Morgunblaðið - 04.12.2019, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2019
Dóra Björt Guðjónsdóttir píratier formaður mannréttinda-,
nýsköpunar- og lýðræðisráðs hjá
Reykjavíkurborg. Eitt af því sem
ráðið hefur áhuga á
er að vinna gegn
hatursorðræðu. Í
fundargerð ráðsins
frá miðjum nóvem-
ber má til dæmis
sjá bókun þar sem
ráðið fagnar átaki
borgarinnar „gegn
fordómum og
hatursorðræðu í garð fólks af er-
lendum uppruna í borginni
okkar“. Þar segir einnig að með
þessu sé það „okkar ósk að skapa
borg þar sem allir fá að lifa med
reisn í sátt og samlyndi“.
Þetta eru auðvitað sjálfsögðmarkmið enda eiga hatur og
fordómar lítið erindi í opinbera
umræðu um útlendinga eða aðra.
Tveimur vikum eftir þessa bók-un ritaði formaður ráðsins
grein í Mannlíf þar sem farið er
ófögrum orðum um þann hóp fólks
sem telst sjálfstæðismenn og með-
al annars sagt að fulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins séu „frægir fyrir
spillingu og sérhagsmunagæslu.
Það er orðið daglegt brauð að sýnt
sé fram á spillingu kjörinna full-
trúa stærsta flokks landsins án
þess að það hafi neinar afleið-
ingar“.
Hún bætir því við að hún hafihaldið „að sjálfstæðismenn
létu sér duga að arðræna okkur
Íslendinga. En nei, betur má ef
duga skal til þess að fóðra þessa
ómettandi græðgismaskínu sem
þekkir engin takmörk“, og klykkir
út með því að flokkurinn sé flokk-
ur sérhagsmuna, spillingar og yfir-
gengilegrar græðgi.
Getur ekki verið að þetta séhatursorðræða?
Dóra Björt
Guðjónsdóttir
Hatursorðræða?
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Jóhann Eyfells mynd-
höggvari lést í gær á
hjúkrunarheimili í
Fredericksburg í Tex-
as í Bandaríkjunum.
Jóhann var fæddur í
Reykjavík 21. júní
1923 og ólst upp í
Þingholtunum. For-
eldrar hans voru Eyj-
ólfur J. Eyfells (1886-
1979), listmálari í
Reykjavík, og Ingi-
björg Eyfells (1895-
1977), handavinnu-
kennari og kaup-
maður.
Jóhann fór til náms í arkitektúr
og myndlist í Kaliforníuháskóla í
Berkeley í Bandaríkjunum árið
1944 og stundaði einnig nám við
Lista- og handíðaskóla Kaliforníu í
Oakland. Í Kaliforníu kynntist Jó-
hann eiginkonu sinni, Kristínu
Halldórsdóttur myndlistarmanni, f.
1917
Árið 1953 tók Jóhann B.Arch-
próf í arkitektúr frá Flórídahá-
skóla í Gainesville og 1964 tók
hann MFA-próf í skúlptúr frá
sama skóla. Á seinni hluta sjöunda
áratugarins vann Jóhann að list-
sköpun sinni á Íslandi og kenndi
einnig við Myndlistar- og handíðar-
skólann í Reykjavík. Á þessum
tíma voru Jóhann og Kristín mjög
áberandi og framsækin í listalífinu
í Reykjavík og tóku
þátt í fjölda sýninga á
verkum á Skólavörðu-
holti. Árið 1969 varð
Jóhann prófessor við
Flórídaháskóla í Or-
lando og starfaði þar
til 1999.
Jóhann hélt einka-
sýningar víða um
heim, meðal annars
stóra og glæsilega
sýningu hjá Listasafni
Íslands 1992. Einnig
tók hann þátt í fjölda
samsýninga og tóku
þau hjónin bæði þátt í
ýmsum sýningum. Þá var Jóhann
með Hreini Friðfinnssyni fulltrúi
Íslands á Feneyjatvíæringnum árið
1993.
Kristín, kona Jóhanns, lést árið
2002 og í kjölfarið lagði Jóhann allt
kapp á að halda nafni hennar á
lofti. Hann lét steypa fjölmarga af
skúlptúrum hennar í brons og það í
mörgum eintökum. Jóhann flutti
frá Orlando til Texas árið 2004 og
keypti þar búgarð hvar hann vann
sleitulaust að listsköpun sinni
hvern einasta dag. Meðal lista-
verka Jóhanns má nefna Íslands-
vörðuna, verk úr bronsi við Sæ-
braut í Reykjavík.
Sonur Jóhanns og Auðar Hall-
dórsdóttur er Ingólfur Eyfells, f.
1945, verkfræðingur í Garðabæ.
Andlát
Jóhann Eyfells
Rauntölur liggja nú fyrir um fjölda farþega sem
komu með skemmtiferðaskipum til Reykjavíkur og
Akraness síðastliðið sumar.
Alls voru 190 skipakomur farþegaskipa til Faxa-
flóahafna með 188.630 farþega. Fjölgun á skipa-
komum var 25% milli ára og fjölgun farþega var
rúmlega 30%. Nýtingarhlutfallið er í kringum 94%.
Á milli ára er 28% aukning í brúttótonnum skipa.
Eins og jafnan áður koma flestir ferðamennirnir
frá Þýskalandi, eða tæplega 49 þúsund. Bandaríkja-
menn voru rúmlega 38 þúsund og Englendingar 36
þúsund.
Á heimasíðu Faxaflóahafna hefur birst listi yfir
þau skip sem hafa tilkynnt komu sína til Reykjavík-
ur/Akraness árið 2020. Þetta eru 82 skip og skipa-
komur verða 196 talsins. Farþegafjöldinn verður
rúmlega 205 þúsund. Þessar tölur munu eflaust
breytast eins og jafnan gerist.
Fyrsta skipið, Magellan, er bókað í Sundahöfn 9.
mars. Magellan verður jafnframt síðasta skipið sem
hingað kemur næsta sumar, en það er bókað 25.
október. sisi@mbl.is
Þjóðverjar voru fjölmennastir
188.630 farþegar komu
með skemmtiferðaskipum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sundahöfn Magellan er fyrsta skipið sem bókað
hefur komu sína til Reykjavíkur næsta sumar.