Morgunblaðið - 04.12.2019, Síða 25

Morgunblaðið - 04.12.2019, Síða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2019 „NÚ LÍTA ÞAU BARA ÚT EINS OG SKÝ. HVAÐ GERÐIST EIGINLEGA? ÞETTA VIRKAÐI Í GÆR.” „ÉG ER NÆSTUM BÚINN MEÐ HANN. ÁTTU NOKKUÐ HÚSGAGNABÓN?” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að leiðast í fyrsta sinn. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann HVERSU MÖRG OKKAR ÞARFTU Á AFMÆLISKÖKUNA ÞÍNA Í ÁR? ÞÚ SEGIR 41 … ERTU AÐ REYNA AÐ ÚTRÝMA OKKUR?!!! VIÐURSTYGGÐ! HVERS KONAR VERÖLD BÚUM VIÐ EIGINLEGA Í? EINHVER ÞJÓFUR STAL BÁTNUM OKKAR! unum 2016 eftir 100 ára hlé. 60 golf- arar keppa á leikunum en aðeins tveir komast frá hverju landi fyrir utan topp tíu golfarana. Valdís er efst íslenskra kvenna á heimslist- anum, en hæst hefur hún náð í 299. sæti. Helstu áhugamál Valdísar eru að vera með fjölskyldu og vinum, fót- bolti, borðspil, lestur og bíómynda/ þátta-gláp. „Ég les mjög mikið, er aðallega í glæpasögum og búin að lesa flestar eftir Yrsu og það sama með Ragnar Jónasson, les líka mikið skandinavískar eins og Jo Nesbø og Camillu Lackberg og tók með mér tvær bækur eftir Stefán Mána til í Keníu.“ Afmælisdeginum verður varið á æfingavellinum en mánudaginn næsta eftir mótið ætlar Valdís í safaríferð. Fjölskylda Systkini Valdísar eru Erlingur Al- freð Jónsson, f. 29.8. 1971, vinnur hjá Olíudreifingu, búsettur í Kópavogi; Arnar Jónsson, f. 4.10. 1973, vinnur hjá SBA Norðurleið, búsettur í Reykjavík, og Friðmey Jónsdóttir, f. 27.4. 1987, forstöðumaður hjá 101 fé- lagsmiðstöð og búsett í Kópavogi. Foreldrar Valdísar eru hjónin Pálína Alfreðsdóttir, f. 26.5. 1952, vinnur á Dvalarheimilinu á Höfða, og Jón Smári Svavarsson, f. 28.10. 1951, bílstjóri hjá BM Vallá á Akra- nesi. Þau héldu upp á 45 ára brúð- kaupsafmæli sitt 16.11. síðastliðinn og eru búsett á Akranesi. Valdís Þóra Jónsdóttir Pálína Alfreðsdóttir vinnur á dvalarheimili á Akranesi Alfreð Viktorsson fv. húsasmíðameistari og fv. verkstjóri á Akranesi Friðmey Jónsdóttir húsfreyja og saumakona á Akranesi, síðar í Reykjavík Viktor Björnsson sjómaður og verkstjóri Akranesi, síðar í Reykjavík Hörður Svavarsson rafvirkjameistari á Akranesi Aðalheiður Rósa Harðardóttir margfaldur Íslandsmeistari í karate og landsliðskona Pálína Eyja Sigurðardóttir húsfreyja og fi skverkakona á Akranesi Erla Karlsdóttir fv. skólaritari á Akranesi Elín Klara Svavarsdóttir kaupmaður á Akranesi Helgi Dan Steinsson golfari Sigþóra Karlsdóttir húsmóðir á AkranesiKarl Þórðarson fótboltakappi Níelsína Sigurðardóttir húsfreyja á Hafnarnesi Þorbergur Þorvaldsson póstur á Hafnarnesi í Fáskrúðsfi rði Sigríður Þorbergsdóttir fi skverkakona á Akranesi Svavar Elíasson verkamaður á Akranesi Klara Sigurbjörg Sigurðardóttir húsfreyja á Akranesi Elías Níelsson verkamaður á Akranesi Úr frændgarði Valdísar Þóru Jónsdóttur Jón Smári Svavarsson bifreiðarstjóri á Akranesi Karl Eðvarð Benediktsson vélstjóri og starfsmaður Akraneshafnar Garðar Benediktsson sjómaður og verkamaður á Akranesi Arnar Gunnlaugsson fótboltakappi Bjarki Gunnlaugsson fótboltakappi Halldóra Garðarsdóttir sérkennari á Akranesi Davíð Hjálmar í Davíðshagayrkir og kallar „hálkuslysa- umræðu í borgarstjórn“: „Menn bramlast við brauðstrit og iðju og brotna á skönkum og miðju svo augljós,“ kvað Dagur, „er almannahagur að koma upp kjötmjölsverksmiðju.“ Jón Gissurarson átti leið í Skagafjörð og skrifar: „Eins og margir vita stendur minnisvarði um Stefán Guðmund Guðmunds- son (Stephan G. Stephanson) á melhól sem Arnarstapi nefnist og er hér við túnfótinn á Víðimýrar- seli. Nokkuð neðan við Arnarstapa eru rústir fjárhúsanna frá Brekku, þar sem Bólu-Hjálmar átti sitt síð- asta athvarf í þessu lífi. Þá er heldur ekki svo ýkja langt að Eli- vogum þar sem Sveinn Hannesson (Elivoga-Sveinn) bjó um tíma, en hann var gjarna kenndur við þann bæ:“ Hending mér í huga rann heillar líkt og sálmar. Aldrei þó ég yrkja kann eins og Bólu-Hjálmar. Stephan G. ég stari á stuðlamálin greini einnig finn ég andann frá Elivoga-Sveini. Ennþá vermir andans þrá óðarvængjum blaka. Hugsi ég um þessa þrjá þá er gott að vaka. Sigmundi Benediktssyni þótti gaman að heyra í Jóni og orti: Rishátt Selið andar í óðblæ stórskáldanna, ofurvel þú yrkir því eins og dæmin sanna. Ingólfur Ómar er fljúgandi hag- mæltur. Á Leirnum er staka eftir hann sem hann hefur leiðrétt þrem sinnum og síðast með þess- ari athugasemd: „Ástæða fyrir því að ég set aðra leiðréttingu er sú að vísan varð að hringhendu sem er bara hið besta mál!“: Brennur glóð í brjósti mér bifast ljóðastrengur, bragahróður ætíð er ástkær þjóðarfengur. Á Lauga-ási hangir uppi á vegg vísa frá gesti sem kallar sig Ó.R.: Í Lauga-ás nú lít ég inn ljúf er stund á minni ferð. Einlægt sömu alúð finn og alltaf sama lága verð. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af þrem skáldum og hálkuslysaumræðu SÓLARFILMUR! Lausnir fyrir heimili og fyrirtæki Sundaborg 3 104 Reykjavík 777 2700 xprent@xprent.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.