Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.02.2020, Qupperneq 32

Fréttablaðið - 24.02.2020, Qupperneq 32
Ungu áhorfendurnir hafa bæði gaman af og fræðast í leiðinni, segir gagnrýnandinn. MYND/ÁSTA JÓNÍNA ARNARDÓTTIR LEIKHÚS Þitt eigið leikrit II – Tímaferðalag Þjóðleikhúsið Höfundur: Ævar Þór Benediktsson Leikarar: Lára Jóhanna Jónsdóttir, Hilmir Jensson, Ebba Katrín Finns- dóttir, Snorri Engilbertsson og Íris Tanja Í. Flygenring Leikstjóri: Stefán Hallur Stefáns- son Leikmynd: Högni Sigurþórsson, Magnús Arnar Sigurðarson og Her- mann Karl Björnsson Búningar: Ásdís Guðný Guð- mundsdóttir Lýsing: Magnús Arnar Sigurðarson Tónlist: Anna Halldórsdóttir Hljóðmynd: Kristinn Gauti Einars- son Myndbandshönnun: Ásta Jónína Arnardóttir Leikgervi: Valdís Karen Smára- dóttir Kosningakerfi og sértækar tækni- lausnir: Hermann Karl Björnsson Tæknistjórn á sýningum: Áslákur Ingvarsson og Ásta Jónína Arnar- dóttir Ef t i r vænt i ng i n va r næ st u m áþreifanleg í Kúlunni síðastliðinn föstudag þegar Þitt eigið leikrit II – Tímaferðalag eftir Ævar Þór Bene- diktsson, betur þekktur sem Ævar vísindamaður, var frumsýnt. Síðast- liðin ár hefur Ævar Þór haslað sér völl sem einn afkastamesti barna- bókahöfundur landsins og er þessi leiksýning hans önnur tilraun til að færa hugmyndafræðina úr bók- unum yfir á svið, þar sem áhorf- endur geta haft áhrif á framvindu sýningarinnar. Anna Hönnudóttir leitar svara um líðan móður sinnar sem berst við óljósan sjúkdóm á spítala. Allt í einu birtist taugatrekktur sendill sem afhendir henni litla leðurtösku, með honum í samfloti er undarlega brosmildur en stífur maður (meira að segja hárgreiðslan er undarlega stíf ). Dularfulli maðurinn heitir Radar og er leiðsögumaður Önnu, því í leðurtöskunni leynist tímavél, gjöf frá óþekktum einstaklingi. Anna ákveður að ferðast um tímann í leit að lækningu fyrir móður sína. Öflugur leikarahópur Rúmt ár er síðan Þitt eigið leikrit - Goðsaga var frumsýnt og fram- farir Ævar Þórs í handritavinnunni eru töluverðar. Hér er hugmyndin um gagnvirkt leikhús tekið föstum tökum, nú stjórna brellurnar ekki för heldur sagan og persónurnar. Aðalhetjan, Anna, fer í leiðangur til að bjarga móður sinni en endar með því að bjarga sjálfri sér og verða að betri manneskju. Helstu persónur eru heilar og heillandi, tilsvörin hnyttin og söguþráðurinn skemmtilega úthugsaður. Sömu- leiðis laumar hann inn f lóknum vísindahugmyndum svo sem um orsök og af leiðingar tímaf lakks. Stundum tekur þó of langan tíma fyrir persónur verksins að koma sér að efninu sem veldur því að sýningin er aðeins lengri en þörf er á og persónur eiga til að tala í fyrir- lestrum frekar en saman. Leikarahópurinn er kannski lítill en öflugur er hann. Önnu Hönnu- dóttur leikur Lára Jóhanna Jóns- dóttir af næmni og vex ásmegin þegar líða tekur á, lokasena sýn- ingarinnar er með því besta sem hún hefur sýnt á sviði. Radar leikur Hilmir Jensson af miklum húmor en líka með miklum kærleik og smellnum tímasetningum. Ebba Katrín Finnsdóttir heldur áfram að sýna hversu fjölhæf leikkona hún er, í hennar höndum er Hanna Önnudóttir full af kaótískri orku. Snorri Engilbertsson nýtur sín best sem egypski verkstjórinn en nær ekki að vera jafn sannfærandi sem Billi barnungi. Íris Tanja Flygenring styður laglega við hópinn í fjöl- mörgum smærri hlutverkum. Í heildina vinnur hópurinn afskap- lega vel saman, með gleðina að vopni. Stefán Hallur Stefánsson snýr aftur til að leikstýra barnaleikriti eftir Ævar Þór. Nálgun hans nú er ferskari, liprari og atriðin f læða vel saman. Byrjunaratriðið rímar fallega við sýningarlok og ævin- týrinu um hugrökku prinsessuna er haglega þrætt inn í aðalsöguna. Einstaka feilspor má þó merkja og ameríska hreimnum í villta vestr- inu mætti sleppa, grínið er ekki nægilega fyndið fyrir svo langa senu. Mikið sjónarspil Tæknin er núna frekar til stuðn- ings heldur en sýning í sjálfri sér eins og áður sagði, þó er hún auðvitað mikið sjónarspil. List- ræna teymið sem stendur að baki tímaf lakkinu er stórt og verkefni þess ærið. Fyrst ber að nefna leik- myndahönnuðina Högna, Magnús Arnar og Hermann sem í samstarfi við Ástu Jónínu finna fjölbreyttar leiðir til að spenna út heim þessa litla sviðs. Mikið er treyst á mynd- vinnslu en þau passa sig á að glæða baksviðið lífi frekar en að fletja út, eins og gerist alltof oft þegar unnið er með myndbönd. Tvennt stendur upp úr þegar kemur að ljósahönnun Magnúsar Arnar Sigurðarsonar. Í fyrsta lagi þarf þor til þess að slökkva öll ljósin á leiksviði en það borgaði sig svo sannarlega, í öðru lagi eru loftljósin fyrir ofan áhorfendasætin. Þau soga áhorfendur með í tímaflakkið á ein- faldan en áhrifaríkan máta. Geisla- virku rotturnar standa upp úr þegar kemur að búningahönnun og geim- veran ógurlega er vel unnin af hendi Valdísar Karenar Smáradóttur. Þitt eigið leikrit II – Tímaferðalag er barnaleikhús fyrir tuttugustu- og fyrstu öldina þar sem leitað er nýrra leiða til að kynna unga áhorfendur fyrir töfrum leikhússins. Ungu áhorfendurnir hafa bæði gaman af og fræðast í leiðinni. Hér er aldrei talað niður til þeirra heldur á sér stað samtal milli áhorfenda, höf- undar og leikara. Þó má nefna að sýningin er ekki endilega fyrir yngri leikhúsgestina sem geyma lítið hjarta þar sem bæði öskrandi risaeðlur og slímkenndar geimverur bíða þeirra. En fyrir alla aðra er óhætt að lofa góðri skemmtun sem er pakkað inn í hjartnæma sögu um hugrekki. Sigríður Jónsdóttir NIÐURSTAÐA: Hjartnæmst og fjörugt tímaferðalag sem engan svíkur. Tímalaus leit að innri styrk Hvað? Hvenær? Hvar? Mánudagur hvar@frettabladid.is 24. FEBRÚAR 2020 Hvað? Fræðakaffi/Frásagnir af geð- veikum í Reykjavík á árum áður Hvenær? 17.15-18.00 Hvar? Borgarbókasafnið Spönginni Sigurgeir Guðjónsson sagnfræð- ingur flytur erindi. Hvað? Handverkskaffi / Prjónum saman Hvenær? 17.00-18.30 Hvar? Borgarbókasafnið / Árbæ Umsjón hefur Pétur O. Heimisson. Hvað? Ný verkefni Nato Hvenær? 16.00 Hvar? Veröld, hús Vigdísar Íslenskir, breskir og bandarískir sérfræðingar fjalla um NATO. KVIKMYNDIR Klovn the Final Leikstjórn: Mikkel Nørgaard Aðalhlutverk: Frank Hvam, Casper Christensen, Mia Lyhne Rétt upp hönd sem hefur ekki heyrt um Klovn! Ókei, þá þarf ekki að fara mörgum orðum eða leggjast í djúpar greiningar á þessu danska grodda- gríni sem í eðli sínu er svo einfalt að annað hvort fílar fólk fíflaganginn í þeim Frank og Casper eða þolir þá ekki. Eðlilega, þar sem Klovn heyrir undir þá tegund gríns sem er best skilgreint sem eitur í beinum með- virkra vegna þess einfaldlega að það sem fyrir augu og eyru ber er svo óbærilega vandræðalegt að verkirnir í meðvirkninni verða að raunveru- legum líkamlegum óþægindum. Þetta eru svipuð einkenni og The Office og Curb Your Enthusiasm framkalla nema bara að þegar Frank og Casper eru upp á sitt besta er stingurinn í meðvirkninni eigin- lega óbærilegur. Klovn the Final rambar á þessum sársaukamörkum þannig að maður þraukar í gegnum þjáninguna ýmist gleiðbrosandi eða skellihlæjandi þannig að þessi þriðja og síðasta Klovn-mynd, ef marka má yfir- lýsingar þeirra félaga og fullyrðingu Caspers í nýlegu viðtali við Frétta- blaðið, er því eiginlega bara eins góð kveðjustund og við sem elskum að þjást í meðvirkni gátum óskað okkur. Fyrsta myndin var frábærlega vel heppnuð og þar tókst þeim Casper og Frank að fleyta þáttunum að því er virtist áreynslulaust af skjánum á stóra tjaldið. Og ganga meira að segja aðeins lengra í leiðinni. Næsta mynd var mun síðri, einhvern veginn laus- ari í sér og meira eins og langur sam- hengislítill sjónvarpsþáttur. Hún er þó miklu betri en af er látið núna þegar keppst er við að tala hana niður í samanburði við hinar tvær í þríleiknum. Breytir því ekki að sú þriðja er nánast á pari við þá fyrstu og stekk- ur yfir alla þvæluna í númer tvö og myndar nokkuð sterka, drepfyndna og óþægilega heild. Frank og Casper eru sjálfum sér líkir og klikka ekki og komast enn og aftur upp með alls konar rökleysu í þróun persónanna milli mynda og þáttaraða. Mia Lyhne er alltaf jafn yndisleg og óbilandi sem klettur skynsem- innar í þeim drullupolli sjálfhverfu og sjúkleika sem tilvera Franks og Caspers er. Fleiri fastagestir úr þáttum og myndum skila sínu eins og við var að búast og Christian Østergaard Sørensen fær meira pláss en venju- lega og tekur góðan sprett sem Lille Christian. Sem betur fer neitar Klovn sér ekki um smá dvergagrín þótt myndin beri um margt með sér að þeir Frank og Casper standa aldr- ei þessu vant aðeins á bremsunni í ósmekklegheitunum. Þórarinn Þórarinsson NIÐURSTAÐA: Drepfyndin, óþægileg og ógeðslega ljúf kveðjustund með þeim Casper og Frank. Það er að segja fyrir okkur sem munum sakna þeirra. Hin hafa vonandi vit á því að halda sig víðsfjarri. Varúð: Meðvirkni lífshætta Frank og Casper eru sem betur fer sömu fíflin og venjulega. MYND/PER ARNESEN 2 4 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 M Á N U D A G U R18 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.