Morgunblaðið - 04.12.2019, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 04.12.2019, Qupperneq 1
 „Mínarettan er táknræn, rétt eins og kross á kirkjum,“ segir Karim Askari, stjórnarformaður Stofn- unar múslima á Íslandi. Stór og vegleg mínaretta, eða bænaturn, er risin við mosku félags- ins í Skógarhlíð. Mínarettan er rúmir þrettán metrar á hæð og alls fóru yfir 1.200 kíló af stáli í hana. Hún er ekki fullgerð því enn á eftir að setja á hana álklæðningu, skraut og ljósabúnað á toppnum. „Þetta verður mjög fallegt og táknrænt fyrir það frelsi og um- burðarlyndi sem hér ríkir í garð allra trúfélaga. Múslimar á Íslandi lifa í sátt og samlyndi við aðra,“ segir Askari, sem segir að mínarett- an hafi fyrst og fremst það hlutverk að auka sýnileika moskunnar. »6 Voldugur bænaturn reistur í Hlíðunum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ný ásýnd Mínarettan við gamla Ýmishúsið í Skógarhlíð vekur athygli vegfarenda. M I Ð V I K U D A G U R 4. D E S E M B E R 2 0 1 9 Stofnað 1913  285. tölublað  107. árgangur  20 dagartil jóla Jólasveinalitabókin er á jolamjolk.is ERU MEÐ 1.750 STARFSMENN UM ALLAN HEIM FJÖRUVERÐLAUNIN ÁTTA MANNA HÓPUR NÚ MÆTTUR Á EM NÍU BÆKUR TILNEFNDAR, 29 KEPPT Í GLASGOW 26VIÐSKIPTAMOGGINN Hún segir að þjóðir sem hafi náð bestum árangri, svo sem Eistland og Svíþjóð, hugsi þetta þannig að allir geti lært og að allir skipti máli. Ragn- ar Þór Pétursson, formaður Kenn- arasambands Íslands, segir umhugs- unarvert að á sama tíma og stjórn- völd hafi með margvíslegum að- gerðum reynt að efla lesskilning íslenskra barna sé hann að dvína. Það sé sömuleiðis áhyggjuefni ef ójöfn- uður í íslenskum skólum sé að aukast; það er að tækifæri barna til menntunar ráðist af þjóðfélagsstöðu. Að landsbyggðin komi lakar en höfuðborgin út í könnun PISA verði sömuleiðis að skoða. »4 Gripið verður til margvíslegra að- gerða til að bæta stöðu íslenskra nemenda í kjölfar niðurstöðu PISA- könnunar OECD sem kynnt var í gær. Einkum verður horft til Svíþjóð- ar og Eistlands, en í Svíþjóð er mikil áhersla lögð á móðurmálskennslu og í Eistlandi er hlutfall náttúrugreina af heildarkennslu unglinga 21,3% á meðan það er 8,1% af viðmiðunar- stundaskrá unglingastigs grunnskóla hér á landi. „Við þurfum að grípa til víðtækra aðgerða til þess að efla læsi og bæta orðaforða og málskilning nemenda en brýnt er að það verkefni sé unnið í góðu samstarfi við skólasamfélagið, sveitarfélögin og heimilin í landinu. Reynsla annarra þjóða sýnir að mest- ur árangur næst meðal annars með aukinni þjálfun kennara og fjöl- breyttari kennsluaðferðum,“ segir Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra. Íslensk ungmenni standa verr að vígi en önnur ungmenni á Norður- löndum í öllum greinunum þremur sem prófuð eru í PISA, en læsi nem- enda á stærðfræði er yfir meðaltali í ríkjum OECD. Ísland er eitt af þeim sex ríkjum OECD sem hafa sýnt framfarir í stærðfræði. Lilja segist sannfærð um að með samstilltum að- gerðum muni takast að bæta stöðuna. Unnið í samráði við samfélagið allt Morgunblaðið/Hari Grunnskóli Staða íslenskra ung- menna kallar nú á aðgerðir.  Útkoma úr könnun PISA kallar á aðgerðir, segir menntamálaráðherra  Efla þarf læsi og auka orðaforða  Ísland stendur vel í stærðfræði  Mun milli borgar og byggða þarf að skoða „Framboðið af málverkum er talsvert um þessar mundir og eftirspurnin meiri en oft áður,“ segir Jóhann Ágúst Hansen hjá Gallerí Fold. Tveggja daga uppboði fyrirtækisins lauk í gærkvöld og þar seldust um 190 myndir. Stórt málverk eftir Georg Guðna fór á 5,5 milljónir króna og landslags- myndir eftir Kjarval voru sömuleiðis eftirsóttar en Tryggvi Páll Frið- riksson, sem hér sést með hamarinn, sló þær hæstbjóðanda. Landslag Kjarvals eftirsótt á uppboði Foldar Morgunblaðið/Eggert  Ekki eru tengsl á milli nýs gjalds sem Íslandspóstur leggur á póst- sendingar frá útlöndum og for- tíðarvanda í samkeppnisrekstri fyrirtækisins. Þetta fullyrðir for- stjórinn Birgir Jónsson, sem vísar á bug málflutningi Neytendasamtak- anna um forsendur svokallaðs endastöðvagjalds. Hann segir rangt að ekki séu fyrir hendi upplýsingar um kostnaðinn sem liggi gjaldinu til grundvallar. »11 Ekki vegna fortíðar- vanda póstsins Baldur Arnarson Stefán E. Stefánsson Þorpið vistfélag hefur í samstarfi við Arctica Finance og Landsbank- ann lokið fjármögnun smáíbúða- hverfis í Gufunesi. Fá verkefni fá slíka fjármögnun um þessar mundir. Runólfur Ágústsson, verkefna- stjóri félagsins, segir áformað að hefja framkvæmdir í janúar. Byggðar verða 45 íbúðir í fyrsta áfanga sem kostar 1,3 milljarða. Alls verða íbúðirnar 130 og má ætla að kostnaður verði um 3,8 milljarðar. Framkvæmdin sætir tíðindum á byggingarmarkaði á höfuðborgar- svæðinu. Í fyrsta lagi vegna þess að hún markar upphaf nýrrar byggðar Ábatinn getur hins vegar orðið mun meiri að uppfylltum skilyrðum. Stjórnarformaður Félagsbústaða er lögfræðilegur ráðgjafi að verkefninu en hið opinbera íbúðafélag hefur forkaupsrétt að 5% þeirra íbúða sem reistar verða undir nafni Þorps- ins vistfélags. Grænt ljós á smáíbúðahverfi  Landsbankinn fjármagnar hverfi með ódýrum íbúðum í Gufunesi í Reykjavík  Frumkvöðlar verkefnisins vænta tugmilljóna hagnaðar af uppbyggingunni MÞorpið … »6, ViðskiptaMogginn í Gufunesi og í öðru lagi vegna lágs íbúðaverðs. Ódýrustu íbúðirnar munu kosta 18,8 milljónir fullbúnar. Samkvæmt fjárfestakynningu sem ViðskiptaMogginn hefur undir höndum er gert ráð fyrir að tveir hluthafar sem eiga allt hlutafé Þorpsins vistfélags muni að lág- marki hagnast um 60 milljónir króna vegna uppbyggingarinnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.