Morgunblaðið - 11.12.2019, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 11.12.2019, Qupperneq 1
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Þótt veðrið hafi heldur verið að ganga niður á höfuðborgarsvæðinu seint í gærkvöldi og á vesturhluta landsins heldur lægðin áfram að valda landsmönnum erfiðleikum. Spáð er leiðindaveðri á Austurlandi í dag. Sérstaklega er varað við hvöss- um vindi og vindhviðum á Suðaust- urlandi. Undir Vatnajökli gæti vind- hraðinn orðið 30 metrar á sekúndu og hviðurnar farið yfir 50 metra. Aðgerðastjórnir á Austurlandi eru í viðbragðsstöðu vegna óveðursins. Fara átti yfir málin aftur í nótt eða snemma morguns. Skólahald fellur niður og flestum vegum verður lok- að. Íbúar eru hvattir til að fylgjast með veðurspám og vera ekki á ferð- inni nema af brýnni nauðsyn. Sveitir sinntu 430 verkefnum Veðrið í gær var verst á Norður- landi vestra. Björgunarsveitir, lög- regla og aðrir viðbragðsaðilar komu fólki og húseigendum til aðstoðar. 640 björgunarsveitarmenn voru á vaktinni og um klukkan 21.30 í gær- kvöldi höfðu þeir sinnt liðlega 430 verkefnum. Talsvert eignatjón varð en ekki er vitað um slys á fólki. Rafmagn fór af víða á Norðurlandi og Vestfjörðum en varaafl er keyrt á flestum stærri stöðum. Mesta tjónið varð á Kópaskerslínu þar sem á ann- an tug straura brotnaði. Tekur marga daga að gera við línuna. Óveðrið færist yfir Austurland  Austfirðingar búa sig undir slæmt veður með lokun vega og skóla og fólk er hvatt til að halda sig heima  Spáð er miklu hvassviðri undir Vatnajökli  Talsvert eignatjón á landinu í óveðrinu í gær en ekki er vitað um nein slys á fólki MÓVEÐUR Á AÐVENTU»2, 4, 6, 14 og ViðskiptaMoggi Vindhraði í 10 m hæð Vindstyrkur á miðnætti í nótt REYKJAVÍK 18 m/s STYKKISHÓLMUR 25 m/s AKUREYRI 20 m/s RAUFARHÖFN 26 m/s BLÖNDUÓS 27 m/s EGILSSTAÐIR 3 m/s BOLUNGARVÍK 24 m/s HÖFN 7 m/s STÓRHÖFÐI 25 m/sm/s 0 2,5 5 10 15 20 30 Ko rt a g ru n n u r: W in d y. co m V in d h ra ð i: V e ð u rs to fa Ís la n d s M I Ð V I K U D A G U R 1 1. D E S E M B E R 2 0 1 9 Stofnað 1913  291. tölublað  107. árgangur  ANNA JÓA OG GÚSTAV GEIR Í HVERAGERÐI FIMMTÁN SKOT Í HÖFUÐIÐ ENN LENGRI KYRRSETNING MAX-VÉLANNA LÁRUS HELGI ÍÞRÓTTIR VIÐSKIPTAMOGGINNMYNDLISTARSÝNING 29 A ct av is 91 10 13 Omeprazol Actavis 20mg, 14 og 28 stk. Magasýruþolin hörð hylki ætluð fullorðnum til skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis (t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu lagi með hálfu glasi af vatni fyrir mat eða á fastandi maga. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og auka- verkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is Stekkjastaur kemur í kvöld 13 jolamjolk.is dagar til jóla

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.