Morgunblaðið - 04.12.2019, Síða 6

Morgunblaðið - 04.12.2019, Síða 6
Haraldur hættir og nýtt lögregluráð skipað Arnar Þór Ingólfsson Erla María Markúsdóttir Kjartan Þorkelsson, lögreglustjóri á Suðurlandi, verður skipaður ríkis- lögreglustjóri til bráðabirgða er Haraldur Johannessen hættir störf- um um áramót. Frá þessu greindi Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra á blaðamanna- fundi í gær. Haraldur tilkynnti sam- starfsmönnum sínum starfslok sín í gærmorgun. „Ég hef óskað eftir því við dóms- málaráðherra að láta af embætti ríkislögreglustjóra um næstu ára- mót og hefur ráðherra fallist á lausnarbeiðni mína. Um leið hefur verið óskað eftir að ég taki að mér sérstaka ráðgjöf við ráðherra á sviði löggæslumála, sem m.a. lýtur að framtíðarskipulagi löggæslunnar. Ég stíg sáttur frá borði eftir að hafa gegnt þessu ábyrgðarmikla starfi í 22 ár. Nú þegar boðaðar eru breytingar á yfirstjórn lögreglumála í landinu tel ég rétt að hleypa að nýju fólki og er mér ljúft og skylt að vera ráðherra í framhaldinu til ráðgjafar um framtíðarskipulag löggæsl- unnar,“ sagði meðal annars í bréfi Haraldar til samstarfsmanna sinna. Áslaug Arna sagði að starfslokin væru í góðri sátt og hún vonaðist til að fá öflugar umsóknir þegar emb- ættið yrði auglýst innan tíðar. Hún greindi frá því að Haraldur myndi sinna sérstökum verkefnum í dóms- málaráðuneytinu í þrjá mánuði. Að því loknu tæki starfslokasamningur við sem fæli í sér að ráðherra gæti leitað ráðgjafar Haraldar á fimmtán mánaða tímabili. Eftir það færi hann á biðlaun. Áslaug kynnti stofnun nýs lög- regluráðs á blaðamannafundinum í gær. Í því munu allir lögreglustjórar landsins sitja, auk ríkislögreglu- stjóra, sem verður formaður ráðsins. Áslaug Arna segir að hugmyndin hafi komið að utan. Telur Áslaug að stofnun lögregluráðsins verði til þess að minnka þá togstreitu sem hefur verið innan lögreglunnar. Hún segir að á vettvangi lögregluráðsins, sem er formlegur samráðsvettvangur, verði allar stærstu ákvarðanir sem þarf að taka ræddar, en einnig geti ráðið átt samráð um útboðsmál, til- færslu verkefna og fleira. Hún kveðst mælast til þess að ríkis- lögreglustjóri beri stærri ákvarðanir undir ráðið en hann fari eftir sem áð- ur með málefni lögreglunnar. Reynslan verði áfram nýtt Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lög- reglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, segir Harald Johannessen hafa lyft grettistaki í störfum sínum sem ríkislögreglustjóri. „Ég tel að Haraldur hafi lyft grettistaki í lög- gæslu í landinu og hann hefur eflt hana og byggt hana upp og gert frábæra hluti með ríkislög- reglustjóraemb- ættið. En svo er það bara þannig að samfélagið er að þróast mjög hratt og við þurfum öll að mæta því,“ sagði hún í samtali við mbl.is í gær- kvöld. Sigríður Björk sagði enn fremur eðlilegt að Haraldur yrði dómsmála- ráðherra til ráðgjafar varðandi mál- efni lögreglunnar í landinu og fram- tíðarskipulag hennar. Hann hefði reynslu sem nýst gæti áfram innan kerfisins. „Það er mikilvægt að það sé samfella í lögreglunni og hvernig hún þróast,“ sagði hún. Spurð út í hugmyndir dómsmála- ráðherra um stofnun lögregluráðs sagði Sigríður Björk það vera já- kvætt skref í löggæslumálum. Tekur hún undir að ráðið muni tryggja að lögreglan myndi eina samhenta heild og minnki um leið togstreitu.  Sagður hafa lyft grettistaki í löggæslu  Staðan auglýst Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Nýtt fyrirkomulag Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra kynnti stofnun nýs lögregluráðs á blaðamannafundi í Ráðherrabústaðnum. Haraldur Johannessen Kjartan Þorkelsson Sigríður Björk Guðjónsdóttir 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2019 Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Verið velkomin 1988 - 2018 Til jóla fyrir dömur og herra Silkislæður, hanskar, töskur, skart, herratreflar og ilmir Eigum alltaf vinsælu bómullar- og velúr- gallana í mörgum litum Einnig stakar svartar velúrbuxur Stærðir S-4XL Viðar Böðvarsson viðskiptafræðingur, lögg. fasteignasali Sóltúni 20, 105 Reykjavík, s. 552 1400 og 694 1401 Grandavegur 47, 115 fm. útsýnisíbúð á 3. hæð (íbúð 308) auk stæðis í bílageymslu, samtals ca. 138 fm. Glæsileg íbúð í vönduðu fjölbýli við Grandaveg fyrir 60 ára og eldri. Yfirbyggðar suðursvalir með miklu útsýni. Íbúðin er smekklega endurnýjuð og frábærlega staðsett í húsinu með tilliti til útsýnis. Getur verið laus fljótlega. Verð 59,8 millj. Opið hús í dag, miðvikudag 4.12. kl. 16-17. Grandavegur 47, 107 Rvk. íbúð fyrir 60+ Opið hús í dag kl. 16-17 Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Við erum auðvitað mjög ánægðir með þetta og þakklátir fyrir að hafa fengið leyfi yfirvalda til þess að reisa mínarettuna,“ segir Karim Askari, stjórnarformaður Stofnunar músl- ima á Íslandi. Vegfarendur við mosku félagsins í Skógarhlíð hafa tekið eftir því að stór og vegleg mínaretta er risin á lóð hússins. Mínarettur, eða bæna- turnar, eru jafnan fyrir utan moskur og þykja mikilvægt tákn fyrir sýni- leika múslimasamfélagsins. „Mínarettan er táknræn, rétt eins og kross á kirkjum,“ segir Karim Askari. Hann segir að mínarettan sé ekki fullgerð, enn eigi eftir að klæða hana og skreyta og koma fyrir ljósa- búnaði á toppnum. „Þetta verður mjög fallegt og táknrænt fyrir það frelsi og um- burðarlyndi sem hér ríkir í garð allra trúfélaga. Múslimar á Íslandi lifa í sátt og samlyndi við aðra,“ segir Askari. Hann segir að mínarettan auki sýnileika moskunnar og fyrir vikið búist Stofnun múslima á Íslandi við fleiri gestum en áður. „Það eru marg- ir sem vilja koma til okkar og skoða og þeir eru velkomnir.“ Það var Teiknistofan Óðinstorgi sem sá um hönnun mínarettunnar. Vélsmiðja Suðurlands sá um smíðina. „Bænaturninn er rúmir þrettán metrar á hæð og það fóru eitthvað um 1.200 kíló af stáli í hann,“ segir Margrét Ósk Jónasdóttir, fram- kvæmdastjóri Vélsmiðju Suðurlands. Hún segir aðspurð að verkið hafi ekki verið mjög frábrugðið öðrum verk- efnum, þótt útkoman sé óvenjuleg. „Við erum mikið í stálgrindum, bitum í þak og súlum. Þetta var bara eitt af þessum verkefnum. En þetta er mjög flott. Ég held að þetta muni koma vel út þegar turninn er fullgerður.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Mínaretta Ásýnd gamla Ýmishússins í Skógarhlíð hefur breyst talsvert. Þrettán metra bænaturn risinn  Mínarettan sögð falleg og táknræn kirkjan sé reiðubúin að skoða alla möguleika í því efni. Segir Pétur að erfitt aðgengi geti verið að húsum við Laugaveg og það hafi stundum skapað erfiðleika. Flest á sama stað Stór hluti miðlægrar stjórnsýslu þjóðkirkjunnar var sameinaður í nýja húsnæðinu, á þriðju hæð í Katr- ínartúni 4. Þó er fjölskylduþjónustan ennþá í Háteigskirkju og sérþjón- ustuprestar og önnur starfsemi í Grensáskirkju. Verslunin Kirkju- húsið verður flutt af Laugavegi á jarðhæð hússins við Katrínartún eft- ir áramót. helgi@mbl.is Biskupsstofa verður í Katrínartúni 4 næstu sjö árin, að minnsta kosti. Gerður var leigusamningur til sjö ára þegar Biskupsstofa flutti þangað af Laugavegi fyrr í vetur. Pétur G. Markan, samskiptastjóri Biskupsstofu, segir að ódýrara sé að leigja í Katrínartúni en miðbænum. Hugmyndin með flutningunum sé að draga úr rekstrarkostnaði og nota fjármunina frekar í þjónustu. Biskupsstofa hefur verið á Lauga- vegi 31 frá árinu 1994, virðulegu húsi við aðalverslunargötu bæjarins. Húsið er í eigu kirkjumálasjóðs og er til sölu. Pétur segir að talsvert hafi verið spurt um eignina og þjóð- Biskup leigir í Katr- ínartúni til sjö ára

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.