Morgunblaðið - 11.12.2019, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2019
Veðurofsinn í gær náði víða umland og olli jafnvel skap-
ofsaköstum sem varla verða skýrð
með öðru en djúpri
lægð og snjóbyl svo
mögnuðum að fyllir
öll vit. Á Alþingi
áttu sér stað orða-
skipti sem voru
ofsafengin mjög.
Helgi Hrafn Gunn-
arsson, þingmaður
Pírata, náði í orðaskaki við forseta
þingsins nýjum lægðum sem sjálf-
sagt enda í einhverjum sögubók-
um.
Undir liðnum fundarstjórn for-seta fór Helgi mikinn gegn
frumvarpi um þjóðkirkjuna og fór
ekki á milli mála að andaði mjög
köldu frá þingmanninum í garð
þeirrar ágætu stofnunar.
Þegar forseti reyndi að koma íveg fyrir að Helgi misnotaði
umræður um fundarstjórn forseta
til að ræða málið efnislega hvein í
Helga og sagði hann málið varða
„allra óheiðarlegasta samning sem
gerður hefur verið“.
Eftir mikið þvarg bætti Helgivið einni mátulega smekk-
legri athugasemd: „Svo á að af-
greiða þetta fyrir áramót, rétt fyr-
ir jól, nota jólin sem enn eina
tilfinningakúgunina til að koma
hagsmunum þjóðkirkjunnar að
umfram hagsmuni annarra trúar-
safnaða í landinu.“
Fjandskapur Helga í garð þjóð-kirkjunnar eða kristilegs jóla-
halds leynir sér ekki, en er til of
mikils mælst að fjandskapurinn sé
settur fram af lágmarkskurteisi og
yfirvegun, að ógleymdri virðingu
gagnvart trú annarra? Eða er það
„tilfinningakúgun“ að fara fram á
slíkt?
Helgi Hrafn
Gunnarsson
Veðurofsinn
í þingsalnum
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Alþingismenn eru á faraldsfæti
þessa vikuna og sækja fundi og þing
víða um heim. Alls verða 11 alþing-
ismenn á fundum erlendis.
Fundur forsætisnefndar Norður-
landaráðs er haldinn í Noregi dag-
ana 9.-10. desember. Þátttakendur
eru Oddný G. Harðardóttir, Silja
Dögg Gunnarsdóttir, Steinunn Þóra
Árnadóttir og Helgi Þorsteinsson
starfsmaður skrifstofu Alþingis.
Fundur IPU, loftslagsráðstefna
Sameinuðu þjóðanna, fer fram í
Madrid dagana 9.-12. desember.
Þátttakendur eru Guðmundur Andri
Thorsson, Kolbeinn Óttarsson
Proppé, Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson, Sigríður Á. Andersen og
Arna Gerður Bang starfsmaður
skrifstofu Alþingis. Kolbeinn
Proppé sækir ennfremur loftslags-
ráðstefnu SÞ í Madríd (Norður-
landaráð) 10.-12. desember.
Fundur laga- og mannréttinda-
nefndar Evrópuráðsþingsins verður
haldinn í París 10.-11. desember.
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir sækir
fundinn. Þórhildur Sunna og Rósa
Björk Brynjólfsdóttir sækja svo
fund framkvæmdastjórnar Evr-
ópuráðsþingsins í París 13. desem-
ber.
Fundur þingmannanefndar um
norðurskautsmál verður haldinn í
New York og Washington 9.-11. des-
ember. Ari Trausti Guðmundsson
situr fundinn. Loks situr Þorgerður
K. Gunnarsdóttir ráðstefnu NATO-
þingsins 9.-11. desember í Wash-
ington. Fimm varamenn hafa tekið
sæti á Alþingi fyrir þá þingmenn
sem eru í útlöndum. sisi@mbl.is
Ellefu þingmenn á fundum erlendis
Morgunblaðið/Eggert
Alþingi Þingmenn eiga að fara í
jólafrí frá og með næstu helgi.
Samtals sótti 41 um starf útvarps-
stjóra Ríkisútvarpsins, en starfið var
auglýst laust til umsóknar 15. nóvem-
ber eftir að Magnús Geir Þórðarson
sagði starfi sínu lausu og var svo skip-
aður þjóðleikhússtjóri frá og með ára-
mótum. Þetta kemur fram í tilkynn-
ingu frá stjórn RÚV, sem fundaði um
umsóknirnar á sérstökum fundi í gær.
Ekki fylgdi með hverjir sóttu um
stöðuna.
Meðal þeirra sem þegar hafa stað-
fest sjálfir að þeir hafi sótt um eru
Svanhildur Hólm Valsdóttir, aðstoð-
armaður Bjarna Benediktssonar fjár-
málaráðherra, Elín Hirst, fv. frétta-
stjóri og þingmaður, Steinunn Ólína
Þorsteinsdóttir leikkona, Kristín Þor-
steinsdóttir, fv. útgefandi og ritstjóri
Fréttablaðsins, Kolbrún Halldórs-
dóttir, fv. þingmaður, og Baldvin Þór
Bergsson fréttamaður.
Fram hafði komið að stjórnin ætl-
aði ekki að gefa upp nöfn umsækj-
enda en það hefur harðlega verið
gagnrýnt, meðal annars af Páli Magn-
ússyni, þingmanni Sjálfstæðisflokks-
ins og fyrrverandi útvarpsstjóra. Þá
hefur Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og
menningarmálaráðherra, óskað eftir
skýringum frá stjórninni á því af
hverju ákveðið hafi verið að birta ekki
nöfnin. Fram kemur í tilkynningunni
frá stjórn RÚV að á næstu vikum
verði farið yfir umsóknir og hefur
stjórnin fengið ráðningarfyrirtækið
Capacent til að hafa umsjón með því
verkefni. Stjórnin segist stefna að því
að ganga frá ráðningu nýs útvarps-
stjóra í lok janúar næstkomandi.
41 sótti um starf
útvarpsstjóra
Svanhildur Hólm meðal umsækjenda
Steinunn Ólína
Þorsteinsdóttir
Kristín
Þorsteinsdóttir
Svanhildur Hólm
Valsdóttir
Elín
Hirst