Morgunblaðið - 11.12.2019, Side 14

Morgunblaðið - 11.12.2019, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Íslendingarfengu aðkynnast ógn- arkröftum nátt- úrunnar þegar djúp lægð með ofsaveðri og að hluta til of- ankomu gekk yfir landið í gær og áfram í dag sam- kvæmt spám Veðurstof- unnar. Þegar þetta er skrifað virðast spárnar ætla að ganga að mestu eftir, sem skiptir miklu þegar slíkt af- takaveður er annars vegar og tryggir að hægt sé að hafa uppi nauðsynlegan viðbúnað. Svo virðist sem viðbún- aðurinn hafi verið til fyrir- myndar og þær aðvaranir sem almannavarnadeild ríkislögreglustjóra gaf út í samráði við lögreglustjóra á landsbyggðinni, meðal ann- ars síðdegis í gær um að hækka viðbúnaðarstig á ákveðnum svæðum af óvissu- stigi yfir á hættustig, skipta miklu til að draga úr hætt- unni sem slíkt óveður getur skapað. Þó að maðurinn telji sig gjarnan hafa öll ráð í hendi sér og finnist hann jafnvel hafa beislað náttúruna verð- ur hann alltaf jafn smár þeg- ar slíkur veðurhamur leggst yfir og stormur og stórhríð taka öll völd. Við þær að- stæður getur maðurinn lítið annað gert en að koma sér í skjól og bíða þess að lægi og þá er ákaflega mikilvægt að hafa stofnanir sem fylgjast með veðri og vara við hætt- unni sem því kann að fylgja. En náttúran á sér fleiri ógnvekjandi hliðar. Nýja- Sjálandi og Íslandi er gjarn- an líkt saman þó að lengra gæti tæpast verið á milli þessara tveggja landa. Báðar þessar eyjar fá til dæmis reglulega að kynnast elds- umbrotum og í fyrradag minnti eldfjallið á Hvítueyju, sem er lítið annað en topp- urinn á eldfjalli, á sig með hörmulegum afleiðingum. Hvítaeyja er mjög virk eld- stöð en engu að síður er hún eftirsóttur ferðamanna- staður og heimsókn þangað þykir mögnuð upplifun. Um leið er hún hættuleg og eins og fram kom í samtali mbl.is við íslenskan eldfjallafræð- ing sem þangað hefur komið má setja spurningarmerki við ferðamennskuna sem þar er stunduð. Eldgosið á mánudag var ekki stórt, en hefur engu að síður orðið nokkrum að bana. Ekki liggur nákvæmlega fyr- ir hve margir fór- ust, en það sorg- lega er að ef til vill hefði, með meiri varúð, mátt koma í veg fyrir manntjón. Jarðhræringar í liðinni viku höfðu bent til þess að stutt kynni að vera í eldgos, en viðvörunarstig var samt ekki hækkað nægilega til að fólk hætti við ferðalag út í eyjuna. Eflaust verður þetta tekið til athugunar í framhaldinu á Nýja-Sjálandi og leitast við að læra af reynslunni. En það kann að vera ástæða víðar til að læra af þessari reynslu. Í Morgunblaðinu í gær var bent á að viss líkindi væru með Heklu og Hvítueyju og að á Heklu væri töluverð ferðamennska líkt og á þess- ari hættulegu eyju Nýja- Sjálands. Jarðeðlisfræðingur sem rætt var við benti á að oftast væri ferðafólk á göngu í hlíðum Heklu og að með því setti það sig í hættu. Auk þess væri mikil umferð flug- véla yfir fjallið. Minna má á að Hekla gaus síðast um aldamótin og nokk- uð reglulega á áratugar fresti næstu áratugi á undan. Það segir vitaskuld ekkert ákveðið um hvenær vænta má næsta Heklugoss, en þó má segja að ólíklegt sé að þess verði langt að bíða. Og þegar haft er í huga að þeir sem leggja leið sína á fjallið eru taldir hafa afar skamman tíma, ef til vill hálfa til eina og hálfa klukkustund, til að koma sér úr hættu ef um- merki sjást um að gos sé í vændum, þá má sjá hve vara- samt er að leggja á fjallið og hve mikilvægt er að þeir sem það kjósa engu að síður að gera hafi uppi allan þann við- búnað sem hægt er. Aðvörunarorð um Heklu og hörmuleg reynsla Nýsjá- lendinga eru mikilvæg áminning um að umgangast verður náttúruna af virðingu og varúð. Hið sama má segja um reynslu Íslendinga af hafinu og jafnvel ströndinni, eins og Reynisfjara er dæmi um. Við viljum að sjálfsögðu ekki hætta að njóta náttúr- unnar, en við verðum að tryggja að við búum áfram við jafn ágætt viðvörunar- kerfi og fór í gang vegna veð- ursins sem gengur yfir land- ið og að samskonar kerfi sé virkt fyrir fleiri hættur og tryggi sem best öryggi íbúa og ferðamanna hér á landi. Viðbúnaðarkerfi almannavarna eru gríðarlega mikilvæg} Ógnir náttúrunnar F angar eiga rétt á almennri heil- brigðisþjónustu og þar með talið aðstoð sálfræðinga og sérfræðinga í fíknsjúkdómum. Dómsmálaráðu- neytið hyggst hrinda í framkvæmd og fylgja eftir aðgerðaáætlun sem í meg- indráttum snýst um að efla heilbrigðisþjónustu við fanga og tryggja markvissa og samhæfða framkvæmd þjónustunnar. Sérstök áhersla verður lögð á að efla geðheil- brigðisþjónustu og skilgreina verklag í innri starfsemi fangelsanna vegna breytinga á heil- brigðisþjónustunni. Ráðist verður í aðgerðir til að sporna gegn dreifingu og neyslu vímuefna á Litla-Hrauni. Þessum markmiðum fylgir aukið fjármagn. Starfsfólk fangelsanna hefur unnið þrekvirki við þröngan kost, en meira þarf til að koma. Ítrekað hefur verið sýnt fram á að stór hluti þeirra sem lenda á glapstigu hefur orðið fyrir áföllum sem nauðsynlegt er að vinna úr. Samkvæmt nýlegri rannsókn glíma tæplega 60% prósent fanga í íslenskum fangelsum við vímuefnavanda. Um sjötíu prósent eiga sögu um slíkan vanda. Hátt hlutfall fanga er með ADHD og annars konar vanþroskatengd vandamál, sem þarfnast meðferðar fag- manna. Fangelsismálastjóri hefur sagt í fjölmiðlum að það sé augljóst öllum þeim sem þekkja til í fangelsunum að flestir, ef ekki allir, sem sitja í fangelsi eigi við einhvers konar fíkni- vanda að stríða. Það verður að hjálpa því fólki sem glímir við slíkan vanda. Langflestir glæpir eru framdir undir áhrifum fíkniefna. Ef unnt væri að grípa inn í og koma fólki á beinu brautina væri hægt að fækka af- brotum og þar af leiðandi endurkomum í fang- elsin. Endurkoma fanga, sem í flestum tilfellum eru ungir karlmenn, er ekki bara vandamál þess sem dæmdur er til refsivistar heldur samfélags- ins alls. Um helmingur þeirra fanga sem afplána í fangelsum landsins hefur áður mátt sæta fang- elsisvist. Beinn kostnaður við hvern fanga er tæplega tíu milljónir króna á ári. Það er allt fyrir utan þá óhamingju sem fangelsisvistin kallar yf- ir fangana sjálfa og fjölskyldur þeirra. Frelsissvipting er afar íþyngjandi aðgerð og henni fylgir mikil ábyrgð. Stjórnvöldum ber að standa undir þeirri ábyrgð og gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess að tryggja að raun- veruleg betrun eigi sér stað í fangelsum lands- ins. Með aðstoð fagmanna fáum við betra fólk út úr fangelsunum en gekk þangað inn. Fagmennirnir geta vonandi fært fólki verkfæri til að tak- ast á við lífið utan veggja fangelsanna. Það er til mikils að vinna. Fangelsi er ekki geymslustaður fyrir fólk sem við höfum ekki burði til að sinna. Fangar þurfa tækifæri til að komast aftur á beinu brautina; með eitthvað í farteskinu út í lífið. Skapa þarf skilyrði til þess að þeir geti orðið virkir sam- félagsþegnar og vonandi hamingjusamari einstaklingar að lokinni afplánun í fangelsum landsins. Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir Pistill Ekki bara geymsla Höfundur er dómsmálaráðherra. aslaugs@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Fjarskipti framtíðarinnar ogstafræn tækni eiga eftirað umbylta lífsháttum oger vitaskuld þýðingar- mikið að gildandi lög og regluverk um fjarskipti fylgi þeirri þróun nú þegar uppbygging 5G er í burðar- liðnum. Gildandi fjarskiptalög eru komin til ára sinna og hefur sam- göngu- og sveitarstjórnarráðherra lagt fram fullbúin drög að frumvarpi til nýrra laga um fjarskipti á sam- ráðsgátt stjórnvalda. Þetta er mikill lagabálkur en með honum er verið að innleiða nýjan fjarskiptapakka Evrópusambandsins í íslenskan rétt. Eitt af stærstu verkefnunum sem ráðast þarf í er uppbygging há- hraðaneta með mikla flutningsgetu og skiptir miklu hvaða reglur verða settar um aðgang að netum og þjón- ustu, úthlutun tíðna og hagnýtingu þeirra og með hvaða skilyrðum og kvöðum það verður gert. Réttilega er bent á að tíðnirétt- indi eru takmörkuð og verðmæt auðlind sem lúta forræði íslenska ríkisins innan okkar lögsögu og að- gangur að þeim verður bæði eftir- sóttur ogt verðmætur. Með lögfest- ingu tilskipunar ESB verður frjálst framsal tíðniréttinda innleitt hér á landi. Í núgildandi fjarskiptalögum er framsal tíðniréttinda óheimilt. Á þessu verður því grundvallarbreyt- ing þegar og ef frumvarpið verður að lögum eins og skylt er að gera vegna aðildar Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu. Ein meginbreytingin sem fylgir væntanlegri löggjöf er sú að al- mennt verður heimilt að framselja, lána og leigja tíðniréttindi. ,,Hugs- unin er sú að frjálst framsal tíðni- réttinda sé meginreglan, sbr. orða- lag ákvæðisins þess efnis að Póst- og fjarskiptastofnun skuli almennt ekki synja um framsal, lán eða leigu á tíðniréttindum. Þessi framsals- og lánsréttur er þannig ekki skilyrðis- laus, þar sem viðtakandi rétthafi þarf að vera fær um að yfirtaka þær skyldur og skuldbindingar sem kveðið er á um í viðkomandi tíðni- heimild og eftir atvikum í skilmálum fyrir úthlutun heimildarinnar, auk þess að vera skráð fjarskiptafyrir- tæki hér á landi,“ segir í skýringum frumvarpsdraganna. Boðaðar eru mótvægisaðgerðir til ,,að koma í veg fyrir að tíðniréttindi safnist fyrir á fárra hendur […].“ Bent er á að ljóst sé að að- gangur að tíðniréttindum geti haft veruleg áhrif á samkeppnisstöðu að- ila sem starfa á mörkuðum fyrir þráðlausa fjarskiptaþjónustu. Sífelld aukning á gagnamagni á farnetum kalli á meiri og stærri úthlutanir á tíðnisviðum og það geti verið kapps- mál fyrir fjarskiptafyrirtæki að hafa aðgang að nægu tíðnisviði. Póst- og fjarskiptastofnun er heimilt að viðhafa uppboð við út- hlutun tíðna og er heimild til gjald- töku aðlindagjalds við úthlutun tíðna í upphafi ef efnt er til uppboðs. Á árunum 2022-2023 mun gildistími fjölmargra tíðniheimilda renna út. ,,Nú liggur fyrir að tíðniheimildir sem verður endurúthlutað á árunum 2022-2023 verða notaðar fyrir 5G þjónustu,“ segir m.a. um þetta. Gert er ráð fyrir að teknar verði 3,5 milljónir fyrir hvert út- hlutað MHz fyrir tíðniheimildir á 800 og 900 MHz tíðnisviðunum og ein milljón fyrir hvert úthlutað MHz á 1800 og 2100 MHz-tíðnisviðunum. Það myndi þýða miðað við stöðu þriggja stærstu núverandi fjar- skiptafélaga og tíðnirétthafa að gjaldtakan skiptist þannig að Nova þyrfti að greiða 150 millj. kr., Voda- fone 290 millj. kr. og Síminn 203,6 millj. kr., sem rynnu í fjarskipta- sjóð. Frjálst framsal tíðni- réttinda verði innleitt Morgunblaðið/Ómar Símar á lofti Byggja á upp þéttriðið háhraðanet fyrir 5G. Í frumvarpinu er sagt fyrirséð að Ísland verði gígabita-samfélag um miðjan næsta áratug. Neyðarnúmerið 112 verður áfram notað hér á landi fyrir neyðar- og öryggisþjónustu eft- ir væntanlegar breytingar á fjarskiptalöggjöfinni en innleiða þarf tvö samræmd evrópsk númer; 116000, sem er ábend- ingarlína vegna tilkynninga um börn sem er saknað og hins vegar númerið 116111, sem er hugsað sem hjálparsími fyrir börn ,,sem þurfa umhyggju og vernd við tilteknar aðstæður sem barnið finnur sig í“, eins og það er orðað. Póst- og fjar- skiptastofnun verður gert að innleiða stuttnúmerin tvö, ábendingarsímann og neyðar- númerið. Fram kemur að gert er ráð fyrir að viðbúið sé að Neyðar- línan sinni áfram þessum verk- efnum eins og hún hefur gert og jafnframt segir að gert sé ráð fyrir að símsvörun verði sömu- leiðis í höndum neyðarvarða sem hafa hlotið þjálfun í sam- skiptum við fólk í erfiðum að- stæðum, þ.m.t. börn. Hjálparsími fyrir börn 116000 OG 116111

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.