Morgunblaðið - 11.12.2019, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2019
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratug
a
reynsla
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Óveður á aðventu
Veðurofsinn sem gengið hef-
ur yfir landið hefur áhrif á
dreifingu Morgunblaðsins og
annarra blaða í dag og á
morgun.
Áhrifin verða mest í dag,
einkum á Norðurlandi, en
gert er ráð fyrir að lokað
verði fyrir bílaumferð norður
í land í dag. Þar er því útlit
fyrir að blað dagsins verði
borið út með fimmtudags-
blaðinu og líkur eru einnig á
að dreifingin á morgun verði
sein vegna áhrifa veðursins.
Á höfuðborgarsvæðinu
verður seinkun á dreifingu í
dag en leitast verður við að
lágmarka tafir í allri dreif-
ingu þar líkt og annars staðar
á landinu eins og kostur er á.
Tafir á dreifingu
vegna veðursins
Helgi Bjarnason
Þorgerður Anna Gunnarsdóttir
„Það hjálpar gríðarlega mikið til að
almenningur hefur tekið tillit til
þessa veðurs og ekki verið á ferð-
inni,“ segir Rögnvaldur Ólafsson,
lögreglufulltrúi hjá almannavarna-
deild ríkislögreglustjóra og for-
svarsmaður samhæfingarstöðvar-
innar í Skógarhlíð. Þorsteinn V.
Jónsson, veðurfræðingur á Veður-
stofu Íslands, tekur í sama streng:
„Almenningur hefur tekið vel við
sér og ber að þakka það.“ Rætt var
við þá í gærkvöldi.
„Það er hugmyndin með viðvör-
unarkerfinu að fólk bregðist við til
að minnka samfélagsleg áhrif og
tjón. Vonandi verður þetta til þess
að ekki verði mikið tjón eða alvar-
leg slys,“ segir Þorsteinn.
Góður undirbúningur
Rögnvaldur sagði að staðan væri
góð enda hefði allur undirbúningur
viðbragðsaðila verið til fyrirmynd-
ar, auk þess sem forvirkar lokanir
Vegagerðarinnar hefðu skilað til-
ætluðum árangri.
Viðvaranir Veðurstofunnar voru
sterkar og þar var í fyrsta skipti
notuð rauð viðvörun frá því farið
var að gefa út litamerktar veðurvið-
varanir fyrir rúmum tveimur árum.
Spáin gekk nokkuð vel eftir. Helsta
frávikið er að sögn Þorsteins að
veðrið var verra á Norðurlandi
eystra en í fyrstu var búist við. Við
því var brugðist með viðvörunum í
gær.
Sums staðar á höfuðborgarsvæð-
inu varð fólk ekki mikið vart við
óveðrið. Þorsteinn bendir á að
svæðið sé stórt og fjölbreytt. Sums
staðar, eins og til dæmis á Seltjarn-
arnesi, hafi verið hvasst og þar hafi
vindhraðinn farið upp í 28 metra á
sekúndu.
Veðrið var verst á Norðurlandi
vestra í gær. Vindhraðinn á
Blönduósi fór upp í 35-36 metra á
sekúndu sem er óvenjulegt á þeim
stað.
Veðrið var að ganga niður á
höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og
verkefnum að fækka hjá björgunar-
sveitunum í flestum landshlutum
nema helst á Suðurnesjum og í
Vestmannaeyjum.
Veðrið var að færast yfir til aust-
urhluta landsins. Þorsteinn segir að
búast megi við því að það gangi yfir
Austurland og Suðausturland með
hvelli í fyrramálið. Á hann von á
leiðindaveðri. Sérstaklega er horft
til sveitanna undir Vatnajökli. Þar
getur meðalvindur farið vel yfir 30
metra á sekúndu og hviður í yfir 50
metra. Það telst ofsaveður.
Morgunblaðið/Óskar Pétur
Rok í Eyjum Meðal viðfangsefna björgunarmanna í Vestmannaeyjum var að tryggja þök húsa.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Múlahverfi Góður tækjakostur kom sér vel í útköllum í gær.
Almenningur tók við sér
Morgunblaðið/Eggert
Samhæfing Lögreglumenn og björgunarsveitarmenn fylgjast með þróun
mála og huga að aðgerðum í samhæfingarstöð í Skógarhlíð.
Veðurspár virðast ganga nokkurn veginn eftir og veðurviðvaranir Veðurstofu Íslands og undirbún-
ingur stofnana og samtaka gæti hafa dregið úr tjóni á eignum Spáð ofsaveðri á Suðausturlandi í dag
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Grandi Á höfuðborgarsvæðinu var rokið mest á Seltjarnarnesi og vestast í
Vesturbænum. Hætta skapaðist þegar veggklæðningar tóku flugið.
Straumur fór af þónokkrum byggð-
um í gær, einkum á Norðurlandi og
Vestfjörðum. Dísilstöðvar eru
keyrðar sem varaafl á flestum
stærri stöðum. Alvarlegasta bilunin
varð á Kópaskerslínu þar sem
nokkuð á annan tug staura brotn-
uðu. Ljóst er að það tekur að
minnsta kosti viku að gera við lín-
una.
Bilanirnar eru bæði á flutnings-
kerfi Landsnets og dreifikerfi Ra-
rik. Þær hafa aðallega orðið vegna
ísingar og vinds en einnig vegna
samsláttar lína. Tekist hefur að
gera við bilanir sums staðar en ann-
ars staðar er ekki aðstaða til að
kanna skemmdir hvað þá gera við
vegna veðurhæðar. Nokkrar sveitir
voru alveg rafmagnslausar í gær-
kvöldi.
Dísilstöðvar sjá Kópaskeri,
Raufahöfn, Þórshöfn og Bakkafirði
fyrir rafmagni en sums staðar þarf
að skammta orku. Tryggvi Þór
Haraldsson, forstjóri Rarik, segir
að fyrirtækið sé að útvega sér olíu
til að keyra vélarnar í viku eða 10
daga því það taki tíma að gera við.
Vestfirðir skornir frá
Vandræði hafa verið með Sauð-
árkrók vegna bilunar á línu Lands-
nets frá Varmahlíð. Rafmagn fyrir
bæinn er framleitt með dísilvélum
en einnig er rafmagn skammtað.
Geiradalslína sem er eina teng-
ing Vestfjarða við raforkukerfi
landsins bilaði í gær. Flestar
byggðir njóta varaafls sem fram-
leitt er með dísilvélum auk orku frá
Mjólkárvirkjun. helgi@mbl.is
Tekur viku að gera
við Kópaskerslínu