Morgunblaðið - 04.12.2019, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 04.12.2019, Blaðsíða 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2019 Að mínu mati hefur Lionel Messi borið höfuð og herðar yfir aðra fótboltamenn á jarðar- kringlunni í rúman áratug. Sjötti Gullboltinn sem féll honum í skaut frá France Football í fyrra- kvöld ber því glöggt vitni. Hann er einhver allra besti knattspyrnumaður sögunnar og líklegt að þegar ferli hans lýkur og komin verður smá fjarlægð á hans afrek verði hann kominn skör ofar en Maradona landi hans og Pelé granni þeirra. Ég var í hópi þeirra 195 íþróttafréttamanna víðs vegar að úr heiminum sem greiddu at- kvæði í kjörinu um Gullboltann. Þar kaus ég á nákvæmlega sama hátt og ég gerði fyrr á þessu ári í kosningu FIFA á þeim besta í heimi og kosningu Samtaka evr- ópskra íþróttafjölmiðla og UEFA á þeim besta í Evrópu. En ég setti Messi í annað sæti í öllum kosningunum. Efstur á blaði hjá mér í öll- um tilvikum var Virgil van Dijk, miðvörður Liverpool og hol- lenska landsliðsins. Í öllum þessum kosningum er það síðasta árið sem miðað er við, ekki ævistarfið. Og þó að Messi hafi átt frábært ár, enn einu sinni, og sé verðugur hand- hafi Gullboltans tel ég að Virgil hinn hollenski hafi haft enn meiri áhrif á frammistöðu síns liðs á þessu ári en Argentínumaðurinn. Liverpool hefur verið nán- ast ósigrandi í meira en ár með Virgil í hjarta varnarinnar og ég man ekki eftir því að hafa séð varnarmann umbylta liði og hafa jafnmikil áhrif á það innan vallar og hann hefur gert. Virgil er án efa besti varnar- maður heims í dag og það magn- aða er að hann hefur svigrúm til að verða enn betri. BAKVÖRÐUR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is AKRANES Kristján Jónsson kris@mbl.is Á undanförnum vikum hafa fjórir leikmenn sagt skilið við úrvals- deildarlið ÍA í knattspyrnu. Einar Logi Einarsson tekur sér frí frá íþróttinni, Arnór Snær Guðmunds- son leggur skóna á hilluna og verð- ur aðstoðarþjálfari ásamt Ingimar Elí Hlynssyni, Albert Hafsteinsson gekk í raðir Fram á dögunum og Gonzalo Zamorano rær einnig á önnur mið. Morgunblaðið hafði samband við Jóhannes Karl Guð- jónsson, þjálfara ÍA, og spurði hann út í leikmannamálin fyrir næsta tímabil. „Aðrir leikmenn eru á samningi og verða áfram hjá okkur. Marcus Johansson á til dæmis ár eftir af samningi við okkur og ég áttaði mig ekki á því hvers vegna umræða skapaðist um að hann væri á för- um. Við fylgjum leikmannastefnu okkar og hún er áfram sú sama. Við ætlum að gefa ungum leik- mönnum og heimamönnum tæki- færi áfram. Við erum með frábær- an 2. flokk sem hefur staðið sig vel og við viljum eiga pláss fyrir þá leikmenn í okkar hópi. Átta leik- menn á þeim aldri voru í æf- ingahópnum hjá okkur á síðasta tímabili. Nú koma nánast allir úr byrjunarliðinu sem var að spila gegn Derby í Evrópukeppninni inn í æfingahópinn hjá okkur. Við fáum upp vel þjálfaða stráka með svaka- lega öflugt hugarfar sem eru góðir í fótbolta. Síðasta sumar vorum við yngsta liðið í Pepsi-deildinni og við viljum gefa þessum strákum tæki- færi og þeir þurfa að grípa þau,“ sagði Jóhannes, en 2. flokkur ÍA varð Íslandsmeistari bæði 2018 og 2019. Fjórir ungir leikmenn á ratsjá liða á Norðurlöndunum Spurður út í mögulega útþrá hjá ungum leikmönnum ÍA segir Jó- hannes það ekki vera leyndarmál að lið á Norðurlöndunum fylgist með fjórum leikmönnum liðsins. Þau muni sjálfsagt gera það áfram en hafi ekki gert tilboð í þá. „Það er áhugi erlendis á okkar mönnum sem hafa verið í U19 ára landsliðinu og U21 árs landsliðinu. Það er ekki leyndarmál að áhugi er á fjórum leikmönnum hjá okkur: Herði Inga (Gunnarssyni), Stefáni Teiti (Þórðarsyni), Bjarka Steini (Bjarkasyni) og Jóni Gísla (Eyland Gíslasyni). Þeir eru efnilegir leik- menn, og unglingalandsliðsmenn, og því skiljanlegt að fylgst sé með þeim. Bjarki Steinn var á reynslu hjá Start og verður til reynslu hjá Örebro eftir áramótin. Stefán Teitur var hjá Álasundi og Jón Gísli hjá Norrköping. Við viljum búa til atvinnumenn hérna á Skag- anum og fyrir okkur er frábært að geta hjálpað þessum strákum að komast í atvinnumennskuna og ná markmiðum sínum. Við leggjum mikið upp úr því enda vekur það athygli þegar ungir leikmenn fá að spila í efstu deild.“ Stoltir í gulu treyjunni Sú stefna félagsins sem Jóhann- es lýsir hér að framan ætti ekki að vera Skagamönnum framandi. Á mestu velgengnisskeiðum liðsins á seinni hluta síðustu aldar voru heimamenn máttarstólpar í liðinu. Framleiðsla leikmanna í yngri flokkum og upp í meistaraflokk var oft óhemjugóð, sérstaklega ef mið er tekið af stærð sveitarfélagsins. „Jú, jú. Við viljum hafa leikmenn í félaginu sem eru stoltir af því að fara í gulu treyjuna og bera ÍA- merkið á brjóstinu. Það skiptir gríðarlega miklu máli. Strákarnir sem eru uppaldir hérna bera virð- ingu fyrir félaginu og vilja spila fyrir sitt lið. Það er einnig mjög mikilvægt og þegar þeir finna að þeir geta fengið tækifæri til að spila ungir með meistaraflokki ÍA leggja þeir enn harðar að sér. Við viljum eiga stráka í yngri lands- liðum og hluti af rekstrarmódeli okkar er að selja leikmenn til er- lendra liða. Á hinn bóginn má segja að liðin sem vinna titla eru gjarnan lið sem eru með leikmenn í eldri kantinum eins og KR sýndi í sum- ar. Það breytir því ekki að við ætl- um hægt og rólega að komast aftur í fremstu röð en það ætlum við að gera með leikmönnum sem koma upp í gegnum unglingastarfið hjá okkur,“ útskýrði Jóhannes, sem leggur áherslu á að sú hugmynda- fræði standi ekki og falli með þeim einstaklingi sem þjálfi meistara- flokk karla á hverjum tíma. „Við höfum mótað afreksstefnu og stefnu í leikmannamálum. Við vinnum í því hægt og rólega. Knattspyrnufélagið ÍA mun von- andi fylgja því eftir um ókomna framtíð. Ég kom að því að móta stefnuna en það eru fleiri en ég sem fylgja þessari stefnu eftir. Ein ástæða þess að ég tók að mér þjálf- arastarfið hjá ÍA er sú að þetta módel er virkilega spennandi til að byggja upp til framtíðar,“ sagði Jó- hannes Karl Guðjónsson enn frem- ur í samtali við Morgunblaðið. Ungir menn njóta trausts á Skaganum  ÍA mun halda uppbyggingarstefnunni áfram að sögn Jóhannes Karls Morgunblaðið/Hari Þjálfarinn Jóhannes Karl Guðjónsson horfir til framtíðar og gefur ungum leikmönnum tækifæri. ÍA » Liðið fór upp úr næstefstu deild haustið 2018. » Lék því í úrvalsdeildinni síð- asta sumar og hafnaði í 10. sæti með 27 stig eins og HK sem hafnaði í 9. sæti. » ÍA vann 7 leiki, gerði 6 jafn- tefli en tapaði 9 á Íslands- mótinu. » Einn leikmaður ÍA, Tryggvi Hrafn Haraldsson, var í liði árs- ins hjá Morgunblaðinu sem val- ið var út frá M-gjöfinni. Hörður Björgvin Magnússon, lands- liðsmaður í knattspyrnu, heldur áfram að spila afar vel með CSKA Moskvu í rússnesku úrvalsdeildinni. Hann er í úrvalsliði 18. umferðar hjá vefsíðu deildarinnar, sem bygg- ir val sitt á tölfræðieinkunnum leik- manna, þrátt fyrir að lið hans hafi tapað á heimavelli, 0:1, gegn Arsen- al Tula í vikunni. Þetta er í fimmta skipti sem Hörður er í liði umferðarinnar á þessu tímabili, og í annað skiptið í röð. Hann leikur iðulega sem mið- vörður með CSKA. Í liði umferðar enn eitt skiptið CSKA Moskva Velgengni Rússar eru hrifnir af frammistöðu Harðar á tímabilinu. Alþjóða frjálsíþróttasambandið hefur ákveðið að fækka greinum á Demantamótum. Er gert ráð fyrir tólf greinum í hverju móti en um er að ræða fimmtán Demantamót. Greinarnar fjórar eru 200 metra hlaup, 3 þúsund metra hindrunar- hlaup, kringlukast og þrístökk. Fram hefur komið að þessar grein- ar verði alla vega ekki í boði á öll- um fimmtán mótunum. Fyrir liggur að ekki verður keppt í þeim á loka- mótinu í Zürich í september. Demantamótaröðin 2020 fer af stað í Doha 17. apríl. Færri greinar á Demantamótum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Kringlukast Grein Guðna Vals er ekki á dagskrá lokamótsins. Íslenska U19 ára landsliðið í knatt- spyrnu karla fer til Ítalíu í lok mars til að spila í milliriðli Evrópukeppn- innar í þessum aldursflokki. Ís- lenska liðið komst áfram úr undan- riðli í Belgíu í síðasta mánuði þar sem það vann mjög sannfærandi sigra á Grikkjum og Albönum og fór áfram ásamt belgíska liðinu. Í milliriðlinum leika strákarnir, undir stjórn Þorvalds Örlygssonar, við Ítali, Norðmenn og Slóvena dagana 25.-31. mars en sigurlið rið- ilsins kemst í átta liða úrslitakeppni EM sem fram fer á Norður-Írlandi næsta sumar. Þá var dregið í riðla fyrir næstu tvær undankeppnir U19 ára liða en þar verður keppnisfyrirkomulag- inu breytt eftir ár. Næsta U19 ára lið leikur í haust í riðli með Noregi, Ungverjalandi og Andorra en það er undankeppni fyrir EM 2021. Í haust byrjar líka undankeppni fyrir EM 2022 en í þessum aldurs- flokki verður framvegis spilað í deildum eins og í Þjóðadeild UEFA. Skipt er í þrjár deildir, Ísland er í B-deild og verður í riðli með Ung- verjalandi, Rúmeníu og Kýpur. Enn fremur var dregið í riðla fyr- ir undankeppni U17 ára liða karla sem verður leikin næsta haust. Ís- land er þar í riðli með Austurríki, Noregi og Moldóvu. vs@mbl.is Strákarnir fara í milliriðil EM á Ítalíu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.