Morgunblaðið - 04.12.2019, Page 32
Myndlistarmaðurinn Ragnar Kjart-
ansson verður með eintal á sýningu
spunahópsins Improv Ísland í kvöld
kl. 20 í Þjóðleikhússkjallaranum. Á
Facebook-síðu hópsins segir að það
sé auðvitað eðlileg þróun í kjölfar
sýninga Ragnars í New York og Stutt-
gart að hann verði með eintal á sýn-
ingu spunahópsins. „Við hlökkum
rosalega til að taka listina á annað
level með Ragnari,“ segir á Facebook.
Ragnar með eintal
á spunasýningu
MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 338. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Norska kvennalandsliðið í
handknattleik, undir stjórn
Þóris Hergeirssonar, hefur
farið vel af stað á heims-
meistaramótinu í Kumamoto í Jap-
an þar sem það sigraði Serba í
þriðja leik sínum í gær. Það er hins
vegar ljóst að liðið er á leið í
geysilega sterkan milliriðil á
mótinu. »26
Góð byrjun Noregs
en erfitt fram undan
ÍÞRÓTTIR MENNING
„Við ætlum hægt og rólega að
komast aftur í fremstu röð en það
ætlum við að gera með leik-
mönnum sem koma upp í gegnum
unglingastarfið hjá
okkur,“ segir Jó-
hannes Karl Guð-
jónsson, þjálfari
karlaliðs ÍA í
knattspyrnu, í
samtali við
Morgun-
blaðið í dag
um leik-
mannamál hjá
liðinu. Hann
horfir til 2.
flokks félagsins,
sem orðið hefur Íslands-
meistari tvö ár
í röð. » 26
Uppbyggingarstarfið
heldur áfram hjá ÍA
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Með lögum skal land vort byggja,
lög gilda um jafna stöðu og jafnan
rétt kvenna og karla og rótgróin
karlavígi falla hvert af öðru. Eitt
þeirra er Lögreglukór Reykjavíkur.
Hann var stofnaður fyrir um 85 ár-
um og var alfarið skipaður körlum
þar til hann var endurvakinn í fyrra
með jafnri þátttöku karla og kvenna
og heitir síðan einfaldlega Lögreglu-
kórinn.
Sigríður Drífa Elíasdóttir rann-
sóknarlögreglumaður tók þátt í að
rífa Lögreglukórinn upp í fyrra.
Hún segir að nokkrar lögreglukonur
hafi haft áhuga á því að syngja og
talað um að stofna kvennakór ef
þær fengju ekki inni í Lögreglu-
kórnum. „Þegar ákveðið var að
koma kórnum í gang á ný var okkur
vel tekið og við höfum nú æft og
sungið saman í rúmt ár.“
Ragnar Þór Árnason, varðstjóri
umferðardeildar og kórfélagi, segir
að erfitt hafi verið að halda úti
vinnustaðakórum og öðrum áhuga-
mannakórum. „Við lentum í því eins
og svo margir aðrir og því var kær-
komið að fá konurnar til liðs við
okkur.“
Fyrsta stóra verkefni blandaða
kórsins var þátttaka ásamt yfir 20
lögreglukórum frá Norðurlöndum í
sérstakri hátíðardagskrá í tilefni 100
ára afmælis Lögreglukórsins í
Stokkhólmi sl. vor. „Það var mjög
skemmtilegt, ógleymanleg ferð,“
segir Sigríður Drífa. „Þetta starf er
gott fyrir líkama og sál, félags-
skapurinn er góður og alltaf er pláss
fyrir fleiri.“
Fjölmennt kóramót
Um 30 manns eru í kórnum og er
hlutfall karla og kvenna nokkuð
jafnt. Stjórnandinn Matthías V.
Baldursson stjórnar jafnframt
tveimur öðrum kórum, Rokkkórnum
og Gospelkór Smárakirkju, og hefur
Lögreglukórinn komið fram með
þeim. „Við verðum stöðugt betri og
eigum vonandi eftir að koma oft
fram opinberlega,“ segir Sigríður
Drífa. „Ég var í barnakór, mér hef-
ur alltaf þótt gaman að syngja og
þetta er kærkomið tækifæri til þess
að skemmta sér.“
Kóramótið í Stokkhólmi tókst vel
og skilaði árangri. „Um árabil var
haldið norrænt lögreglukóramót á
fjögurra ára fresti og á hátíðinni í
Stokkhólmi var ákveðið að endur-
vekja það og byrja á Íslandi,“ segir
Ragnar. Hann bætir við að búast
megi við yfir 20 kórum og því þarfn-
ist mótið mikils undirbúnings.
Lögreglukórinn hefur sungið
víða heima og erlendis og auk
þess gefið út nokkra geisladiska.
Hefðbundin verkefni hafa verið í
aðdraganda jóla og lokatónleikar
fyrir sumarfrí, en auk þess hefur
kórinn verið eftirsóttur við ýmis
tækifæri, meðal annars við útfarir.
Kórinn æfir vikulega í Laugar-
neskirkju og syngur þar í nokkr-
um messum, meðal annars sunnu-
daginn 15. desember, en hluti
kórsins söng í aðventukaffi lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu
síðastliðinn sunnudag.
„Við höfum fengið margar
beiðnir um að koma fram hér og
þar,“ segir Ragnar. „Auk þess
sjáum við alltaf um framkvæmd
messu Landsambands lögreglu-
manna 1. maí.“
Ljósmynd/Lögreglan
Í aðdraganda jóla Hluti kórsins söng í aðventukaffi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu síðastliðinn sunnudag.
Eitt síðasta vígið fallið
Lögreglukórinn er nú blandaður kór karla og kvenna
Um þrjátíu manns æfa vikulega og koma æ oftar fram
ÁSKR I FTARLE IKUR MORGUNBLAÐS INS
Heppinn
áskrifandi
hlýtur
að gjöf
Hästens
HERLEWING®
handgert rúm úr
náttúrulegum efnum
að verðmæti 3.225.900 kr.
Fátt jafnast á við að opna Morgunblaðið eftir
góðan nætursvefn. Fyrir einn af áskrifendum
Moggans nær þessi ljúfa morgunstund nýjum
hæðum eftir að við drögum í áskriftar-
leiknum okkar föstudaginn 20. desember.
ÞAÐ BORGAR SIG AÐ LESA MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið og Hästens eru stolt af því að
vinna saman að því að gefa einum heppnum
áskrifanda Morgunblaðsins Herlewing-rúm
frá Hästens.
Verslun Hästens á Íslandi er til húsa í
Faxafeni 5, á sama stað og Betra bak.
KAUPTU
ÁSKRIFT
Í SÍMA 569 11
00