Þau Logi eru þó sögð
vinna vel saman á þingi og þykir
viðmælendum blaðsins líklegra
að hún gæfi kost á sér sem varafor-
maður en að hún færi gegn sitjandi
formanni og félaga í þingflokknum.
Sjálf segist Helga Vala ekkert vera að
velta þessum embættum fyrir sér.
Nafn Dags B. Eggertssonar hefur
einnig verið nefnt og margir flokks-
menn sem Fréttablaðið hefur rætt
við segja að send hafi verið út
könnun til að athuga stuðning við
hann. Sjálfur segir Dagur slíkar
sögusagnir bæði rangar og úr lausu
lofti gripnar. Aðspurður segist
hann heldur ekki hafa leitt hugann
að landsmálunum. Sitjandi vara-
formaður f lokksins, Heiða Björg
Hilmisdóttir, kveðst heldur ekki á
förum úr ráðhúsinu. Hún eigi enn of
mikið óunnið í borginni.
Síðast i landsf u ndu r ársins
verður í Valhöll 13. til 15. nóvem-
ber og því enn umhugsunartími til
stefnu hafi einhverjir Sjálfstæðis-
manna hug á forystuhlutverki í
f lokkunum. Formaðurinn sjálfur,
Bjarni Benediktsson, eyddi óvissu
um eigin áform í Silfrinu í gær og
lýsti því yfir að hann hafi hug á að
sitja áfram á formannsstóli. Þórdís
Kolbrún R. Gylfadóttir hefur verið
varaformaður flokksins frá síðasta
landsfundi og Jón Gunnarsson er
tiltölulega nýr ritari f lokksins en
hann tók við embættinu af Áslaugu
Örnu Sigurbjörnsdóttur þegar
hún settist í stól dómsmálaráð-
herra í september síðastliðnum.
adalheidur@frettabladid.is
Rætt um forystu í flokkunum
Kosið verður til þings á næsta ári og komið gæti til endurnýjunar í forystu einhverra flokkanna sem
flestir halda landsfundi í ár. Margir hringjast á í Miðflokknum sem heldur landsfund í næsta mánuði.
Landsfundir á árinu
Vinstri græn Flokksráðsfundur fór fram 7. og 8. febrúar
Viðreisn Landsþing 14. og 15. mars
Miðflokkurinn Landsþing 28. og 29. mars
Framsóknarflokkurinn Flokksþing 18. og 19. apríl
Sósíalistaflokkur Íslands Sósíalistaþing 1. – 3. maí
Píratar Aðalfundur í ágúst eða september
Samfylkingin Landsfundur 6. og 7. nóvember
Sjálfstæðisflokkurinn Landsfundur 13. 15. nóvember
2 4 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 M Á N U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð