Fréttablaðið - 24.02.2020, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 24.02.2020, Blaðsíða 12
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Sigurlaug Stefánsdóttir lést á öldrunarheimilinu Lögmannshlíð 18. febrúar. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 26. febrúar kl. 13.30. Sérstakar þakkir til starfsfólks í Kollugerði fyrir einstaka umönnun. Stefán Steinþórs Jakobsson Soffía Sveinsdóttir Sigurjón Jakobsson Charlotte Hannine Sigurður Ómar Jakobsson Eva Kristjánsdóttir Gunnar Jakobsson Margrét Kristjánsdóttir Sunna Ósk Jakobsdóttir ömmu- og langömmubörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Kristján A. Guðmundsson áður til heimilis að Brekkubyggð 89, Garðabæ, andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir laugardaginn 15. febrúar sl. Jarðarförin verður auglýst síðar. Jóna G. Gunnarsdóttir Kristjana Kristjánsdóttir Pétur A. Maack Hilmar S. Kristjánsson Josefine L. Kristjánsson Ragnar K. Kristjánsson Helga Hallgrímsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elsku sonur okkar, bróðir og mágur, Guðjón Ingi Sigurðarson lést fimmtudaginn 13. febrúar. Útförin verður frá Grafarvogskirkju mánudaginn 24. febrúar kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeir sem vilja minnast hans láti Lauf, Félag flogaveikra, njóta þess. Halldóra Kristín Guðjónsdóttir Sigurður Sigurðarson Sara Diljá Sigurðardóttir Gísli Gautason Giulia Mirante Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Sigríður Ólafsdóttir Hringbraut 2a, Hafnarfirði, lést þriðjudaginn 4. febrúar á hjúkrunarheimili Hrafnistu í Hafnarfirði. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 27. febrúar kl. 13.00. Jóhannes Harðarson Ólafur Arason Agnes Arthúrsdóttir Ingibjörg Þ. Aradóttir Guðmundur Sigurjónsson Draumey Aradóttir ömmu- og langömmubörn. 2 4 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 M Á N U D A G U R12 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1630 Skálholtsstaður brennur. þrettán hús og mikil veraldleg verðmæti fara for- görðum. 1924 Íhaldsflokkurinn stofnaður í Reykjavík. Hann sameinast síðar Frjálslynda- flokknum og tók upp nafnið Sjálfstæðisflokkurinn. 1946 Juan Perón kosinn forseti Argentínu. 1957 Sjómannasamband Íslands stofnað. 2006 Íslensk kvikmynd, Blóðbönd, frumsýnd. 2011 Geimskutlan Discovery leggur upp í sína hinstu geim- ferð. Merkisatburðir  Leikritaskáldið norska Henrik Ibsen gaf út leikverkið Pétur Gautur árið 1867. Útgáfa verksins var á dönsku svo sem alsiða var á þessum tímum í Noregi. Það var svo á þessum degi, 24. febrúar, árið 1876 sem leikritið var fyrst fært upp í Ósló. Leikritið er í fimm þáttum og er eitt kunnasta leikverk norskra leikbók- mennta. Verkið byggist lauslega á norsku ævitýrapersónunni, Pétri Gaut, en talið er að greina megi áhrif per- sóna úr fjölskyldu Ibsen, sérstaklega föður hans og móður. Þá telja leik- fróðir margir að Ibsen hafi verið inn- blásinn af ævintýrum Peter Christen Asbjørnsen, sem gefin voru út nokkru áður en Ibsen skrifaði verkið. Saga verksins fjallar um Pétur Gaut, sveitapilt sem sólundar tíma sínum í dagdrauma og óra um hverju hann gæti áorkað. Hann er því af ýmsum talinn táknmynd þeirra sem tala meira en þeir gera. Pétur Gautur hefur margoft verið á fjölunum hérlendis, bæði sunnan heiða og norðan. Þ E T TA G E R Ð I S T 24 . F E B R ÚA R 18 76 Pétur Gautur frumsýndur í Ósló Hann er því af ýmsum talinn táknmynd þeirra sem tala meira en þeir gera. Ibsen er eitt þekktasta leikskáld Noregs. Castro bræður frá þeim tíma sem valdaskiptin urðu. Sjá má að nokkuð var af Fidel dregið, en Raúl hressilegri. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA Þann 24. febrúar árið 2006 dró til tíðinda á kúbverska þinginu. Byltingarforinginn Fidel Castro lét af völdum sem forseti Kúbu og við tók bróðir hans Raúl. Af frétt- um frá þeim tíma má ráða að um þessi valdaskipti var alger einhugur á þinginu, sem kom ekki alls kostar á óvart. Saga Fidel og Kúbu er samofin. Hann leiddi byltingaröf l ásamt öðrum bylt- ingarforingjum  og komst til valda á Kúbu á nýársdag árið 1959. Upphaflega tók hann sér forsætisráðherranafnbót en síðar varð hann forseti landsins. Í kjölfar valdaránsins tók að kólna verulega í samskiptum Kúbu og Banda- ríkjanna. Einkum var það vegna til- burða Fidel að taka eignarnámi kúb- verskt land sem áður hafði tilheyrt bandarískum stórfyrirtækjum. Í fram- haldi versnandi samskipta við Banda- ríkjamenn hallaði Fidel sér að Sovétríkj- unum og margt í stjórnarfari Kúbu um þær mundir er beinlínis að fyrirmynd þaðan. Fidel og stjórn hans breyttu landinu smám saman í f lokksræði þar sem komið var á samyrkjubúskap í land- búnaði, lönd tekin eignarnámi og iðn- aður landsins þjóðnýttur. Bandaríkjamenn höfðu horn í síðu Fidel og vildu koma honum frá völdum með ráðum og dáð. Í því skyni var inn- rásin í Svínaf lóa gerð í apríl 1961, en ætlunarverkið mistókst. Innrásarmenn- irnir voru gagnbyltingarhersveit pólit- ískra útlaga frá Kúbu sem naut stuðn- ings bandarísku leyniþjónustunnar og bandarískra hermanna. Með þjálfun og fjárstyrk frá bandarísku leyniþjónust- unni réðst hersveitin að byltingarher Kúbu í því skyni að steypa af stóli ríkis- stjórn Fidel. Sú sneypuför styrkti hins vegar stöðu Fidel meðal Kúbverja. Spennan magnaðist enn árið 1962 þegar skip frá Sovétríkjunum gerðu til- raun til að flytja miðdrægar eldflaugar til Kúbu. Bandaríkjamenn brugðust við með því að mynda varnarhring skipa um Kúbu sem stöðvuðu og leituðu í öllum skipum sem hugðust sigla til eyjunnar. Fidel óttaðist innrás Banda- ríkjamanna og varð niðurstaðan sú að gert var samkomulag á milli Sovétríkj- anna og Bandaríkjanna þess efnis að Sovétríkin hættu við uppsetningu eld- f lauganna á Kúbu gegn því að Banda- ríkjamenn hyrfu á brott frá ströndum Kúbu og að þeir fjarlægðu sams konar eldf laugar á Ítalíu og í Tyrklandi sem beindust að Sovétríkjunum. Almennt er talið að deila þessi, sem nefnd var Kúbu- deilan, sé það einstaka atvik á tímum kalda stríðsins sem helst hefði getað leitt til kjarnorkustyrjaldar. Eftir Kúbudeiluna var Kúba tryggilega á áhrifasvæði Sovétríkjanna sem keyptu útflutningsvörur þeirra og styrktu efna- hag landsins með ýmsum hætti. Eftir fall Sovétríkjanna árið 1989 lenti Kúba í alvarlegum efnahagsþrengingum og ekki bætti viðskiptabann Bandaríkj- anna úr þeirri skák. Undir lok valdatíma síns bjó Fidel við bága heilsu og fór svo að hann eftirlét bróður sínum, Raúl, völdin á þessum degi árið 2006. Fidel lést 25. nóvember 2016. Raúl Castro var við völd á Kúbu fram í apríl 2018, þegar hann lét af embætti og varð Miguel Díaz-Canel eftirmaður hans á forsetastóli. Þar með lauk nærri 60 ára valdatíð Castro bræðra, í orði kveðnu. Frá því var gengið að Raúl sé formaður Kommúnistaf lokks Kúbu að minnsta kosti fram á næsta ár, endist honum aldur. Raúl verður 89 ára á þessu ári. jon@frettabladid.is Þaulsetnir Castro bræður höfðu valdastólaskipti Fjórtán ár eru nú frá því Fidel Castro lét af völdum sem forseti Kúbu og bróðir hans Raúl tók við. Ekki breyttist margt við þessi valdaskipti og enn heldur Raúl um stjórn- artaumana, þó bak við tjöldin sé. Þannig hafa þeir bræður ríkt á Kúbu frá árinu 1959. Undir lok valdatíma síns bjó Fidel við bága heilsu og fór svo að hann eftirlét bróður sínum, Raúl, völdin á þessum degi árið 2006. TÍMAMÓT

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.