Morgunblaðið - 04.12.2019, Page 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2019
50 ára Birkir fæddist í
Reykjavík en býr á
Akureyri. Hann rekur
og er eigandi smurolíu-
fyrirtækisins Motul á
Íslandi.
Maki: Sigrún Vésteins-
dóttir, f. 1979, rekur og
er eigandi ferðaþjónustufyrirtækisins
Original North, sem veitir gistingu í
lúxustjöldum ásamt annarri afþreyingu.
Börn: Ýmir, f. 1998, Sunneva Elín, f.
2007, og Una Bára, f. 2012.
Foreldrar: Sigurður Sigfússon, f. 1918, d.
1997, byggingameistari, og Bára Björns-
dóttir, f. 1930, d. 2012, húsmóðir.
Sigurður Birkir
Sigurðsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þótt þú sért úrkula vonar um að
finna lausnina á vandamálinu sem þú
glímir við skaltu ekki gefast upp. Með yfir-
vegun vinnur þú best.
20. apríl - 20. maí
Naut Þér hættir til í hita augnabliksins að
missa sjónar á takmarkinu. Gættu þess þó
að missa þig ekki yfir eyðslu makans, það
eru skýringar á því.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú átt einkar auðvelt með að ná
til annarra. Talaðu um drauma þína og
væntingar við ástvini. Þér verður boðið í
brúðkaup.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ert ákveðin/n í að komast til
botns í gömlu máli. Mundu að þakka fyrir
það góða í lífinu. Þolinmæði er dyggð.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það getur eitt og annað farið úr-
skeiðis þegar menn tala ekki hreint út um
hlutina. Trú þín á aðra eykst.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er alltaf gaman að leika sér og
umfram allt þarftu að gefa þér tíma til
þess að sinna barninu í sjálfum/sjálfri þér.
Taktu athugasemdum annarra með ró.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þetta er ekki verri dagur en hver ann-
ar til að reyna eitthvað nýtt í eldhúsinu.
Hlýddu vel á sjónarmið annarra áður en þú
tekur ákvörðun.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Tilfinningar þínar eru sterkari
og dýpri en þú taldir mögulegt í svona ný-
legu ástarsambandi. Trúðu á sjálfa/n þig
og þá fer allt að ganga betur.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Ef þú ert að huga að fast-
eignakaupum ættirðu að drífa í því á
næstu sex mánuðum. Þú færð atvinnu-
tilboð sem virkar spennandi á þig.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Skyndilausnir geta verið ágæt-
ar svo langt sem þær ná. Mundu fram-
vegis að lofa ekki svona upp í ermina á þér
því það bitnar á heilsunni.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Sköpunarkraftur þinn er með
mesta móti. Gættu þess að þú gangir ekki
of langt í þrifnaðinum og þar með á eigin
heilsu.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Hafðu ekki áhyggjur af því þótt þér
finnist þú vera farin/n að ryðga í fræð-
unum. Hlutirnir rifjast upp hægt og síg-
andi.
þess á milli en hún býr á Akranesi.
„Ég er farin að leyfa mér að eyða
meiri tíma með fjölskyldunni og
Fyrsta mót ársins var í Abu Dhabi
10. janúar og er Valdís síðan búin að
vera á fullu en hún kemst heim í frí
V
aldís Þóra Jónsdóttir er
fædd 4. desember 1989
á Akranesi og ólst þar
upp. „Ég bjó eiginlega á
18. teig fyrstu árin en
átti síðan heima í fimm mínútna fjar-
lægð frá golfvellinum. Ég fór fyrst
að spila 8 ára en byrjaði að æfa 13
ára. Þá hafði ég tapað í umspili um
Íslandsmeistaratitilinn í 12-13 ára
flokki og var svo ósátt að ég byrjaði
að æfa á fullu og vann árið eftir. Ég
var alltaf í golfi, var í vinnuskólanum
frá kl. 7 til 3, skipti um föt, fór svo
heim í mat og á fótboltaæfingu og
fór svo aftur í golf til klukkan 11 á
kvöldin.“ Valdís æfði líka karate og
sund.
Valdís gekk í Grundaskóla, Fjöl-
brautaskóla Vesturlands Akranesi,
Texas State University og Tækni-
skólann í Reykjavík. Hún er með BS
í innanhússhönnun frá Texas State,
útskrifaðist 2013, og útskrifaðist úr
tækniteiknun frá Tækniskólanum í
maí 2019.
Valdís varð Íslandsmeistari í 14-
15 ára flokki stúlkna 2004 og 16-18
ára flokki árið 2007. Hún hefur
þrisvar orðið Íslandsmeistari
kvenna, 2009, 2012 og 2017, en hefur
ekki keppt á Íslandsmótinu síðustu
tvö ár því mótin hafa skarast á við
Opna skoska meistaramótið. Hún
varð einnig Íslandsmeistari kvenna í
holukeppni 2010. Valdís hefur verið
valin íþróttamaður Akraness sjö
sinnum eða oftast allra, 2007, 2008,
2009, 2010, 2016, 2017 og 2018.
Valdís hóf atvinnumannsferilinn
árið 2013 eftir að hún lauk náminu í
Bandaríkjunum. Hún komst á LET
Access-túrinn 2014, Evróputúrinn
2017 og hefur verið á honum síðan
en mótin eru haldin út um allan heim
utan Bandaríkjanna. Löndin eru
orðin um 30 þar sem hún hefur spil-
að, í Asíu, Afríku og Eyjaálfu auk
Evrópu.
Núna er Valdís stödd í Keníu en
síðasta mót ársins í Evrópumótaröð-
inni hefst þar á morgun. Sem stend-
ur er hún í 71. sæti á heildarlista
Evróputúrsins, en 70 efstu halda
sæti sínu á næsta ári. „Ég þarf alla-
vega að komast í gegnum niður-
skurðinn en topp 30 ætti að duga til
að halda sætinu í Evróputúrnum.“
vinum. Þegar maður verður eldri þá
sér maður að það skiptir mestu máli,
ég fór líka í námið í tækniteiknun til
að nýta frítímann. Það er gott að
hafa þá menntun með háskóla-
menntuninni minni.“
Stefnan hjá Valdísi á næsta ári er
að komast á Ólympuleikana í Tókýó
en golfið varð keppnisíþrótt á leik-
Valdís Þóra Jónsdóttir atvinnukylfingur – 30 ára
Fjölskyldan Sigri fagnað á Íslandsmótinu í golfi árið 2012, en það var haldið á Hellu.
Efst íslenskra á heimslista kvenna
Ljósmynd/LET
Dúbaí Valdís í maí sl., en nú er hún stödd í Keníu þar sem mót hefst á morgun.
Vinkonur Valdís, Kristín S. Karls-
dóttir og Kolbrún J. Óladóttir.
Ljósmynd/Heida HB
40 ára Harpa er
Reykvíkingur, ólst upp
í Breiðholti og býr þar.
Hún er verkefnastjóri
hjá Hæfi endurhæf-
ingarstöð.
Maki: Ólafur Karel
Jónsson, f. 1963, sölu-
maður hjá Sláturfélagi Suðurlands.
Börn: Arnar Óli, f. 2005, og Steinar Ingi,
f. 2008. Börn Ólafs úr fyrra hjónabandi
eru Íris Ósk, Jón Karel og Anton Örn.
Foreldrar: Steingrímur Eiríksson, f. 1951,
d. 2018, lögmaður, og Bjarnheiður
Magnúsdóttir, f. 1951, fv. skrifstofu-
maður. Hún er búsett í Kópavogi.
Harpa Sigríður
Steingrímsdóttir
Til hamingju með daginn
Akureyri Hjörvar Patrik fæddist 26.
febrúar 2019 kl. 9.55 á Sjúkrahúsinu á
Akureyri. Hann var 47 cm langur og vó
2.972 g. Foreldrar hans eru Alma
Kristín Gísladóttir og Pálmar
Magnússon.
Nýr borgari
Smiðshöfða 9, 110 Rvk. logoflex@logoflex.is 577 7701 www.logoflex.is
Fallegir
ljósakrossar
• Ljósakrossar á leiði og duftreiti
• Stór glær akrýlkross með glóandi
köntum fyrir leiði
• Minni krossar fyrir duftreiti
• Engin þörf á innstungu
• Íslensk hönnun og framleiðsla
• Rafhlöður lifa yfir jólin (seldar sér)
• Möguleiki á mynd og texta