Morgunblaðið - 04.12.2019, Page 21

Morgunblaðið - 04.12.2019, Page 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2019 ✝ Áslaug Magn-úsdóttir fædd- ist í Hafnarfirði 20. nóvember 1924. Hún lést á Hrafn- istu í Hafnarfirði 25. nóvember 2019. Foreldrar hennar voru Magnús Böðv- arsson, bakara- meistari í Hafn- arfirði, f. 13. júlí 1887, d. 1944, og kona hans Sigríður Árný Eyj- ólfsdóttir húsmóðir, f. 21. mars 1897, d. 1983. Systkini Áslaug- ar eru: Kristín, f. 12. júlí 1919, d. 2007, Gunnar, f. 1921, d. 1994, Magnús Stephensen, f. 1922, d. 2009, Sigríður Guðrún, f. 1927, sem lifir systur sína. Áslaug fór í Húsmæðraskóla Reykjavíkur og handavinnu- skóla í Kaupmannahöfn. Hún vann á Skattstofunni í Hafnar- firði í 12 ár og var virk í fé- lagsstarfi í Vorboðanum, félagi dóttir, f. 1984, börn þeirra: Helga Sóley, Rebekka Lena og Agnes Lilja. Gunnar Helgi, f. 1987, sambýliskona hans er Rósa Guðjónsdóttir, f. 1986, börn þeirra: Klara og Elías Bergur. 2) Bjarni, f. 1953, maki Ragnheiður Gunnarsdóttir, f. 1953, börn þeirra: Íris, f. 1977, maki Karl Sigfússon, f. 1977, börn þeirra: Selma, Hilmar og Þóra. Snædís, f. 1986. 3) Árni Sigurður, f. 1955, maki Katrín Guðný Alfreðsdóttir, f. 1957, börn þeirra: Dagfinnur Helgi, f. 1980, börn hans eru Angela Ýr og Natalie Myrra. Áslaug Krist- jana, f. 1989, maki Borgar Jónsson, f. 1986, börn þeirra: Laufey Líf og Salka Líf. Magn- ús Snær, f. 1993, sambýliskona Álfrún Ýr, f. 1993. 4) Magnús, f. 1955, maki Ásrún Ingólfs- dóttir, f. 1955, börn þeirra: Ingibjörg Ösp, f. 1979, maki Brynleifur Birgir Björnsson, f. 1977, börn þeirra: Birkir Snær, Magnús Breki og Björn Hlynur. Árni Davíð, f. 1993, unnusta hans er Sigrún Hannesdóttir, f. 1995. Útför Áslaugar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 4. desember 2019, klukkan 13. sjálfstæðiskvenna í Hafnarfirði, og Hringnum styrktarfélagi. 17. desember árið 1949 giftist Áslaug Snæbirni Bjarna- syni tæknifræðingi, f. 6. janúar 1924, d. 1981. Hann var sonur Bjarna Snæ- björnssonar, læknis í Hafnarfirði, og Helgu Jónasdóttur húsmóður. Börn Áslaugar og Snæbjarnar eru: 1) Helga, f. 1950, eigin- maður hennar var Gunnsteinn Stefánsson, f. 13. júní 1947, d. 1. mars 2019, börn þeirra: Snæ- björn, f. 1980, maki Jennifer E. Green, f. 1979, börn þeirra: Hekla Lóa og Magni Valur. Stefán Sturla, f. 1981, maki Al- is Heiðar, f. 1985, börn þeirra: Steinar Thor, Finnur Steinn og ónefndur drengur. Árni Pétur, f. 1984, maki Sandra Gests- Elsku mamma lést á heimili sínu Hrafnistu í Hafnarfirði 25. nóvember síðastliðinn. Við fjöl- skyldan héldum henni vel heppn- aða afmælisveislu þegar hún varð níræð. Á leið heim úr gleðskapn- um hafði hún á orði við okkur hjónin að líklega ætti hún eftir að verða 95 ára. Við þetta stóð mamma og lést fimm dögum eftir að þeim áfanga var náð. Við tókum mark á þessum orð- um þar sem hún hafði sýnt okkur að hún hafði ríkt innsæi í eigin líðan. Við gátum treyst því að ef hún kvartaði var vert að hlusta. Við þessi tímamót streyma nú minningar fram og ég fyllist söknuði en ylja mér stolt við góð- ar minningar. Mamma var heil- steyptur persónuleiki, afar góð okkur öllum, börnum mínum og barnabörnum. Hún tókst á við áföll með þrautseigju og seiglu, var trúuð kona og fór með bænir sínar á kvöldin alla tíð. Hún ræktaði garðinn sinn, var fé- lagslynd og áhugasöm um frænd- garðinn og samferðafólk. Hún átti auðvelt með samskipti, var umhyggjusöm og gat glaðst með öðrum. Mamma ólst upp á Lækjar- götu 11 á fallegum stað við læk- inn í hjarta bæjarins. Húsið byggðu þau afi Magnús og amma Sigríður en börnin voru fimm. Það gladdi mömmu að fylgjast með hversu vel hefur verið hugs- að um húsið alla tíð. Við systkinin erum fædd fjög- ur á fimm árum svo það varð fljótt annasamt heimilislífið. For- eldrar mínir keyptu efri hæð í húsi föðurforeldra minna á Kirkjuvegi 5. Mamma var heima- vinnandi, flink í höndunum og út- sjónarsöm. Hún saumaði fötin á okkur, bjó til leikföng, hafði list- rænt auga og ánægju af að skapa og búa til gjafir. Margt fallegt gaf hún mér við ýmis tækifæri sem hún hafði saumað og föndrað. Góðar minningar eigum við systkinin um sumarbústaðardvöl í Sléttuhlíð en þar leigðu þau bú- stað í nokkur sumur meðan við vorum lítil. Við fluttum á vörubíl í byrjun sumars og heim aftur í ágústlok. Faðir okkar sótti vinnu í bænum, tók þvottinn og keypti inn. Foreldrar mínir voru sam- stillt um uppeldi og heimilis- rekstur, voru gestrisin og höfðu ánægju af að bjóða heim vinum og ættingjum. Hjónin nutu hvíld- ar í íslenskri náttúru og gripu tækifærin til þess að fara í tjaldú- tilegur og stunda lax- og silungs- veiðar. Mamma varð fyrir þeirri miklu sorg að missa föður minn allt of snemma en hún varð ekkja 56 ára. Það var henni þungbært. Hún og föðuramma mín Helga bjuggu saman á Kirkjuvegi 5 hvor á sinni hæðinni í 10 ár eftir að mamma varð ein. Þær áttu fal- legt samband sem einkenndist af væntumþykju og virðingu. Einn- ig var kært með mömmu og systrum hennar. Þær hugsuðu vel hvor um aðra og nutu stund- anna saman. En Rúrý lifir systur sínar. Þær voru virkar í starfi eldri borgara. Mamma var prýðilegur bridgespilari og spilaði af metn- aði. Hún hélt iðulega ró sinni, var létt í lund en ef það var þungt í henni og maður spurði nánar út í það var skýringin oft sú að hún hefði fengið slæm spil eða spilað af sér. Það gat setið í henni. Við mamma höfum alla tíð haft góð og náin samskipti. Nú er komið að leiðarlokum og ég þakka elsku mömmu minni sam- fylgdina, megi hún hvíla í friði. Helga. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð, hjartans þakkir fyrir liðna tíð, lifðu sæl á ljóssins friðar strönd, leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir) „Þetta verður allt í lagi.“ Þessi orð hljómuðu af vörum elskulegr- ar tengdamóður minnar á 95 ára afmælisdegi hennar 20. nóvem- ber. Allir skildu þetta, hún var sátt. Áslaug lét sig velferð allra varða, var mjög vinarækin, hafði húmor fyrir sjálfri sér og var um- fram allt sérlega góð og hjartahlý kona sem vildi öllum vel. Á langri ævi lagði lífið henni á herðar ýmsar byrðar sem hún komst í gegnum af æðruleysi og dugnaði. Umhverfi hennar bar vitni um djúpt fegurðarskyn og smekk, og ekki ofsögum sagt að hún hafi verið lekker alla tíð. Ég kveð tengdamóður mína með trega og söknuði, en er jafn- framt ólýsanlega þakklát fyrir að hafa átt hana að í næstum 43 ár. Nú hefur Áslaug Magnúsdóttir lokið verkum sínum hér hjá okkur. Hún hefur haldið á vit feðra sinna og er komin á þann stað sem hún trúði svo einlæg- lega á allt sitt líf og hefur samein- ast Snæja sínum. Blessuð sé minning Áslaugar tengdamóður minnar. Ásrún Ingólfsdóttir. Elsku amma Ása er látin, 95 ára að aldri. Það sem einkenndi ömmu var mikil hlýja, gleði og umhyggju- semi. Alla tíð sýndi hún mér og fjölskyldu minni athygli og alúð, alltaf vildi hún heyra hvað væri að frétta af okkur. Allt til enda var hún að fylgjast með hvað við værum að gera og hvernig við hefðum það. Sem barn var ég mikið hjá ömmu og á dýrmætar minningar af Kirkjuveginum. Var ég oft hjá henni á morgnana áður en ég fór í skólann í fyrsta bekk. Ófáar stundir vorum við saman í eld- húsinu að borða egg í brauði og leggja kapal. Amma gaf mér 10 kr. í hvert sinn sem kapallinn gekk upp, grunsamlegt fannst henni hversu oft kapallinn gekk upp, en amma fetti ekki fingur út í það. Svo gengum við saman í skólann og hún fór í vinnuna á skattstofunni. Amma kenndi mér kvöldbænirnar og var dugleg að fara með mig í sunnudagaskól- ann í Fríkirkjunni. Amma var alltaf vel tilhöfð og fín. Hún lagði mikið upp úr því að hafa fínt heima hjá sér og skreytti til að mynda fallega fyrir jólin. Ég mun sakna þess að kíkja til hennar fyrir jólin. Amma var veisluglöð kona, hélt alltaf upp á afmælið sitt og oftast hittist fjöl- skyldan í kaffi á afmælisdegi afa Snæbjarnar heitins á þrett- ándanum. Kveð þig með þakklæti og hlýju, elsku amma. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson) Ingibjörg Ösp Magnúsdóttir. Þegar ég rifja upp allar þær minningar sem ég á um ömmu Ásu raðast þær ekki upp í línu- lega frásögn, heldur koma til mín í brotum. Margar þeirra eru frá barnæsku. Ég man eftir hvítum bíl sem sótti mig í skólann, man eftir eplaköku sem hún færði mér þegar ég var veikur heima, eftir sjónvarpsholinu á Lækjargötu þar sem við amma horfðum á gamlar, svolítið skrýtnar mynd- bandsspólur sem hún hélt sjálf- sagt að væri barnaefni. Þessar minningar eru ofur hversdags- legar en leita engu að síður sterkt á mig nú þegar amma hef- ur kvatt okkur. Yfir þeim öllum hvílir sú einstaka nærvera sem amma hafði, einhver friðsæl ró og kærleikur sem einkenndi allt hennar fas. Það var gott að vera í kringum ömmu Ásu, sérstök hlýja stafaði af henni sem ég finn fyrir frá fyrstu minningum um hana til hinna síðustu. Öllu sem maður gerði sýndi amma Ása ein- lægan áhuga, helst vildi hún vita allt um alla: „Ef maður spyr aldr- ei veit maður ekkert,“ sagði hún gjarnan þegar hún rak mann á gat með einhverja vitneskju, og þá var manni hollast að rannsaka málið fyrir næstu heimsókn. Amma Ása náði 95 ára aldri, tími sem virðist næstum eins og heil eilífð. Það er tómleiki og söknuður sem fylgir því að geta ekki lengur gengið að ömmu vísri, en eftir situr þakklæti fyrir þá gæfu að hafa átt hana að. Árni Davíð Magnússon. Elsku besta amma Ása. Núna ert þú komin til afa Snæbjörns, það er svo langt síðan þú kvaddir hann og það er svolítið síðan þú varst orðin tilbúin að fara til hans. Þú afrekaðir það að verða 95 ára, lifðir ótrúlega góðu lífi. Ég man þú sagðir alltaf við mig að þig langaði að sjá mig út- skrifast úr menntaskóla áður en þú kveddir, það eru tíu ár síðan. Eftir það sagðirðu mér að þú vildir sjá mig útskrifast úr há- skóla, það eru fimm ár síðan. Undir lokin varstu farin að ræða við mig um barneignir, hvort ég ætlaði ekki að fara að drífa í því svo þú fengir að hitta barnið mitt. Ég man þegar ég komst að því að ég var ólétt síðasta sumar, ég hringdi strax í pabba sem sat þá einmitt hjá þér, pabbi varð svo spenntur að þú fattaðir strax hvaða fréttir ég var að færa hon- um. Þetta var auðvitað leyndar- mál og þú hélst því fyrir þig, en þú sagðir mér að þér hefði fund- ist svo skemmtilegt að hafa vitað þetta manna fyrst og að þetta væri litla leyndarmálið okkar. Svo fæddist dóttir mín í febrúar 2019 og þér fannst svo gaman að hitta hana og knúsast í henni. Ég á svo ótal margar góðar minn- ingar um þig, en þessi minning um þetta er ein sú allra besta og mér þykir ótrúlega vænt um hana og leyndarmálið sem þú geymdir. Það var alltaf svo notalegt að koma til þín, bæði á Lækjargöt- una og svo á Hrafnistu, og sitja hjá þér og spjalla, þú varst alltaf með puttann á púlsinum og vissir hvað væri í gangi í lífinu hjá öll- um börnunum þínum, barna- börnum og barnabarnabörnum. Ég mun sakna þín elsku amma, ég veit að þú ert komin á góðan stað. Þín nafna, Áslaug Kristjana. Áslaug Magnúsdóttir vinkonu minni og varð heima- gangur á heimili hennar á Hrauntungu í Kópavoginum. Man enn hvað ég var heilluð við fyrstu komu. Hún Silla mamma hennar tók á móti mér eins og ég væri sérstaklega velkomin. Hús- ið fullt af fólki. Þrjár eldri systur og tveir yngri bræður sem öll voru vinamörg og einhvern veg- inn varð Hrauntungan miðdepill fyrir allar samkomur. Mitt í öll- um fjöldanum var þessi granna og fallega kona hún Silla. Virtist aldrei pirruð á félagsskapnum, en sá til þess að alltaf væri næg næring fyrir alla. Eitt af því sem gerði Sillu ein- staka var að hún gerði aldrei mannamun. Talaði eins við og um alla og það urðu allir vinir henn- ar. Fyrir utan elskusemina heill- aðist ég svo af frásagnagáfu hennar. Sagði okkur stundum frá atvikum fyrri ára þannig að unun var að hlusta. Þessi frásagnar- gáfa og minni fylgdi henni alla ævi og síðast fyrir tveimur árum í sextugsafmæli tengdasonarins Eyjólfs sat hún hjá okkur hjón- um og sagði ógleymanlegar sög- ur af Reykjavík fyrri tíma. Mér fannst eins og hún yrði ei- líf, en nú er tími kominn til að kveðja og ég votta fjölskyldunni allri samúð mína og þakka góð kynni. Hildur Baldursdóttir. Nú er ríflega hálf öld liðin frá því við vinkonurnar sátum iðu- lega saman yfir skólabókunum á heimilum hver annarrar. Á þess- um árum háttaði þannig til að mæður voru oftast heimavinn- andi en feður sinntu störfum sín- um utan heimilis. Hugsanlega átti þessi tilhögun þátt í því að mæðurnar urðu okkur hand- gengnar, nánast viðbót við vin- konuhópinn. Það átti að minnsta kosti við um Sigurlaugu, eða Sillu, mömmu hennar Önnu Soffíu vinkonu minnar. Þetta var kannski ekki alveg augljóst í upp- hafi en eftir því sem leið á ævina varð mér betur ljóst hvern vin hún hafði að geyma. Að rekast á hana óvænt eða á samkomum var alltaf upplýsandi og ánægjulegt, rétt eins og um gamla vinkonu væri að ræða. Silla var andlega sérlega virk, félagslynd, opin og notaleg í sam- skiptum. Hún gaf af sér og hún leitaði líka fregna eins og góðum vini sæmir. Alltaf var auðfundið hversu stolt hún var af afkom- endum sínum. Enda mátti hún vera það. Hafði sjálf alið sex börn sem öll hafa eignast börn og buru. Hún bar sig alltaf vel, var íþróttakennari að mennt. Kvik á fæti og lipur í öllum hreyfingum. Á skólaárum okkar vinkvenn- anna kom það stundum í hlut mæðranna að uppvarta okkur en það var kannski ekki það sem var eftirminnilegast við Sillu, hún hafði nefnilega í mörg önnur horn að líta. Eitt lærði ég þó hjá henni af eldhúsverkum, ráð sem ég nota enn í dag. Það var að hlusta eftir kökum og öðrum bakstri. Ef ekki brakaði lengur í mátti ganga út frá að kakan væri fullbökuð og óhætt að taka hana úr ofninum. Ég hugsa iðulega til hennar þegar ég hlusta. Eftirminnilegast við Sillu var hins vegar hin góða nærvera. Að rekast á hana á förnum vegi brá birtu yfir daginn. Einhvern veg- inn komst hún líka alltaf beint að efninu, ekkert tafs um ekki neitt. Með þessum fátæklegu orðum vil ég þakka Sillu fyrir hlýhug og vináttu og sendi börnum hennar, ekki síst Önnu og hennar fjöl- skyldu, sem og öðrum afkomend- um samúðarkveðju frá Jónshúsi í Kaupmannahöfn. Aldís Unnur Guðmundsdóttir.  Fleiri minningargreinar um Sigurlaugu Svanhildi Zophoníasdóttur bíða birting- ar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, UNNUR LÁRA JÓNASDÓTTIR frá Elliðaey á Breiðafirði, lést á St. Fransiskusspítalanum í Stykkishólmi 30. nóvember. Útför hennar fer fram frá Stykkishólmskirkju fimmtudaginn 12. desember klukkan 14. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á minningarkort Dvalarheimilisins í Stykkishólmi. Ásgeir Árnason Katrín Pálsdóttir Guðrún Birna Eggertsdóttir Einar Þór Strand Jóhann Garðar Eggertsson Helga Lilja Sólmundsdóttir Unnsteinn Logi Eggertsson Halldóra Halldórsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, MARÍA JÓNASDÓTTIR frá Þuríðarstöðum í Fljótsdal, lést á Landspítalanum við Hringbraut laugardaginn 30. nóvember. Útförin verður auglýst síðar. Soffía Guðbjört Ólafsdóttir Jónas Ólafsson Sæunn Erna Sævarsdóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og vinur, GUÐJÓN VIGGÓSSON frá Rauðanesi, lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands að morgni 22. nóvember. Útför hans fer fram frá Borgarneskirkju föstudaginn 6. desember klukkan 14. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið. Guðbjörg Guðjónsdóttir Unnsteinn Þorsteinsson Kristján Viggó Guðjónsson Hugrún Sif Símonardóttir Inga Lóa Guðjónsdóttir Hilmar Páll Jóhannesson Fjóla Veronika Guðjónsdóttir Ómar Hafberg Guðjónsson Árný Sigtryggsdóttir barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur Jóna Gunnarsdóttir Elsku faðir okkar, JÓNAS GUÐLAUGSSON frá Eyrarbakka, Hólabergi 82, Reykjavík, lést á heimili sínu föstudaginn 29. nóvember. Útförin auglýst síðar. Ingibjörg Jónasdóttir Gísli Ólafsson Nicolai Jónasson Ásta Bjarney Pétursdóttir Jónas Garðar Jónasson Jóhanna Gísladóttir Guðlaugur Jónasson Guðrún Axelsdóttir Sigurður Jónasson Bjarnþóra María Pálsdóttir og fjölskyldur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.