Morgunblaðið - 04.12.2019, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2019
Fastus ehf | Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
EINNOTA HANSKAR
Í ÖLLUM REGNBOGANS LITUM
• Fjórir litir í einu boxi
• Púðurslausir
• Ofnæmisprófaðir
• Gott grip og passa vel á hendi
BLEIKIR | GULIR | GRÆNIR | APPELSÍNUGULIR
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Áform Íslenska kalkþörunga-
félagsins ehf. um að auka árlegt
kalkþörunganám í Arnarfirði til að
auka framleiðslu kalkafurða í verk-
smiðju félagsins á Bíldudal eru
ekki háð mati á umhverfisáhrifum,
samkvæmt ákvörðun Skipulags-
stofnunar. Ástæðan er ekki síst sú
að þótt framleiðslan sé aukin fer
kalkþörunganámið ekki yfir það
heildarmagn sem heimild er fyrir,
eftir umhverfismat á sínum tíma.
Árleg efnistaka eykst úr 82.500
rúmmetrum í liðlega 139 þúsund
rúmmetra á ári. Framleiðsla kalk-
þörunga í verksmiðjunni fer úr 85
þúsund tonnum í 120 þúsund tonn
á ári og eykst því um rúm 40%.
Eftir ítarlega yfirferð yfir starf-
semi og áform fyrirtækisins varð
það niðurstaða Skipulagsstofnunar
að fyrirhuguð framkvæmd væri
ekki líkleg til að hafa í för með sér
umtalsverð umhverfisáhrif og því
skyldi framkvæmdin ekki háð mati
á umhverfisáhrifum. Ákvörðunina
má kæra til úrskurðarnefndar og
er kærufrestur til 6. janúar nk.
Halldór Halldórsson, forstjóri
Íslenska kalkþörungafélagsins,
segir að næsta skref sé að sækja
um starfsleyfi til Umhverfisstofn-
unar fyrir stækkun verksmiðjunn-
ar. Til þess að auka framleiðsluna
þarf að bæta við húsnæði og
tækjakost og hefur verið áætlað að
kostnaður við það nemi um millj-
arði króna.
Djúpkalk á undirbúningsstigi
Íslenska kalkþörungafélagið er
einnig að undirbúa byggingu nýrr-
ar kalkþörungaverksmiðju í Súða-
vík, Djúpkalk. Umhverfismat er í
vinnslu og vinna við skipulag á
lokametrunum. Upphaflega var
áætlað að verksmiðjan gæti hafið
framleiðslu á næsta ári.
„Ég er að gera mér vonir um að
við sjáum einhverjar stiklur á
þeirri leið með vorinu, við vitum þá
hvar við stöndum og getum farið
að skipuleggja okkur á ný,“ segir
Halldór og bætir því við að úr því
sem komið er megi búast við að
framleiðsla hefjist ekki fyrr en á
árinu 2023.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Bíldudalur Verksmiðjan er við höfnina, með hráefni og tilbúnum afurðum.
Ekki þarf nýtt
umhverfismat
Undirbúa stækkun Ískalks á Bíldudal
Íslenska ríkið var
í gær sýknað í
Héraðsdómi
Reykjavíkur af
öllum kröfum
Ágústu Elínar
Ingþórsdóttur,
skólameistara
Fjölbrautaskóla
Vesturlands á
Akranesi, en
Ágústa höfðaði
málið vegna ákvörðunar Lilju Al-
freðsdóttur mennta- og menningar-
málaráðherra um að auglýsa emb-
ætti skólameistara laust til
umsóknar. Málinu verður líklega
áfrýjað til Landsréttar, að sögn
Gísla Guðna Hall, lögmanns Ágústu.
„Mér finnst litlar kröfur gerðar til
stjórnsýslunnar í forsendum dóms-
ins og því fullt tilefni til að áfrýja til
Landsréttar,“ sagði Gísli í samtali
við mbl.is í gær.
Lilja auglýsti embættið laust til
umsóknar frá og með komandi ára-
mótum, en samkvæmt lögum fram-
lengist skipunartími skólastjórn-
enda um fimm ár í senn nema
ráðherra ákveði að auglýsa stöðuna.
Hefði skipunartími Ágústu því átt að
framlengjast til ársins 2025, en til að
ákvörðun ráðherra standist þarf að
tilkynna hana með sex mánaða fyr-
irvara. Lilja hringdi í Ágústu 30.
júní og lét hana vita af ákvörð-
uninni, en skrifleg tilkynning var
ekki send fyrr en daginn eftir, 1.
júlí, en þá voru minna en sex mán-
uðir þangað til skipunartíminn átti
að renna út.
Í málinu taldi Ágústa að hún hefði
ekki fengið tilkynninguna formlega
fyrir tímamörkin og að sú ákvörðun
ráðherra að auglýsa embættið hefði
ekki verið málefnaleg né staðið að
henni með réttum hætti út frá
reglum stjórnsýslu.
Ríkið var sýknað af kröfum Ágústu Elínar skólameistara
Ágústa E.
Ingþórsdóttir
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Þorpið vistfélag hefur í samstarfi við
Arctica Finance og Landsbankann
lokið fjármögnun smáíbúðahverfis í
Gufunesi.
Runólfur Ágústsson, verkefna-
stjóri félagsins,
segir áformað að
hefja fram-
kvæmdir í janúar.
Stefnt sé að því
að afhenda fyrstu
45 íbúðirnar í
mars 2021 og síð-
an næstu tvo
áfangana með sex
mánaða millibili.
Samkvæmt því
yrði hverfið full-
byggt í mars 2022. Alls verða 130
íbúðir í hverfinu.
Kostnaður við fyrsta áfangann er
um 1,3 milljarðar króna.
Hefjast eftir áramót
„Það er komið bindandi lánsloforð.
Á föstudaginn verður hluthafafund-
ur og þá köllum við inn hlutafé.
Framkvæmdir munu hefjast strax
eftir áramót,“ segir Runólfur.
Byrjað verður á jarðvinnu en Eykt
verður með verkefnið í alverktöku.
Húsin verða byggð úr forsteyptum
einingum frá Steypustöðinni og af-
hendast íbúðir fullbúnar.
Að sögn Runólfs verður nýrri
tækni beitt við smíði eininganna.
„Það lækkar kostnað og eykur bygg-
ingarhraða. Hvort tveggja skiptir
máli,“ segir hann.
Yfir 1.100 umsækjendur
Um 1.130 manns hafa skráð sig á
lista yfir áhugasama kaupendur.
Kallað verður eftir greiðslumati í
janúar en ætlunin er að ljúka loka-
hönnun og skipulagi í samráði við
kaupendur. Þá meðal annars varð-
andi deililausnir og útfærslur á sam-
eign og sorp- og endurvinnslumál-
um. Yrki arkitektar teikna húsin.
Verð íbúða verður 18,8 til 36,1
milljón króna eftir herbergjafjölda
og stærð. Þannig verða tveggja her-
bergja íbúðir verðlagðar á 26,8 millj-
ónir króna.
„Þar þarf fyrsti kaupandi því að
leggja fram 2,7 milljónir eða 10% af
kaupverði í eigin fé. Það er tala sem
mjög margir ráða við – mögulega
með aðstoð frá fjölskyldum sínum –
sem fyrstu kaup,“ segir Runólfur.
Hann telur markaðinn hafa van-
rækt þessa verðflokka húsnæðis.
Félagsbústaðir hafa rétt til að
kaupa 5% íbúðanna í Þorpinu.
Fjármögnun
Þorpsins tryggð
Uppbygging í Gufunesi hefst í janúar
Runólfur
Ágústsson
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Þetta er einhver frábærasta for-
vörn sem fundin hefur verið upp.
Fólki gefst kostur á að koma með
börnum sínum og allir hafa eitt-
hvað við að vera. Mér finnst þetta
skrautfjöðrin í starfi UMFÍ,“ segir
Guðríður Aadnegard, formaður
HSK. Skrifað hefur verið undir
samning um að unglingalandsmót
verði haldið á Selfossi um versl-
unarmannahelgina á næsta ári.
Skrifað var undir í leikhléi í
handboltaleik á Selfossi í fyrra-
kvöld. Haukur Valtýsson skrifaði
undir fyrir hönd UMFÍ og Gísli
Halldór Halldórsson, bæjarstjóri
Sveitarfélagsins Árborgar, og Guð-
ríður skrifuðu undir sem samstarfs-
aðilar á Suðurlandi.
Unglingalandsmót UMFÍ hafa
verið haldin um verslunarmanna-
helgina frá árinu 1992. Þau hafa
nokkrum sinnum verið haldin á
starfssvæði HSK, meðal annars á
Selfossi fyrir sjö árum. Þau eru orð-
in einn af áfangastöðum fjöl-
skyldufólks um verslunarmanna-
helgina.
Keppt er í ýmsum íþróttagrein-
um, bæði hefðbundnum og óhefð-
bundnum. Ekki er skilyrði að vera
félagi í ungmennafélagi eða stunda
íþróttir að staðaldri, öll börn og
unglingar á aldrinum 11 til 18 ára
geta skráð sig til þátttöku. Þá eru
kvöldskemmtanir og ýmsir við-
burðir skipulagðir.
Guðríður segir að unglingalands-
mótið á Selfossi verði með hefð-
bundnu sniði. Þó sé alltaf verið að
leita fanga til að gera allri fjöl-
skyldunni kleift að vera með, bæði
yngri börnum og fullorðnum. Að
þessu sinni stendur til að vera með
skógarhlaup sem öll fjölskyldan
getur tekið þátt í. Þá er að sögn
Guðríðar verið að huga að því að
taka rafíþróttir meira inn í mótið
en áður hefur verið gert.
Aðstaða til mótahalds er góð á
Selfossi. „Magnað er að halda svona
stór mót á þessu svæði. Aðstaðan er
frábær og mér skilst að frekar
verði bætt í á næstu árum.“
Frábærasta forvörn sem
fundin hefur verið upp
Unglingalandsmót á Selfossi um verslunarmannahelgina
Ljósmynd/Umfí
Mótshald Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri, Haukur Valtýsson, for-
maður UMFÍ, og Guðríður Aadnegard, formaður HSK, skrifa undir.