Morgunblaðið - 04.12.2019, Qupperneq 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2019
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Tilnefningar til Fjöruverðlaunanna,
bókmenntaverðlauna kvenna, voru
kynntar í Borgarbókasafninu í gær.
Alls eru níu bækur tilnefndar, þrjár í
hverjum flokki, en flokkarnir
skiptast í barna- og unglingabók-
menntir, fagurbókmenntir og fræði-
bækur og rit almenns eðlis. Verð-
launin verða afhent við hátíðlega
athöfn í Höfða 15. janúar 2019 í
tengslum við árlega bókmenntahátíð
kvenna, Góugleðina.
Lifandi, fallegt og vandað
Í flokki barna- og unglingabók-
mennta eru tilnefndar, í stafrófsröð
höfunda, Kennarinn sem hvarf eftir
Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur sem
Bókabeitan gefur út; Kjarval: Mál-
arinn sem fór sínar eigin leiðir eftir
Margréti Tryggvadóttur sem Iðunn
gefur út og Villueyjar eftir Ragn-
hildi Hólmgeirsdóttur sem Björt
gefur út. Dómnefnd skipuðu Guðrún
Jóhannsdóttir, Hildur Ýr Ísberg og
Sigrún Birna Björnsdóttir.
Í umsögn dómnefndar um Kenn-
arann sem hvarf segir: „Persón-
urnar virðast við fyrstu sýn fremur
einfaldar og staðlaðar en þegar á
reynir eru þær ekki byggðar upp af
staðalímyndum heldur verða þær lif-
andi og margræðar þegar á frásögn-
ina líður rétt eins og frásögnin sjálf.“
Um Kjarval: Málarann sem fór
sínar eigin leiðir segir: „Hér er um
að ræða einstaklega vandaða bók,
fallegan grip sem unun er að skoða
og lesa. […] Það er til mikillar fyrir-
myndar að vanda bókagerð fyrir
börn á þann hátt sem hér hefur verið
gert.“
Um Villueyjar segir: „Ragnhildur
skrifar gott og vandað mál og býr til
sannfærandi fantasíuheim sem inni-
heldur vísanir og skírskotanir til
samtíma og raunheima. Persónu-
sköpun er sannfærandi og lesendur
fá einlæga samúð með örlögum
sögupersónanna. Villueyjar er sann-
arlega gott innlegg í sístækkandi
fantasíuhefð íslenskra ungmenna.“
Áhrifaríkar myndir,
margræðni og ljóðræna
Í flokki fagurbókmennta eru til-
nefndar Svínshöfuð eftir Bergþóru
Snæbjörnsdóttur sem Benedikt
bókaútgáfa gefur út; Okfruman eftir
Brynju Hjálmsdóttur sem Una út-
gáfuhús gefur út og Svanafólkið eftir
Kristínu Ómarsdóttur sem Partus
gefur út. Dómnefnd skipuðu Elín
Björk Jóhannsdóttir, Jóna Guðbjörg
Torfadóttir og Kristín Ástgeirs-
dóttir.
Í umsögn um Svínshöfuð segir:
„Bergþóra dregur fram áhrifaríkar
myndir sem sitja lengi í lesandanum
og vald hennar á tungumálinu er
slíkt að unun er að lesa Svínshöfuð.“
Um Okfrumuna segir: „Ljóða-
heimur Brynju er mjög myndrænn,
ljóðmálið margrætt og þrungið
kvenlegri reynslu. Hér er vel að
verki staðið í spennandi ljóðabók.“
Um Svanafólkið segir: „Sagan
vekur mjög til umhugsunar um
mennskuna og þau landamörk sem
manneskjan setur til að greina sig
frá öðrum og loka sig af. Þá geymir
áhrifamikill textinn gnótt myndmáls
og ljóðrænu sem fangar vel frumlegt
viðfangsefnið.“
Metnaðarfull og forvitnileg
verk byggð á rannsóknum
Í flokki fræðibóka og rita almenns
eðlis eru tilnefndar Listin að vefa
eftir Ragnheiði Björk Þórsdóttur
sem Vaka-Helgafell gefur út; Jakob-
ína: Saga skálds og konu eftir Sigríði
Kristínu Þorgrímsdóttur sem Mál
og menning gefur út og Öræfa-
hjörðin: Saga hreindýra á Íslandi
eftir Unni Birnu Karlsdóttur sem
Sögufélag gefur út. Dómnefnd skip-
uðu Dalrún J. Eygerðardóttir, Sóley
Björk Guðmundsdóttir og Þórunn
Blöndal.
Í umsögn um Listina að vefa segir
að bókin sé „metnaðarfullt verk og
stuðlar að samfellu í verk- og list-
menningu á Íslandi og mun vafa-
laust verða uppspretta hugmynda
og aðferða íslenskra vefara um
ókomin ár“.
Um Jakobínu: Sögu skálds og
konu segir: „Bókin er skrifuð af
dóttur Jakobínu, sem tvinnar ein-
staklega vel saman sögu þessarar
áhugaverðu konu, bréfaskrif milli
Jakobínu og hennar nánustu og ljóð
eftir hana og aðra. Útkoman er for-
vitnileg saga sem gefur ómetanlega
innsýn inn í líf og hugarheim þessa
áhrifamikla skálds.“
Um Öræfahjörðina: Sögu hrein-
dýra á Íslandi segir að verkið sé
ítarleg umhverfissagnfræðileg rann-
sókn þar sem föfundur geri „lesand-
anum kleift að upplifa sögu hrein-
dýranna, með lýsandi texta og ljós-
myndum“ sem dýpki frásögnina.
Morgunblaðið/Eggert
Höfundar Mikil ánægja ríkir eðlilega meðal kvennanna sem tilnefndar eru til Fjöruverðlaunanna í ár.
Níu bækur tilnefndar
Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna, afhent í Höfða 15. janúar í
tengslum við bókmenntahátíðina Góugleðina Verðlaunin voru fyrst veitt 2007
Listi yfir þær plötur sem tilnefndar
eru til Kraumsverðlaunanna í ár
hefur verið birtur og er á þessa leið,
nafn flytjanda fyrst og svo titill:
Andavald - Undir skyggðahaldi,
Ásta Pjetursdóttir - Sykurbað, Berg-
lind María Tómasdóttir - Herberg-
ing, Between Mountains - Between
Mountains, Bjarki - Happy
Earthday, Countess Malaise – Hys-
tería, Felix Leifur – Brot 01 EP/
Brot 02 EP, Grísalappalísa – Týnda
rásin, Gróa - Í glimmer heimi, Gu-
gusar - Martröð, Hildur Guðnadóttir
- Chernobil, Hist og - Days of
Tundra, Hlökk - Hulduhljóð, Hush -
Pandemonial Winds, K.óla - Allt
verður alltílæ, kef LAVÍK – Blautt
heitt langt vont sumar, Korter í flog
– Anna & Bernhard Blume (drepa
alla fasista), Kristín Anna - I must be
the devil, Milena Glowacka - Radi-
ance, Myrra Rós - Thought Spun,
Sideproject - sandinista release
party / ætla fara godmode, Skoffín -
Skoffín bjargar heiminum, Stormy
Daniels - AGI STYRKUR EINBEIT-
ING HARKA ÚTHALD HAFA
GAMAN, Sunna Margrét - Art of Hi-
story og Tumi Árnason / Magnús
Trygvason Eliassen - Allt er ómælið.
Kraumsverðlaunin verða afhent
við hátíðlega athöfn seinna í mán-
uðinum og er tilgangurinn með þeim
að kynna og styðja við plötuútgáfu
íslenskra listamanna og hljómsveita
með því að verðlauna og vekja sér-
staka athygli á þeim verkum sem
þykja skara fram úr í gæðum, metn-
aði og frumleika.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Dúett Between Mountains á tónleikum.
Tilnefndar til
Kraumsverðlauna
ICQC 2020-2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambíó.is