Morgunblaðið - 04.12.2019, Síða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2019
Fundir/Mannfagnaðir
ses.xd.is
Samtök eldri
sjálfstæðismanna, SES
Hádegisfundur SES
Sr. Hjálmar Jónsson, fv. dómkirkjuprestur,
verður gestur á hádegisfundi SES
í dag, miðvikudaginn 4. desember kl.
12:00, í Valhöll, Háaleitisbraut 1.
Húsið opnar kl. 11:30.
Boðið verður upp á súpu
gegn vægu gjaldi,
1000 krónur.
Um er að ræða síðasta
hádegisfund SES fyrir jól
Allir velkomnir.
Með kveðju,
stjórnin.
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9.30-12.30, nóg pláss. Hreyfi-
salurinn er opinn milli kl. 9.30-11.30. Jóga 60+ með Grétu kl. 12.15 og
13.30. Aðventusöngsund við píanóið, með Helgu kl. 13.45. Kaffi kl.
14.30-15. Bókaspjall með Hrafni kl. 15, gestir vikunnar eru hr. Guðni
forseti vor og Vigdís Grímsdóttir rithöfundur. Nánari upplýsingar í
síma 411-2702. Allir velkomnir.
Árbæjarkirkja Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12 og léttur hádegisverður
á eftir gegn vægu gjaldi. Opið hús, félagsstarf fullorðinna, í safnar-
heimili kirkjunnar kl.13 til 16. Þar er boðið upp á stólaleikfimi og
Gerður Kristný mun lesa upp úr nýútkominni ljóðabók sinni. Kaffi og
með því á eftir í boði kirkjunnar. Allir velkomnir.
Árskógar Opin handavinnustofa kl. 9-12. Opin smíðastofa kl. 9-15.
Stóladans með Þóreyju kl. 10. Spænskukennsla kl. 10.45-11.30. Brids
kl. 12. Bónusbíllinn fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.55. Innipútt kl.13-15.
Opið hús, t.d. vist og brids eða bíó. kl. 13-16. Hádegismatur kl. 11.40-
12.50. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni. S: 535-2700.
Boðinn Handavinnustofa er opin frá kl. 9-15, leiðbeinendur mæta kl.
13.30. Leshópur kl. 15.15.
Bólstaðarhlíð 43 Morgunleikfimi með Rás 1 kl. 9.45. Námskeið í
tálgun kl. 9.30-12. Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10-
10.30. Botsía kl. 10.40-11.20. Spiladagur, frjáls spilamennska kl. 12.30-
15.50. Opið kaffihús kl. 14.30-15.15.
Dalbraut 18-20 Félagsvist kl. 13.30 í borðsal. Samverustund með sr.
Davíð Þór frá Laugarneskirkju kl. 14.
Dalbraut 27 Botsía í parketsal kl. 14.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Við hringborðið kl. 8.50. Upp-
lestrarhópur kl. 10-12. Línudans kl. 10. Hádegismatur kl. 11.30. Salat-
bar kl. 11.30-12.15. Miðvikufjör, Soffía Jakobsdóttir heiðruð í tilefni af
80 ára afmæli hennar 2. desember sl. Zumba kl. 13. Tálgun kl. 13.30.
Kraftganga kl. 14. Síðdegiskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir óháð aldri.
Nánari upplýsingar í síma 411-2790.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Bókband kl. 9. Postulínsmálun kl. 9.
Minigolf kl. 10. Tölvu- og snjallsímaaðstoð kl. 10.30. Bókband kl. 13.
Myndlist kl. 13.30. Frjáls spilamennska kl. 13-16.30. Dans með Vita-
torgsbandinu kl. 14. Skráning er í fullum gangi fyrir jólahlaðborðið
föstudaginn 6. desember, áhugasamir skrái sig hjá starfsfólki á 3.
hæð á Vitatorgi. Nánari upplýsingar í síma 411-9450.
Garðabær Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Brids í Jónshúsi kl.
13. Vatnsleikfimi kl. 7.10/7.50/15.15. Kvennaleikfimi Ásgarði kl. 9.30.
Kvennaleikfimi Sjálandi kl. 10.30. Stólajóga í Jónshúsi kl. 11. Leir í
smiðju Kirkjuhvoli kl. 13. Jólafrí Zumba.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 botsía, opinn tími, kl. 13 postulíns-
málun, kl. 13 félagsvist.
Gullsmári Myndlist kl. 9, botsía kl. 9.30, gönguhópur kl. 10.30, postu-
línsmálun, kvennabrids og silfursmíði kl. 13. Línudans fyrir lengra
komna kl. 16 og 17.
Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Útskurður og tálgun með leiðbeinanda frá kl. 9-12, 500 kr. dagurinn
og allir velkomnir. Botsía kl. 10–11. Hádegismatur kl. 11.30–12.30.
Hraunsel Ganga alla daga í Kaplakrika kl. 8-12. Kl. 11 línudans, kl. 13
bingó, kl. 13 handverk, kl. 20 Stórsveitin skemmtir á kráarkvöldi
jólastuð.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps-
leikfimi kl. 9.45. Zumba með Carynu kl. 12.30. Frjáls spilamennska kl.
13. Handavinnuhópur kl. 13-16. Tónleikar Mánakórs kl. 19, allir vel-
komnir.
Korpúlfar Glerlistanámskeið með Fríðu kl. 9-13 í dag. Gönguhópar
kl. 10, gengið frá Borgum og inni í Egilshöll. Hið árlega jólabingó
Korpúlfa kl. 13 í dag í Borgum, margt glæsilegra vinninga og jóla-
stemming. Qigong kl. 16.30 í Borgum. Minnum á jólahlaðborðið á
morgun 5. desember í Borgum, húsið opnað kl. 18.
Selfoss Dagskrá samkvæmt stundaskrá í Grænumörk 5.
Seltjarnarnes Gler og bræðsla á neðri hæð félagsheimilisins kl. 9 og
13. Leir Skólabraut kl. 10. Botsía í salnum á Skólabraut kl. 10. Kaffi-
spjall í króknum kl. 10.30. Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12. Timburmenn
í Valhúsaskóla kl. 13. Handavinna Skólabraut kl. 13. Vatnsleikfimi í
sundlauginni kl. 18.30. Á morgun fimmtudag verður jóla-félagsvist í
salnum á Skólabraut kl. 13.30. Allir velkomnir.
Stangarhylur 4, Göngu-Hrólfar ganga frá Ásgarði Stangarhyl 4, kl.
10, kaffi og rúnnstykki eftir göngu.
Smá- og raðauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
Stórglæsilegur sjónvarps-
skápur Eins og nýr. Ótrúlegt verð.
Breidd: 180cm, hæð: 38cm,
dýpt: 45cm. Fullt verð: 29.950kr,
Tilboð 8.000kr.
Uppl. í síma: 698-2598.
Byggingar
Bygginga verktaki.
Tökum að okkur :
Nýbyggingar
Breytinga
Viðhald húsa
Byggingarstjórn 1,2,3.
Ástandsskoðun húsa.
Tilboð ,tímavinna.
Upplýsingar í síma 893-5374
nybyggd@gmail.com
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur
fyrir veturinn og
tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Vantar þig
pípara?
FINNA.is
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
✝ Haukur Pálma-son fæddist í
Reykjavík 7. febr-
úar 1930. Hann lést
á Droplaugarstöð-
um 24. nóvember
2019.
Foreldrar hans
voru Soffía Sigur-
helga Sigurhjartar-
dóttir, f. 23. apríl
1899, d. 19. ágúst
1990, og Pálmi Ein-
arsson, f. 22. ágúst 1897, d. 19.
september 1985.
Systkini Hauks eru Sigur-
hjörtur, 1926-2001, Jósep Pálm-
ar, 1927-1938, Anna, 1928-2001,
Hreinn, 1931-2001, Auður, 1933-
1934, Friðrik Pálmar, f. 1935,
Sigríður, f. 1939.
Haukur giftist Aðalheiði Jó-
hannesdóttur 17. júlí 1954. Hún
var fædd 9. febrúar 1931 í
Reykjavík og lést 15. júní 1997.
Aðalheiður starfaði sem píanó-
kennari, við skrifstofustörf og
sem leiðsögumaður ferða-
manna. Þau eignuðust þrjú
börn: 1) Anna Soffía, rafmagns-
verkfræðingur og prófessor, f.
7. júní 1958. Börn hennar eru
Haukur Óskar Þorgeirsson, f. 6.
desember 1992, giftur Auði
57, en þá flutti hann ásamt konu
sinni aftur til Reykjavíkur. Hér
heima starfaði Haukur allan
sinn starfsferil hjá Rafmagns-
veitu Reykjavíkur (RR), síðar
Orkuveitu Reykjavíkur. Hann
var verkfræðingur hjá RR 1957-
63 og vann í byrjun við rekstur
Sognsvirkjana, Elliðaárstöðvar
og varastöðvarinnar við Elliða-
ár. Á þessum árum var ráðist í
umfangsmikla endurreisn á raf-
orkukerfi Reykjavíkur þar sem
dreifikerfið var byggt upp,
rekstraröryggi aukið mikið og
flutningsgeta tryggð, þannig að
skömmtun og rafmagnsleysi
varð liðin tíð. Haukur var deild-
arverkfræðingur hjá RR 1963-
69, yfirverkfræðingur 1969-79,
framkvæmdastjóri tæknimála
1979-83 og aðstoðarrafmagns-
stjóri frá 1983 og þar til hann lét
af störfum sökum aldurs árið
2000, en vann við ráðgjöf til 79
ára aldurs. Haukur var fram-
kvæmdastjóri Sambands ís-
lenskra rafveitna 1962-69. Hann
tók þátt í margvíslegum félags-
og trúnaðarstörfum. Hann var
formaður Veiðifélags Elliða-
vatns og átti lengi sæti í stjórn
Skýrsluvéla ríkisins og Reykja-
víkurborgar og var stjórnarfor-
maður þar.
Útför Hauks fer fram frá
Neskirkju í dag, 4. desember
2019, og hefst athöfnin kl. 11.
Tinnu Aðal-
bjarnardóttur, f. 3.
júlí 1992, og Mar-
grét Aðalheiður
Önnu Þorgeirs-
dóttir, f. 11. maí
1996. 2) Jóhannes,
viðskiptafræðingur
og forstöðumaður
hjá Íslandssjóðum,
f. 11. nóvember
1963, giftur Ingu
Björgu Hjaltadótt-
ur, ráðgjafa og lögmanni, f. 10.
febrúar 1970. Börn þeirra eru
Hringur Ásgeir Sigurðsson, f.
28. júlí 1994, Hildur Ylfa, f. 3.
september 2001 og Haukur Odd-
ur, f. 27. október 2005. 3) Helga,
lögfræðingur og sendiherra, f.
18. febrúar 1969, gift Hafþóri
Þorleifssyni, f. 7. nóvember
1967, kennara. Dóttir þeirra er
Urður, f. 23. desember 1999.
Haukur lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík
1950 og síðar námi í raforku-
verkfræði frá Kongunglega
tækniháskólanum í Stokkhólmi
(KTH) árið 1955. Að loknu námi
var Haukur verkfræðingur hjá
AB Elektromekano í Helsing-
borg 1955-56 og sinnti rann-
sóknarstörfum hjá KTH 1956-
Nokkrar minningar mínar um
afa eru svona lítil, hversdagsleg
skot.
Litrík askja af afakexi sem var
alltaf nóg af. Pöddulíf með ís-
lensku tali. Raksápa sem hann
makaði á sig með mjúkum bursta.
Hringur sem hann var alltaf með
og ég æfði mig að læra litina á. Ég
að telja hárin á hausnum hans afa
(þau voru fleiri en þau virtust
vera, og hann þolinmóðari en
flestir myndu vera). Litlu minn-
ingarnar mynda saman mósaík-
mynd af hlýju og umhyggju.
Einu sinni tók afi upp á því að
útskýra loftmótstöðu og þyngdar-
punkta fyrir mér, fimm eða fjög-
urra ára gamalli. Hann sagði mér
sögu af ballerínu á snúningsborði
sem hægðist á þegar hún reisti
löppina út. Hann hafði sérstakt
lag á því að vekja áhuga og forvitni
með svipuðu móti. Við gerðum svo
vísindalegar tilraunir á skrifstofu-
stól sem snerist þar til mér varð
flökurt.
Ég var svo heppin að eiga
margar kaffistundir heima hjá afa
eitt sumarið eftir að ég eyddi dög-
unum í skólagörðunum rétt við
hliðina. Hann sagði mér frá
ömmu, myndlist, fjöllum, vötnum
og rafmagni. En fyrst og fremst
man ég eftir hlýjunni, rólegheit-
unum og örygginu sem fylgdi afa.
Sérstök nærvera sem var alltaf til
staðar, þó að sögurnar hafi runnið
honum úr minni með tímanum.
Alltaf hlýr, næmur og góður.
Alltaf afi.
Margrét Aðalheiður
Þorgeirsdóttir.
Mágur minn, Haukur, var á
sinni löngu ævi mjög hugstæður
mér, hann var mikill mannkosta-
maður. Hann kom fyrst á æsku-
heimili mitt á Njálsgötu sem ung-
ur maður í fylgd systur minnar
Aðalheiðar (Ödu). Hávaxinn og
glæsilegur, með bjart litarhaft,
geðþekkur. Þau giftu sig, bjuggu í
Stokkhólmi á náms- og starfsár-
um hans. Fljótlega eftir heimkom-
una festu þau sér bjarta og fallega
blokkaríbúð í Eskihlíðinni. Þau
Ada sýndu af sér þá einstöku
hjálpsemi að halda brúðkaups-
veislu okkar Þórs heima. Þau
töldu ekki eftir sér að umturna til
að hægt væri að koma þessu við.
Við Þór, maður minn, vorum
lengi búsett í útlöndum. Það var
mikið skrifað af bréfum, svo að ég
gat haldið áfram að fylgjast með
búskapnum og hvernig fjöl-
skyldan þeirra Ödu stækkaði. Þau
hjónin afréðu að fara að byggja.
Tímarnir voru aðrir en núna, lítið
framboð af tilbúnu húsnæði. Rað-
hús við Yrsufell varð heimili
þeirra og æskuheimili barnanna
þriggja marga áratugi. Það var
eins gott að geta tekið til hendinni
sjálfur, Haukur gat gert flest sem
gera þurfti, verkin léku í höndun-
um á honum. Vegna gengisfell-
inga og verðbólgu þurfti oft í
snatri að útvega gólfefni eða ljós
til að gera húsið íbúðarhæft.
Haukur var nú í ábyrgðarstarfi
sem aðstoðarforstjóri Rafmagns-
veitunnar. Rafmagn í Reykjavík
var þá ekki eins tryggt og nú, á að-
fangadag síðdegis varð oft raf-
magnslaust, þá þurfti skjót úrræði
með fjarveru heimilisföðurins.
Hjálpsemi Hauks gagnvart móður
okkar var einstök, hún gat leitað
til hans til að dytta að einhverju,
árum saman hjálpaði hann henni
við skattframtalið.
Eftir að við Þór fluttumst til
landsins varð mikill samgangur.
Þau hjónin var hægt að spyrja um
alla hluti, þau voru hagvön í
Reykjavík. Afmælum, jólum og
nýári var fagnað saman. Margar
skemmtilegar samræður átti mað-
ur við Hauk, hann var afar fróður
maður og átti auk þess auðvelt
með að útskýra – þá var enginn
gúgl-frændi. Haukur var afar þol-
inmóður þó að maður sýndi af sér
fákunnáttu eða fíflaskap.
Þekking Hauks var ekki bara
bundin við Reykjavík, eins og vel
kom fram þegar hann bauð okkur
hjónum í bílferð um suðurhluta
Vestfjarða. Að muna nöfnin á öll-
um fjörðum á Barðaströndinni var
aðdáunarvert! Sem ungur maður
hafði hann unnið með föður sínum,
Pálma landnámsstjóra og þekkti
mörg héruð landsins. Með svo
vönum og öruggum bílstjóra var
þetta skemmtileg og fróðleg ferð.
Haukur varð ekkill 1997. Hann
stofnaði á efri árum til kunnings-
skapar við ágæta konu, jafnaldra,
Karen Lövdahl. Þau voru ánægð
saman, fóru í ferðir innanlands og
utan meðan heilsa beggja leyfði.
Jafnlyndi, góðvild til annarra, um-
hyggjusemi við fjölskyldu og holl-
usta við starfið einkenndu Hauk.
Hann var einstaklega heilsteyptur
maður.
Vinátta okkar hjóna við Hauk
nær yfir næstum 65 ár. Hann
hefði orðið níræður á næsta ári.
Fortíð okkar fléttast of rækilega
sama til að geta gleymst. Og aldrei
bar skugga á. Innilegar samúðar-
kveðjur frá okkur Þór, elsku Anna
Soffía, Jói, Helga og þið öll. Kærar
kveðjur frá börnum okkar, Þóru
og Vésteini og fjölskyldum þeirra.
Jóhanna Jóhannesdóttir.
Haukur Pálmason
Elsku pabbi okkar, tengdapabbi og afi,
HAUKUR PÁLMASON
fyrrverandi aðstoðarforstjóri
Orkuveitu Reykjavíkur,
áður Rafmagnsveitu Reykjavíkur,
lést sunnudaginn 24. nóvember.
Útförin fer fram frá Neskirkju miðvikudaginn
4. desember klukkan 11.
Anna Soffía Hauksdóttir
Jóhannes Hauksson Inga Björg Hjaltadóttir
Helga Hauksdóttir Hafþór Þorleifsson
Haukur Óskar og Auður Tinna
Margrét Aðalheiður og Friðgeir Ingi
Hringur Ásgeir og Ívar
Hildur Ylfa, Haukur Oddur, Urður
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
HARALDUR ÞÓRÐARSON,
áður til heimilis á Gunnarsbraut 36,
Reykjavík,
andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
21. nóvember.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 6. desember
klukkan 11.
Aðstandendur